Dregið í Meistaradeildinni

cl.gifÁ morgun klukkan 10 verður [dregið](http://www.uefa.com/competitions/UCL/news/Kind=1/newsId=320282.html) í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Liverpool er auðvitað í pottinum, en þarf að klára seinni leikinn á móti Kaunas á Anfield til þess að komast áfram. Sá leikur ætti að öllu jöfnu að vera formsatriði.

Allavegana, Liverpool verður í efri styrkleikaflokknum ásamt liðum einsog Man U, Inter, Villareal, Ajax, Monaco og Rangers. Við getum því ekki lent á móti þeim liðum.

Hins vegar getum við lent á móti eftirfarandi liðum:

Slavia Prag
Real Betis
Basel
Wisla Krakow
Udinese
Partizan / FC Sheriff
Shakhtar Donetsk
Malmö / Maccabi Haifa
Shelbourne / Steua Bukarest
Dinamo Tbilisi / Bröndby
Dudelange / Rapid Wien
KF Tirana / CSKA Sofia
Debreceni / Hadjuk Split
Famagusta / Trabzonspor
Valerenga / FC Haka
Everton

Einsog þið sjáið þá eru þarna fulltaf sætum, sem eru óráðin þar sem að önnur umferðin er ekki búin. En styrkleikamunurinn á þessum liðum er mjög mikill.

Til að vera alveg heiðarlegur, þá vil ég helst sleppa við Everton. Það væri fátt skemmtilegra en að slá Everton út, sem við ættum undir öllum eðlilegum kringumstæðum að gera, en ég held að Everton hefðu ágætt af því að fara inní riðlakeppnina, því þá getum við bókað að það lið á eftir að standa sig illa í deildinni.

Önnur lið, sem maður vill helst forðast eru svo sem ekki mörg. Einna helst Real Betis og Udinese, þar sem þau lentu í fjórða sæti í ítölsku og spænsku deildunum, sem eru báðar sterkar. Við ættum auðvitað að vinna öll þessi lið án mikilla erfiðleika. En auðvitað er þetta alltaf hættulegt.

Þetta verður spennandi.

Total Network Solutions

Jæja, við [fengum draumliðið](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N149161050624-1109.htm), TNS frá Wales í Meistaradeildinni. Þannig að Liverpool þarf bara að fara í tveggja tíma rútuferð fyrir leikinn.

Gott mál!

Ef Liverpool kemst áfram, þá munu þeir mæta annaðhvort HB Þórshöfn frá Færeyjum, eða meisturunum frá Litháen, FBK Kaunas í annarri umferð.

Meira um Meistaradeildina

[Ágætis grein](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/europe/4118726.stm) á BBC, þar sem tekið er fram hvernig hlutunum verður hagað í Meistaradeildinni ef að Liverpool kemst áfram í riðlakeppnina.

Basically, þá getum við dregist gegn Everton í þriðju umferð undankeppninnar, en ekki Man U.

Í sjálfri riðlakeppninni gætum við dregist gegn Chelsea, þar sem þeir eru í öðrum styrkleikaflokk og Everton, þar þeir eru auðvitað í neðsta flokki.

Liverpool er hins vegar í efsta styrkleikaflokki og því mun liðið EKKI lenda á móti eftirfarandi liðum: Real Madrid, AC Milan, Barcelona, Inter Milan, Arsenal, Man U og Bayern Munich.

Dregið í Meistaradeildinni

Á föstudaginn verður dregið í Meistaradeildinni og UEFA hefur staðfest að Liverpool [getur dregist](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N149142050621-0944.htm) á móti eftirtöldum liðum:

FK Rabotnicki (Macedonia)
FC Dinamo Minsk (Belarus)
FC Pyunik (Armenia)
Sliema Wanderers (Malta)
KF Tirana (Albania)
FC Levadia Tallinn (Estonia)
Glentoran (Northern Ireland)
Total Network Solutions (Wales)
F91 Dudelange (Luxembourg)
PFC Neftchi (Azerbaijan)
HB Torshavn (Faroe Islands)
FC Kairat Almaty (Kazhakstan)

Við viljum náttúrulega flest sjá Liverpool gegn HB Thorshavn í Færeyjum. Ef svo yrði, þá er ég allavegana á leið til Færeyja.

Einnig væri náttúrulega ljómandi skemmtilegt að lenda gegn liðinu frá Kasakstan. Ég vissi ekki einu sinni að Kasakstan væri í Evrópu, þar sem Kasakstan er t.d austar en Írak. Allavegana, ef þeir lenda á móti því liði þá finnst mér að [Borat](http://www.boratonline.co.uk/) ætti að lýsa leiknum. Það væri snilld. Yeeheheheesss!

Meira um Meistaradeildina

Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvað þessi ákvörðun hjá UEFA þýðir fyrir Liverpool í Meistaradeildinni. Allavegana, ég rakst á ágæta samantekt hjá Daily Mail:

>

  • Liverpool will have to play six qualifying matches just to reach the qualifying stage of the Champions League.
  • Liverpool will not have “country protection” which means they can face another English side at any stage of the competition.
  • Rafael Benitez’ side will still keep their position as one of the top eight seeds. It means they will avoid fellow top seeds Manchester United in the third qualifying round and group stage, and Arsenal in the group stage. They could however play Everton in the third qualifying round and Chelsea, who will be among the second group of seeds, in the group phase.
  • Liverpool will get the smallest share of Champions League TV money among the English clubs. If four English clubs reach the group phase, Premiership champions Chelsea will get 40 per cent, Arsenal 30 per cent and two out of Manchester United/Liverpool/Everton 15 per cent each. UEFA will have to decide a new split if all five qualify. Usually, the title-holders get 30 per cent if they are not domestic champions as well.
  • The first leg of the first qualifier on July 12/13, the second leg a week later and the second qualifier on July 26/27 and August 2/3.
  • Liverpool’s tour to Japan clashes with the second qualifying round although the club could send a shadow squad to the Far East. If they get to the final qualifying round, the European Super Cup against CSKA Moscow on August 26 will be two or three days after the second leg.
  • Friendlies against Bayer Leverkusen and Cologne, plus the pre-season training camp in Switzerland on July 11, will have to be rescheduled or abandoned.

Einnig var bent í ummælum á pistil á fótbolta.net, þar sem tekið er fram að Liverpool ásamt FH! í efri styrkleikaflokknum í fystu umferðinni. Liðin, sem við getum mætt í þeirri umferð. (copy paste úr [fótbolti.net greininni](http://fotbolti.net/fullStory.php?id=26033)).

Tadada!

Rabotnicki Skopje (Makedónía)
Dinamo Minsk (Hvíta-Rússland)
Sliema Wanderers (Malta)
Pyunik Yerevan (Armenía)
SK Tirana (Albanía)
Levadia Tallinn (Eistland)
Glentoran (Norður-Írland)
Llansantffraid (Wales)
F91 Dudelange (Lúxemborg)
Sæti frá Azerbaijan (Azerbaijan)
HB Torshavn (Færeyjar)
Kairat Almaty (Kazakhstan)

Ef við drögumst gegn HB Torshavn, þá er ég þokkalega á leið til Færeyja :-)


Líka ágætis punktur, sem ég [las á Shankly Gates](http://liverpool.rivals.net/default.asp?sid=890&p=2&stid=8382976):

>We’ll certainly need a big squad as Liverpool face the possibility of having one of the biggest fixture lists in history with the prospect of: Premier League, Champions League (with 6 qualifying games), FA Cup, League Cup, Super Cup and World Club Championships.

Jamm, þetta verður stuð :-)

Meistaradeildin (uppfært – VIÐ VERÐUM MEÐ!)

Jæja, símafundurinn er búinn og BBC tala um að niðurstaðan verði kynnt Liverpool klukkan 11 að íslenskum tíma. Sjá hér: [ Liverpool's Euro hopes face D-Day](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/teams/l/liverpool/4613695.stm).

Það virðast nánast allir vera sammála um að Liverpool fái sætið, en ég þori samt ekki að vera bjartsýnn fyrr en ég sé það staðfest.

**Uppfært (EÖE):** Einsog hefur verið bent á í kommentunum, þá VERÐUM við með á næsta ári. Gott mál :-)

STOP THE PRESS!!!

**Hólí fokking krapp!!!**

Sko, þegar ég skrifa þetta þá er frétt númer 1 á Soccernet það að Man U séu að kaupa Ji-Sung Park. Okei!

Frétt númer 2 er hins vegar þessi: [Martina won't back Liverpool](http://soccernet.espn.go.com/headlinenews?id=335142&cc=5739). Ok, hver ætli þessi Martina sé? Er þetta kannski mikill áhrifamaður innan UEFA? Ha?

Nei,

MARTINA NAVRATILOVA!!!

!!!

