Héðan og þaðan (uppfært x3: Leto og Padelli koma!) – Garcia frá út tímabilið

Ég bara verð að byrja daginn á að fá nýja færslu efst á síðuna. En allavega, við erum enn að fá fréttir af eftirmála leiksins í gær: Stephen Warnock kveinkaði sér í baki eftir árás Jeremie Aliadiere í gær en er heill heilsu í dag, á meðan hinir tveir, Luis García og Mark Gonzalez, fara í frekari skoðanir í dag þar sem ræðst hversu lengi þeir verða frá. En það verður víst talsvert lengi, úr því að Rafa á að hafa sagt í gær að Harry Kewell verði orðinn leikfær á undan þeim báðum.

Þótt Warnock sé heill er ekki víst að hann verði mikið lengur á Anfield, þar sem hann er víst orðinn bitbein Liverpool og Blackburn í kaupsamningnum um Lucas Neill. Upphaflega var talið að þetta væri að tefjast af því að Blackburn væru tregir til að þiggja Warnock í beinum skiptum við Neill, sem á fimm mánuði eftir af samningi sínum, en nú benda fregnir til þess að þetta sé að tefjast vegna þess að við séum að heimta Neill og 500,000 pund í stað Warnock. Skrýtið. Almennt held ég að Neill sé dýrari leikmaður en af því að hann á svo stutt eftir af samningi er Warnock sennilega metinn á meira í dag. Samt, ef það er það sem þarf til finnst mér að menn eigi að sleppa þessum 500kalli og þiggja bara bein skipti, við þurfum Neill inn í þetta lið og það eins og skot!

Svo erum við víst við það að kaupa ungan argentínumann, miðjumann að nafni Sebastián Eduardo Leto, frá klúbbnum Lanús. Ég veit ekkert um manninn né klúbbinn hans, en hann er tvítugur og metinn á 1.85m punda, þannig að kannski er eitthvað varið í hann. Eins og kom skýrt fram í gær þurfum við á talsvert betri ungliðum að halda til að þrýsta á aðalliðið, það gengur ekki að á meðan Arsenal getur kallað á menn eins og Walcott, Djorou og Denilson inn í sitt lið skuli okkar bjartasta von í dag vera Danny Guthrie, með fullri virðingu fyrir honum.

Einn leikmaður sem ég vona í laumi að við kaupum er Ashley Young frá Watford. Þeir eru víst búnir að ákveða að selja hann hæstbjóðanda í næstu viku, en sem stendur eru Tottenham að reyna að prútta við þá um leikmannaskipti auk þess sem Aston Villa hafa boðið meira en Liverpool, þannig að þetta er ekki líklegt eins og stendur. En það gæti þó breyst.

Sváfu menn ekki annars vel? 🙂


Uppfært – 10:00 (KAR): Hinn ungi, argentínski Leto hefur staðfest komu sína til Liverpool. Hann fær að vera á láni hjá Lanús út tímabilið og kemur í sumar. Sjálfur segir hann um málið:

>”I am calm. Liverpool is a club with a lot of history. I do not fear the challenge. I’ve not spoken with (Rafa) Benitez, although I’ve seen a lot of Premiership matches on television. I’m a winger who likes to counter-attack. I don’t anticipate struggling to adapt to life in England.”

Flott hjá honum. Fyrsti nýji leikmaður sumarsins er kominn í ljós, en eins og ég sagði hér að ofan er erfitt að vera spenntur fyrir leikmanni sem maður veit ekkert um. Við dæmum hann þegar hann er mættur og byrjaður að spila fyrir okkur.


Uppfært – 10:28 (KAR): Ókei, þetta gerist greinilega hratt í dag. Fyrir hálftíma bárust fréttir af því að við hefðum keypt ungan, argentínskan kantmann sem kemur til liðsins í sumar og nú hefur BBC fréttir af því að við séum búnir að fá lánaðan Daniele Padelli, 21s árs gamlan ítalskan markvörð Sampdoria. Sagt er að hann komi á láni fram á sumarið með möguleika á kaupum þá, þannig að væntanlega vill Rafa meta hann betur áður en hann ákveður sig endanlega. Ætli þetta þýði ekki að tími Dudeks sé endanlega liðinn? Ég get ímyndað mér að þessi Padelli, sem er markvörður ítalska U-21 landsliðsins, gæti fengið leiki fram yfir Dudek í deildinni í vor ef að Reina meiðist eða lendir í leikbanni.

