Eitt af því fyrsta sem stuðningsmenn Liverpool veittu athygli er FSG (þá NESV) voru orðaðir við Liverpool var hugmyndafræði þeirra á leikmannamarkaðnum.

Billy Beane Ég er sæmilega viss um að þetta sé mynd af honum! (sjá ummælakerfi)
Þeir náðu frábærum árangri á mjög stuttum tíma með Liverpool Bandarískra íþrótta, Boston Red Sox og hafa aldrei farið leynt með að þeir náðu þessum árangri með því að notast við svokallað soccermetrics/sabermetrics og eru mjög hrifnir af bókinni Moneyball þar sem þessi hugmyndafræði hafnaboltaþjálfarans Billy Beane er m.a. umfjöllunarefnið. Með mjög mikilli einföldun þýðir það að þeir notast mikið við tölfræði og greiningu á tölum við að finna út hvað vantar í liðið og eins til að nota sem hjálpartæki til að finna rétta leikmanninn í liðið. Ekki endilega þann “besta” eða dýrasta heldur þann rétta (sem auðvitað má færa rök fyrir að sé sá besti). Eins er þeim mjög umhugað að fá mikið fyrir peninginn og leggja mjög mikið kapp á að finna stórstjörnur áður en þeir verða einmitt það og eru jafnvel til í að greiða “fáránlegar” upphæðir fyrir slíka leikmenn (Andy Carroll hneigir sig).
Hafnabolti í Bandaríkjunum og fótbolti í Evrópu eru auðvitað mjög ólíkar íþróttir og bæði er hafnaboltinn með forskot þegar kemur að þróa þessa tækni þar sem hún hefur verið við líði í rúman áratug núna ásamt því að mun einfaldara er að reikna út alla tölfræði fyrir hafnaboltaleikmann, ásamt því auðvitað að launastrúktúrinn er ekki eins gjörsamlega út úr kortinu og “óútreiknanlegur” og hann er í Evrópska fótboltanum.
Það er þó ekki þar með sagt að ekki sé hægt að notast við þessa hugmyndafræði í fótboltanum og mörg lið notast við þessa aðferð víða í Evrópu í mismiklum mæli auðvitað. Njósnarar í fótboltanum hafa auðvitað þróast með tækninni og voru líklega löngu byrjaðir að því áður en bókin Moneyball kom út og FSG er ekki að finna upp hjólið með því að vilja kaupa unga leikmenn með mikið “potential” sem eru líklegir til að hafa jafngott ef ekki betra endursöluvirði. Lyon og Dortmund eru t.a.m. mjög góð dæmi um nákvæmlega þetta ásamt fleiri liðium.
FSG hefur engu að síður klárlega snarbreytt stefnu Liverpool FC og miðað við heitasta slúðrið þessa dagana erum við að sjá nákvæmlega hvað þeir sögðust ætla sér að gera á leikmannamarkaðnum og raunar sáum við það strax í janúar.
Stuðningsmenn Liverpool alveg eins og forráðamenn félagsins vita vel að það þarf að styrkja þetta lið umtalsvert á næstu árum og strax í sumar þurfum við að fá inn leikmenn sem styrkja byrjunarliðið, en ég á ekki von á því að fá marga leikmenn sem hafa þegar sannað sig í boltanum og hvað þá leikmenn sem flokkast sem súperstjörnur nú þegar, kannski að einn læðist með í sumar til að selja skyrtur og sýna að við ætlum að vera með en persónulega hef ég mikið meiri trú á slúðrinu um 19-21 árs mjög góða leikmenn sem þegar hafa sýnt að þeir eru mjög mikil efni en eiga eftir að springa almennilega út.