Eru menn ekkert að grínast í gúrkunni? Semsagt, frétt númer 2 á Soccernet er að hin fimmtuga **tenniskona**, Martina Navratilova sé á því að Liverpool eigi ekki að vera í Meistaradeildinni á næsta tímabili!!!

!!!

Hvað næst? Eigum við ekki að spyrja Bono? Rod Stewart? Larry Bird? Ég meina vá! Þetta er án efa ekki-frétt ársins.

Meira um Meistaradeildina


Það er alveg ljóst að annahðvhort eru sumir forsvarsmenn UEFA með ólæknandi munnræpu og verulega heimskir, eða þá að þeir ætla að gefa Liverpool sæti í Meistaradeildinni á næsta ári.

Hvernig væri annars hægt að skýra svona [ummæli](http://www.dailymail.co.uk/pages/live/articles/sport/football.html?in_article_id=351380&in_page_id=1779):

>”The feeling is Liverpool played a great final and it is sad they did not automatically qualify.

>”The idea is to find a solution that does not hurt anyone and **satisfies Liverpool** – a win-win situation if you like. It is not easy to change the rules during the season but the way they won has probably helped them a lot.

>”Of course it would have been easy for us if they had finished fourth in their league! We do have rules but at the same time there is a lot of sympathy for Liverpool’s plight.”

(feitletrun mín). Það er alvega augljóst að eina niðurstaðan, sem Liverpool sættir sig við er að þeir komist í Meistaradeildina. Ef að það fer svo að lokum að Liverpool fær ekki sætið, þá þurfa þessir forsvarsmenn UEFA að svara fyrir margt. Gott og vel hefðu þeir sagt strax eftir úrslitaleikinn að við myndum ekki komast í keppnina.

En einsog þetta hefur farið með hinum ýmsu yfirlýsingum, þar sem þeir nánast lofa því að Liverpool komist í keppnina, þá geta þeir í raun ekkert annað gert. Það væri hræðilegt ef þeir væru stanslaust að ata þessari gulrót framan í Liverpool ef þeir myndu svo ekki veita okkur sætið.


Lennart Johanson [bætir við þetta](http://itv-football.co.uk/News/story_154304.shtml):

>”We have the ambition on the one hand to give Liverpool the opportunity to defend their title – but on the other hand we need to make sure no-one suffers from such a decision.”

Semsagt, þeir vilja koma Liverpool í keppnina án þess að skaða einhver önnur lið. Það virðist vera þeirra helsta vandamál. Það þarf enginn að segja mér að ekki sé hægt að finna einhverja góða lausn á því vandamáli.

Aldrei einn

You’ll Never Walk Alone í flutningi mínum ásamt öðrum Liverpool stuðningsmönnum á Ataturk vellinum í lok leiks:

[You'll Never Walk Alone](http://www.eoe.is/stuff/never-walk-ataturk.avi) 5.1 mb innanlands.

Röddin mín var alveg farinn á þessum tímapunkti :-)

Einnig: [We are the Champions](http://www.eoe.is/stuff/we-are-champions-ataturk.AVI) í flutningi Liverpool stuðningsmanna á sama velli. Jamm, þetta var nokkuð skemmtilegt.

Kominn heim

Evrópumeistarar 2005


Fyrir tæpum tveim sólarhringum stóð ég í stúkunni í Istanbúl og horfði á **mitt** lið, Liverpool, vinna AC Milan eftir að hafa verið 3-0 undir í hálfleik. Ég horfði á Dudek verja frá Shevchenko af 50 sentimetra færi. Ég horfði á Smicer skora með langskoti og ég horfði á Liverpool skora úr vítaspyrnum.

Þegar Dudek varði vítið frá Shevchenko snéri ég mér við og horfði uppí stúkuna, horfði svo niður á völlinn þar sem Liverpool menn hlupu í áttina að Dudek, sagði svo við sjálfan mig: **Þetta getur ekki verið að gerast**. Og svo fagnaði ég, einsog ég hef aldrei áður fagnað. Þvílík stund, þvílíkur staður, þvílíkt lið.


Ég þurfti að mæta í vinnuna klukkan 8 í morgun, án þess að hafa sofið að ráði síðustu daga og þurfti að sitja 4 fundi. Þrátt fyrir að vera örmagna af þreytu, þá var ég brosandi mestallan daginn. Þvílík sæla. Ég hef ekki upplifað það áður að sjá mitt lið vinna Meistaradeildina. Fyrir alla þá, sem hafa ekki enn upplifað það, þá get ég sagt að tilfinningin er góð. Yndisleg.

Ferðasagan kemur um helgina. En núna þarf ég svefn.

Heimkoma

Leikmenn og þjálfaralið Liverpool FC skelltu sér í opna, tveggja hæða rútu og rúntuðu í nokkra klukkutíma um Liverpool-borg í dag, með “Big Ears” í fararbroddi. Það er a.m.k. það sem heimamenn kalla bikarinn sinn, sigurlaun Evrópukeppninnar. Fyrir fimm dögum rúntuðu Chelsea-menn um London með tvær dollur, og komu 200,000 manns út á götur þann frídag til að hylla liðið sitt. Í dag, á fimmtudegi sem er vinnudagur? Í borg sem hefur íbúatölu sem er u.þ.b. einn sjötti af íbúatölu London?

EIN MILLJÓN aðdáenda kom út á götur Liverpool-borgar í dag til að fagna hetjunum sínum!

Þess vegna erum við kallaðir bestu stuðningsmenn í heimi. Þess vegna getum við borið þann titil, af því að þúsundir aðdáenda sem búa ekki einu sinni á Englandi, svo sem Einar Örn og hinir Íslendingarnir, lögðu leið sína til Istanbúl – “Far side of the World” – til að styðja liðið til sigurs. Og af því að í borg sem er með íbúatölu upp á ca 2,5 milljónir manna, mætti ein milljón út á göturnar, stóð þar klukkutímum saman og söng YNWA þangað til menn voru orðnir hásir, til að geta barið hetjur sínar augum og hyllt þær fyrir afrek sín.

Nú, af annars konar heimkomu er það að segja að ég heyrði í Einari Erni í hádeginu – loksins – þar sem hann var kominn til London. Símkerfið virkar betur í Englandi en í Istanbúl og því náði ég í gegn. Kappinn var þreyttur, vægast sagt, sagði mér að þar sem leikurinn kláraðist kl. 2 eftir miðnætti að staðartíma og Íslendingarnir áttu að mæta í rútuna niðrá flugvöll klukkan sex – fjórum tímum eftir leik – þá fóru menn einfaldlega ekkert að sofa eftir leik! Hann hljómaði þreyttur en alsæll í símanum, spurði mig út í smáatriði sem hann hafði ekki enn séð varðandi leikinn, eins og hvort að Dudek hefði virkilega varið frákast Schevchenkos í markvörslunni ótrúlegu. Ég svaraði því sem ég gat, hann sagði mér síðan að þeir ættu flug heim núna síðla kvölds, þannig að hann er sennilega nýkominn heim til sín og vonandi sofnaður. Hann á það skilið, í gær var hann hluti af frægasta aðdáendahópi ársins í nokkurri íþrótt. Ekki slæmt það, ha, Einar? ;)

En aftur að Liverpool-borg. Hetjurnar okkar eru vitaskuld í skýjunum, og er það vel: Þeir tjáðu sig allir við komuna til Liverpool og mér fannst sérstaklega skemmtilegt að lesa orð Antonio Núnez, sem ætti nú að vera öllu vanur hjá Real Madríd:

>”This is the best moment of my career so far. I used to play in Madrid but I’ve never seen anything like this.

>”The fans are so loud and have so much passion for the club. It is amazing. I can’t believe I’ve got a Champions League winners medal at the end of my first season.”

Hey Toní, fyrst þú heimtar að fá að halda því fram að Liverpool sé meira spes en Real Madríd, þá neyðumst við víst til að trúa þér! Fffft! Spurningin er bara hvort að Michael Owen er sammála þér, hehehehehehehe…. [tröllahlátur]

Rafa er samt ekkert hættur. Ónei. Eins og Shankly, Paisley og Moran forðum þá heldur hann í þá hefð að fagna nútíðinni á sigurstundu en svo snúa sér fljótt að framtíðinni. Hann er þegar byrjaður að plana framtíðina:

>”I said when I first came here that the squad was 60% towards where I wanted it to be and now it is maybe 70%, but there is still much to do. You always need to analyse your squad’s possibilities and whether you’ll have the money to change things, but the team will be better next season.”

Úff, unnum við Meistaradeildina með 70% styrkleika? Rafa, vinsamlegast láttu mig vita þegar þú nálgast 95 prósentin, þá ætla ég að hætta að taka Viagra. Hjartað í mér þolir ekki bæði í einu!

