Verður Baros áfram? (uppfært)

Ja hérna!

Við Kristján vorum farnir að tala um það sem gefinn hlut að uppáhaldsframherjinn minn, Mila Baros, væri á leið frá Liverpool í sumar. Aðallega virtist þetta vera spurning um hvaða liðs hann færi til.

En Baros á [málglaðan umboðsmann, sem veitti viðtal við Sky Sports](http://skysports.planetfootball.com/list.asp?hlid=285208&CPID=8&CLID=14&lid=&title=Baros+to+stay+with+Reds&channel=Premiership). Þar segir eftirfarandi:

>”Milan is now on holidays in Czech Republic and he doesn’t think it would be good to leave Liverpool now,” Lacina told Idnes.

>”At Liverpool there is still a lot of euphoria after that unexpected Champions League triumph, and also the club has been awarded a place in next season’s Champions League.

>”So Baros prefers to stay at Liverpool these days.

Sko, það er reyndar ekkert voðalega sexí að segja “prefers to stay at Liverpool *these days*”, en samt þá eru þetta fyrstu opinberu ummælin, sem benda til þess að Milan Baros verði hjá Liverpool á næsta tímabili. Ef svo er, þá held ég að við getum bókað það að Rafa mun ekki eyða peningi í menn einsog Kuyt, heldur einbeita sér að öðrum stöðum á vellinum. Sumir segja að þessi breyting hjá Baros sé fyrst og fremst vegna lítils áhuga hjá öðrum liðum að borga 8 milljónir punda fyrir Milan. Það ætti aðeins að minnka egóið hjá honum.

Annars, þá er Milan minn maður, ég vil sjá hann áfram.


**Uppfært (Kristján Atli)**: Ég geri fastlega ráð fyrir að Einar hafi tapað sér við að lesa þessa frétt, svipað og ég gerði. Já, bara það að lesa þessi orð frysti Sólheimaglottið á andliti mínu, og býst ég við að það endist út daginn.

Sko, um leið og ég las þessi orð minnti ég sjálfan mig á það að þetta er jú umboðsmaður hans, ekki hann sjálfur, sem er að tala um að Milan vilji vera áfram hjá Liverpool. Það er starf umboðsmanna að þjóna hagsmunum leikmannsins, en á sama tíma þénar umboðsmaðurinn mest ef leikmaðurinn skiptir um félag. Því datt mér strax í hug; hvað gæti umboðsmaðurinn verið að græða á þessum ummælum?

Gætu þessi ummæli á einhvern hátt stuðlað að því að gera Baros líklegri til að yfirgefa Liverpool FC í sumar?

Og eftir ítarlega tilhugsun komst ég að niðurstöðu: NEI! Ef umboðsmaður ætlar sér að hjálpa skjólstæðing sínum að skipta um félag, ef umboðsmaður ætlar sér að græða pening á félagaskiptum, þá hlýtur yfirlýsing þess eðlis að skjólstæðingurinn vilji hreinlega ekki yfirgefa liðið sitt að vera það síðasta sem umboðsmaðurinn vill láta út fyrir varir sínar!

Er það ekki annars?

Nei, ég meina, getur verið að uppáhalds leikmaður okkar Einars ætli sér virkilega að vera áfram hjá Liverpool – í a.m.k. eitt tímabil til viðbótar – og berjast fyrir sæti sínu hjá liðinu?

Baros á sér sína galla sem leikmaður, en þeir eru þó þess eðlis að hann getur þroskast og bætt sig í þeim, en við skulum ekki gleyma því að hér er á ferðinni stórkostlegur leikmaður. Hann datt alvarlega úr stuði eftir áramót á s.l. tímabili en við skulum samt hafa það alveg á hreinu að þeir framherjar sem Rafa gæti keypt/mun kaupa í sumar eru alls ekkert öruggir um að spila betur í Englandi en Baros hefur gert. Þegar hann er í stuði halda honum engar varnir í Evrópu og jafnvel þótt hann hafi ekki verið að skora undanfarið hefur hann hlaupið maraþon og unnið gríðarlega mikilvægt verk fyrir liðið í mikilvægum leikjum í vor.

Hins vegar er önnur spennandi spurning: ef Milan Baros verður áfram, hvað verður þá um aðra framherja liðsins? Djibril Cissé og Fernando Morientes fara ekki fet, þar sem Rafa býst við þeim góðum næsta vetur, en gætu þetta þýtt endalokin hjá Neil Mellor, Florent Sinama-Pongolle og Anthony Le Tallec?

Gefum okkur að Rafa kaupi annan hvorn af Peter Crouch eða Dirk Kuyt. Þá værum við með þennan fjögurra framherja pakka, sem væri pottþétt áfram: Fernando Morientes, Djibril Cissé, Milan Baros, Dirk Kuyt/Peter Crouch.

Flo-Po gæti kannski verið fimmti maður þarna, þótt það sé í raun hæpið að hann sætti sig við að vera fimmti kostur, en ef Baros verður kyrr og Rafa kaupir samt framherja þori ég að veðja hverju sem er að framtíð Neil Mellor og Anthony Le Tallec hjá Liverpool er engin.