Tveir ungir leikmenn til liðsins í dag. Við sáum stórt vandamál í uppbyggingu klúbbsins í gær og það er greinilegt að Rafa hefur séð það líka og er að vinna úr lausn vandans.


Uppfært – 16:36 (HÞH): Ákvað að reita Kristján ekkert til reiðis með nýrri færslu 🙂

Í það minnsta verður Luis Garcia frá út tímabilið vegna meiðsla. Þetta eru auðvitað skelfileg tíðindi fyrir okkur þar sem hann er mikilvægur hlekkur í liðinu og sérstaklega í Meistaradeildinni þar sem við eigum tvo stórleiki fyir höndum, þar sem Luis Garcia sýnir yfirleitt sýnar bestu hliðar.

Mark Gonzalez verður svo frá í þrjár vikur.

Það er því ljóst að Riise er ekkert að fara að missa byrjunarliðssæti sitt á næstunni. Hann og Aurelio verða væntanlega á vinstri kantinum næsta mánuðinn eða svo, þar til Gonzalez er tilbúinn að koma inn. Ég veit reyndar ekki nákvæmlega hvenær Kewell snýr aftur en það eru væntanlega nokkrar vikur í það.

Hvað gerir Rafa eiginlega eftir að hafa misst Garcia? Ætli hann vilji fá einhvern lánaðan út tímabilið, einhvern kantmann? Ég veit ekki… David Beckham er víst á lausu 🙂 En hann er ekkert að koma til Liverpool….

14 Comments

  1. Ó jú kæri Kristján og takk fyrir þessa færslu. Ég var og er í Færeyjum núna og sá ekki leikinn vegna vinnu og er í því í góðum “sköpum” í dag heheh.

    Avanti Liverpool

  2. Aggi, ég tók út þína færslu um Padelli þar sem ég var þegar búinn að uppfæra þessa færslu með sömu upplýsingum. Þér er vonandi sama. :blush:

    Annars líka fínt að halda umræðunni um þessi kaup í dag í sama þræðinum ef hægt er, svo að hún fari ekki út um allt. 😉

  3. Já sá það og kórrétt…

    Ég ætla að finna eitthvað um þessa drengi!

    Padelli er 21 árs gamall (fæddur: 25.10.1985) og hefur verið í láni frá Sampdoria síðustu tvö ár. Hann er um 190 cm á hæð og um 85 kg.

    Leto er 20 ára gamall (fæddur: 30.8.1896) og hefur allan sinn feril verið í Lanús. Hann er örvfættur og frekar hávaxinn eða um 188 cm.

    Hvorugur þeirra á A eða yngri landsleiki með sínum löndum.

    Svo er bara að vona að þessir drengir geti eitthvað!

  4. Haha, Friðgeir ég tók ekki eftir þessu þegar ég las þetta fyrst. Það er vert að taka fram að hinn hundrað og tíu ára gamli Leto hefur spilað 138 þúsund leiki fyrir lið sitt. :laugh:

  5. Ég skil ekki alveg þetta með Neill. Mér finnst þetta bara sæmilegur bakvörður og ekkert meir. Að Liverpool “þurfi” Neil inn í liðið er aðeins of sterkt tekið til orða. Persónulega finnst mér Warnock mun betri bakvörður en Neil og á þess vegna að vera dýrari. Gleymi því ekki á HM þegar Neil fór í Grosso og henti sér niður með bakið í manninn og fékk á sig víti.

    Við þurfum ekki fleiri meðal leikmenn frá Blackburn.

