Blackburn á morgun!

blackburn_v_liverpool.gifGleðileg jól öllsömul!

Vonandi hafið þið étið yfir ykkur um hátíðina, og enn meira á leiðinni. Þó veit ég um nokkra sem hafa borðað litla skammta síðustu daga, því okkar menn í Liverpool heimsækja Blackburn Rovers í Úrvalsdeildinni á morgun. Fyrir leikinn eru okkar menn í þriðja sætinu með 34 stig eftir 19 umferðir (mótið hálfnað) en Blackburn eru í því sautjánda með nítján stig og í bullandi fallhættu. Hvað svo sem má segja um jólaandann er því alveg ljóst að þeir bláhvítu munu vera mjög grimmir á morgun.

Ein stór spurning sem hlýtur að vekja forvitni margra er hvort að fyrirliði Blackburn, Lucas Neill, muni spila. Ef við trúum sögusögnunum eru innan við tvær vikur þangað til hann verður orðinn leikmaður Liverpool og því gæti í það minnsta verið áhugavert að fylgjast með honum mæta okkur á morgun.

Þá mun Craig Bellamy mæta sínum gömlu félögum aftur á morgun og í fyrsta skipti á Ewood Park eftir að hann skipti um félag í sumar. Hann lék gegn Blackburn-liðinu á Anfield í miðjum október en þá lék liðið illa og Bellamy þurfti að bjarga jafntefli fyrir okkur með fyrsta Úrvalsdeildarmarki sínu fyrir Liverpool. Síðan þá hefur bæði liðið og Bellamy hrokkið allsvakalega í gang og í dag er hann heitasti framherji á Englandi og Liverpool á mestu sigurhrinu allra liða í deildinni. Spurningin er svo bara hvort að bæði haldi áfram á morgun.

Ég held að Rafa geri lágmarksbreytingar á liðinu fyrir morgundaginn. Það er ljóst að hann þarf að rótera eitthvað, aðeins þremur dögum eftir Watford-leikinn og stutt í leiki við Tottenham og Bolton, en ég held að hann reyni að halda því í lágmarki. Ég gæti séð Sami Hyypiä og Peter Crouch fyrir mér koma inní þennan leik fyrir Daniel Agger og Dirk Kuyt, en meira er það ekki í bili.

Liðið ætti því að líta nokkurn veginn svona út:

Reina

Finnan – Carragher – Hyypiä – Riise

Pennant – Gerrard – Alonso – Luis García

Crouch – Bellamy

BEKKUR: Dudek, Agger, Aurelio, Gonzalez, Kuyt.

Agger gæti alveg eins spilað og Hyypiä en ég held að Rafa velji reynsluna í þennan erfiða útileik, á meðan hann þarf að hvíla Kuyt á morgun til að eiga hann inni gegn Tottenham, en hann skoraði tvennu gegn þeim í september á Anfield. Bellamy spilar að sjálfsögðu á morgun þar sem Blackburn-menn munu pressa okkur og hann nýtist best í þannig leikjum.

MÍN SPÁ: Þótt við viljum að liðið vinni helst hvern einasta leik og jafnvel þótt það sé á blússandi siglingu um þessar mundir held ég að þetta sé leikur sem liðið gæti hæglega gert jafntefli í, og jafnvel tapað. Þetta verður í alla staði jafn leikur og við höfum oftar en ekki farið með eitt stig frá Ewood Park.

Ég spái því að okkar menn muni vinna 2-1 sigur eftir að lenda undir á morgun, en það verður enginn annar en Peter Crouch sem slær í gegn á morgun með tvennu! Þetta held ég og af því að það eru jólin ætlast ég til að fá þetta í jólagjöf!

