Brokkolí

Ólíkt til dæmis George Bush eldri, þá finnst mér [brokkolí](http://www.kop.is/gamalt/2006/11/23/10.14.01/#41065) gott. Ég fæ mér stundum pasta með brokkolí, gulrótum og maís. Blanda því svo saman við pesto.

21 Comments

  1. Sammála. Hann sást t.d. ekki í leiknum í gær eftir að hann fór af velli. Ég myndi skipta á honum og tunnu af brokkólí ef það yrði boðið.

  2. Þegar ég skrifaði leikskýrsluna í gær, hlustandi með öðru eyranu á Arnar Björnsson væla yfir hinu grútlélega sigurliði C-riðils, tók ég þá ákvörðun að sleppa því bara alfarið að lesa ummælin við leikskýrsluna mína.

    Í dag sé ég að það var rétt ákvörðun. Einar Örn er örugglega orðinn ögn hrukkóttari en ég síðasta sólarhringinn …

  3. Offf, helvitis brokkolí hann Arnar feiti á Sýn. Hann er svo mikill sauður að það er varla ekki hægt að sitja undir þessu.

    Ég verð nú að viðurkenna það að ég horfði á leikinn á MUTE í ca 60% tímans. Það er hundleiðinlegt að horfa á leiki hljóðlaust en það er yfirleitt betra en að hlusta á Arnar. Fyrir mína parta finnst mér fínt að horfa á leiki lýsendalaust, eingöngu heyra hljóðin af vellinum.

    Já, og að lokum legg ég til að Arnar verði rekinn! Já, og að láta Loga kartöfluálf fara í talnámskeið. Sjónvarpsmaður á ekki að stama svona rosalega mikið.

    Já, og eitt enn. Þurfum nýtt BROKKOLÍ á diskinn :biggrin:

  4. Spurning hvort Arnar og Logi borði nokkuð brokkólí?? En að öllu grínu slepptu þá var hræðinlegt að hlusta á þá. Hélt að þessir menn væru í vinnu við að lýsa leikjum ekki í að stýra jarðarför eftir eigin geðþótta.

    Þá kýs ég heldur Bjarna Fel…

  5. Það er lágmark að sýna mönnum virðingu. Hver sem skoðun manna er á Arnari Björnssyni er algjör óþarfi að kalla hann feitan. Hugsið aðeins!

    Sjálfur hef ég lítið út á lýsingar Arnars að setja, finnst hann einn af þeim skemmtilegri og betri í bransanum hér heima. En hann virðist vera búinn að bíta það í sig að flest við þetta Liverpool-lið og Rafa Benítez sé ómögulegt og það fór í taugarnar á mér í gær, að heyra hann hakka einstaka leikmenn liðsins og liðið í heild sinni í sig einmitt þegar því er að ganga betur í Evrópu en nokkru öðru ensku liði.

    En svo kemur maður hér inn og sér að Arnar Björnsson er ekki sá eini sem er að hjakkast í neikvæðninni, þannig að ég hlýt bara að vera í minnihluta að vilja voga mér að gleðjast yfir sigri í riðli Meistaradeildar.

  6. Gleðjast? Hvað, ertu eitthvað skrýtinn?!? Gleði er svoooo 2005, eitthvað. Ný-Liverpool áhangendur eru löngu hættir þessu “glasið er hálffullt/hálftómt” rugli og vita sem er að þetta er varla botnfyllir. Neikvæðni er hin nýja gleði! :biggrin:

  7. Ef maður borgar fyrir Sýn, sem ég geri ekki, þá er maður ekki að borga fyrir neikvæða lýsingu á liðinu sínu í sigurleik. Þeir sem horfðu á leikinn í gær á sýn voru örugglega 90% liverpool stuðningsmenn. Eiga ekki að þurfa að hlusta á þetta. Það er vondur business að fara í taugarnar á viðskiptavinum sínum.
    Ef Arnar getur ekki þagað aðeins um þessar skoðanir sínar, sem hann hefur alveg rétt á að hafa, meðan Liverpool leikurinn er í gangi þá á að fá annann í djobbið.

  8. Þá er það á hreinu, það má ekki koma með uppbyggilega gangrýni og tillögur að bætu liði á þessa síðu. Hrokin og vanvirðingin í þessari færslu, miðað við orð þín um brokkolí í kommentum í morgun, er ótrúlegur.

