Liðið gegn W.B.A. komið

Jæja, liðið er komið og engar stórkostlega breytingar í gangi:

Reina

Finnan – Carragher – Hyypiä – Riise

Garcia – Gerrard – Alonso – Kewell

Cissé – Crouch

Semsagt, Warnock út fyri Riise og Sissoko út fyrir Garcia. Meiri sóknarþungi! Á bekknum: Carson, Hamann, Traore, Sissoko, Pongolle. Þannig að á bekknum er bara einn virkilega sókndjarfur, Florent Sinama-Pongolle. Ég segi að hann komi inná og skori!!

5 Comments

  1. Enginn Josemi, ætli dagar hanns séu þá ekki bara taldir í rauða búningnum, stórefa að við fáum að sjá hann aftur á vellinum. Líklega verður gengið frá samningum eftir 1-2 daga svo hann verður líklega farinn í næsta leik á móti Bolton.

  2. Ætli það séu ekki talsverðar líkur á að Josemi sé nú þegar farinn til Spánar og Kromkamp kominn til Englands. Þessir hlutir gerast hratt.

  3. Já, það fer allavegana eitthvað að gerast núna í Janúar, maður er bara búin að vera spentur í langan tíma að sjá hvað gerist.

  4. Vonsvikinn að Pongolle byrji ekki en i’m not the boss for some reasons 🙂

Kromkamp búinn semja

Liverpool 1 – W.B.A. 0