Annað sem mér fannst snilldarlegt við þessa grein er þessi málsgrein hér (feitletrun mín):

>Discussions will also take place with Steven Gerrard and his representatives at SFX aimed at tying the England midfielder to a new contract at Anfield, though they will have to wait until the chief executive Rick Parry returns from his own break in Barbados. Benítez is now convinced the captain will stay at the club despite persistent interest from Chelsea, with Gerrard’s own reaction in the aftermath on Wednesday suggesting as much.

Barbados? Sagði einhver Barbados? Það leggst alltaf vel í mig þegar Rick Parry fer til Barbados, spennandi hlutir gerast jafnan þegar Rick Parry fer til Barbados.

Af hverju segi ég það? Jú, af því að ég man rosalega vel eftir því þegar Rick Parry fór síðast til Barbados! :)

Spennandi dagar framundan…

ÚRSLITALEIKUR: DAGBÓK


–>Þetta er dagbók úrslitadags Meistaradeildarinnar, vorið 2005. Ég mun uppfæra þessa færslu reglulega í allan dag, miðvikudag, alveg fram að leik. Hver uppfærsla verður tímasett, og nýjasta uppfærslan kemur ávallt efst í færsluna.


21:34: JAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
HAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
HAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
HAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
HÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!!!!!!

VIÐ ERUM KÓNGAR EVRÓPU!!!!!!!!! ÓÓÓÓÓÓÓÓÓOÓÓJÁJÁJÁJÁJÁJÁ!!!!!!

Takk fyrir. :D

20:38: Ja hérna!!! 3-3 eftir 90 mínútur og liðin eru að gera sig klár fyrir framlengingu! Ég er svo aldeilis gjörsamlega hissa á þessu, ég var algjörlega búinn að afskrifa þetta í hálfleik! Það mesta sem ég vonaði var að liðið næði einu eða tveimur mörkum til að bjarga heiðrinum í þessum leik – en hvað vitiði? 54. mínútu skoraði Gerrard, 56. mínútu skoraði Smicer og 60. mínútu skoraði Xabi Alonso, og við gjörsamlega áttum seinni hálfleikinn!!!

Framlenging er að hefjast – GAME ON – þetta er yndislegt! Það er alveg hægt að færa rök fyrir því að Liverpool-liðið skorti gæði á við AC Milan, en okkar menn skortir sko ekki hjartað og ástríðuna! Þvílíkt lið, þvílíkur karakter, þvílíkur klúbbur!!! Jæja, hafið mig afsakaðan, ég ætla að njóta framlengingarinnar. Hvað sem verður, verður, en við höfum allavega minnt verulega á okkur í þessum leik! YNWA!!!

19:35: Úff. Hálfleikur, 3-0 fyrir Milan. Þeir fengu óskabyrjun, skoruðu strax eftir mínútu úr fyrstu sókn leiksins, og í raun má segja að eftir það hafi liðið aldrei jafnað sig. Við vorum 1-0 undir í rúman hálftíma og maður bar þá von í brjósti að við næðum að jafna fyrir hlé. Svo á u.þ.b. 40. mínútu gerðist umdeilt atvik, Nesta handlék knöttinn inní teig en dómarinn dæmdi ekki vítaspyrnu, leikurinn hélt áfram og Milan náðu snöggri sókn sem Crespo skoraði úr. Það var greinilega rothögg fyrir Liverpool-liðið, því Crespo var búinn að skora aftur þremur mínútum síðar. Hvað getur maður sagt? Að mínu mati var þetta víti, en það breytir ekki því að Milan-liðið er einfaldlega búið að vera miklu, miklu, miklu betra í þessum leik.

Vörnin þeirra hefur átt tiltölulega auðvelt með Baros, Kewell (sem fór útaf meiddur á 20. mín), García og Co. og aftast hafa þeir Crespo og Sheva farið mikinn gegn stressaðri vörn Liverpool. En mestar áhyggjur hef ég af því að Gerrard og Alonso ráða bara ekki neitt við neitt á miðjunni, þeir eru sennilega vonbrigði kvöldsins fyrir mér. Þeir hafa ekkert átt í Pirlo, Seedorf, Gattuso og sérstaklega Kaká í fyrri hálfleiknum. Kaká hefur einfaldlega átt þennan leik skuldlaust í fyrri hálfleik, farið á kostum, og miðjumenn okkar ráða ekki við eitt né neitt. Hef áhyggjur af því.

Hvað er eftir? Rafa hlýtur bara að henda Cissé inná og láta slag standa í hálfleik, hann hlýtur að segja mönnum að spila seinni hálfleikinn bara upp á stoltið – betra að tapa 4-2 en 3-0 – og að rétta sinn hlut eins mikið og þeir geta. En þessi leikur er náttúrulega tapaður í hálfleik, þetta Milan-lið er allt of gott til að tapa niður þriggja marka forskoti á 45 mínútum.

Þvílík vonbrigði. Oh well, you’ll never walk alone, og okkar menn læra vonandi af reynslunni. Seinni hálfleikurinn er eftir, skrifa svo meira eftir leik. On with the show…

18:19: JÆJA … ég ætla að leggja frá mér tölvuna núna og njóta stemningarinnar þennan síðasta hálftíma fyrir leik. Ég læt heyra í mér í hálfleik og svo náttúrulega að leik loknum. Að lokum langar mig bara að segja, það hefur verið frábært að fá að hita svona ærlega upp fyrir þennan leik á þessari síðu og fá að lifa sig svona líka ærlega inní stemninguna fyrir þennan risaleik! Auðvitað nýtur Einar Örn sín miklu betur útí Istanbúl, en ég verð þar með honum í anda í kvöld … og svo við hliðina á honum næst! ;)

ÁFRAM LIVERPOOL! COME ON YOU REDS! YOU’LL NEVER WALK ALONE! SKJÓTUM ÍTÖLUNUM ALLA LEIÐINA HEIM Í TÍSKUMIÐSTÖÐINA Á NORÐUR-ÍTALÍU!!! :D

18:15: Það er verið að renna yfir Milan-liðið á skjánum núna, og við vorum að horfa á myndir af þeim að hita upp, og ég er bara með skrekk! Þetta lið sem við erum að fara að mæta er náttúrulega svakalega gott! Þetta verður fyrst og fremst spennandi leikur, ég held að það verði ekki yfirburðasigur, á hvorn veginn! Let the games begin … oh, ég er að springa!

18:03: Jæja, þá er útsendingin hjá SÝN byrjuð og strax í sinni fyrstu setningu hóf Logi Ólafsson – landsliðsþjálfari og Man U aðdáandi – að dissa Liverpool, það vantaði bara að hann segði að þeir væru ekki nógu góðir til að vera í þessum leik. En nú eru þeir að sýna myndir af liðunum að mæta á völlinn, Milan-menn virðast afslappaðir og Liverpool-leikmennirnir eru brosandi. Þetta verður RAFMAGNAÐ!!!

17:55: STAÐFEST BYRJUNARLIÐ AC MILAN:

DIDA

CAFÚ – NESTA – STAM – MALDINI

GATTUSO – PIRLO – SEEDORF
KAKÁ
SCHEVCHENKO – CRESPO

Líst vel á þetta, þeir eru með sitt sterkasta lið og við líka! Þá eru engar afsakanir eftir leikinn, EF við skyldum vinna! Kommon maður, ég veit varla hvað ég get skrifað meira hér inn, það eina sem er eftir núna er að telja sekúndubrotin þangað til leikurinn hefst!

17:42: STAÐFEST BYRJUNARLIÐ LIVERPOOL:

DUDEK

FINNAN – CARRAGHER – HYYPIÄ – TRAORÉ

GARCÍA – GERRARD – ALONSO – RIISE
KEWELL
BAROS

Come on you Reds!!! Klukkutími í leik!!! Ég er að ærast hérna í Hafnarfirðinum, var að reyna í síðasta sinn að ná í Einar en það er ekki til neins, “network busy” og allt það. Hann saknar okkar eflaust ekkert hvort eð er þarna á vellinum! Fokk hvað þetta er að verða óbærilega spennandi kvöld!!!

17:00: Það er einn klukkutími í útsendingu, og 105 mínútur í leikinn sjálfan! Ladies and gentlemen, we are now floating in outer space! Það fer að styttast í að við fáum staðfestar fréttir af byrjunarliðunum, þannig að ég ætla að gerast djarfur og henda upp einni lokaspá: Fyrir okkur – Cissé frammi, Kewell fyrir aftan hann, Baros og Hamann á bekknum. Fyrir þá – Schevchenko og Crespo frammi, þrátt fyrir meint meiðsli Crespo á æfingu í gær og síðbúið slúður um að Sheva sé á bekknum. Þetta verður svakalegt kvöld!!!