    Held ég taki mér bara góða pásu frá þessari síðu núna.

  9. Benni Jón
    ef þú mættir ekki koma með gagnrýni á þessa síðu þá væru bara öll kommentin þín tekin út jafnóðum. Það að kommentin þín sjást er merki um að þú megir gagnrýna!
    slappa aðeins af.

  10. Það er klárt mál að ef stjórnendur ætla að fara að ritstýra kommentunum þá er þetta ekki lengur bloggsíða í hefðbundnum skilningi þess orðs. Er ekki bara fínt að sumir séu neikvæðir og aðrir jákvæðir, þurfa allir að vera eins??

  11. Á einhver eftir að sakna Benna Jóns?
    Er ekki ágætt að svona vælukjóar séu bara annars staðar. Ef menn eru að fúlheitast yfir persónulegum skoðunum og skrifum síðuskrifara þá geta þeir bara skoðað aðrar síður. Þetta er nú kosturinn við frelsið sem fylgir internetinu.
    En ég verð samt að viðurkenna að sá ágæti Húsvíkingur Arnar Björnsson gengur oft aðeins of langt í gagnrýni sinni á lið. Ein ástæðan gæti verið sú að sá sem gagnrýnir fótboltalið á auðveldara með að virðast hafa vit á því sem hann er að segja. Það geta allir talað um að bavkerðir Liverpool séu ekki nógu sókndjarfir og þess vegna er sóknin ekki nógu góð and so on.
    En staðreyndin situr eftir. Þegar Arnar Björnsson var að gagnrýna Liverpool liðið hvað mest eftir leikinn í gær í þætti Guðna og Heimis var uppi skilti þar sem á stóð að Liverpool hafði unnið alla leikina í riðlinum nema einn sem var jafntefli og hefðu einungis fengið á sig tvö mörk.
    Varla var hann að tala um gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni því miðað við umfjöllun 365 sjónvarpsmiðla á þeirri deild þá fylgjast þeir ekkert með henni. Finnst annars engum öðrum en mér furðulegt að fréttastofa Stöðvar 2 hætti að flytja fréttir af ensku deildinni eftir að enski boltinn fór á SkjáEinn? Varla er það dæmi um góða fréttamennsku að leiða hjá sér vinsælasta íþróttaefnið á íslandi bara vegna þess að eigendur fréttastofunnar misstu útsendingarréttinn?
    Annars ætlaði ég bara að gagnrýna vælukjóann Benna Jóns en kom í staðinn með þessa ágætu grein. Bið ykkur vel að lifa.

  12. Góður, Kiddi! 😉

    Já og Benni Jón, “hrokin” er rétt skrifað – hrokinn.
    Ef menn geta ekki glaðst eftir góðan 2-0 sigur á PSV og þurfa endilega vera pikkfastir að sjá alltaf neikvæðu hlutina þá fer fólk bara og jarmar með börnunum á http://www.liverpool.is
    Hvernig væri að dást að breiddinni og yfirveguninni sem Liverpool sýndi í gær og því að við erum komnir öruggt áfram í 16-liða úrslit í keppni bestu liða Evrópu?

    Jafnvel þó gagnrýnin sé að sumu leyti uppbyggileg núna þá er neikvæðnin búin vera svo alsráðandi hér undanfarið að þetta er bara orðið to much að kvarta líka eftir örugga sigurleiki, skil stjórnendurna hér vel að vera undrandi á þessu.

    Einhver voðalega flæðandi sóknarleikur er ekki eina leiðin til að spila fótbolta, ef svo er í augum manna þá farið bara og haldið með Arsenal og dúkkuspilinu þeirra. Ekki búast samt nokkurn við því að vinna Champions League.

    Einhver hérna kvartaði síðan yfir því að Liverpool gæti aldrei sett í neinn ofur-gír.
    Aðra eins rokna vitleysu hef ég sjaldan lesið á ævinni! Eru menn strax búnir að gleyma fyrri hálfleiknum á Anfield gegn Juventus hér um árið eða úrslitaleiknum gegn AC Milan þegar við skoruðum 3 mörk á korteri gegn einni bestu vörn heims?!
    Það er bara staðreynd að þegar Liverpool setur í 7.gír er EKKERT lið í heiminum sem getur stöðvað okkur. Þökk sé áhorfendum og hefðinni höfum við gír sem enginn annar hefur.

