Skoskur strákur á leiðinni?

Samkvæmt Chris Bascombe er Rafa Benitez mjög spenntur fyrir því að kaupa 16 ára skoskan strák, James McCarthy. Bascombe segir:

>Manager Rafa Benitez was so impressed with the teenager, he is now keen to conclude a deal as quickly as possible, but he’s also aware of interest from a host of other top clubs preparing to swoop when the transfer window opens.

>Because of his age, interested clubs may have to only pay compensation of around £100,000.

Man U eru líka á eftir McCarthy, en Bascombe heldur því fram að Skotinn ungi vilji frekar fara til Liverpool. Einnig hafa lið einsog Barcelona sýnt áhuga á stráknum, sem er sóknarsinnaður miðjumaður.

3 Comments

  1. Ég veit nákvæmlega ekki neitt um kauða, en ég verð að segja að það er akkúrat í svona kaupum og kjörum sem klúbburinn getur náð forskoti á aðra samkeppnisaðila, svipað og Arsenal hefur verið að gera. Með því að ná í unga og efnilega leikmenn á meðan þeir eru ungir og efnilegir, þannig að þeir kosta engar fúlgur og geta borgað sig margfalt ef þeir slá í gegn.

  2. Þetta hefur bara ekki verið að skila sér í aðalliðið, því miður. Annars líst mér vel á að fá skota í Liverpool. Spurning hvort hann ætti samt ekki meiri möguleika á að komast í aðallið Man U?

  3. Ef ég man rétt þá hefur verið skoti í liverpool liðinu í öll skipti sem liverpool hefur sigrað deildina…
    Kannski er þetta bull í mér en mig rámar í þetta og kannski er einhver þarna úti sem veit þetta nákvæmlega…

Bolton á morgun

Gleðilegt ár!