16:36: Ókei, þetta er mjög langsótt en samt, yrði ótrúlegt ef það reyndist satt: Schevchenko á bekknum í kvöld? (Sjá 1630:Salvatori) Það yrði saga til næsta bæjar! Við sjáum hvað setur…

16:22: Didi Hamann er að fara til Hamburg. Þannig að ef að Milan Baros og Hamann eru á bekknum í kvöld fyrir Kewell og Cissé, þá vitið þið hvers vegna…

15:30: Kominn aftur, tók rúnt eftir þvott og hlustaði á nýju SOAD-plötuna í bílgræjunum, smá gargandi metall til að róa taugarnar! Á Esso-stöðinni í Hafnarfirði hitti ég starfsmann sem ég hafði aldrei séð/hitt áður, en hann gekk strax upp að mér og tók í höndina á mér. Sá bolinn sem ég er í (sú Rauða) og sagðist vera Everton-aðdáandi, vildi bara óska mér góðs gengis. :)
Annars er lítið um fréttir að fá núna, við höfum víst áhuga á tveimur Spánverjum, skv. Xabi Alonso, og Milan-menn eru orðnir nett stressaðir á kantinum, enda skal engan undra, þeir eru að fara að keppa við Liverpool! ;) Annars er mest rætt um byrjunarliðið, ég hef gert mitt besta undanfarna daga til að giska á liðið en þar sem Rafa tilkynnir engum það fyrr en 90 mínútum fyrir leik (eftir 90 mínútur, sem sagt) þá er augljóst að við hin vitum ekki neitt! Þetta verður bara að koma í ljós þegar útsendingin hefst, hugsa ég… þrír tímar + 10 mín. í leik!

14:19: Fokk hvað það gengur ekki að vera heima að lesa, næ engu sambandi við stafina á blaðsíðunni. Ég er farinn út að kaupa nýju System Of A Down-plötuna og þrífa bílinn, til að róa taugarnar! Heyrumst eftir klst.

13:38: Jæja, búinn í sturtu og hárgreiðslan orðin fín – þó ekki hanakambur eins og þeir Riise & Cissé eru með ;) – og spennan farin vel umfram öll velsæmismörk! Það eru fimm klukkustundir í leik, for kræjíng át lád!!! Ég ætlaði að heyra í Einari eftir vinnu, reyndi að hringja áðan en fékk bara dauðan són. Skilst á því sem fréttamiðlar segja að það sé svo mikið álag á símkerfi Istanbúl að það sé ekki með nokkru móti hægt að ná sambandi við GSM-síma sem nota kerfi utan borgarinnar (s.s. íslensk kerfi). Þannig að það verður því miður að bíða betri tíma.

12:55: Vá! Valtýr og Böðvar á XFM voru að spila ‘You’ll Never Walk Alone’ … og ég sver það við heilagan Heskey, það kom tár!!! Er þetta yndislegasta fótboltalið í heimi eða hvað?!? Allavega, minns er búinn í vinnu og farinn heim í sturtu. Svo verður kátt á hjalla!!!

12:23: Var að fá SMS frá Einari. Hann segir: “Stemningin í Istanbúl er mögnuð. Liverpool menn eru alls staðar og maður heyrir ‘You’ll Never Walk Alone’ út um allan bæ!” Við Einar vill ég segja, njóttu þess vinur (þetta er fyrsti Liverpool-leikurinn hans) en við ykkur hin vil ég segja … við neglum hann þegar hann kemur heim! Lucky f*ck!

11:20: Minni alla áhugasama á að hlusta á útvarpsþáttinn Mín Skoðun með Valtý Birni og Böðvari Bergs, frá 12-14 á XFM 91.9 í dag. Valtýr er eins og flestir vita mikill AC Milan-maður og því verður fróðlegt að heyra hvernig hann er stemmdur í dag, auk þess sem þeir ætla að hringja í bróðir Böðvars, Guðna Bergs sjálfan, sem er staddur í Istanbúl ásamt Einari Erni og hinum íslensku áhorfendunum. Allir að hlusta!

11:11: Úff, enn í vinnunni og á erfitt með að einbeita mér. Mikið að gera, en erfitt að leiða hugann að því öllu saman. Tókst þó að finna stund milli stríða til að uppfæra, og ég sé að Rafa Benítez vill að Milan Baros skori mörg mörk í kvöld. Þýðir það þá að hann byrjar inná eftir allt saman? Ég er farinn að snúast í hringi í þessu máli öllu saman, þetta kemur víst bara í ljós í kvöld. Nú eru sjö og hálfur tími í leikinn, þetta er að verða óbærilegt! Mun uppfæra meira í og eftir hádegið, en nú ætla ég að taka lokaátak og klára þau verkefni sem eru eftir í vinnunni, svo ég geti farið heim og í Rauðu Treyjuna eftir ca. 2 tíma. :)

08:58: Jæja, eru menn vaknaðir? Ég mætti í vinnu kl. 5 í morgun til þess eins að geta verið búinn kl. 13, eða upp úr hádeginu. Eftir það fer væntanlega í hönd kvalafull bið eftir stóru stundinni, en ég mun eflaust finna mér eitthvað sniðugt að gera. Eins og staðan er núna er ég búinn að gera lítið annað síðustu fjóra tímana en spjalla við samstarfsmennina um leikinn, og ekki hefur það minnkað spennuna! Maginn er í hnút, lófarnir eru sveittir og Harry Kewell mun byrja inná?!?!? What?!?!? Þetta verður spennandi! Uppfæri aftur á eftir, þangað til, andið með nefinu… ;)

Upphitun: nánar um AC Milan

Jæja, þá heldur upphitun okkar Einars áfram fyrir Úrslitaleikinn á miðvikudaginn. Nú eru þrír dagar í leik og ég er farinn að finna fyrir verulegum hnút í maganum – Einar hlýtur að vera orðinn spenntur líka!

Í dag ætla ég aðeins að fjalla um AC Milan – liðið eins og það er í dag. AC Milan er náttúrulega eitt frægasta lið Evrópuboltans og hefur átt marga stórkostlega leikmenn, en þeir lifa þó ekki eingöngu á fornri frægð. Ég lét hvað eftir annað hafa það eftir mér í vetur að ég teldi Milan-liðið vera sterkasta lið í Evrópu og ég stend enn við það. Barcelona eru með betri sókn, og sennilega bara Chelsea með betri vörn, en mér finnst jafnvægið í Milan-liðinu vera afgerandi.

Hvernig stendur á þessu? Jú, margir myndu vilja benda á leikmannahópinn sem stóra ástæðu fyrir velgengni þeirra, og það er líka gild ástæða. Sjáið bara mannsskapinn sem mun sennilega fylla 16-manna hópinn gegn okkur á miðvikudag:

MARK: Dida (Brasilíu), Christian Abbiati (Ítalíu).

VÖRN: Cafú (Brasilíu), Dario Simic (Króatíu), Allesandro Nesta, Paolo Maldini, Allesandro Costacurta og Gianluigi Pancaro (Ítalíu), Jaap Stam (Hollandi), Kakaber Kaladze (Georgíu).

MIÐJA: Gennaro Gattuso, Andrea Pirlo, Massimo Ambrosini og Christian Brocchi (Ítalíu), Manuel Rui Costa (Portúgal), Vikash Dhorasoo (Frakkland), Clarence Seedorf (Hollandi), Kaká og Serginho (Brasilíu).

SÓKN: Andriy Schevchenko (Úkraínu), Filippo Inzaghi (Ítalíu), Hernán Crespo (Argentínu), Jón Dahl Tomasson (Danmörku).

Þessum hópi er lýst best á eftirfarandi hátt: HÓLÍ SHJITT!!!

Leikmannahópur AC Milan er einhver best samsetti hópur í Evrópu, og sennilega í öllum heiminum. Það eru tveir landsliðsmenn um hverja einustu stöðu í liðinu, og ég held ég fari með rétt mál þegar ég segi að það eru a.m.k. þrír landsliðsfyrirliðar í liðinu – Schevchenko, Kaladze og Rui Costa – auk þeirra Maldini, Costacurta, Cafú og Stam sem hafa allir verið landsliðsfyrirliðar á sínum yngri árum.

Auðvitað eru sumar staðreyndir okkar mönnum í hag gegn AC Milan, ekki síst sú að vörnin hjá þeim er orðin frekar öldruð og að við erum þegar búnir að slá Juventus – liðið sem vann AC Milan í slagnum um Serie A í vor – út úr Meistaradeildinni. En það er samt meira Milan-megin í staðreyndum. Þeir unnu Meistaradeildina vorið 2003, og voru flestir leikmenn liðsins í ár með í þeim sigri. Þeir sem hafa bæst við síðan þá – Stam, Cafú, Kaká, Crespo – hafa allir unnið marga titla og leikið með stórliðum áður en þeir komu til Milan.