    Munið síðan að þetta er bara fótbolti. Áhugamál. :confused:

    p.s. Brokkóli er alveg ágætt sé það rétt matreitt!

  13. Voðalegur dramadrottniga fílíngur er þetta.

    Ég tek heilshugar undir orð Einars um ágæti Brokkólís og einnig það að menn geti breytt öllum umræðuefnum útí sama efnið.

    Góð grein Einar.

    Spjall í gegnum tölvur virðist bæði gera menn ókurteisari og meiri dramadrottningar en í daglegu lífi. Tökum kaldhæðni á karlmannlegri hátt. (Taki það til sín sem eiga það)

  14. >Þá er það á hreinu, það má ekki koma með uppbyggilega gangrýni og tillögur að bætu liði á þessa síðu. Hrokin og vanvirðingin í þessari færslu, miðað við orð þín um brokkolí í kommentum í morgun, er ótrúlegur.

    >Held ég taki mér bara góða pásu frá þessari síðu núna.

    Æji, Jesús Kristur, Benni. Voðalega ertu viðkvæmur.

    Það er alltaf sama sagan alltaf þegar ég eða Kristján skjótum á lesendur þessarar síðu þá sannfærast þeir um að við séum að banna mönnum að koma með ákveðnar skoðanir. Það er fráleitt. Við bönnum afskaplega fátt og tökum nánast aldrei út athugasemdir nema þá að þær séu í ætt við þær sem “Mr. Daglish” setti inn [eftir Boro leikinn](http://www.eoe.is/liverpool/gamalt/2006/11/18/19.06.47/). Þeir sem lásu þær ættu að skilja okkur.

    Ég var ekki að segja að gagnrýni þín Benni væri ekki málefnaleg. Punktur minn er bara sá að eftir Istanbúl þá hefði ég getað komið með málefnalega gagnrýni á 20 hluti við leik liðsins. En stundum langar manni bara að njóta sigranna. Það er ekki oft sem við sigrum í riðli okkar í Meistaradeildinni – og að mínu mati eru þau augnablik ástæður til að fagna.

    Ef menn vilja gagnrýna leikmenn, þá megar þeir gera það hina 6 daga vikunnar, en megum við ekki sleppa sömu gömlu lummunum um Crouch og Pennant og Riise þegar við náum svona glæsilegum árangri?

    Þessi punktur hjá Arnari er góður og lýsir mínu viðhorfi ágætlega:

    >Jafnvel þó gagnrýnin sé að sumu leyti uppbyggileg núna þá er neikvæðnin búin vera svo alsráðandi hér undanfarið að þetta er bara orðið too much að kvarta líka eftir örugga sigurleiki, skil stjórnendurna hér vel að vera undrandi á þessu.

    Það er nefnielga ansi frústrerandi oft fyrir okkur stjórnendur þegar við reynum að skrifa um nýja hluti til að skapa umræðu um þá ákveðnu hluti (einsog ég þegar ég var að fjalla um Fréttablaðið í síðustu viku eða um argentíska leikmanninn í morgun), en svo fer umræðan alltaf í sama pakkann einsog menn setji bara komment við nýjustu færsluna það sem þeir voru að hugsa við fyrri færslur.

    En það er nákvæmlega engin ástæða fyrir fullorðinn mann einsog þig að “taka þér pásu” frá þessari síðu. Ef þú þolir ekki að við svörum fyrir okkur og gerum grín að þessum bölmóð (þú tekur grínið mitt sem “hroka og vanvirðingu”, come on!), þá er svo sem lítill tilgangur í því að hanga hérna.

    En ef þú vilt koma áfram með gagnrýni og þolir að við “stjórnendur” skjótum tilbaka, þá ertu ávallt velkominn. Þú hefur nú sjálfur skrifað fyrir þessa síðu og ummælum þínum hefur verið vel tekið hingað til.

  15. Varðandi hin kommentin:

    Kiddi, þetta var snilld!

