Nýr dagur, nýr leikur, horft fram á veginn og nú skal ekki dvalið við orðna hluti. Eða hvað? Ekki alveg. Eins og Kristján Atli kom inn á í Twitter-skilaboðum til mín, þá er þessi Fulham-leikur ennþá að bögglast í hausnum á manni, öllu heldur frammistaða eins manns í þeim leik. Ég hreinlega man varla eftir því í seinni tíð að eitthvað hafi setið jafn lengi í manni eins og frammistaða Kevin “Friend” í þessum “fræga” leik. Auðvitað eiga samsæriskenningar ekki við í flestum tilvikum í fótboltanum, og ég er alveg klár á því að þær eiga á engan hátt við um þetta tilvik heldur. Þarna horfðum við einfaldlega upp á mann eiga skelfilegan dag og gera þvílíka röð stórra mistaka að það hálfa væri hellingur.
Þetta er upphitun fyrir leikinn gegn QPR en ég verð bara að klára þetta frá. Það kom góð samantekt í kommenti hjá Kristjáni Atla um þetta allt saman og ætla ég að ræna henni hér og nú:
- 1. Dempsey ekki rekinn útaf fyrir að skalla Bellamy. Bellamy fær gult í staðinn. Dempsey skorar svo sigurmarkið.
- 2. Senderos ekki rekinn útaf fyrir að rífa Adam niður í augljósu marktækifæri.
- 3. Brotið fært út fyrir vítateigslínuna og aðeins aukaspyrna gefin.
- 4. Löglegt mark dæmt af Luis Suarez.
- 5. Dæmt brot á Bellamy gegn Riise fyrir ekkert. Hann var þar á spjaldi og því orðinn tæpur svo að Dalglish þurfti að taka hann út af.
- 6. Senderos sleppur við seinna gula þegar hann togar Carroll niður.
- 7. Senderos sleppur við seinna gula þegar hann togar Suarez niður.
- 8. Spearing fær beint rautt sem stendur. Ennþá óskiljanlegur dómur fyrir mann sem reyndi við boltann með manninn við hliðina á sér, og náði boltanum.
- 9. Gerði engar athugasemdir í skýrslu við aðkastið sem Suarez fékk frá áhorfendum – ljótt orðbragð og hlutum kastað í hann við hliðarlínu. Þess í stað var Suarez kærður eftir leik fyrir löngutöngina.
- 10. Kvartaði í skýrslu yfir því að leikmenn Liverpool hafi hópast að sér í kjölfar brottreksturs Spearing. Klúbburinn fær þá kæru ekki á sig nema dómarinn kvarti eftir leik.
Sem sagt, þrátt fyrir að hafa tekið þessar HROÐALEGU ákvarðanir, þá eru það okkar menn sem sitja í súpunni. Þrem stigum minna en þeir ættu að hafa, Spearing kominn í 3ja leikja bann, Suárez á leiðinni í 2-3 leikja bann og Liverpool FC með kæru á höndum sér.
Nú er enginn að halda því fram að það sem Suárez gerði (puttinn) eða viðbrögð leikmanna Liverpool við brottrekstrinum, hafi verið rétt eða afsakanleg. Nei, það er hentistefna FA sem fer fáránlega í taugarnar á manni. Af hverju í ósköpunum er þá ekki oftar kært þegar leikmenn hópast að dómurum leiksins? Af hverju hefur ekki verið ákært í fjölda annarra tilvika þegar menn hafa sýnt sama eða svipuð merki og Suárez gerði. Dempsey fór í bann í fyrra, en þetta virðist vera bara einhver hentistefna hjá FA hver er ákærður og hver ekki. Ekki ef þú heitir Ashley Cole eða Gary Neville, neeeeeei. En eitt er víst, Kevin “Friend” mætir um helgina með bros á vör eins og ekkert hafi í skorist, ekki hefur hann fengið svo mikið sem “slap on the wrist” fyrir skituna sína. Maður hefur verið svo sótsvartur af reiði út af þessu að maður hefur nánast stokkið brjálaður til þegar einhver ávarpar mann sem “vinur”.
En hvað um það, er nú búinn að koma þessu frá og þá er hægt að snúa sér að næsta leik. Heimaleikur gegn enn einum nýliðunum, QPR. Hvernig lið mætir núna á völlinn og hafa menn hugleitt það núna á æfingasvæðinu að það sé vænlegra til árangurs að hamra boltanum í sjálft netið, frekar en í stangir eða slá? Ætla menn að fara að drattast til að nýta eitthvað af þessum færum? Nú er ekkert sem heitir, eftir að hafa gert jafntefli við Swansea og Norwich á heimavelli, þá verða menn bara að fara að drattast til að leggja þessi minni lið á Anfield. Á morgun er dagurinn.
QPR bættu við sig slatta af reynsluboltum fyrir tímabilið, menn eins og Anton Ferdinand, Luke Young, Armand Traore, Danny Gabbidon, Kieron Dyer, Joey Barton, Shaun Wright-Phillips, DJ Campbell og Jay Bothroyd svo einhverjir séu nefndir. Þeir hafa komið mis mikið við sögu en bæta eins og áður sagði, hellings reynslu inn í þetta lið þeirra. Þetta er því algjörlega sýnd veiði en ekki gefin. Það er þó magnað að fylgjast með því að þeirra helsti markaskorari á tímabilinu hefur verið Heiðar nokkur Helguson. Síðast þegar ég sá hann í Liverpool, þá sat hann á The Park fyrir leik með hinum stuðningsmönnum Rauða Hersins. Vonandi heldur hann áfram að skora mörk fyrir þá, en vinsamlegast slepptu því á morgun Heiðar minn.