Með öðrum orðum, á pappírnum ætti þetta lið þeirra að vera ósigrandi. Það er fullkomlega eðlilegt að menn geri ráð fyrir sigri liðs sem inniheldur jafn margar stórstjörnur og Milan-liðið, og ég held að við verðum að viðurkenna að þeir eru sigurstranglegri fyrir leikinn. En, eins og í síðustu einvígjum okkar í þessari keppni, þá held ég að það sé einmitt okkar mönnum í hag að vera ólíklegri aðilinn í þessum leik. ;)

Hvernig er svo líklegast að Milan-liðið stilli upp? Í ljósi þess að Filippo Inzaghi er orðinn heill heilsu er tvísýnt með framlínu liðsins, en ég tel þó afgerandi líklegast að Carlo Ancelotti, þjálfari Milan muni enn og aftur notast við jólatréð svokallaða, leikkerfið sem hann hefur þróað ár frá ári hjá Milan og er nú orðinn frægur fyrir. Þetta leikkerfi er nefnt svo af því að kerfið – 1-4-3-2-1 með markmanni – lítur út eins og jólatré á pappír. Þið getið séð það form hér fyrir neðan, á hvolfi hjá okkur Einari :p , því ég tel afgerandi líklegt að liðið hjá Milan verði eftirfarandi:

DIDA

CAFÚ – NESTA – STAM – MALDINI

GATTUSO – PIRLO – SEEDORF
KAKÁ – RUI COSTA
SCHEVCHENKO

Ég set aðeins spurningarmerki við eitt atriði í byrjunarliði Milan, allir aðrir tel ég að séu öruggir byrjunarmenn. Spurningin er bara sú hvort að Ancelotti vilji hafa Inzaghi í byrjunarliðinu á miðvikudag. Þá gæti hann brugðið á það ráð sem hann hefur áður gert, að færa Schevchenko aftar og láta hann og Kaká spila saman fyrir aftan Inzaghi – sem eins konar þriggja manna sóknarlínu þar sem einn þrýstir á rangstöðulínuna en hinir tveir vinna þar fyrir aftan í lausum plássum.

Hins vegar gæti hann ákveðið að láta Inzaghi byrja á bekknum, þar sem hann er ekki í fullu leikformi, og þá finnst mér líklegt að Rui Costa fái það hlutverk að byrja leikinn ásamt Kaká, fyrir aftan Schevchenko sem fremsta mann. Þetta finnst mér líklegt byrjunarlið, Schevchenko fremstur með Kaká og Rui Costa fyrir aftan sig, og þá gæti Ancelotti átt þá Inzaghi og Hernán Crespo sem varamenn, enda gott að geta kallað á svona stórstjörnur ef ske kynni að þeir þurfi að skora í seinni hálfleiknum ;)

Það gildir þó einu hvort Rui Costa, Inzaghi eða jafnvel Crespo byrjar – ljóst er að þetta 11-manna byrjunarlið AC Milan er það laaaaangsterkasta á pappírnum sem lið Rafael Benítez hefur mætt í vetur, í nokkurri keppni. Liðin á Englandi geta aðeins látið sig dreyma um svona stjörnufans í sínu liði – jafnvel Chelsea eru ekki nálægt því að hafa svona sterkan hóp eða gott byrjunarlið. Þannig að ljóst er að okkar menn verða að vera upp á sitt besta, taktík Rafa Benítez verður að ganga fyllilega upp og hver leikmaður þarf að eiga stórleik, ef vel á að fara gegn þessu Milan-liði.

Undir stjórn Carlo Ancelotti hefur AC Milan á síðustu fjórum tímabilum – ef yfirstandandi tímabil er talið með – unnið tvo Serie A titla og einn sigur í Meistaradeildinni, auk smærri titla. Það er ljóst að hér eru sigurvegarar á ferð, í hverri einustu merkingu þess orðs, lið sem eru ekki árennilegir mótherjar á að líta!

Liverpool FC og AC Milan hafa aldrei mæst í Evrópukeppni en fyrir tveimur árum mættust liðin í vináttuleik, á undirbúningstímabilinu fyrir síðasta vetur Gérard Houllier við stjórn. Að þeim leik loknum sagði Paolo Maldini að Milan Baros væri einhver erfiðasti framherji sem hann hefði nokkurn tímann gætt. Nú fyrir viku síðan sagði Maldini – greinilega gleyminn – hins vegar að hann hafi aldrei haft áhyggjur af neinum framherja á sínum ferli, og hefur hann þó mætt þeim allnokkrum góðum. Miðað við stórmerkilegan framgang Djibril Cissé undanfarnar vikur og söguna af því þegar Maldini mætti Baros síðast, þá skulum við vona að hann liggji andvaka á miðvikudagskvöldið kemur. Þeir verða að standa sig, annars er hætt við að þessi allt-of-algenga sjón muni verða að staðreynd enn og aftur á miðvikudag:

ÞRÍR DAGAR í leik! Þetta verður sva-ka-legt!!! :)

Upphitun fyrir úrslitaleikinn: Istanbúl

Einsog ég hef montað mig af áður hér á þessari síðu, þá er ég, ásamt nokkrum öðrum gallhörðum Liverpool stuðningsmönnum, á leið til Istanbúl til að horfa á Liverpool og AC Milan spila í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Við förum út á þriðjudaginn og fljúgum til London. Þaðan tökum við svo flug til Istanbúl. Við förum svo heim sömu leið á fimmtudaginn. Þeir, sem koma til Istanbúl frá Englandi, koma inná minni flugvöllinn í Istanbúl, sem er í asíska hluta borgarinnar, en Milan aðdáendur koma inná aðalflugvöllinn.

Istanbúl, stærsta borg Tyrklands liggur báðum megin við Bosporus sund, sem aðskilur Evrópu og Asíu. Istanbúl er stærsta borg Tyrklands og ein allra stærsta borg í Evrópu, en um 11 milljónir manna búa í borginni. Borgin var áður þekkt undir nafninu Konstantínópel þegar hún var undir stjórn Grikkja. Tyrkir, sem sigruðu borgina árið 1453, kölluðu borgina alltaf Istanbúl, en nafninu var ekki breytt formlega fyrr en árið 1930.

Tyrkland er gríðarlega stórt land, en aðeins um 3% landsins er hluti af Evrópu, en höfuðborgin skiptist einsog áður segir á milli Evrópu og Asíu. Alls búa um 67 milljónir í Tyrklandi. 99,8% íbúa eru múslimar og allir tala tyrknesku.


Úrslitaleikurinn á milli AC Milan og Liverpool verður spilaður á [Atatürk Olimpiyat](http://www.ataturkolympicstadium.com/eng/eng.asp) vellinum, sem er staðsettur í úthverfi í evrópska hluta borgarinnar.

Atatürk völlurinn var byggður í því skyni að reyna að ná Ólympíleikunum til Tyrklands. Þrátt fyrir að vera einn af bestu völlum í Evrópu, þá hefur hann verið lítið notaður. Galatasary notaði völlinn eitt tímabil, en utan þess hefur hann einungis verið notaður fyrir meiriháttar viðburði.

Völlurinn kostaði um 6 milljarða í byggingu og tekur alls um 80.000 manns í sæti. Fyrir úrslitaleikinn þá hefur miðunum verið dreift svona: Liverpool fékk 20.000 miða, AC Milan 20.000, UEFA.com 7.500, tyrkneska knattspyrnusambandið 7.500 og UEFA “football family” 14.500. Samtals 69.500 miðar. Vegna mikillar öryggisgæslu þá verða ekki seldir miðar í öll sætin á vellinum.

Þannig að liðin tvö fá 20.000 miða hvort. Það er hins vegar ljóst að fullt af hinum miðunum, sérstaklega þeim sem var úthlutað í gegnum uefa.com og tyrkneska knattspyrnusambandið, munu verða keyptir upp af Liverpool og Milan stuðningsmönnum. Til dæmis koma miðarnir, sem við Íslendingarnir fáum, sennilega úr þeim hópi.

Öryggisgæslan verður án efa gríðarleg á vellinum, ekki síst í ljósi þess sem hefur gerst á öðrum fótboltaleikjum í Tyrklandi. Tyrkneska knattspyrnusambandið er án efa undir gríðarlegum þrýstingi frá UEFA um að allt gangi einsog í sögu og því verður gæslan efalítið gríðarlega mikil. Við vonum náttúrulega að allt fari vel fram og að þetta verði Tyrkjunum til sóma.


Ég ræddi það stuttlega við Kristján, að ég er ekki enn kominn með í magann fyrir leikinn. Held ég sé ekki almennilega búinn að gera mér grein fyrir þessu. **Ég er að fara að horfa á Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar!** Einsog ég hef endurtekið áður, þá var ég 6 ára gamall þegar við vorum síðast í úrslitum þessarar keppni. Einhvern tímann í dag, morgun, eða mánudag mun það sennilega renna upp fyrir mér. Og þá fæ ég sko *sting* í magann!

