Liverpool Bloggið » Um síðuna

Dregið í bikar: Man Utd heima! / Kristján Atli um Suarez-málið í útvarpi
Rétt í þessu var dregið í 32ja liða úrslit FA bikarkeppninnar. Okkar menn drógust gegn Manchester United og verður leikurinn á Anfield. Leikurinn verður leikinn seint í janúar. Auðvitað.

Annars vil ég benda mönnum á að ég var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net í gær þar sem ég ræddi um Luis Suarez og kynþáttamálin öll. Umræðan tók um 30 mínútur og hefst á 43:10 mínútu. Þið getið hlustað á þetta hér hjá Fótbolta.net.

Myndin af argentínska landsliðinu sem ég vísaði í í útvarpsviðtalinu er hér fyrir neðan. Það þarf klárlega að setja allt argentínska landsliðið í langt bann:

Áramótauppgjör Kop.is
Árið 2011 hefur verið viðburðaríkt, dramatískt og eftirminnilegt fyrir Liverpool FC og stuðningsmenn Liverpool. Um áramótin er við hæfi að við lítum aðeins um öxl og rifjum upp það sem stóð upp úr á árinu og spyrjum okkur líka hvaða vonir við höfum fyrir árið 2012.

Við þökkum ykkur öllum fyrir að hafa lesið síðuna, hlustað á þættina og tekið þátt í umræðunum. Það eru ekki við sem gerum þessa síðu merkilega, það eruð þið!

Hér er áramótauppgjör okkar á Kop.is:

BABÚ

Besti leikur ársins 2011: Enginn leikur á þessu ári fer í sögubækur félagsins til lengri tíma eða verður lengi í minningunni en ég segi 3-1 sigurinn á United. Þeir slysuðu inn marki í lokin í leik sem hefði frekar átt að fara 4 eða 5-0. Frábær spilamennska og alltaf gaman að vinna United.

Lélegasti leikur ársins 2011: Blessunarlega fékk Roy Hodgson ekki marga leiki á þessu ári en skýrsluna eftir Blackburn-leikinn í janúar hóf ég svona: „Á meðan ég kveð Roy Hodgson, versta stjóra í sögu Liverpool FC vil ég benda mönnum á að maður nær bestu viðspyrnunni þegar maður spyrnir sér frá botninum. Ég neita að hugsa það til enda ef þetta er ekki botninn.“ Það var ekki búið að reka hann formlega þarna en þetta dugði til og síðan við spiluðum þennan leik hefur andinn í kringum félagið verið að léttast dag frá degi.

Bestu leikmannakaupin 2011: Erfitt að segja þannig séð þar sem mörg af þessum leikmannakaupum gætu sannað gildi sitt á næstu árum og hef ég sérstaklega trú á Henderson þar. En m.v. þetta ár er ekki hægt að velja annan en Luis Suarez. Ótrúlegur leikmaður og andstæðingar félagsins eru virkilega farnir að hugsa út fyrir boxið til að reyna að stoppa hann.

Mestu vonbrigðin 2011: Það þurfti að segja mér það tvisvar eftir allar breytingarnar á félaginu að Fernando Torres vildi núna ólmur yfirgefa skútuna. Mikil vonbrigði enda vissi ég það ekki þá að hann ætti eftir að eiga umörlegt ár og Suarez myndi fylla hans skó eins og skot.

Stutt spá fyrir 2012: Bætum okkur eftir áramót og skorum meira án þess þó að ná í Meistaradeildina. Komumst í þann hóp á næsta tímabili með meiri stöðugleika.

Áramótaheitið 2012: Koma með betri spá fyrir næsta ár á sama tíma að ári.

EINAR ÖRN

Besti leikur ársins 2011: Sigurinn á Manchester United á Anfield í vor.  Ég horfði á hann á hótelherbergi í þjóðgarði í Rajasthan á Indlandi og átti svo sem ekki von á miklu.  En þetta var klárlega leikurinn þar sem maður áttaði sig á því að Luis Suarez myndi fá mann til að gleyma Fernando Torres fljótt.

Lélegasti leikur ársins 2011: Hodgson-leikirnir í upphafi árs.  Ætli Blackburn leikurinn sé ekki einhver sá allra lélegasti, sem ég hef séð hjá Liverpool.  Þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið illa á þessu tímabili, þá er með ólíkindum hversu mikið þetta lið hefur batnað.

