Liverpool gegn Arsenal í deildarbikarnum

Jæja, við fáum að spila tvisvar gegn Arsenal á stuttum tíma því að Liverpool dróst gegn Arsenal [í 8 liða úrslitum deildarbikarsins]( http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N154057061111-1228.htm). Leikurinn verður (Guði sé lof!) á Anfield.

Leikirnir í 8 liða úrslitum:

Liverpool v Arsenal
Newcastle v Chelsea
Tottenham v Southend
Charlton v Wycombe

2 Comments

  1. Það var lagið, þá tökum við nallarana a.m.k. þrisvar
    á þessari leiktíð ! :biggrin:

  2. Snilld!

    Ég hef ekkert nema gott um þetta að segja. Í fyrsta lagi þá verður gaman að takast á við Arsenal á Anfield, þeir mæta alltaf á útivelli til að spila knattspyrnu og sigra en ekki til að hanga í vörn og því verður þetta skemmtilegur leikur.

    Í öðru lagi, þá eiga Chelsea erfiðan útileik gegn Newcastle og ef Roeder & co. geta gyrt sig í brók í þessum eina leik og slegið Chelsea út (gerðu þeir það ekki fyrir einu og hálfu ári síðan?) þá gætu undanúrslitin og svo jafnvel úrslitin orðið mjög skemmtileg fyrir okkur. 🙂

    En það verður allavega gaman að taka á þessu Arsenal-liði, það er alveg víst. :biggrin:

Rafa Benitez og íslenskir fjölmiðlar

Arsenal á morgun!