Það hefur alltaf verið gaman að hafa verið Liverpool stuðningsmaður. Það eru í raun einstök forréttindi að fylgja þessu yndislega liði og bera tilfinningar til þess. En það hefur sjaldan verið jafn gaman og núna. Á miðvikudaginn munum við sjá stærsta fótboltaleik okkar liðs í 20 ár. Við skulum njóta þess, hvort sem við verðum í stúkunni í Atatürk, á Players eða heima í stofu.

**Áfram Liverpool!**

Niðurtalning

Niðurtalningin er hafin (sjá í hægra horninu)

Hræsnarar

Jæja, BBC er farið að [fjalla um skyndileg skoðanaskipti enska knattspyrnusambandsins](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/europe/4522235.stm), sem við [fjölluðum um í gær](http://www.kop.is/gamalt/2005/05/05/11.17.17/)

FA eru greinilega í tómu tjóni, því í fyrra sögðu þeir að sigurvegari Meistaradeildarinnar (sem hefðu þá verið Arsenal eða Chelsea) myndu fá sæti í deildinni að ári, **jafnvel þótt þeir yrðu ekki í fjórða sæti** í ensku deildinni. Um þetta var gömul frétt á vef FA, sem þeir hafa nú eytt út, en BBC birta þó afrit af þeirri frétt.

Það verður spennandi að sjá hvað gerist núna víst BBC eru komnir í málið. FA eru allavegana í ruglinu.


Já, og by the way: Þetta er [mjööög fyndið](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/teams/a/arsenal/4523051.stm). Af því að Arsenal getur aldrei neitt í Meistaradeildinni þá ætlar Wenger að hætta að leggja áherslu á þá keppni. Frönsk snilld! :-)

Ákvörðun í dag

Enska knattspyrnusambandið mun ákveða það í dag hvort að Liverpool fái sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili ef þeim tekst að vinna AC Milan í úrslitum. Sjá [frétt á BBC](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/teams/l/liverpool/4515401.stm)

Einsog Rafa hefur bent á þá eru fordæmi fyrir því að liðið, sem vinni Meistaradeildina taki sæti af öðru liði í keppninni á næsta ári. Þegar að Real Madrid vann keppnina fyrir nokkrum árum en lenti of neðarlega í Meistaradeildinni, þá gaf spænska sambandið þeim sæti í Meistaradeildinni árið eftir.

Alan Hansen segir að [Everton eigi sætið skilið](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/eng_prem/4508645.stm) ef þeir lendi í 4. sæti. Ég er eiginlega dálítið sammála þessu viðhorfi, þótt ég vilji auðvitað sjá Liverpool þarna. En fordæmið með Real Madrid er þó líka mikilvægt.

Ég er reyndar á því að EINA SANNGJARNA LEIÐIN sé að leyfa báðum liðum að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili. Mér finnst það sjálfsagt að sú deild, sem á sigurvegarann í Meistaradeildinni njóti góðs af því ári seinna.


Já, og ef að Liverpool vinnur AC Milan, þá munu þeir EIGNAST bikarinn, þar sem liðið hefur þá unnið Evrópukeppni Meistaraliða **FIMM SINNUM**. :-)


**Uppfært (Einar Örn)**: FA hefur staðfest að Liverpool muni EKKI fara í Meistaradeildina á [kostnað Everton](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/teams/l/liverpool/4515401.stm) ef að Liverpool vinnur Meistaradeildina og Everton lendir í fjórða sæti í ensku deildinni.


Viðbót (Kristján Atli): SJÁIÐ ÞETTA!

Þetta er á heimasíðu enska knattspyrnusambandsins, for fuck’s sake! Textinn er frá því í fyrra, en hann er andskoti skýr:

>Should Arsenal or Chelsea win the Champions League, they will automatically qualify for next season’s competition but England will not gain an extra Champions League place, even if they finish outside of the top four in the Premiership.

>In that scenario the fourth-placed team in the Premiership will play in next season’s UEFA Cup.

Þetta er greinilega staða FA, enska knattspyrnusambandsins, fyrir ári síðan þegar Chelsea og Arsenal voru ein enskra liða eftir í keppninni og áttu að mætast í 8-liða úrslitunum.

Nú, ári síðar, gæti Liverpool virkilega lent í því sem þeir eru að fjalla um þarna – að vinna Meistaradeildina og lenda samt fyrir neðan 4. sæti í deildinni. Maður hlýtur að spyrja: HVAÐ HEFUR BREYST Á EINU ÁRI? Af hverju var það sjálfsagður hlutur að sigurlið Meistaradeildarinnar yrði tekið fram yfir liðið í 4. sæti í fyrra, þegar Arsenal og Chelsea áttu í hlut, en ekki í ár þegar Liverpool á í hlut?

Ótrúlegt. Fordæmið er til staðar, Real Madríd var tekið fram yfir Real Zaragoza árið 2000 og enska knattspyrnusambandið voru greinilega reiðubúnir að taka nákvæmlega sömu afstöðu fyrir tólf mánuðum síðan, þegar Arsenal og Chelsea áttu í hlut, en ekki núna? Fáránlegt.

Auðvitað getum við bara sjálfum okkur um kennt ef Everton aulast til að tryggja sér þetta 4. sæti, nóga sénsa höfum við haft á að ná þeim að stigum undanfarið, en þetta er engu að síður fáránleg tilhugsun – að meistarar Evrópu fái ekki að verja titil sinn. Ótrúleg ákvörðun FA og sýnir meira en lítið hversu mikla sérmeðferð Lundúnarliðin fá hjá FA.

Ekki sáttur. :mad:

AC Milan skal það vera!

Var að horfa á stórskemmtilegan leik PSV Eindhoven og AC Milan. PSV vann 3-1 en AC unnu fyrri leikinn 2-0 og fara því áfram á marki skoruðu á útivelli.

AC MILAN – LIVERPOOL í Istanbul, miðvikudaginn 25. maí. Hvernig líst mönnum á það? Ég er hvergi banginn persónulega … við unnum Juventus, er eitthvað því til fyrirstöðu að við vinnum AC Milan líka? :)

**Uppfært (Einar Örn)**: Ég verð nú að segja að miðað við hvernig þetta einvígi milli PSV og Milan hefur gengið að þá er ég bara ágætlega bjartsýnn. Fyrir nokkrum vikum hefði ég ekki verið ýkja bjartsýnn, en þetta Milan lið hefur sýnt FULLT af veikleikjamerkjum gegn PSV.

Í báðum leikjunum, þá var PSV að mínu mati betra liðið. PSV óðu í færum í báðum leikjum og þeir skora þrjú mörk í seinni leiknum. Þeir, sem héldu að Milan vörnin væri ósigrandi (einsog Juve vörnin átti að vera) hafa orðið að skipta um skoðun.

En núna förum við inní úrslitaleikinn sem “minna liðið” og allir búast við að við munum tapa. Það hentar Liverpool ágætlega :-)

Eiður Smári

Ég spyr, er þetta nú [til fyrirmyndar](http://icliverpool.icnetwork.co.uk/0500liverpoolfc/0100news/tm_objectid=15454524%26method=full%26siteid=50061%26headline=ref%2dignored%2dalonso%2dplea-name_page.html) hjá landsliðsfyrirliða okkar?

>Alonso’s 88th minute caution followed a challenge on Eidur Gudjohnsen, which TV replays showed involved no contact from the Spaniard.

>Liverpool officials are furious today amid claims **Gudjohnsen taunted Alonso after he toppled without being touched – and told the Spaniard he knew was on a yellow card already and would now miss the return.**

Þetta er allavegana að mínu mati til háborinnar skammar!!!

Liverpool mun vinna Chelsea!

Jæja, þunglyndissjúklingurinn Mark Lawrenson er búinn að [spá okkur tapi](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/europe/4444367.stm) á móti Chelsea alveg einsog hann spáði því að við myndum pottþétt detta út gegn Leverkusen og að við myndum pottþétt detta út gegn Juventus.

Hann segir í dag

>”I can’t see how Liverpool can beat Chelsea in Europe”

Semsagt, Liverpool mun vinna Chelsea.


Annars rakst ég á þetta á [Liverpool.is spjallborðinu](http://www.liverpool.is/forum/tm.asp?m=161223&mpage=15) og leyfi mér að kópera hingað:

**1978**
Páfinn dó
Wales vann stóru slemmuna í Rugby
Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liðinum sem síðan varð Englandsmeistari um vorið (N. Forrest)
Liverpool F.C. varð Evrópumeistari í fótbolta

**2005**
Páfinn dó
Wales vann stóru slemmuna í Rugby
Liverpool tapaði úrslitaleiknum í deildarbikarnum fyrir liðinum sem síðan verður Englandsmeistari í vor (Chelsea)
Liverpool F.C. verður Evrópumeistari í fótbolta….