Bestu leikmannakaupin 2011: Luis Suarez, nema hver?

Mestu vonbrigðin: Andy Carroll, því miður.  Ég hef trú á honum ennþá, en það er alveg ljóst að hann mun ekki verða lengi hjá Liverpool ef hann bætir sig ekki.

Stutt spá fyrir 2012: Við komumst í Meistaradeildina.

Áramótaheitið 2012: Ég á von á strák í maí og ég heiti því að ala hann upp sem Liverpool-stuðningsmann!

KRISTJÁN ATLI

Besti leikur ársins 2011: Ég ætla að brjóta regluna og tilnefna þrjá: útileikina gegn Chelsea á Stamford Bridge. Ég er ekki viss um að það muni gerast aftur á minni ævi að Liverpool vinni þrjá útileiki gegn Chelsea á sama árinu. Að það skuli hafa gerst í kjölfarið á því að Fernando Torres skipti yfir til þeirra því hann vildi spila fyrir „alvöru stórlið“ gerði þetta bara enn sætara!

Lélegasti leikur ársins 2011: Blackburn úti eða Wolves heima í upphafi janúar. Vorum við virkilega farin að gera ráð fyrir tapi á heimavelli gegn Wolves? Hrollur! Mikið er ég feginn að við losnuðum við Hodgson strax í upphafi árs.

Bestu leikmannakaupin: Luis Suarez, engin spurning. Við þurftum á bjargvætti að halda eftir að Torres fór en jafnvel bjartsýnustu menn grunaði varla að staðgengill þess spænska myndi reynast enn betri ef eitthvað er. Stórkostlegur leikmaður og ef hann getur hrist af sér þessar nornaveiðar sem eru í gangi á Englandi þessa dagana er ómögulegt að spá fyrir um hversu langt hann getur náð með Liverpool.

Mestu vonbrigðin 2011: Andy Carroll, því miður. 35m punda fyrir leikmann sem skoraði 4 deildarmörk allt árið eru ekkert annað en vonbrigði. Hann er ungur og hefur tíma til að bæta úr en maður er bara svekktur með hann á þessum tímapunkti.

Stutt spá fyrir 2012: Við ætlum að vinna Manchester United á Old Trafford í ár. Þrisvar!

Áramótaheitið 2012: Ég stefni á að komast til botns í þessari duldu þráhyggju Steina gagnvart Tim Cahill. Þetta er farið að hræða okkur hina.

MAGGI

Besti leikur ársins 2011: Liverpool 3 – Manchester United 1.  Welcome to England Mr Luis Suarez og Kuyt með ÞRENNU gegn Scum. Ekki neitt toppar það.

Lélegasti leikur ársins 2011: Blackburn 3 Liverpool 1. Reyndar jákvætt að þar lauk versta tímabili í minni minningu sem Liverpool-aðdáanda, tímans þegar Roy Hodgson reyndi að gera LFC að varnarsinnuðu skyndisóknaliði.

Bestu leikmannakaupin 2011: Luis Suarez. En langt síðan að maður getur talið upp ár þar sem svo mörg góð kaup hafa átt sér stað á sama árinu. Adam, Bellamy, Enrique og Henderson strax að look-a flott, fleiri á leiðinni.

Mestu vonbrigðin 2011: Hin ógeðslega framkoma Fernando Torres dagana eftir að hann sveik lið sem kom honum almennilega á alheimskortið.

Stutt spá fyrir 2012: Öflug skref í rétta ár, lendum í CL – sæti og vinnum FA cup.

Áramótaheitið 2012: Minna mig stöðugt á: “I’d rather have the swine flu than supporting ManU”!

SSTEINN

Besti leikur ársins 2011: Þvílíkur unaður að sjá Dirk setja þessa stórbrotnu þrennu þar sem lið ManYoo var sundurspilað á stórum köflum í leiknum.  Suarez notaði þennan leik til að stimpla sig formlega inn í enska boltann þar sem hann snýtti vörninni þeirra einn síns liðs og lét leikmenn andstæðinganna líta út fyrir að vera meistaraflokkslið Hrafnkels Freyðsgoða.