Mikilvægustu "leikmenn" Liverpool þessa dagana
Leikmenn sem eru nákvæmlega í takt við þá stráka sem við höfum verið orðaðir mjög mikið við undanfarna daga og vikur. Óljóst slúður segir að Comolli sé núna að ganga mjög hart á eftir Jordan Henderson tvítugum leikmanni Sunderland og að hann vilji koma til Liverpool. Verðið er stjarnfræðilega mikið fyrir þennan óþekkta leikmann að manni finnst en ég yrði alls ekki hissa á að sjá okkur punga út fyrir honum. Henderson er talinn vera fjölhæfur miðjumaður og var að spila heilmikið með Sunderland í vetur og náði meira að segja að fá sæti í Enska landsliðinu á þessu tímabili. Enginn myndi samt halda þvi fram að hann sé nálægt því að vera búinn að meika það og hvað þá að hann sé nokkurntíma £15m-£18m virði eins og staðan er núna. En ef hann heldur áfram að þróast eins og hann hefur verið að gera þá er hann afar líklegur til að verða a.m.k. £15m-£18m virði eftir 3-5 ár, ef hann verður þá til sölu þá.Ég hef mjög mikla trú á þessu slúðri með Henderson, allavega að Comolli sé að tala við Sunderland um hann og set alveg 3/5 á að hann verði búinn að samþykkja að verða leikmaður Liverpool áður en hann fer til Danmerkur með U21 árs liði Englendinga.
Nákvæmlega sama má segja um miðvörð Blackburn hinn 19 ára Phil Jones. Strákur sem stóð sig vel í vörninni hjá úrvalsdeildarliði og er framtíðarmiðvörður með hárrétt þjóðerni. Gæti samt trúað að baráttan um hann sé ansi hörð og veit ekki hvað við þurfum mikið á 19 ára óreyndum miðverði að halda. Satt að segja veit ég ekki hvort hann sé einu sinni betri en Martin Kelly og Danny Wilson sem við eigum fyrir en það þýðir lítið að hugsa svona og FSG væri alveg á pari við sína stefnu ef þeir kaupa þennan leikmann. Þ.e.a.s. ef ég er að skilja þeirra hugmyndafræði rétt. Phil Jones er mikið meira efni en t.d. Jack Hobbs sem við keyptum einu sinni sem miðvörð með mikla framtíð og er mjög líklegur að verða a.m.k. hellings virði í framtíðinni.
Þriðji leikmaðurinn sem slúður dagsins bendlar okkur við og enn einn sem við höfum áður verið bendlaðir við er síðan Conor Wickham hjá Ipswich og raunar er núna talað um að við höfum boðið £8m í hann. Tek það auðvitað með mjög miklum fyrirvara en það væri engu að síður alls ekki ólíklegt að við myndum eltast við þann dreng enda gríðarlegt efni og búinn að vera það í smá tíma núna. Ef við myndum landa honum myndi ég segja að núna værum við að landa svona Walcott, Ramsey, Pato týpu af leikmanni sem við höfum alla fengið á Melwood í samningsviðræður áður en þeir slógu í gegn en ekki týmt að punga út fyrir. Ég er ekki að líkja Wickham við þessa leikmenn, en hans profile núna er ekki svo ýkja ósvipaður og var hjá þessum leikmönnum áður en þeir fóru til þeirra liða sem þeir eru hjá núna.
Ef þetta slúður á sér einhverja stoð í raunveruleikanum er ljóst að stefna FSG er að kaupa leikmenn áður en þeir verða súperstjörnur, leikmenn sem kosta mikið þrátt fyrir það og það sem er mikilvægast, leikmenn sem eru líklegir til að halda verðgildi sínu í mörg ár eftir að þeir eru keyptir.
Það er þó ekki þar með sagt að það séu einu leikmennirnir sem þeir skoði í sumar, enda sagði einn ágætur fyrrum fyrirliði okkar að þú vinnur ekkert með krökkum…ohh! (Skoðið það dæmi reyndar, hann hafði ekki eins rangt fyrir sér og af er látið:) . Ef réttur leikmaður losnar fyrir rétt verð efast ég ekki um að FSG taki slaginn sama á hvaða aldri hann er. T.a.m. er ekkert leyndarmál að við gerðum tilboð í Charlie Adam og Ashley Young sem báðir eru komnir yfir þennan “kaupa áður en þeir meika það” aldur. Ekki að þeir séu svo ýkja gamlir, Adam er 25 ára og Ashley er af YOUNG ættinni!!! Eins er talað um að við séum að skoða N´Zogbia hjá Wigan sem gæti gert ágæta hluti hjá Liverpool.

Holloway fær ekki þessar £20m fyrir Adam sem hann vildi í janúar, ekki frá FSG.
