Jólatörn og næstu leikir

Það er ekkert smá magn af leikjum framundan. Ég tók svipaðar pælingar þann 10. október s.l. og verð ég seint talinn sannspár maður (allavega í það skiptið). Ég hreinlega vildi ekki á nokkurn hátt hugsa fram á veginn með því hugarfari að við yrðum jafn hræðilegir á útivöllum og raunin varð á. Ég spáði fyrir um rétta stigatölu úr 6 leikjum, en 4 fóru á annan veg. Ég er þrjóskur maður með eindæmum og læt því þetta akkúrat ekkert stoppa mig í að gera slíkan pistil á ný og reyna að athuga hvort ég grísa betur á þetta núna. Auðvitað veit enginn hvernig þetta kemur til með að fara, en spár og spekúlasjónir eru jú stór hluti af boltanum og gerir þetta bara enn skemmtilegra. Tökum næstu 10 leiki fyrir (bæði deildarleiki og einnig bikar/Arsenal leiki):

23.des Watford heima (EPL)
Algjör skyldusigur og við ættum hreinlega að fara fram á að laga markahlutfall okkar enn nú meira í leiðinni.
3. Stig

26.des. Blackburn úti (EPL)
Öllu erfiðari leikur, en ef við höldum uppteknum hætti og menn taka áfram það sjálfstraust sem nú þegar er komið í liðið, þá eigum við að taka 3. Stig úr leiknum. Blackburn komu og héngu á jafntefli á Anfield, en ég vil hreinlega ekki taka það í mál að við hefnum ekki fyrir það á Ewood Park, sem er jafn steindauður og gamli Library var.

30.des. Tottenham úti (EPL)
Líklega erfiðast að spá fyrir um þennan leik af þessum 10 sem framundan eru. Tottenham eru gjörsamlega óútreiknanlegir. Þeir geta spilað fanta vel einn daginn, en verið eins og algjörir amatörar þann næsta. Þeir eru þó yfirleitt öflugir heim að sækja, og það verður að viðurkennast að White Hart Lane hefur ekki alltaf reynst okkur góður. Ætla að spá því að við náum jafntefli í þessum leik.
1. Stig

1.jan. Bolton heima (EPL)
Sigur, sigur, sigur. Leiðinlegasta lið deildarinnar í heimsókn og við hreinlega verðum að vinna þá. Anfield er Anfield og Bolton er Bolton. Þetta verður bara klárað, svo einfalt er það. Mér er alveg sama hvað Big (mouth) Sam segir, þeir eru hundleiðinlegir og hlakka ég alltaf til þegar dómarinn flautar til leiksloka þegar ég þarf að horfa á þá spila. Svo voru menn svekktir yfir því að Sammy boy hafi ekki fengið landsliðsþjálfarastöðuna? Hvað átti hann að gera með hana? Ekki fær hann útbrunna harðjaxla sem hafa spilað fyrir önnur landslið, til að spila fyrir England. Nei, sem betur fer (fyrir hönd enskra félaga okkar) var frekar farið í næst lélegasta kostinn.
3. Stig takk

6.jan. Arsenal heima (FA Cup)
Arsenal mun stilla upp sínum kanónum í þessum leik og hvíla síðan í þeim næsta. Þeir hafa átt eitt sameiginlegt með okkar liði, og það er að vera oft á tíðum ósannfærandi á útivöllum. Fékk góða tilfinningu fyrir þessum drætti um leið og ég sá að spilað yrði á Anfield og það hefur ekkert fengið mig til að breyta því. Hef því fulla trú á að við ryðjum þeim úr vegi.
Sigur

9.jan. Arsenal heima (CC Cup)
Já, nei. Gerði engin C/P mistök hérna. Við verðum búnir að sjá ansi mikið af þessu Arsenal liði eftir þetta tímabil. Ef spá mín gengur ekki eftir í FA leiknum, og jafntefli yrði, þá myndi enn einn leikurinn bætast við og það þann 16 janúar ef mig minnir rétt. Við eigum einnig möguleika á að mæta þeim í næstu umferð Meistaradeildarinnar, ef bæði lið komast þar áfram. En ég hef nú svo sem ekki áhyggjur af því, enda mætum við Chelsea þar ef bæði lið komast áfram. En nóg um það. Við vinnum þennan CC Cup leik örugglega. Wenger mun stilla upp undir 10 ára liði Arsenal í leiknum, enda nýbúnir að leggja mikla orku í að tapa fyrir okkur í FA bikarnum.
Sigur

13.jan. Watford úti (EPL)
Watford á ekkert heima í þessari deild og við munum sýna þeim það í þessum leik. Örugg þrjú stig þrátt fyrir skotgrafarhernað.
3. Stig.