Lélegasti leikur ársins 2011: Vil bara hreinlega ekki viðhafa fleiri orð um leikinn gegn Blackburn í byrjun árs. Roy Hodgson í hnotskurn.

Bestu leikmannakaupin 2011: Það kemst bara enginn nálægt Luis Suarez þegar kemur að kaupum ársins.  Efast hreinlega um að við eigum eftir að sjá jafn góð kaup á næstu árum því ég tel að hann eigi ennþá eftir að sýna miklu, miklu meira, enda stórbrotinn leikmaður.

Mestu vonbrigðin 2011: Að hafa ekki náð að beina einhverjum af þessum sláar- og stangarskotum inn á haustmánuðum og vera þar með í miklu betri stöðu í deildinni.

Stutt spá fyrir 2012: ‘Work in progress’ heldur áfram og við siglum hægt og bítandi í áttina að sætum sem við eigum heima í með góðri pass-and-move spilamennsku.

Áramótaheitið 2012: Fagna titli eða titlum vel og innilega .

Hér er að lokum ljósmynd ársins 2011:

Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir það liðna!

Breytingar á ummælum
Við höfum ákveðið að fara aftur í gamla ummælakerfið, þannig að nú verður ekki hægt að svara ummælum í undir-ummælum einsog hægt hefur verið að gera síðustu daga.

Svona ummælakerfi með þráðum er ekki að virka nægilega vel að okkar mati fyrir kop.is þar sem að færslur eru tiltöluega fáar og umræðuþræðir langir.  Við höfum rætt það í ritstjórn að okkur finnst erfiðara að fylgjast með nýjustu umræðunni á síðunni þegar að menn eru að svara á ólíkum stöðum í hverjum ummælaþræði.

Allavegana, við höfum því ákveðið að taka upp gamla kerfið á ný.

Útlitsbreytingar – part 2
Ég er búinn að breyta útlitinu aðeins.  Ég byrjaði á þessu í gærkvöld og þá tókst mér í asnaskap að eyða gamla útlitinu, svo að ég varð að byrja frá byrjun.

Helstu breytingar eru að liðsuppstillingin er núna stærri og skýrari.  Texti er almennt séð smá stærri og skýrari.  Og núna er hægt að svara kommenti beint, þannig að það geta myndast minni þræðir í ummælum við hverja færslu.  Þetta gerirðu með því að smella á “reply” undir því kommenti sem þú vilt svara.

Ég ætla að prófa þetta og sjá hvernig þetta reynist, en þetta ætti að mínu mati að hjálpa til að gera umræðuna skýrari, þar sem fólk er oft að tala um ólíka hluti – sérstaklega í opnum þráðum.

Opinn þráður – Helgin
Í gærkvöld var dregið í riðlana fyrir Evrópukeppni landsliða sem fer fram í Póllandi og Úkraínu í júní 2012. Riðlarnir eru sem hér segir:

A-riðill: Pólland, Grikkland, Rússland, Tékkland.

B-riðill: Holland, Danmörk, Portúgal, Þýskaland.

C-riðill: Spánn, Ítalía, Króatía, Írland.

D-riðill: Úkraína, Svíþjóð, Frakkland, England.

Greyið Danir.

Þá vil ég einnig benda áhugasömum á að hlusta á Hringborðsumræður útvarpsþáttarins Fótbolta.net á X-inu 97.7 í hádeginu. Þar verð ég, Kristján Atli, gestur ásamt Aston Villa-aðdáanda. Vonandi segi ég eitthvað af viti.

Nýr haus
Nýjir tímar – nýr haus á Kop.is.  Enn og aftur er það Kristinn Geir, sem á heiðurinn að hausnum hérna á Kop.is og við þökkum honum fyrir!

Smá breyting á ummælakerfi
Ég setti inn viðbót við ummælakerfið.  Nú eiga lesendur að geta lagað sín ummæli í 5 mínútur eftir að þau eru send inn eða beðið um að þeim sé eytt.

Látið mig vita ef þið rekist á einhver vandamál þessu tengdu.

Ég tók einnig út Google+ og Twitter hnappana, sem voru við hverja færslu.  Það var enginn að nota þá.