  6. :shock:Við skulum vona að benites gangi betur að manna kjúklingaliðið sitt með kaupum sínum þó Leto þessi virðist kjúlli í eldri kantinum. Þá á ég við “betur” en kaupin inn í aðalliðið sem hafa verið ansi mistæk sum hver. Einu kaupin sem ég er verulega sáttur við hjá honum eru Alonso og Kátur framherji og svo á Agger eftir að verða góður. Ennþá hefur afar lítið komið út úr mönnum eins og Aurelio, Mark Gonzalez, Bellamy, Palletta o.s.frv. Bellamy er að vísu búin að skora ein 3 – 4 mörk á undanförnum vikum en sem framherji er hann ekki að skila því sem framherji, í liði eins og Liverpool vill vera, á að gera. Þetta segir mér það sem liggur í augum uppi aðbenites er ekki að gera neinar rósir á neinu sviði í enska boltanum. Því spyr ég. HVAÐ ER SVONA FRÁBÆRT VIÐ ÞENNAN MANN?????

  7. Jamm, er Benítes enn að kaupa unga menn sem enginn hefur heyrt um, allir voða spenntir og eflaust stórstjörnur í fæðingu!!!, held bara ekki. Hvað með alla ungu mennina sem hann Benítes hefur verið að sanka að sér, þeir geta meira og minna ekki neitt. Hvað fannst ykkur td með seinni Arsenal leikinn ef við berum saman ungu mennina okkar og ungu mennina þeirra. Menn voru nú heldur betur spenntir yfir Palletta, Gonzales og framv.
    Ég er orðin dauðleiður á þessu bulli og þessum kjúklingakaupum á einhverjum sem aldrei eiga eftir að geta rassgat. Farðu að styrkja aðalliðið með alvöru mönnum spænski sauður. Menn hér verða svo bara að fyrirgefa mér en ég er ekki neitt voða sáttur þessa dagana frekar en aðrir stuðningsmenn Liverpool.

  8. Djöfull verður þessi síða leiðinleg eftir tapleiki. Ég byrjaði að svara einhverjum kommentum, en svo hætti ég við. Ég nenni einfaldlega ekki að standa í því að skrifa hérna inn þegar allir eru í svona fáránlegu skítkasti og þunglyndi.

    Það að fylgjast með fótbolta á að vera gaman, en það er einsog sumir hérna vakni ekki til lífsins fyrr en það gengur illa og þá skrifa þeir inn fimm komment á dag þar sem tönglast er á því hvað allt sé ömurlegt.

    Í einu orði vilja menn að Benitez kaupi fleiri unga leikmenn, og svo í því næsta kvarta þeir yfir því að þeir séu ekki nógu þekktir og að ungu leikmennirnir blómstri ekki eftir 5 mánuði (einsog t.d. með Paletta). Fyrir það fyrsta, hvaða fokking hugmynd hafið þið um argentíska boltann?

    Og í öðru lagi: Hversu marga tugi ungra leikmanna hefur Wenger þurft að kaupa og hversu margir þeirra skila sér í aðalliðið? Wenger er búinn að vera hjá Arsenal í næstum því áratug, Benitez í tvö ár. Það að skamma Benitez fyrir að unglingastarfið sé ekki að skila neinu er náttúrulega gjörsamlega fáránlegt. Hann þarf tíma til að byggja upp og það sem mun taka lengstan tíma er að byggja upp starf sem skilar af sér ungum og efnilegum leikmönnum.

    Hvað er að fólki sem gefst upp á Palletta (sem hefur spilað hvað 4 leiki fyrir Liverpool) og Gonzalez (sem er að koma í nýja deild og er búinn að vera meiddur allavegana tvisvar)?

  9. Hvað er að fólki sem gefst upp á Palletta (sem hefur spilað hvað 4 leiki fyrir Liverpool) og Gonzalez (sem er að koma í nýja deild og er búinn að vera meiddur allavegana tvisvar)?

    Það er ekkert að þessu fólki, Einar Örn. Það einfaldlega veit (greinilega) meira um fótbolta en Benitez (enda hvað hefur hann gert af viti í gegnum tíðina?) :confused: Það veit sem er að öll kaup Wenger á ungliðum í gegnum tíðina hafa verið frábær og vel heppnuð, og að allir spruttu þeir fram fullskapaðir í fyrsta leik.