En ég er ekki að sjá FSG eyða yfirverði fyrir þessa leikmenn, Adam, Young og N´Zogbia eiga það allir sameiginlegt að eiga mjög lítið eftir af samningi og það er klárlega eitthvað sem heillar FSG. Líklega er það ekki svo vitlaust að rúlla yfir þá toppleikmenn í Evrópu sem eru réttu megin við þrítugt og að nálgast endalok samningstímans. FSG er klárlega búið að láta kanna þann hóp.
Það sem heillar mig smá við slúðrið undanfarið er að Dalglish og co virðast ætla að bretavæða hópinn meira og ég held að það sé gott mál. Ekki að ég myndi segja nei við mest spennandi leikmanninum sem twitterslúður dagsins hefur orðað okkur við, Juan Mata hjá Valencia en þessir latino mömmustrákar eins og Alonso, Mascherano, Garcia, Arbeloa og hvað þeir nú heita allir hafa farið í mínar fínustu undanfarin ár (með því að fara). Torres hefði komist í þennan hóp en hann valdi rússagullið. Ég veit að þeir hafa samið hinar ýmsu ástæður fyrir brottför sinni og oft er þetta alveg fullkomlega skiljanlegt, en það held ég að hljóti að vera staðreynd að þessir latino gaurar fá oftar “heimþrá” frá Englandi heldur en leikmenn annarsstaðar að. Þar fyrir utan ætti þessi bretavæðing að þýða verðmætari hóp, svona miðað við verðið á breskum leikmönnum.
En orðrómur um leikmenn sem eiga lítið eftir af samningi er ekki alltaf heillandi og það ættum við Púllarar að þekkja manna best eftir þetta tímabil sem og önnur tímabil undanfarin ár. Charlie Adam, Young og N´Zogbia flokkast samt allir sem leikmenn sem spennandi væri að hjóla í og í tilviki Young erum við auðvitað að tala um mjög spennandi leikmann á líklega á temmilegu verði. FSG er örugglega ekkert frábrugðið fyrri eigendum Liverpool hvað slíka leikmenn varðar né öðrum klúbbum. En þeir dagar þar sem við tökum leikmann í leit að síðasta stóra samningi ferilsins eru (geri ég fastlega ráð fyrir) taldir.
Lái þeim það hver sem vill en ég gæti trúað því að bókhaldarateymi FSG hafi þurft að kíkja oftar en 14 sinnum á launatölur leikmanna Liverpool, tala nú ekki um ef þeir fóru að beita tölfræðinni fyrir sig og reikna út hvað þessir kappar kosta per spilaðan leik. Hvað þá er þeir taka spilaðar mínútur þar sem téður leikmaður gerði eitthvað af viti.

Sumar myndir tala sínu máli bara...
Joe Cole hefur sérstaklega verið milli tannana á fólki enda virðist hann hafa samið um laun í hlutfalli við það ef Liverpool hefði þurft að greiða félagi fyrir hans þjónustu. Ef það er rétt að Milan Jovanovic sem sýndi skítsæmilega takta á HM sl. sumar hafi tekist að semja á svipuðum nótum erum við að tala um lögreglumál. Sjaldan hafa svo dýrir leikmenn gert eins ótrúlega lítið í sögu Liverpool, eða það ætla ég rétt að vona.
Ef við vorum að greiða £5m fyrir Poulsen er enginn að fara segja mér að hann sé ekki á allt of háum launum líka og svipaða sögu má líklega segja um ansi marga leikmann á launaskrá í dag og mig grunar að við gætum séð einhver nöfn fara sem við bjuggumst ekki við að sjá yfirgefa Liverpool út af nákvæmlega þessari ástæðu. Þ.e.a.s. ef t.d. gott boð kæmi í Agger þá efast ég um að við myndum segja nei við því.
Nánast þeir einu af hópnum sem ég myndi flokka sem óseljanlega núna eru Gerrard og Carragher þó þeir væru báðir í þessum flokkið væru þeir ekki foringjar félagsins og heimamenn. Auk þeirra myndi sér segja Carroll, Suarez og Reina ásamt Lucas sem er nýbúinn að fá samning. Aðrir held ég að gætu alveg farið komi alvöru tilboð.