Opin umræða – Reglur um umræður á Kop.is
Hér eru uppfærðar reglur um umræður á Kop.is. Við höfum verið í vandræðum með gæði ummæla og mikil rifrildi og skítkast í umræðuþráðum á síðunni síðustu daga og höfum ákveðið að bregðast við því með hertum reglum. Reglurnar eru öllum sýnilegar, tengill á þær er í haus síðunnar og við munum minna reglulega á þær. Reglurnar eru hér fyrir neðan.

Reglur um umræður á Kop.is

Áður en þú tekur þátt í umræðum á Kop.is förum við fram á að þú, lesandi góður, kynnir þér eftirfarandi reglur fyrir ummælaskrif á síðunni. Sem eigendur og ritstjórar síðunnar áskiljum við okkur rétt til að framfylgja eftirfarandi reglum. Þetta teljum við nauðsynlegt til að viðhalda siðmenntuðum umræðustaðli hér á Kop.is.

1: Bann við þátttöku í umræðum

Síendurtekin brot á öllum þeim reglum sem talin eru til hér fyrir neðan skila sér í banni frá þátttöku í umræðum á Kop.is. Þetta er ekki umsemjanlegt. Brjóti menn reglurnar einu sinni fá þeir viðvörun. Hlýði menn þeirri viðvörun ekki og haldi áfram að brjóta reglurnar verða þeir bannaðir. Á þetta sérstaklega við um ummæli sem birt eru undir dulnefni.

2: Persónuníð og skítkast

Allt persónuníð (ad hominem) er með öllu bannað. Persónuníð þýðir að í stað þess að gagnrýna skoðun einhvers er viðkomandi einstaklingur gagnrýndur. Það er, umræðan er persónugerð á neikvæðan máta. Hér skiptumst við á skoðunum, ekki móðgunum. Öll ummæli sem innihalda persónuníð eða skítkast af einhverju tagi verða fjarlægð með öllu.

3: Þráðrán

Ekki er leyfilegt að „ræna þræði“ án virkilega góðrar ástæðu. Ritstjórar síðunnar munu fjarlægja öll ummæli sem innihalda þráðrán nema þeir sjái tilefni til undantekningar. Þráðrán er það kallað þegar verið er að ræða ákveðna hluti í færslu og einhver setur inn ummæli sem fjalla um allt annað. Það heitir að „ræna þræðinum“, þ.e. að beina umræðunni í annan farveg. Ætlast er til að umræður fylgi því umfjöllunarefni sem færslur penna Kop.is fjalla um. Þetta á ekki við um færslur sem heita „Opnar umræður“ eða færslur fyrir leiki sem eru í gangi. Þar má ræða það sem fólk vill og tjá sig í hita leiksins. Þráðrán eru algjörlega, undantekningarlaust bönnuð við leikskýrslur. Þær eru til að ræða viðkomandi leik og ekkert annað.

4: Birting mynda/myndbanda í ummælakerfi er bönnuð

Lesendum síðunnar gefst ekki kostur á að birta ljós- eða hreyfimyndir í ummælakerfi síðunnar. Þetta er gert til að vernda útlit síðunnar, svo ekki sé hægt að „brjóta“ síðuna með t.d. allt of stórum ljósmyndum. Ummæli sem „brjóta“ síðuna á annan hátt (svo sem ummæli með allt of mörgum upphrópunarmerkjum!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!) verða einnig fjarlægð.

Pennar Kop.is hafa einir leyfi til myndbirtinga. Vilji lesendur deila myndum á síðunni er alltaf hægt að setja inn tengil á mynd á netinu.

5: Troll og pirringur

Öll ummæli sem innihalda troll eða eru vísvitandi gerð til þess að pirra lesendur Kop.is verða fjarlægð. Við líðum engin troll á þessari síðu. Þetta á sérstaklega við um aðdáendur annarra liða sem halda að það sé sniðugt að æsa Liverpool-stuðningsmenn.

6: Síendurtekin ummæli

Það er ekki í lagi að síendurtaka sömu ummælin mörgum sinnum í sama ummælaþræði. Fólki er sjálfsagt að koma sinni skoðun á framfæri en það nennir enginn að lesa sama hlutinn mörgum sinnum. Misnotkun á fjölda ummæla í þræði kann að leiða til tímabundins banns viðkomandi aðila.

