Liðið gegn Newcastle!

Jæja, ég spáði þessu sko **EKKI** …

Reina

Carragher – Agger – Hyypiä – Warnock

Kromkamp – Gerrard – Hamann – Kewell

Cissé – Crouch

**BEKKUR:** Dudek, Traoré, Alonso, García, Fowler.

Sko, skoraði Morientes sem sagt mark … og var svo tekinn *út úr hópnum* í næsta leik? Var Cissé eini framherjinn sem ekki skoraði í síðasta leik, og kemur samt inn í byrjunarliðið? Ætlar Rafa að spila Carra í bakverði, eða er hann að fara í 3-5-2 með Kromkamp og Warnock sem væng-kantara?

Þetta verður forvitnilegt …

4 Comments

  1. Hann er klárlega einnig með hugann við Birmingham-leikinn á þriðjudaginn fyrst hann er að hvíla menn eins og Finnan og Alonso.

  2. Er ekki Finnan meiddur? Það hlýtur að vera. Annars gæti hann bara svissað Kromkamp og Finnan í þessum leikjum.

    Þetta er allavegana verulega skrýtin uppstilling.

  3. Núna fyrst Morientes er búinn að skora held ég að Cissé sé kominn í liðið af sömu ástæðu og Morientes var í byrjunarliðinu hvað eftir annað. Í þeirri von að hann skori loksins.

  4. tjahh, þrátt fyrir að Morientes hafi skorað í vikunni þá var hann ekki að spila vel, eiginlega bara hörmulega, Cisse var kanski ekki frábær, en innákoma hans breytti gangi leikins, átti skallann sem á endanum varð að marki Morientes, fyrirgjöf sem gaf Crouch sitt mark. Kanski er bara verið að verðlauna hann fyrir það.

Gonzalez í beinni á SÝN!

Newcastle 1-3 Liverpool