Rafa: Crouch getur orðið betri!

Rafa Benítez hefur skorað á Peter Crouch að nota þetta tímabil til að festa sig enn frekar í sessi hjá Liverpool:

>”People were talking before he signed that he wasn’t good for us. But after a while he was in the squad with the national team and now people know how good he is. But he cannot think that is enough. He now needs to continue improving as he has a lot of potential and possibilities.”

Nákvæmlega. Eins og frægt varð á þessari síðu var ég talsvert mikið á móti því að Crouch yrði keyptur, en á fyrsta tímabili sínu með Liverpool sannfærði hann mig algjörlega og nú ver ég tilverurétt hans fram í rauðan dauðann. Það er augljóst af hverju Rafa leggur svona mikið traust á stóra manninn; á fyrsta tímabili sínu með Liverpool, toppliði í Englandi og Evrópu, skoraði hann 13 mörk og bjó til 18 mörk í viðbót með stoðsendingum. Það er frábær tölfræði, en í ár getur hann skorað ennþá meira. Eins og Rafa segir, og ég tek heilshugar undir, þá stóð hann af sér hið erfiða fyrsta tímabil hjá toppliði og náði að festa sig í sessi bæði hjá Liverpool og enska landsliðinu. Hann var eini framherji landsliðsins sem skoraði á HM í sumar, pæliði í því. Nú, í vetur, vill ég sjá hann skora meira og halda áfram að skapa fyrir mennina í kringum sig eins og hann hefur gert.

Ég er einfaldlega sannfærður um að Crouch á eftir að reynast lykilmaður á næstu árum fyrir okkur. Ef hann getur bætt skorið hjá sér, segjum að hann nái 10+ mörkum í deildinni og á bilinu 15-20 í heildina, og haldið áfram að búa til 15-20 mörk í viðbót með stoðsendingum, þá held ég að ég muni endanlega taka ástfóstri við stóra manninn.

Crouch, vonandi ertu að lesa þetta: 10+ mörk í deildinni í vetur og 15-20 í heildina, plús 15-20 stoðsendingar, og þá er ég sáttur. 🙂


Viðbót (Aggi):
Rafa segir nýverið að Peter Crouch verði að [halda áfram að bæta sig](http://home.skysports.com/list.aspx?hlid=409161&CPID=8&clid=14&lid=2&title=Rafa+challenges+Crouch) sem leikmaður. Hann hafi tekið framförum frá því hann gekk til liðs við félagið sem og sýnt mikinn andlega styrk þegar sem verst gekk hjá drengnum en hann verði að halda áfram. Rafa ætlar sér að bæta við fjórða framherjanum og talið er líklegt að sá aðili gæti verið Hollendingurinn Dirk Kuyt en það mun skýrast innan tíðar. Frá því Crouch gekk til liðs við Liverpool hefur hann verið valinn í landsliðið og m.a. skoraði eitt af 6 mörkum Englands á HM í sumar.

Ennfremur talar Bellamy um mikilvægi þess að við komumst áfram í riðlakeppni meistaradeildarinnar en hann lenti í því með Newcastle að komast ekki áfram úr undankeppninni, það hafði mikil áhrif á allt tímabilið hjá liðinu.

“It’s amazing how much a season can go off if you don’t get through this.”

14 Comments

  1. Ok lítið mál….

    uusss hvað ég er spenntur fyrir leiknum á sunnudaginn.

  2. Mér líst svo frábærlega á Pennant að ég held að hann eigi eftir að fjölga mörkunum hjá framherjunum talsvert með öllum þessum fyrirgjöfum sínum. Svo er bara spurning hversu mikið Crouch spilar. Bellamy, Fowler og hugsanlega Kuyt gætu verið teknir fram yfir hann í byrjunarliðið.

  3. Ef að Ouchy getur framkvæmt það að skora 12-15 mörk í deildinni ásamt því að vera með 10 stoðsendingar þá skal ég ekki andmæla honum í einu né neinu og verja hann til dauðadags…. 😉

    Annars leist mér vel á Bellamy og Pennant (leist ekkert alltof vel á þá þegar þeir voru keyptir) en ætla samt að gefa þeim (og mér) ca. 10 leiki áður en ég fer að gagnrýna þá eitthvað frekar… :biggrin2:

  4. Mér finnst þið nú gera frekar litlar kröfur til Crouch. En gott og vel – hann á sinn séns skilinn eins og allir aðrir. Ég held reyndar að með tilkomu Bellamy og hugsanlegs nýs senters muni hann ekki spila mikið í vetur. Ég skil líka orð Benites þannig að Crouch þurfi að bæta sig eigi hann að fá sinn séns.

    Ég spái að hann byrji inn á á móti Chelsea en nái ekki að skora. Garcia og Gerrard klára þetta fyrir okkur. Ég vona samt að hann skori.

