Nýr haus og myndir

Stutt færsla. Við erum komin með nýjan haus á síðuna og aftur er það Kristinn Geir Pálsson, sem á heiðurinn. Carra er núna kominn á hausinn á Liverpool blogginu.

Einnig, ég setti inn [myndir úr ferð okkar bloggarana til Liverpool um síðustu helgi](http://www.flickr.com/photos/einarorn/sets/72157594577764711/) fyrir þá sem hafa áhuga.

15 Comments

  1. Það þarf að breyta um haus aftur í maí þegar við verðum búinn að bæta 6. stjörnunni við fyrir neðan Liverpool merkið.

  2. Flottur haus – reyndar mætti Carra vera í fókus og í réttu hlutfalli við Gerrard

  3. já … bætum við stjörnum eins og þarf, en þessi mynd var sú besta sem ég fann af kallinum !!!

  4. Flottur haus og góðar myndir úr ferðinni, greinilegt að þetta hlýtur að hafa verið mesta skemmtun.

  5. Ef þið sjáið ekki hausinn þurfið þið að endurhlaða síðuna, eða ýta á “Refresh.”

    Og já, þessar myndir eru snilld. 🙂

  6. Mér finnst þið ekki fá þetta nógu oft, en þetta er algjör snilldarsíða. Takk fyrir mig.

  7. já næsta umferð með nýrri mynd gæti verið svona Hot-Latino-Salsa-þema … Reina, Benitez og kannski Luis Garcia … allt miklir snillingar og fjallmyndarlegir menn :biggrin:

  8. Skemmtilegar ferðmyndirnar hjá ykkur. Einnig er stórkostlegt að þið hafið akkurtat náð að smella mynd af þegar Liverpool fóru í sóknina sína.

  9. Þú vilt sem sagt meina að Liverpool hafi farið í eina 87 mínútna sókn? Ekki gefur þú Man U mikið kredit, finnst þeir eiga nú aðeins meira skilið, þótt þeir hafi verið slakir.

Meiðsli hjá PSV: Alex úr leik?

Man U – vs. Evrópuúrval