Og

**1981**
Charles prins kvæntist
Liverpool varð Evrópumeistari

**2005**
Charles prins kvæntist
Liverpool verður Evrópumeistari…

Liverpool og Juve 20 árum eftir Heysel

Ég hef oft reynt að finna útúr því af hverju ég er Liverpool aðdáandi. Hvort það hafi verið einhver gjöf, einhver leikur, einhver stund, sem gerði það að verkum að ég byrjaði að fylgjast með, styðja og síðar elska þetta fótboltalið, sem hefur haft áhrif á líf mitt og geðheilsu.

Það er nefnilega enginn harður Liverpool maður í fjölskyldunni. Pabbi horfir varla á fótbolta og bróðir minn er Arsenal maður. Ég man hins vegar ekki eftir að hafa stutt neitt annað lið en Liverpool, hver svo sem ástæðan er.

Fyrsta minningin mín um Liverpool leik er hins vegar alveg skýr, líkt og leikurinn hafi farið fram í gær.

Ég var 7 ára gamall þegar Liverpool og Juventus áttust við í úrslitaleik í Evrópukeppninni þann 29. maí 1985. Ég veit að á þeim tíma var ég Juventus stuðningsmaður vegna þess að Michel Platini var minn uppáhalds knattspyrnumaður. Ég man þó að ég hélt mun meira með Liverpool.

Það er kannski eilítið skrítið en þessi ömurlegi dagur, sem er svo sannarlega svartasti bletturinn í sögu okkar frábæra klúbbs, er sá fyrsti sem ég man eftir tengdur Liverpool.


38 Juventus aðdáendur og einn Belgi létust þennan dag.

Heysel leikvangurinn, þar sem úrslitaleikurinn fór fram, var í ömurlegu ástandi og skipulagning mótshaldara var léleg þennan dag. Ákveðið var að úthluta ákveðnum fjölda miða til hlutlausra Belga, sem varð til þess að aðdáendur liðanna gátu keypt miða á svörtum markaði af Belgunum. Þess vegna lentu aðdáendur Liverpool og Juventus hlið við hlið, aðskildir einungis af girðingu.

Árið áður höfðu aðdáendur Liverpool fengið hræðilegar móttökur hjá ítölskum aðdáendum Roma liðsins þegar Liverpool vann Evrópukeppnina í Róm árið 1984. Eftir þann leik urðu aðdáendur Liverpool fyrir miklu aðkasti. Ítalarnir hræktu m.a. og köstuðu steinum í Liverpool aðdáendurna þegar þeir fóru út frá leikvanginum. Kenny Dalglish telur þetta m.a. mikilvæga ástæðu fyrir hegðun Liverpool stuðningsmanna á Heysel árið eftir.

Ástandið fyrir leikinn á Heysel versnaði fljótt og að lokum byrjuðu stuðningsmenn Juventus að kasta hlutum á Liverpool aðdáendurna, sem varð til þess að stuðningsmenn Liverpool réðust á þá. Stuðningsmenn Juventus fylltust örvæntingu og flúðu flestir að vegg, sem varð til þess að stúkan hrundi undan þunga þeirra. 38 stuðningsmenn Juventus og 1 Belgi létust. Yfir 350 manns særðust.

Þessi dagur er sá svartasti í sögu okkar liðs. Þótt að völlurinn hafi verið ónýtur og löggæslan slæm þá verður ekki framhjá því litið að það voru Liverpool aðdáendur, sem báru þunga sök á dauða Ítalana. Eftir atburðina voru ensk félagslið bönnuð frá Evrópukeppninni í 5 ár og það má segja að stjarna Liverpool hafi aldrei skinið jafn skært síðan þá, enda hefur Liverpool ekki unnið Evrópukeppni Meistaraliða eða Meistaradeildina síðan þá.

Nafn Liverpool var í mörg ár tengt öllu því versta, sem fótboltinn bauð uppá. Stuðningsmenn liðsins voru stimplaðir sem ofbeldismenn og vitleysingar. Síðan þá hefur ansi margt breyst, bæði hjá Liverpool og í knattspyrnunni almennt. En atburðirnir á Heysel munu aldrei gleymast og það er alveg ljóst að mjög margir aðdáendur Juventus hafa aldrei fyrirgefið Liverpool. Stjórnir félaganna hafa myndað vináttubrýr á milli félaganna, en það er óvíst að aðdáendur Juventus geti nokkurn tímann tekið Liverpool í sátt.

Leikurinn endaði með sigri Juventus 1-0. Platini skoraði markið úr víti.


Það verður eflaust mikið skrifað um Heysel slysið á næstu dögum. Ég vil benda á þrjár greinar, sem eru allar góðar og vel þess virði að lesa. Fyrir það fyrsta eru hér frásagnir Liverpool aðdáenda, sem upplifðu atburðina í Belgíu. Svo sannarlega mjög átakanleg lesning.

Önnur grein birtist í Obserber í dag og heitir Lost Lives that saved a sport. Þar fjallar Andrew Hussay um Heysel og hvernig sá atburður hefur þó allavegana orðið til þess að bæta fótboltann.

Fyrir okkur, sem byrjuðu að fylgjast með fótbolta af alvöru eftir Heysel slysið er erfitt að skilja hvernig andrúmsloftið á leikjum í enska boltanum var fyrir Heysel. Ég las athyglisverða lýsingu á því hér:

… in England a Saturday spent as an away fan in those days was like being a prisoner-of-war for the duration; guarded on trains; marched to the ground while locals threw missiles and spat in your direction; stood behind razor wire for the duration of the game and held back for hours afterwards while the police cleared the streets. No wonder attendances at matches were plummeting. From around 42 million clicks of the turnstiles in the English League alone in 1948, to 17 million in 1984, it was one long descending graph

Þessi lýsing á auðvitað ekkert sameiginlegt með því, sem gerist í dag. Ég hef farið á nokkra fótboltaleiki í Evrópu, á Old Trafford, Nou Camp og fleiri völlum en aldrei nokkurn tímann leið mér einsog öryggi mínu væri ógnað eða að ég væri í hættu fyrir að vera Liverpool aðdáandi á Old Trafford. Ástandið er einfaldlega gjörbreytt.

Ég hef þó upplifað ástandið, einsog það var fyrir Heysel, í Suður-Ameríku. Í Argentínu fór ég árið 1996 á leik með Boca Juniors. Þar fyrir utan völlinn voru skriðdrekar og hermenn með vélbyssur. Inná vellinum var okkur sagt að við yrðum að vera í Boca Juniors hlutanum því ef við værum hvítir og ljóshærðir í gesta hlutanum, þá yrði litið á okkur sem stuðningsmenn River Plate og þá ættum við ekki von á góðu. Á vellinum voru sæti, en við vorum fyrir aftan markið, þar sem allir stóðu á pöllum. Fólkið hoppaði allan tímann og söng og þegar Boca skoraði, þá færðist öll stúkan í einu uppað girðingunni í fagnaðarlætum og þeir æstustu klifruðu uppá girðinguna og fögnuðu. Slíkum girðingum var auðvitað eytt úr enska boltanum í kjölfar hörmunganna á Hillsborough.

Eftir leikinn þurftum við að bíða í hálftíma eftir því að fá að fara útaf vellinum. Fyrst fengu stuðningsmenn útiliðsins að fara út. Þeir þurftu að fara í gegnum nokkurs konar búr, þar sem stuðningsmenn Boca hrópuðu að þeim og köstuðu öllu lauslegu í þá. Þetta er gjörólíkt þeirri stemningu, sem ég upplifði á Nou Cammp og Old Trafford.


Einnig er ágæt grein í The Guardian: Liverpool still torn over night that shamed their name.

Átakanlegust er þó þessi í grein í The Guardina: The horror of Heysel scarred in the mind, þar sem rakin er saga ítalsk föðurs, sem horfði uppá son sinn deyja í troðningnum á Heysel.


Á þriðjudaginn spilum við gegn Juventus í fyrsta skiptið í Evrópukeppninni eftir Heysel slysið. Við skulum vona að þeirra leikja verði minnst vegna knattspyrnu, en ekki ofbeldis. Fyrir leikinn á Anfield mun vera mínútu þögn til að minnast þeirra, sem létust í Belgíu. Stuðningsmenn Liverpool munu svo mynda mósaík mynd með orðunum Amicizia (vinátta) á milli merkja liðanna.

Allir Juventus aðdáendur, sem mæta á Anfield munu fá bækling með skilaboðum frá Ian Rush, sem lék fyrir bæði liðin.

Á baksíðunni mun einfaldlega standa: “We are sorry. You’ll Never Walk Alone”.

Manjú

Er það bara ég, eða er [þetta ekki dálítið fyndin frétt](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/teams/m/man_utd/4373075.stm).

>Manchester United want the format of the Champions League changed to help more big clubs reach the last eight.

