Rafa með yfirlýsingar

37243.jpg

Rafael Benitez hefur ekki beinlínis verið þekktur fyrir miklar yfirlýsingar í tengslum við leikmannakaup. Það er einna helst að hann hafi verið að lofa Speedy Gonzalez en það var sennilega gert einna helst til að auka líkurnar á að hann fengi atvinnuleyfi.

En Rafa er byrjaður að tala um nýja vinstri bakvörðinn okkar, Fabio Aurelio. [Rafa heldur því fram á official síðunni að Aurelio](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N152845060707-1317.htm) gefi betri sendingar en…..

…betri sendingar en hver? Luis Garcia? John-Arne Riise? Nei!

…**XABI ALONSO!**

Rafa segir um Aurelio:

>”Aurelio is a left full back or a left winger with a lot of quality “He can cross the ball superbly and he is maybe a better passer of the ball than Xabi Alonso.

Já, er það? Í alvöru?

>”People will say ‘oh really?’ But you will see the quality of his crosses and passes with his left foot. He is also fantastic at set pieces.”

Magnað. Það er allavegana nokkuð ljóst að Fabio Aurelio er ekki keyptur til Liverpool til að vera varaskeifa fyrir John-Arne Riise

5 Comments

  1. Það ætti þá loksins að vera kominn einhver til að taka hornspyrnurnar! 🙂

  2. Þótt að mér hafi s.s. Riise vera ágætur á köflum þá er hann of takmarkaður. Ágætur í bakverðinum (ekki meira en það) og hefur góðan vinstri fót en mér finnst hafa vantað mikið upp á sendingargetuna hjá honum og boltatækni.

    Svo að ég held að ef Aurelio getur það sem Rafa segir að hann geti þá má búast við því að Riise fái að verma bekkinn.

  3. Þá hlýtur Aurelio að vera besti sendingarmaður í heimi því það vita allir sem hafa fylgst með Alonso undanfarin ár hvers megnugur hann er!

  4. Nú er eins gott fyrir Benitez að hann sýni eitthvað í staðinn fyrir að vera annar Josemi. Auðvitað vona ég að hann standi við stóru orð Rafa, en það væri hins vegar óneitanlega fyndið/vandræðalegt fyrir Benitez ef hann myndi svo engan veginn finna sig. Skulum samt vona að hann sé ekki að skjóta sig í fótinn með þessum yfirlýsingum.

  5. Nei, það þarf líka að vera arfaslakur Brassi til að vera varaskeifa Riise. Þetta er tóm hamingja.. :laugh:

Alves og Joaquin

Kewell frá í 6 vikur