    Áfram Liverpool!

  5. Hössi, hvernig í ósköpunum geta þér þótt 15-20 mörk og 15-20 stoðsendingar vera litlar kröfur? Ef hann nær því er það betri frammistaða en hjá Ruud van Nistelrooy, sem skoraði kannski 30 mörk en átti varla neina stoðsendingu nema fiskuð víti.

    Hvernig getur það að eiga þátt í 30-40 mörkum síns liðs, sem markaskorari eða uppleggjari, yfir tímabilið verið talið lítið?

  6. Sammála Kristjáni Atla – það er ómögulegt að segja að þetta séu litlar kröfur til manns á borð við Crouch. En svo sem má búast við því að í draumalandinu sem sumir búa í, þar sem allir strækerar sem skora ekki 20 – 30 mörk á tímabili eru óalandi og óferjandi, er e.t.v. hægt að kalla þetta lítið…

    En á algerlega öðrum nótum – í tilefni föstudags og þess að leiktíðin sé að byrja – þá var ég að finna eitt af uppáhalds Liverpool-mörkunum mínum EVER á youtube. Fowler á móti Brann. Hvað er þetta alvarlega flott mark?

  7. Kristján hvernig færðu það út að Crouch hafi búið til 18 mörk með stoðsendingum. Mín skilgreining á því að búa til mörk með stoðsendingum, er að leggja upp mörkin. Á þeim síðum sem ég hef skoðað stendur að hann hafi átt 6 stoðsendingar sem gáfu mörk á síðasta tímabili. Þetta gerði hann í 49 leikjum.

    2 af þessum 49 leikjum voru í heimsmeistarakeppni félagsliða og í þeim skoraði hann 2 mörk. Þannig að í 47 leikjum í evrópu-, deildar- og bikarboltanum skoraði hann 11 mörk.

    Það væri því flott bæting ef hann næði 15-20 mörkum á þessu tímabili, hvað þá ef hann leggði upp 15-20 mörk líka (þarna erum við að tala um svipaða tölfræði og Henry hefur verið með síðustu tímabil).

    Persónulega held ég að Crouch muni aldrei takast að verða 15-20 marka maður fyrir Liverpool.

  8. Krizzi – ég vísaði þarna í grein eftir Paul Tomkins, sem var að enda við að gefa út bókina The Red Review, þar sem hann og Oliver Anderson rýndu í tölfræði síðasta tímabils hjá liðinu.

    Tomkins talaði um að Crouch hefði átt stóran þátt í alls 18 mörkum hjá liðinu sl. vetur. Stundum þýðir það stoðsendingar, þar sem hann á síðustu sendinguna á markaskorarann og fær því hið opinbera kredit fyrir stoðsendinguna, og stundum er það fyrir að hafa verið sá sem bjó færið til eða lagði upp á manninn sem gaf stoðsendinguna.

    Gott dæmi væri mark Steven Gerrard gegn Newcastle í marsmánuði. Þar keyrir Daniel Agger með boltann upp úr vörninni og inná hættusvæði Newcastle-manna og á frábæra sendingu útá kant á Djibril Cissé sem á svo frábæra fyrirgjöf á Peter Crouch. Crouch skallar hann niður fyrir fætur Steven Gerrard sem skorar markið.

    Tölfræðilega séð var það Crouch sem fékk kredit fyrir stoðsendinguna, þar sem hann á síðustu sendinguna á markaskorarann, en það ætti öllum að vera ljóst að Daniel Agger og Djibril Cissé áttu alveg jafn mikið, ef ekki meira, í því marki en Crouch.

    Þannig “stoð-stoðsendingar” tínir Tomkins til og þegar það er talið með eru þetta hátt í 20 mörk sem Crouch annað hvort býr til tækifærið fyrir liðið að skora eða á sendinguna á markaskorarann. Það er alveg sama hvernig þú lítur á það, þetta telur og þetta er tölfræði sem sýnir okkur það svart á hvítu að Crouch er að skila feykimiklu af sér til liðsins, bæði með mörkum og með því að skapa fyrir mennina í kringum sig.

    Hvað varðar það að hafa aðeins átt sjö stoðsendingar sl. vetur, og þar af tvö gegn Kosta Ríka-liðinu í HM félagsliða, þá er ég reiðubúinn hér með að hrinda þeirri tölfræði á bak aftur:

    1. FC Kaunas á útivelli, Cissé skoraði.
    2. Real Betís á útivelli, Pongolle skoraði. Bjó líka til annað markið, gaf á Zenden sem gaf á Luis García sem skoraði.
    3. Birmingham á útivelli, Crouch á skalla sem stefnir inn en varnarmaður ver á línu og fær rautt. Cissé skorar úr vítinu.
    4. Heima gegn Portsmouth. Lætur markvörð P’m reyndar verja frá sér víti en Zenden skorar úr frákastinu. Átti svo þátt í þriðja markinu þann daginn líka.
    5. Wigan heima. Crouch skorar fyrstu tvö mörkin sín fyrir LFC og leggur upp það þriðja fyrir Gerrard.
    6. Newcastle heima, Crouch gefur á Gerrard sem skorar. Crouch skorar svo annað markið sjálfur.
    7. Everton úti, Crouch skorar fyrsta markið og leggur svo upp annað markið fyrir Steve Gerrard.
    8. Newcastle úti, Crouch skallar á Gerrard sem skorar.
    9. Everton heima, Crouch skallar innfyrir vörnina á Luis García sem skorar.
    10. Bolton heima, fyrsta mark Fowler eftir endurkomuna. Crouch gefur á hann.
    11. Chelsea á Old Trafford í FA bikarnum. John Terry brýtur á Crouch og Riise skorar úr aukaspyrnunni. Stoðsending, þótt það hafi ekki verið í opnum leik.
    12. Portsmouth úti, Crouch með stungusendingu á Cissé sem skorar.
    13. West Ham í úrslitaleik bikarsins. Crouch skallar niður á Gerrard sem skorar annað mark okkar.

    Ég renndi í fljótu bragði yfir leikskýrslurnar á þessari síðu og tíndi til þessar þrettán stoðsendingar hans. Þar taldi ég ekki með stoðsendingarnar tvær sem hann átti gegn Deportivo Saprissa í HM Félagsliða, sem þér Krizzi fannst vera ómerkilegar.

    En bara svo þetta sé opinbert, þá eru þetta alls FIMMTÁN STOÐSENDINGAR ef við teljum þær tvær með. Ef við bætum við nokkrum þar sem hann átti lykilhlutverk í sköpun marktækifæris sem skilaði marki – svo sem þegar hann gaf á Zenden sem gaf á García sem skoraði gegn Betís á útivelli – þá er hann sennilega kominn með meira en 18 “stoðsendingar” á síðasta tímabili.

    Þurfum við eitthvað að ræða þetta frekar? Peter Crouch er einfaldlega lykilmaður í þessu liði Rafa Benítez. Sættið ykkur við það. 🙂

  9. Já, var einnig að taka eftir öðru. Fyrir utan útileikinn gegn Birmingham, sem endaði í 2-2 jafntefli, þá unnum við alla leiki á síðasta tímabili sem Crouch átti stoðsendingu í. Ef hann lagði upp mark unnum við leikinn í þrettán af fjórtán skiptum (ef við teljum Dep. Saprissa með).

    Ef það væri deildarkeppni með þessum fjórtán leikjum hefðum við sem sagt verið að hirða 40 af 42 mögulegum stigum þegar Crouch á stoðsendingu. Það kalla ég ágætis tölfræði. 🙂

  10. Kristján Atli ég talaði aldrei um það að Crouch hefði átt 2 af þessum 7 stoðsendingum gegn Kosta Ríka-liðinu, heldur sagði ég að hann skoraði 2 mörk gegn þeim.

    ” 2 af þessum 49 leikjum voru í heimsmeistarakeppni félagsliða og í þeim skoraði hann 2 mörk. Þannig að í 47 leikjum í evrópu-, deildar- og bikarboltanum skoraði hann 11 mörk.”

    Þarna er ég að tala um mörk skoruð hjá Crouch, og því væri það mikil bæting ef hann næði að skora 15-20 mörk á þessu tímabili.

    Persónulega finnst mér Tomkins vera að teygja sig ansi mikið í skilgreiningu sinni á stoðsendingu. Almennt þegar talað er um að einhver eigi stoðsendingu þá er átt við að hann hafi sent á þann sem skoraði (þ.e. átt síðustu sendingu á þann sem skorar markið)

    Ef við notumst við skilgreiningu Tomkins (á stoðsendingum) þegar Alonso á í hlut þá hefði hann verið með um 60 STOÐSENDINGAR á síðasta tímbili, jafnvel fleiri því við skoruðum 101 mark(tölfræði Liverpool.is)

    Auk þess er ekkert óeðlilegt að Crouch eigi þátt í fjölda marka þar sem hann spilaði flesta ef ekki alla þessa leiki einn frammi. Og því fóru margar sóknir LFC í gegnum hann.

    Tölfræði mína fékk ég á Soccernet.com og þar er talað um 7 stoðsendingar hjá Crouch á síðasta tímabili.

  11. Og ég var að sýna fram á að tölfræði Soccernet.com væri vitlaus, er það ekki? Ég týndi ekki til þessar svokölluðu stoð-stoðsendingar sem Tomkins talar um, heldur eingöngu stoðsendingar. Bara þau mörk þar sem Crouch á sendinguna á markaskorarann. Og ég taldi alls 13 stykki, sem er töluvert meira en sjö stykki.

Chelsea slúður

Beckham