Milan Baros gæti orðið kyrr í Liverpool-borg eftir allt saman. Ég gæti fengið að sjá hann spila í Rauðu treyjunni á ný eftir allt saman. Úff, það yrði snilld að sjá hann og Cissé sitt hvorum megin við Morientes í fyrsta leik á Anfield í ágúst! En við skulum samt bíða rólegir með fagnaðarlætin, ekki satt Einar? 😉

9 Comments

  1. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ef Baros verður áfram, þá veðrur hvorki Crouch né Kuyt keyptir til liðsins. Þannig að framherjarnir fyrir næsta vetur verða Baros, Morientes, Cisse og Sinama-Pongolle, með Mellor sem fimmta mann.

    Ég veit hreinlega ekki hvað verður gert við Le Tallec. Það er ómögulegt að gera sér í hugarlund hvar hann er staddur í röðinni. Ég held að hans staða myndi samt ekkert breytast hvort sem að Baros eða Kuyt yrðu þarna á næsta tímaili, Le Tallec yrði eftir sem áður 5-6 maður frammi.

    Þannig að ég held að Rafa reyni aftur að lána Le Tallec og nú vonandi til einhvers liðs á Englandi. Kannski verður Le Tallec aldrei eins góður og við vonuðumst til, en það er samt full snemmt að gefast uppá honum strax. Við sáum að hann var að spila vel sem tengiliður milli miðju og sóknar þegar hann fékk sín tækifæri á seinni hluta síðasta tímabils.

  2. Ef Milan Baros verður áfram þá er ég indiáni eins og Samúel Örn sagði um árið!

    Come on you reds, go on with the gossip :biggrin:

  3. Ég vil Milan Baros áfram, ef ekki fyrir annað en að nafnið hans minnir mig alltaf á hverja við unnum í úrslitaleiknum í CL 🙂
    Svo skuldar hann fullt af mörkum sem hann mun borga á næsta tímabili.

  4. Ég bara trúi því ekki að Baros verði áfram. Ég sem var byrjaður að fagna því að hann færi loksins. En ég skil vel að lið séu ekki tilbúin að borga 8m punda fyrir hann. Hann er ekki þess virði að mínu mati. Spurning um að nota hann kannski til að fá Owen aftur, þ.e. Baros og peningur fyrir Owen.

    Ég vil hins vegar fara að sjá einhverja leikmenn skrifa undir samning við okkur, þetta sífellda slúður er alveg að fara með mig.

    Kv. Stjani

  5. Ég á eftir að sjá þetta gerast…… :confused:

    Ég hef enga trú á öðru en að Baros verði seldur.

    En ég segi eins og Stjáni. Dauðþreyttur á öllu slúðri. Vil fara að sjá eitthvað gerast. Það eina “concrete” sem við höfum er að Smicer er farinn til Bordeux og Hamann verður áfram.

    Hvað er að gerast með Gerrard? Af hverju er svona mikið slúður í kringum framherjakaup af Liverpool hálfu…???? Hvað með miðvörð og kantmenn. Jú jú eitthvað slúður en ekkert í líkingu við allt slúðrið í kringum Crouch og fleiri.

  6. Ég væri alveg til í að hafa Baros áfram hjá Liverpool, engin spurning. En málið er akkúrat þannig að annað hvort kemur samningur á borðið og hann skrifar undir hann, eða hann verður hreinlega seldur. Annað væri bara rugl.

    Ég er samt á því að þið séuð ekki að horfa rétt í þetta dæmi hjá umbanum hans. Að mínu mati er þetta hreint og klárt plott til að fá Liverpool til að lækka verðið á honum. Það er klárt mál að þeim mun hærra verð sem Liverpool ætlar að fá fyrir hann, þeim mun meira verður aflögu fyrir félagið sem kaupir hann til að setja í samning við leikmanninn. Held að umbinn sé bara að reyna að pressa verðið á honum niður með því að koma með “dulbúna” hótun þess efnis að hann ætli sér að sjá út samninginn og fara þá bara á Bosman næsta sumar.

    Eins og áður sagði, þá væri ég afar ánægður ef hann skrifaði undir nýjan samning og ég vil halda honum, en…

  7. Sko , ég fatta ekki hvað menn sjá við Baros SORRY en hann hugsar bara um eitt og það er hann sjálfur úffff Hausinn niður og svo er hlaupið áfram Nei takk frekar að fá einhvern sem hefur yfir sýn og hefur áhuga á að gefa bolltannnn .
    Ég segi NEI TAKK OG GÓÐA FERÐ Baros og vonandi gangi þér vel hjá Húlla :biggrin2:

  8. Úff. Verð bara að segja að Baros er arfa slakur framherji. Menn verða bara að viðurkenna að hann er ekki merkilegur leikmaður. Myndi eflaust sóma sér vel í Birmingham, Blackburn eða einhverjum liðum í þeim gæðaflokki. Burtu með hann og fáum framherja sem sæmir þessum klúbb

Kuyt, Diouf og Gerrard

Reina vill bara Liverpool