Gleðilega hátíð … og áfram Liverpool! 🙂

15 Comments

  1. Voru það ekki Kuyt, Gonsalez og Riise sem skoruðu á móti Tottenham í sept?

  2. Rétt Gummi.
    Eins gott að liðið gefi okkur þennan sigur sem síðbúna jólagjöf! :biggrin2:

  3. Bellamy er að standa sig Mjög vel þessa dagana
    vonum að hann skori 2 á morgun :biggrin:
    hó hó hó

  4. :smile:Þetta verður erfiður leikur en vonum það besta. Liðið er búið að vera á feikna siglingu undanfarið og ekki óeðlilegt að einhverntíma slái í bakseglin. Spái samt 2 – 1 fyrir okkar menn. 🙂 Svo vil ég þakka umsjónarmönnum þessarar síðu frá bær störf og óska þeim gleðilegra jóla og farsældar á komandi meistaraárum :laugh:. Gleðileg jól allir LFC aðdáendur og áfram Liverpool 🙂

  5. 3-0 Liverpool ekki spurning 🙂
    Gleðileg jól strákar og takk fyrir góða síðu.

  6. 3-0 Liverpool ekki spurning 🙂
    Gleðileg jól strákar og takk fyrir góða síðu.

  7. haha – Bellamy er búinn að skora fimm mörk í jafnmörgum leikjum í Úrvalsdeildinni í desember. Veist þú um einhvern sem er líklegri til að vinna verðlaun sem leikmaður mánaðarins en hann? Mér þætti gaman að vita það.

  8. Ég sá að hluta til Blackburn spila á útivelli gegn Arsenal og ef þeir spila eitthvað nálægt því og þeir gerðu í þessum leik þá TAPA ÞEIR stórt!

    Þeir gátu nákvæmlega EKKERT! Við verðum að vinna þenna leik og halda tempóinu áfram.

    Varðandi byrjunarliðið þá tel ég mjög líklegt að Gonzalez fari inn á kantinn, Aurelio komi inn fyrir Riise, Kuyt út fyrir Crouch og Pennant út og Garcia færi sig yfir á hægri kantinn. Svo gæti Hyypia komið inn og þá jafnvel fyrir Carra, hann þarf einnig hvíld 🙂

    Áfram Liverpool!

  9. ég held að liðið verði eins og í leiknum á móti watford nema þá að aurelio komi inn fyrir riise og pennant fyrir garcia, ég held að það verði einu breytingarnar á morgun.. og ekki meigum við vera minni menn en arsenal… við vinnum 6-1!!! haha 😉

  10. Mér finnst vera orðin verulega þunn lína á milli þess að vera heitasti framherjinn í deildinni og sá lélegasti. Það er hreinlega hraunað yfir Bellamy fyrir að skora ekki og spilar ekki alveg eftir sínum standard. Svo klikkar hann í gang (gerir fáein mörk og spilar bara ekkert ólíkt því sem hann hefur gert…bara klárar færin sín) og þá er hann besti síðan Kenny Dalglish….eða nánast! Bollocks segi ég bara!

  11. eikifr – ekki snúa út úr orðum mínum. Ég sagði aldrei að hann væri bestur í dag, ég sagði einfaldlega að hann væri heitastur. Sem hann er, hann er búinn að skora mest í desember og hlýtur að teljast líklegur leikmaður mánaðarins. Hann er ekki besti leikmaðurinn í boltanum í dag en hann er heitastur. Það er munur þar á.

  12. veit einhver hvort leikurinn verði endursýndur á skjásporti í kvöld? Ég neyðist til að fara í jólaboð í dag og missi því af leiknum 😡

  13. Þessi leikur verður erfiðari en menm halda hérna, Blackburn eru sárir eftir síðasta leik og vilja án efa rétta sinn hlut. Þetta verður algert hark eða algert bust hjá okkur.

    Garcia verður að taka sig saman í andlitinu og sé ég hann alls ekki fyrir mér byrja á morgun. Garcia var alveg skelfilegur í síðasta leik, bara eins og 5. flokks strákur á köflum. Speedy byrjar fyrir hann.

    Bellamy setur hann í leiknum en lendir svo í tönnunum á Robbie Savagae og neyðist Rafa þá til að taka hann útaf áður en Bellamy gerir einhverja vitleysu. Rétt hjá Kristjáni Atla að Bellamy er (skap)heitasti framherjinn í dag. En leikmaður mánaðarins er án efa Drogba Kritján Atli, það vita allir sem fylgjast með þessu.

    Go liverpool.

Árið hans Crouchy

Liðið gegn Blackburn