7: Aldurstakmörk

Á síðunni eru engin aldurstakmörk. Það er erfitt að meta hvenær menn eru of ungir eða nógu gamlir til að skrifa ummæli á svona síðu. En til þeirra sem yngri eru viljum við ítreka að þeir vandi ummæli sín og reyni sitt besta til að leggja sitt af mörkum í umræðunni. Ef þú ert tólf ára og skrifar vel, vertu velkominn í umræðuna. Ef þú ert fimmtán ára og nennir ekki að skrifa neitt af viti, láttu þér nægja að lesa ummæli þeirra sem nenna og geta.

8: Vandið ykkur

Þetta síðasta atriði er ekki regla heldur frekar ábending. Að baki þessari síðu standa margir sem leggja á sig mikla vinnu til að halda henni úti og framleiða gæðaefni. Í ummælaþráðunum eru einnig margir lesendur sem leggja sig fram um að skrifa innihaldsrík og skemmtileg innlegg í umræðurnar hverju sinni. Ef menn hafa ekkert meira til málanna að leggja en „þessi leikmaður er ömurlegur“, eða „þessi dómari er bara fífl“, eða „glataður leikur“, er kannski betra fyrir viðkomandi að sleppa því að skrifa ummæli og láta sér nægja að lesa síðuna.

Þessum reglum er framfylgt án undantekninga. Hafi menn út á reglurnar að setja geta þeir haft samband við okkur í neðantalin netföng.

Ritstjórn Kop.is,

Einar Örn – einarorn (hjá) gmail.com

Kristján Atli – kristjanatli (hjá) gmail.com

Þrjár góðar vefsíður
Það styttist í að tímabilið hefjist og í mesta spenningnum er alltaf gott að fá eitthvað skemmtilegt að lesa um Liverpool og enska boltann. Hér eru þrjár vefsíður sem eru frekar nýlegar og ég mæli með að menn tékki á:

Nr7.is er íslenskt vefrit um enska boltann byggt á tölfræði og umfjöllun. Strákarnir sem standa að þessu ætla sér að fjalla um Úrvalsdeildina og Championship-deildina í vetur og eru þegar komnir á fullt í að hita upp fyrir öll liðin í Úrvalsdeildinni. Ég mæli með að menn skoði þetta og setji í áskrift hjá sér fyrir veturinn. Ég vona að þessi síða haldi áfram jafn vel og hún byrjar.

Rauði Herinn er bloggsíða Ólafs Hauks, mikils Púllara sem tekur virkan þátt í umræðum hér og skrifar stöku pistil inn á Liverpool.is. Óli er flinkur á lyklaborðinu og ég hef haft gaman af því að lesa pistlana hans. Ég mæli með að Púllarar tékki á þessari síðu sem hefur að geyma pistlana hans.

The Anfield Wrap er stórt og nýtt vefrit sem sett var í loftið sl. mánudag. Síðuna reka grjótharðir Púllarar frá borginni, þetta er mjög lókal og auk þess að vera með góðan Podcast-þátt skrifa þarna inn greinar margir af virtustu og þekktustu LFC-tengdu blaðamönnum Englands. Ef ykkur finnst gaman að lesa Kop.is hlýtur þessi síða að vera í skylduáskrift.

Þrjár góðar sem ættu að stytta mönnum stundirnar fram að helginni. Við verðum svo á fullu hér alla vikuna fram að fyrsta leik. Í kvöld kemur fjórði þáttur Kop.is Podcastsins, á morgun ætlum við svo að birta spá okkar fyrir Úrvalsdeildina þetta árið og svo verður upphitun fyrir stóru stundina að sjálfsögðu á sínum stað á föstudag. Þetta er allt að bresta á! :)

Breyting á ummælakerfi
Ég setti inn smá viðbót við síðuna áðan, sem bætir vonandi ummælakerfið.  Núna þegar þú skrifar ummæli á síðuna geturðu auðveldlega sett inn tengla, gert textann feitletraðan, sett inn tilvitnanir og slíkt og það uppfærist sjálfkrafa, þannig að þú hefur betri hugmynd um það hvernig ummælin muni líta út.  Ég hef aðeins prófað þetta og þetta virðist virka ágætlega.  Ef að þetta lítur eitthvað skringilega út þá gætir þú þurft að refresh-a síðuna.  Látið mig vita ef það eru einhver vandamál.