20.jan. Chelsea heima (EPL)
Mikið lifandis skelfing langar mig að segja þrjú stig hérna. Ég bara er ekki nógu viss um að það hafist. Okkar menn verða reyndar komnir á skuggalegt skrið á þessum tímapunkti, þannig að allt getur gerst. Þessi leikur gæti orðið lykilleikur um að koma okkur aftur inn í eitthvað sem gæti nálgast það að vera titilbarátta. Ég er þó hræddur um að þær vonir minnki til muna með jafntefli í þessum leik.
1. Stig

30.jan West Ham úti (EPL)
West Ham sýndu það gegn manchester united um daginn að þeir geta varist. Ég er þó á því að þeir hafi verið heppnir í þeim leik og var sigur þeirra á tæpasta vaði. Held að með eðlilegum leik eigum við alveg að hafa þetta lið og ef menn hafa í huga Cardiff frá síðasta vori, þá koma menn ekki með neitt vanmat inn á völlinn.
3. Stig

3.feb. Everton heima (EPL)
.
.
.
.
3.Stig

Það hefur nú oft komið mínum spádómum í koll að ég hreinlega spái ekki Liverpool tapi og það verður þá bara að hafa það að ég hafi ekki rétt fyrir mér. Ég er þó alveg á því að þessi spá sé ekkert alltof óraunsæ. Við erum alveg með getuna í að fara á gott skrið, enda erum við svo sannarlega búnir að vera á því síðan við gerðum í brók gegn Arsenal á útivelli forðum daga. Ég neita að gefast upp, ég er ennþá á því að ef við náum að snúa leik okkar gegn Chelsea í sigur, þá sé ekki svo fjarlægur draumur að blanda sér eitthvað í baráttuna um titilinn. En N.B. þá er ég ekki að segja að við tökum titilinn, heldur að BLANDA sér í baráttuna. Ég veit að þetta er fjarlægur draumur í dag. En ég hvet menn samt að taka tillit til innbyrðisleikja, hversu marga slíka liðin eiga á heimavelli og hversu marga á útivelli. Hversu mörg stig geta tapast í þeim leikjum. Það er aldrei of seint og maður hreinlega vill ekki missa vonina á þessum tímapunkti.

16 Comments

  1. Er flest þarna eflaust rétt. Hins vegar má ekki tapa sér í bjartsýninni, og auðvitað heldur ekki svartsýninni. Er samt að meta óþarfa bjartsýni að Liverpool muni bara tapa stigum gegn Chelsea og Tottenham. Don’t get me wrong, að auðvitað eiga þeir að vinna þessa leiki þar sem SSteinn metur 3 stig, en auðvitað áttum við þá líka að vinna Sheff Utd á útivelli og ekki að tapa 3-0 fyrir Everton svo dæmi séu nefnd. Ekki má heldur vanmeta eyðslugeta Björgólfs Guðmundssonar hjá West Ham í janúar, og Alan Curbishley bara sem knattspyrnustjóra.

    Þá tel ég að Liverpool vinni loksins Chelsea í deildinni, en tapi stigum í 1-2 af þessum leikjum, Watford (Ú), Everton og West Ham. Þá gæti annar hvor leikurinn við Arsenal líka vel endað með jafntefli.

  2. Ég veit ekki með ykkur en ég geng að því vísu að við förum í alla leiki með 3 stig í huga og vil ég að allir ofantaldir leikir vinnist. Ég veit að það er alveg 5 tonn af bjartsýni í gangi á þessum bæ en þannig hefur maður verið alinn upp í gegnum tíðina sem stuðningsmaður LFC. Held samt að við fáum stig úr þeim flestum ef Rafa heldur áfram að spila á sama kjarnanum og hann hefur spilað undanfarið.