Fljótlega eftir að FSG náði að fara yfir bókhald Liverpool gáfu þeir út að í hópnum væru allt of margir leikmenn á of góðum launum, á íslensku þýðir þetta að í dag eru allt of margir farþegar í hópnum sem skapa lítið sem ekkert virði, hvorki innan sem utanvallar. Hvað þetta varðar þarf að lækka launakostnaðinn og það umtalsvert. Svona tal væri í öllum tilvikum mjög mikið áhyggjuefni, sérstaklega ef þú hefur lesið bókina Pay As You Play þar sem sýnt er fram á að þau lið sem borga mest í launakostnað ná oftast besta árangrinum.
John W Henry og co voru líka fljótir að taka það skýrt fram að þeir vilja ekki lækka launakostnaðinn, þvert á móti raunar þá stefna þeir á að hækka hann. En þeir eru ekki fávitar eins og fyrri eigendur Liverpool voru og vilja fá mikið meira fyrir peninginn. Það eru algjörlega frábærar fréttir. Ef maður skilur þá rétt þýðir það betri leikmenn (stærri nöfn) og betra lið.
Kaupin á Luis Suarez og Andy Carroll eru mjög góð dæmi um þessa stefnu félagsins og reyndar held ég að stefnan hjá þeim til framtíðar sé að ná sem oftast leikmannagluggum eins og þeir náðu í janúar. Þá er ég ekki að meina í sumar og líklega ekki næsta sumar en þeir vilja væntanlega eiga leikmenn sem þeir geta selt á mjög góðan pening (eins og Torres) til að fjármagna kaup á nýjum og ferskum leikmönnum, koma heilt yfir út í grend við núllið og auðvitað með betra lið. Það er ekkert alslæm stefna þó að við verðum að eyða aðeins meira núna en við seljum á þeim markaði sem er í gangi núna á Englandi og í Evrópu.
En Suarez og Carroll samanlagt eru örugglega ekkert á lægri launum heldur en Torres og Babel voru, án þess að hafa hugmynd um það myndi ég skjóta á að þetta séu svipaðar upphæðir en á móti kemur að núna eigum við tvo afar verðmæta leikmenn innan sem utanvallar sem báðir ættu að eiga sín bestu ár í boltanum eftir hjá Liverpool og eru í það minnsta mjög líklegir til að kosta mjög mikið taki þeir upp á því eftir 3-5 ár að taka Torres á þetta og fara frá Liverpool. Óhugsandi ég veit en hver veit nema salan á Suarez 2015 greiði götuna fyrir næstu tveimur 22 ára framtíðarleikmönnum með alla þá sömu kosti og ég taldi upp hjá Suarez og Carroll.

Suarez er leikmaður sem skapar tekjur meðan hann er á mála hjá sínu liði og er "ómetanlegur" sem söluvara.
Það fer að styttast í stórar fréttir tengdar Liverpool, júní er oftar en ekki leiðinlegasti mánuður ársins þegar kemur að enska boltanum enda allir í fríi, glugginn lokaður og öll liðin að bíða eftir 31.ágúst til að geta farið að huga að þessum leikmannaviðskiptum sem gleymdist að græja alla hina daga sumarsins. En samt eins og sannur stuðningsmaður Liverpool er maður alltaf bjartsýnn og alltaf mættur aftur á allar mögulegar síður sem internetið hefur upp á að bjóða í leit að nýjasta slúðrinu.
Jafnvel þó maður viti það vel að góða tegundin af “The Liverpool Way” hefur snúið aftur á Anfield og þaðan leka ekki fréttir og engu sé að treysta fullkomlega fyrr en leikmaðurinn er mættur í myndatöku með King Kenny.
Þegar ég tala um góðu tegundina af “The Liverpool Way” þá á ég að nánast öllu leyti við Kenny Dalglish og þá stefnu sem hann setti um leið og hann komst í hljóðnema sem stjóri Liverpool. Árin sem David Moores og Rick Parry stýrðu skútunni á Anfield flokkast líka sem ár þar sem unnið var eftir þessari hugmyndafræði, en það var ekki alltaf til bóta og þetta hugtak er stundum misskilið. Kannski pistill um það seinna, þegar ég er búinn með bókina “Epic Swindle 44 months with two cowbys” eftir snillinginn Brian Reade, þ,e.a.s. ef ég ríf hana ekki áður en ég klára af pirringi yfir vonlausu eignarhaldi Liverpool sl.ár og áratugi.
Ég ætlaði í alvöru að taka Leikmenn til Liverpool #2 og fjalla lauslega um Henderson, Wickham, Jones og Mata!
Babú.