Næstu leikir

Svo það sé alveg á tæru, þá eigum við Chelsea í undanúrslitum og fyrri leikurinn er á Stamford Bridge. Leikjaplan næstu daga lítur svona út

16. apríl lau: Tottenham á Anfield
20. apríl mið: Portsmouth á útivelli
23. apríl lau: Crystal Palace á útivelli
27. apríl mið: Chelsea á Stamford Bridge
30. apríl lau: Middlesborough á Anfield
3. maí þri: Chelsea á Anfield
8. maí sun: Arsenal á útivelli
15. maí sun: Aston Villa á Anfield

Semsagt, nokkuð létt prógram framundan 🙂

Ef við komumst í úrslit í Meistaradeildinni, þá er sá leikur í Istanbúl, miðvikudaginn 25. maí

8 Comments

  1. Átta leikir á einum mánuði? Djísús…

    Legg til að Welsh, Potter, Warnock, Carson, Whitbread, Raven, Smyth, Foy, Smicer og jafnvel Emile Heskey verði í byrjunarliðinu á laugardaginn. Við þurfum að hvíla menn fyrir átökin framundan, og það er betra að gera það á Anfield á laugardag heldur en í útileikjunum sem framundan eru!

    Annars bið ég bara að heilsa … farinn til London fram yfir helgi. 🙂 Take it away, Einar…

  2. Já tökum nettan Ferguson á þetta og spilum bara varaliðinu í mikilvægum leik á móti Tottingham Rovers.
    Við verðum að spila eins sterku liði og hægt er í hverjum einasta leik það sem eftir er. 8 Bikarúrslitaleikir framundan.

  3. Er það ekki rétt munað hjá mér að Liverpool hafi verið hársbreidd frá því að vinna Chelsea í bikarúrslitaleiknum? og að við hefðum líka átt að vinna leikinn á nýársdag? Svo man ég reyndar ekkert hvernig hinn leikurinn á móti Chelsea var í deildinni. Eru menn til í að hressa uppá minni mitt?

    Eigum við ekki alveg að geta unnið þetta helvítis lið? (með fullri virðingu fyrir Eiði) 🙂

  4. Þegar maður kíkir á þessar greinar um leikina 3 gegn chelskí þá finnur maður hvernig blóðið hitnar í æðunum! Sérstaklega tapið á Anfield sem er þjófnaður ársins í enska boltanum 😡

    Ég fer að hallast að því að Liverpool muni klára þetta einvígi, sérstaklega í ljósi þess að seinni leikurinn er á Anfield og Alonso, Cisse og fleiri góðir eru að koma til baka!

    Smá vangavelta, ef við vinnum CL erum við þá automatic inni næsta ár eða..?

  5. Takk Einar! 😉

    Og Svavar: Já Liverpool fá sjálfkrafa sæti í meistaradeildinni næsta ár þegar þeir vinna meistaradeildina í ár! En þeir taka líka fjórða sætið til að gera þetta öruggt! :tongue:

  6. Ef við vinnum Meistaradeildina en lendum í fimmta sæti, þá þarf enska knattspyrnusambandið að sækja um það til UEFA að Liverpool fari í Meistaradeildina í stað Everton. Það verður að teljast nokkuð líklegt að enska knattspyrnusambandið myndi gera það.

Juve 0 – L’pool 0 (uppfært)

Liverpool mun vinna Chelsea!