  3. Joe! Hvað er óraunsætt í þessu hjá Steina? :confused:

  4. Steini hvaða neikvæðni er þetta :rolleyes:, tvö jafntefli, á móti einhverjum hundarunkurum frá Lundúnum, 24 stig útúr þessum leikjum takk fyrir og áfram í báðum bikurunum. Með þessum úrslitum verður gaman að sjá stöðuna í byrjun febrúar.

    Come on you Reds!

  5. Ég er ekki fylgjandi því að vinna alla leiki. Mér finnst við eigum að gera jafntefli í ca. 3. hverjum leik og tapa í 9. hvert skipti. :rolleyes:

    En svona í alvöru, þá gerist það alltaf þegar svona spár fram í tímann eru settar inn að einhver kemur og segir “við eigum að fara í alla leiki til að vinna þá, við erum Liverpool! osfrvosfrv”. Kommon – þetta er SPÁ um það sem GÆTI GERST (að sjálfsögðu alltaf í bjartsýnni kantinum, sem er hið besta mál) og það væri ansi undarlegt (og óraunhæft og leiðigjarnt til lengdar) ef slíkar spár myndu alltaf gera ráð fyrir 3 stigum úr deildarleikjum og sigri í bikarkeppnum.

    SSteinn er ekki að mælast til þess að við spilum upp á jafntefli við Tottenham, heldur spá því að leikurinn gæti endað jafntefli. Geddit?

  6. Við eigum harma að hefna gegn Bolton, Arsenal, Chelsea og Everton…….

    Sigur..sigur…sigur..sigur og hana nú..nú er komið að okkar mönnum.

    P.s. Ég algjörlega fer í feitustu fýlu ársins ef við náum ekki í það minnsta að jarða Bolton og Everton á Anfield.

  7. Nei, þetta er bara sannleikur og ekkert annað en sannleikur og á ekkert skylt við spádóma :biggrin:
    Einnig mæli ég alltaf með því að liðið fari inn í leiki með því hugarfari að ná jafntefli :tongue:

    En Joe, miðað við gengi liðsins undanfarið, hvað af þessum leikjum telst í þínum kokkabókum vera óraunhæf spá? Viðurkenni það fúslega að ég telst vera nokkuð bjartsýnn maður að eðlisfari.

  8. Ég held ég sé ekki alveg að rugla þegar ég segi að bæði Tottenham og Bolton leikirnir verða sýndir á Skjá1. Góðar fréttir fyrir þá sem verða extra latir yfir hátíðarnar.

  9. Kiddi kúl it beibí, ef þú villt vera svartsýn og leiðinlegur máttu vera það í friði og leyfðu mér að vera bjartsýn og skemmtilegur. 😉
    Miðað við spilamennsku í síðustu leikjum tel ég þetta vel mögulegt, þegar menn eru fullir sjálfstrausts og klára færin sín er allt hægt hjá Liverpool FC.

    Come on you Reds!

  10. Ég var að velta fyrir mér hvort einhver ykkar spjallstjórnenda (eða einhver) mynduð henda upp þráð þar sem farið væri yfir þá menn sem linkaðir eru við Liverpoo nú í janúar.

    Þá væri gaman að sjá hugmyndir hvar nýjir menn myndu leysa einhverja 11 bestu af hólmi. T.d. myndi Lucas Neil væntanlega vera keyptur til höfuðs Steve Finnan o.sv.frv.

    Var að velta þessu fyrir mér þar sem janúar slúðrið er í fullum gangi.

    Bara ef þið hefðuð tíma núna í jólatörninni.

    Áfram Liverpool!

  11. Hössi, ég held að Hjalti hafi ætlað að taka svona pistil. Hann á víst að vera búinn í prófum núna. 🙂

  12. Auðvitað “geddum” við þetta, Kiddi.

    Hössi: Það þarf bara að vita hvaða leikmenn eru orðaðir og svo getur þú gert reikninginn sjálfur. :laugh:
    Dæmi: ítalski markvörðurinn (man ekki nafnið) = Reina út? Dudek út?

Leiknum frestað

Lucas Neill á leiðinni?