    En annars að allri kaldhæðni slepptri þá sá ég á Liverpool Echo í dag alveg hreint magnaða staðreynd, að ef Almunia var undanskilinn var meðalaldur Arsenal um 19 ár… Það er nokkuð ógnvekjandi.

  10. Tek undir með Einari gefum Benitez smá tíma með liðið áður en allt er stimplað vonlaust. Að reka Benitez eins og sumir hafa verið að tala um er einhver mesta vitleysa sem ég hef heyrt í langan tíma. Benitez er rétti maðurinn fyrir Liverpool.

    Það er þó í lagi að gagnrýna hann og hans leikmennn ef menn halda sig réttu megin við línuna og koma með góð rök fyri þeirri gagnrýni.

    Persónulega finnst mér þessi síða vera lang skemmtilegasta LFC síðan á netinu í dag og lít reglulega inn á hana til að lesa góðar greinar eða rökræða um liðið okkar.

    Því miður hefur borið á því á síðustu mánuðum að misgáfaðir menn hafa aukið heimsóknir sínar á þessu frábæru síðu, er það miður. Ástæða þess að ég gafst upp á spjallborðum Liverpool.is var sú að CM (eða FM) strákar voru að yfirtaka síðuna, drengir sem gera ekki greinamun á tölvuleik og raunveruleikanum.

    Snúum okkur að pælingunum hér að ofan.

    Eins og staðan er í dag á mannskap LFC þá vil ég síður að Warnock sé seldur núna í janúar glugganum. Ástæðan er sú að nú er Garcia frá út tímabilið, Kewell er eitt stórt ? og ólíklegt að hann láti mikið af sér kveða á þessu tímabili, ef hann yfir höfuð nær sér góðum aftur.

    Þá á liðið bara Riise, Aurelio leikfæra á vinstri helmingi vallarins. Gonzalez er meiddur en á að vera leikfær eftir 3 vikur. Aurelio og Gonzalez eru ennþá að aðlagast og hafa ekki fundið sitt rétta form í búningi Liverpool. EF Riise meiðist eins og gerðist í byrjun tímabilsins þá höfum við tvo leikmenn í liðinu sem ekki eru að spila sinn besta bolta, reyndar er Riise líka búinn að vera að spila undir pari.

    Ég geri mér grein fyrir að Lucas Neill kemur í staðin ef Warnock verður seldur, en hann er ekki vinstri bakvörður að upplagi heldur fyrst og fremst hægri bakvörður, það er hans sterkasta staða.

    Það er alltaf jákvætt að kaupa unga og efnilega leikmenn en ég set samt spurningu við verðið á honum. Þetta er leikmaður með enga landsleiki(yngri) á bakinu en er verðlagður á 1.85 millj. Oftast er það góður mælikvarði á getu leikmanna hvort þeir séu að spila fyrir landslið sinna þjóða.

    Krizzi

  11. Já það er auðvelt að gagnrýna leik Liverpool og Benítez eftir tapleiki héðan frá Íslandi.

    Það sem Benítez hefur fram yfir þá spekinga sem blása hvað hæst er að hann veit hvað er að gerast hjá leikmönnum. Hver er tæpur vegna meiðsla, hver er góður á æfingum, hver vinnur vel fyrir liðið, hver er efnilegur ofr.
    Síðan þarf hann að stilla upp liðið FYRIR leiki en ekki eftir þá eins og spekingarnir gera, ég er viss um að hann myndi stilla upp liðinu öðruvísi ef hann gæti gert það eftir leiki.

    Fyrir utan allt þetta þá veit Benítez margfalt meira um fótbolta en nokkur maður sem hefur skrifað staf inn á þetta spjall….líka þeir sem ofmetnast í Manager.

    ….og hann ER búinn að gera mjög góða hluti með Liverpool. Að segja annað er fáránlegt.

  12. hehehe já klaufi ég…

    Var að mæta til Köben og var að sjá þessi mistök hjá mér.

    Hins vegar afar slæmt að missa Garcia… ljóst að Rafa þarf að bregðast við þessu og styrkja liðið fyrir komandi átök þe. deildin og CL!

Liverpool 3 – Arsenal 6

Garcia frá út tímabilið