Stór hindrun yfirstigin

Það bárust góðar fréttir frá Liverpool nú fyrir stundu. Ein af stærstu hindrununum er varðar byggingu nýs leikvangs var rutt úr vegi. Búið er að samþykkja 9 milljón punda styrk í þetta risavaxna verkefni, sem er að endurbyggja svæðið í kringum Anfield. Þetta þýðir það að Liverpool FC hefur náð að sýna fram á fjármögnun á leikvanginum, eitthvað sem sumir efuðust um að næðist. Þessar 9 milljónir punda fara þó alls ekki í byggingu á sjálfum leikvanginum, heldur bara í svæðið í kring. Í það verkefni var áður búið að úthluta 15,6 milljónum punda og er því heildarupphæðin komin í 24,6 milljónir punda í formi framlaga frá Northwest Regional Development Agency (8,9 m), Liverpool FC (5,0 m) og Liverpool City Council (1,7 m).

Þetta er því mikið og stórt skref í þá átt að geta hafist handa við framkvæmdir á fyrri hluta ársins 2007. Stefnt er að því að þessi 60.000 manna leikvangur verði tekinn í notkun haustið 2009. Rick Parry var að vonum hæst ánægður með að ákvörðun hafi fengist í málið:

?The Committee?s decision is very good news for the people of North Liverpool,” said Parry.

“It?s another significant step forward in our plans for the building of a new stadium, which we have always seen as a catalyst for the regeneration of the whole area.?

Áður hafði svo verið staðfest leiga á landsvæðinu undir leikvanginn til 999 ára.

Ég verð að segja fyrir mitt leiti að maður á eftir að sakna gamla góða Anfield. Það verður þó að viðurkennast að hann er kominn til ára sinna og það er nauðsynlegt fyrir félag af þessari stærðargráðu að ná að stækka við sig og taka skref inn í framtíðina. Menn átta sig ekki á einu í þessu sambandi og hafa oft verið að básúna um það að við ættum að byggja enn stærri völl. Þó að fjölgunin sé “aðeins” 15.000 sæti, þá verður tekjuaukningin mun meiri. Arsenal hafa sýnt það og sannað með byggingu á sínum velli. Það sem mun margfaldast á nýjum velli er aðstaða og salir fyrir fyrirtæki sem eru mjög hátt borgandi. Fjárhagslega er búið að reikna þetta fram og aftur og það er á tæru að þetta skref mun gera Liverpool FC mun samkeppnishæfara en áður.

6 Comments

  1. En verðum við ekki í bobba þegar leigutíminn rennur út. Eða gera þeir ráð fyrir nýrri tækni þar sem þú getur flutt völlinn af þessari lóð yfir á aðra lóð með SMS skilaboðum?

    Eru langtímamarkmið Liverpool ekki til?

  2. :biggrin2: Shit, við verðum í bullandi vandræðum eftir 999 ár :laugh:

  3. Þú hittir svolítið haglan þarna Kristján Atli. Það virðist sem sumir haldi að afþví að völlurinn sé “bara” 15þ stærri, og skilji ekki afhverju menn gera ekki t.d. 70þ manna völl, þá muni þetta ekki borga sig. Málið er að þessar VIP stúkur/svalir eru svo hrikalega dýrar í útleigu að einhver nokkur þúsund sæti, við hlið kannski 20 svona stúkna, segja bara ekkert. Þessar VIP stúkur gefa svo margfallt meira af sér heldur en þetta venjulega sæti.

    Ég er algjörlega sammála því að byggja völlinn ekki of stórann og eiga síðan á hættu að hafa hann hálf tómann, ala Dele Alpi. Menn eru búnir að skoða söguna, hvað margir voru að koma á vellina þegar engin væru sætin og vellirnir tóku mun fleiri, og sjá að 60þ er töfratalan. Til að ná inn tekjunum(og vel rúmlega það) sem “tapast” afþví að völlurinn er ekki stærri er einfaldlega hent upp svona VIP stúkum. Þessir gæjar sem eru þarna úti og búnir að grandskoða þetta hljóta að hafa einhverja hugmynd um hvað þeir eru að gera og afhverju völlurinn ætti “bara” að vera 60þ manna. Eina sem maður getur kannski fett fingur útí er að hann er ekki stækkanlegur uppá framtíðina, en ætli þeir séu ekki með eitthvað uppí erminni gagnvart því.

  4. Já Benni Jón, ég er líka á því að Kristján Atli hafi hitt “haglan” þarna :biggrin:

    Nú er bara að reyna að ná sem flestum leikjum á þessum velli áður en það verður skipt yfir.

  5. SSteinn, þú verður bara að þola það að öll góð skrif á þessari síðu séu tafarlaust og sjálfkrafa eignuð mér. Svona er þetta bara. :laugh:

  6. he he, ekki leiðum að líkjast. Ég tek þessu eingöngu sem hrósi hjá honum Benna félaga mínum. :biggrin:

Liverpool – Galatasary 3-2

Crouch er stórkostlegur!