    Og Jóhann, ég hef lengi vel ætlað mér að skrifa pistil um þetta með **frétta**stofu NFS og áhugaleysi þeirra á enska boltanum. Það er með ólíkindum að fréttaval á alvöru fréttastofu skuli ráðast af því hver hefur útsendingarrétt á ákveðnu sjónvarpsefni. Þetta er einsog að þeir myndu sleppa því að segja frá þingfréttum af því að Alþingis-rásin er með Alþingi í beinni. 🙂

  16. Vá, ég hef oft haft gaman að lesa commentin hér en þetta hefur náð nýjum lægðum, hvernig væri að gleðjast yfir þeim fáu leikjum sem við sigrum og sjá björtu hliðarnar við lífið.
    Liverpool að eilífu, AMEN

  17. Ég er virkilega ánægður með þessa síðu, mér finnst umsjónarmennirnir standa sig með prýði og ég er vini mínum eilíflega þakklátur fyrir að benda mér á hana snemma árs 2005 (minnir mig). Ég myndi vilja sjá þessa síðu bekennda (lesist: viðurkennda) af t.d. íþróttafréttamönnum sjónvarpsstöðvanna íslensku vegna þess að hér hafa ekki feilfréttir eða lélegar fréttir verið að koma. Ef þú ert sportlýsandi og ert að fara að horfa á leik með Liverpool … þá er þetta kjörinn vettvangur til upphitunar. Sama mætti segja eflaust um önnur lið, en ég stórefast um að aðdáendur annarra enskra liða eigi sér jafn frábæran grundvöll eins og þessa bloggsíðu.

    Neikvæðnin kemur af slæmu gengi. Maður er jú kannski eins og hin versta mella, að maður kvartar yfir lélegu gengi og er ekki hrósa nógu mikið þegar vel gengur. En ég hef alltaf skrifað samkvæmt minni sannfæringu hér, og kem til með að halda því áfram.

    Mér finnst ofnbakað broccoli í osti alveg ótrúlega gott!

    Kiddi er með frábært comment “gleði er svo 2005” … og ég skil punktinn fyllilega hjá honum.

    Ég skil líka umsjónarmenn síðunnar, að það geti verið þreytandi að umræðan snúist svona mikið um sama hlutinn. Ég virði alla pistla sem eru skrifaðir hér og auðvitað umsjónarmanna líka. Þeir eiga heiður skilið, og sem betur fer er ég ekki alltaf sammála þeim. En þegar ég er sammála þeim, þá læt ég það í ljós líka.

    Allir sameinumst við í “ást” og áhuga okkar á stórliðinu Liverpool. Ég man ekki hver það var (Einar?) sem benti á það, að ef við værum þó stuðningsmenn liða eins og Middlesborough þá værum við orðin geðveik á spjallborðinu yfir gengi liðsins.

    Kiddi “gleði er so 2005” … frábært!

    Og í lokin, mín skoðun á íþróttafréttamönnum:
    – Ég vil hafa þá æsta, ég vil hafa líf í þessu. Ég hraunaði einu sinni yfir Hörð Magnússon þegar hann missti sig yfir leik Portúgala og S-Kóreu í HM-2002 (“helvítis dómarinn er búinn að eyðileggja leikinn…” eða eitthvað í þá áttina…), en eftir á að hyggja þá hef ég mest gaman af svona íþróttafréttamönnum.

    Mér finnst persónulega Arnar hafa mjög gott vit á fótbolta og hann lætur jú sínar skoðanir í ljós. Mér fannst hann gera leiknum í Istanbul góð skil. Hann og Logi saman eru góðir finnst mér. En mitt uppáhald er Hörður, því hann missir sig mest :biggrin: Gaupi fer mest í taugarnar á mér, og hann mætti fjúka fyrir mér. Hann kann bara ekki að lýsa leik almennilega og orðaforðinn hans er afskaplega takmarkaður.

    Fyrst orginal færslan var um broccoli, þá fer maður svolítið úr einu í annað… 🙂

    Bottom-line: Liverpool er uppáhaldsliðið mitt – það mun aldrei breytast. Þessi síða ER besta bloggsíðan um Liverpool og almenn fréttasíða um félagið sem ég held upp á. Ég er ekki alltaf sammála skrifum umsjónarmannanna, en það kennir manni bara annað sjónarhorn sem er nauðsynlegt!

    Bið að heilsa ykkur frá Akureyri, áfram Liverpool!!!

Argentískur unglingur á leiðinni?

Skoðanaskipti