QPR hafa unnið 4 leiki, gert 4 jafntefli og tapað 6 á þessu tímabili. Heiðar er eins og áður sagði markahæstur leikmanna þeirra með 6 mörk, en næstu menn þar á eftir hafa sett 2 kvikindi. Þeir eru sem sagt með 16 stig og hafa skorað 15 mörk í þessum 14 leikjum sínum. Þetta eru ekki mörg mörk skoruð, en það verður því miður að segjast eins og er, við höfum nú heldur ekkert verið að tapa okkur í markaskorun, með okkar 17 mörk í 14 leikjum. Þau eru dýr þessi 12 skot sem hafa hafnað í stöngum eða slá. Munurinn á liðunum í töflunni hefur fyrst og fremst snúið að varnarleiknum. Á meðan QPR hafa fengið á sig heil 25 mörk, þá hafa okkar menn aðeins þurft að hirða boltann 13 sinnum úr netinu. Ekkert lið hefur fengið færri mörk á sig en 13, en því miður þá eru fjölmörg lið sem hafa skorað fleiri mörk en 17, eða 9 talsins. Þarna liggur hundurinn grafinn og á þessu þarf að ráða bót.
Liverpool er sem stendur í 7. sæti í deildinni, þrem stigum á eftir Newcastle og Arsenal og svo 5 stigum á eftir Chelsea í fjórða sætinu. Chelsea á leik gegn City á mánudaginn og því er það algjört lykilatriði að næla í 3 stig á morgun. Nú mega hreinlega ekki tapast fleiri stig gegn “litlu” liðunum. Ég vona svo innilega að leikurinn gegn Fulham verði til þess að menn fái spark í afturendann og komi sér á gott skrið.
Aðeins hefur nú minnkað breiddin hjá okkar mönnum, þá sér í lagi á miðjunni. Lucas auðvitað frá út tímabilið og Spearing verður ekki með okkur í næstu 3 leikjum. Þar fyrir utan eru dularfullu meiðsli fyrirliðans enn að halda honum frá keppni, þannig að það verður sífellt auðveldara að spá fyrir um byrjunarlið okkar manna, sér í lagi þegar kemur að vali á miðjumönnum. Það mun gríðarlega mikið mæða á Charlie Adam í næstu leikjum, og er ég að vonast til þess að nú fáum við að sjá hann og Henderson saman á miðri miðjunni. Mér hefur fundist Jordan vera sífellt að stíga upp undanfarið og ég hef algjöra tröllatrú á þessum gutta.
Ég trúi ekki öðru en að varnarlínan fái að halda sér óbreytt áfram. Skrtel og Agger hafa verið að ná virkilega vel saman í vörninni og þó svo að Carra sé orðinn heill, þá vil ég að hann haldi áfram á bekknum á meðan hinir eru að skila sínu jafn vel og raun ber vitni. Einhverjir hafa verið að kalla eftir breytingum í hægri bakverðinum, en ég er á því að Johnson haldi stöðu sinni þar, sér í lagi þegar við erum að spila gegn minni spámönnum á Anfield. Hans hlutverk í sóknarleiknum getur verið stórt, sérstaklega þegar lið leggjast aftarlega á völlinn og pressa okkur ekki mikið á okkar eigin vallarhelmingi. Það þarf ekki að ræða vinstri bakvarðarstöðuna, Enrique hefur að mínum dómi verið algjörlega frábær.
Þá að miðjunni. Ég er nokkuð pottþéttur á því að Henderson verði færður inn á miðja miðjuna og eins spurningamerkið í mínum huga er það hver af þeim Kuyt, Downing, Carroll, Bellamy og Maxi verði á bekknum. Helst myndi ég vilja sjá þá Bellamy og Downing á köntunum, bara upp á hraðann að gera. Ég myndi svo einnig vilja sjá Carroll frammi með Suárez í frjálsu hlutverki fyrir aftan hann. En ég er engu að síður nokkuð viss um að Kuyt verði í liðinu og ég held að það verði á kostnað Bellamy. Svona held ég að Kóngurinn stilli upp.
Reina
Johnson – Skrtel – Agger – Enrique
Henderson – Adam
Kuyt – Suárez – Downing
Carroll
Bekkurinn: Doni, Kelly, Carragher, Coates, Shelvey, Maxi og Bellamy.
Spil okkar manna hefur verið mjög gott á stórum köflum í vetur og nú er bara að halda því áfram og koma tuðrunni aðeins oftar í netið. Það er eitthvað sem segir mér að loksins opnist flóðgáttirnar á Anfield. Mótlætið undanfarna viku um hleypa meiri grimmd í mannskapinn og það verða QPR sem verða fórnarlömb þess. Pass and move og klára, simple really. Ég ætla að vera bara nokkuð djarfur í spá minni og segja að þessi leikur fari 4-0 fyrir okkar menn. Jú, kannski brjálæði miðað við hvernig þetta hefur verið hjá okkur varðandi markaskorun, en einhvern tíman hlýtur þetta að smella hjá okkur. Ég reikna með að Suárez kallinn stimpli sig rækilega inn svona korter fyrir bann og setji 2 mörk. Carroll mun einnig loksins finna netmöskvana og það verður svo Henderson sem setur fjórða markið. Er þetta ekki bara díll?