Semsagt, víst þeim gengur ekki betur að komast áfram í Meistaradeildinni, þá þarf bara að breyta fyrirkomulaginu :-)

Juventus (uppfært)

20 árum eftir Heysel slysið hörmulega, sem varð til þess að Liverpool var bannað úr Evrópukeppni í mörg ár, þá munum við mæta Juventus í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Að mínu mati var þetta eitt af þeim þremur liðum, sem ég óttaðist mest. Hin voru Chelsea og AC Milan. Ég mun skrifa meira um þetta þegar ég hef betri tíma. En á meðan, hvernig líst ykkur á?

Fyrri leikurinn verður á Anfield, 7.apríl og sá seinni verður 13.apríl í Tórínó.

**Uppfært (Einar Örn)**: Það má kannski bæta því við að ef við vinnum leikinn gegn Juventus, þá munum við leika gegn sigurvegaranum úr leik Chelsesa og Bayern Munchen í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum munu svo mætast AC Milan/Inter Milan og PSV/Lyon. Þannig að ef við ættum að fara alla leið, þá væri ekki ólíklegt að okkar menn þyrftu að vinna Juventus, Chelsea og svo AC Milan. Jammm…

Einnig, þá sendu tveir lesendur inn fín komment á leik Juve í vetur og erum við þakklátir fyrir. Sjá hér frá [Zlatan](http://www.kop.is/gamalt/2005/03/18/15.36.33/#12047) og [Kallinn](http://www.kop.is/gamalt/2005/03/18/15.36.33/#12044).

Samkvæmt þeim, þá er líklegasta byrjunarlið Juventus svona:

Buffon

Zebina – Thuram – Cannavaro – Zambrotta

Camoranesi – Emerson – Blasi – Nedved

Zlatan – Trezeguet/Del Piero

Ekki slæmt lið þar. Þarna er einn af fimm bestu markmönnum í heimi, einn af fimm bestu miðjumönnum í heimi og þrír af bestu framherjum í heimi.

Næsta umferð

Eftir nákvæmlega viku verður dregið í 8 liða úrslit í Meistaradeildinni.

Milan Baros vill fá [Juventus](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N148107050311-0912.htm) (ég hefði reyndar haldið að hann myndi vilja fá Milan ho ho ho ho). Hvaða lið vilt þú fá og hvaða lið vilt þú alls ekki fá?

Ég hallast dálítið að Chelsea þrátt fyrir að ég sé eilítið hræddur við þá. Ég vil svo alls ekki fá AC Milan. Þeir væru fínir í úrslitunum :-)


LIVERPOOL
Chelsea
AC Milan
Olympique Lyonnais
Bayern Munchen
PSV Eindhoven
Juventus
Porto / Internazionale

Getraun dagsins

Þá er komið að enn einum nýjum lið hér á síðunni. Nefnilega getraun dagsins.

Spurt er:

**Hvaða er eina enska félagsliðið, sem hefur unnið leik í Meistaradeildinni árið 2005?**

Svör óskast í kommentunum.

Ef einhverjir vita svarið, þá er um að gera að endurtaka það svar sem oftast á vinnustöðum eða í skólum landsins næstu daga. :-)

Hversu góðir eru Leverkusen?

Nú eru fjórir dagar þangað til Liverpool spila sinn mikilvægasta leik í heil þrjú ár í Evrópukeppni á Anfield. Mótherjarnir að þessu sinni eru þýska liðið Bayer Leverkusen, sem við munum eftir frá því fyrir þremur árum. Þá unnum við þá 1-0 á Anfield en töpuðum síðan 4-2 á Bay Arena í Leverkusen og féllum út úr keppni. Þannig að við eigum harma að hefna gegn þessu liði í þetta sinn.

Eftir að Ríkissjónvarpið ákvað að hætta sýningum á þýska boltanum þá hefur maður lítið sem ekkert séð til deildarkeppninnar þar í landi í vetur, og er það miður þar sem svo virðist sem deildin þar í landi sé æsispennandi. Þegar þetta er skrifað eru 21 umferð búnar og Bayern Munchen og Schalke eru saman á toppnum, með 41 stig hvor. Ríkjandi meistarar Werder Bremen eru þar næstir með 37 stig og síðan koma Herta Berlín í fjórða sætinu með 36 stig. Stuttgart og Bayer Leverkusen eru síðan saman í 5.-6. sætinu með 35 stig, sex stigum frá toppnum, og ljóst er að Leverkusen-menn eiga langa baráttu fyrir höndum að komast aftur í Meistaradeildina að ári. Þeir eru því ekkert ósvipað staddir í sinni deild og við erum í okkar.

Í Meistaradeildinni hafa Leverkusen-menn hins vegar farið á kostum í vetur. Þeir unnu sinn riðil nokkuð örugglega, þar sem hæst bar 3-0 stórsigur á stórliði Real Madríd í Leverkusen. Þá náðu þeir 0-0 jafntefli við Madríd á útivelli og unnu svo m.a. báða leiki sína við Roma frá Ítalíu – en í sigrinum í Rómarborg skoraði Dimitar Berbatov eitt allra flottasta mark sem ég hef séð skorað í langan tíma.

Þeir sem þurfa að rifja upp hver Dimitar Berbatov er, þá skoraði hann gegn okkur í útileiknum fyrir þremur árum, auk þess sem hann skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri Búlgara á Íslendingum á Laugardalsvellinum í september sl. Að mínu mati er Berbatov einn besti ungi framherjinn í Evrópu í dag: hann skoraði einhver 4-5 mörk í riðlinum þeirra í Meistaradeildinni í haust og hefur til þessa skorað 14 mörk í 21 leikjum fyrir Leverkusen í þýsku Búndesligunni. Þannig að þótt þeir séu gerólíkir leikmenn held ég að það megi alveg hugsa sér Berbatov sem þeirra Baros, sá sem þeir treysta á til að skora mörkin.

Reyndar er helsti styrkleikur Leverkusen bara sóknarleikurinn almennt. Auk Berbatov skarta þeir tveim frábærum framherjum til viðbótar: Brasilíumaðurinn Franca er kannski frægari fyrir villtan hárvöxt en fótbolta en hann er engu að síður búinn að skora 16 mörk fyrir þá í deildinni í vetur, sem er ekki slæmt fyrir þriðja kost í framherjastöðuna. Þeirra annar framherji, og sá sem er reglulega við hlið Berbatov í framlínunni, heitir Andrej Voronin og er Rússi. Hann er búinn að skora 14 mörk eins og Franca. Ég veit ekki til þess að neinn þessara þriggja sé meiddur, þannig að ljóst er að varnarmenn okkar munu hafa nóg fyrir stafni gegn Leverkusen í næstu viku.

Að öðrum kosti er vörnin þeirra stærsti kostur. Þar eru margir fjölreyndir menn sem við könnumst vel við frá því fyrir þremur árum. Fyrirliðinn Jens Nowotny er margreyndur þýskur landsliðsmaður, Diego Placente er einnig reyndur bakvörður og Brasilíumaðurinn Roque Júnior, sem var hræðilegur með Leeds í fyrra og AC Milan árið þar áður, er víst að spila eitt sitt besta tímabil á ferlinum í vetur fyrir Leverkusen. Hann þarf að fylla í stórt skónúmer, þar sem hann kom til liðsins í stað snillingsins Lúcio sem fór til Bayern Munchen síðasta sumar.

Á miðjunni hafa þeir síðan tappa eins og Carsten Ramelow, Clemens Fritz og Marko Babic til að stjórna umferðinni á meðan kantmennirnir Bernd Schneider og Robson Ponte hafa verið skæðir í vetur. Þannig að þetta lið er mjög vel balancerað og er held ég almennt talið miklu líklegra en Liverpool í þessu einvígi.

Hvaða möguleika eigum við þá?
Að mínu mati felst lykillinn að því að sigra þetta Leverkusen-lið í því að gera lítið úr sóknarhættu þeirra. Ef okkur tekst að stöðva framherjana þeirra og sóknarmiðjumennina – þá sérstaklega Bernd Schneider sem er mjööög góður – þá förum við langa leið með að sigra þetta lið. Ég á von á því að við náum að hafa stjórn á þeim á Anfield, þótt Gerrard vanti á miðjuna, en það verður því mikið erfiðara að stöðva þá í Þýskalandi þar sem Bay Arena-völlurinn er þekktur fyrir mikla stemningu. Leverkusen-menn spila jafnan betur á heimavelli og verða stórhættulegir þar.

Fyrir þremur árum unnum við þá 1-0 í fyrri leik á Anfield, sem margir myndu eflaust sætta sig við í dag. Það er fínt að halda hreinu á heimavelli og að fara með sigur í seinni leik. En þá fengum við á okkur heil 4 mörk í seinni leiknum, eitthvað sem einfaldlega má ekki gerast í þetta sinn ef við ætlum okkur áfram. Ég mun hita betur upp fyrir leikinn eftir helgina en ég verð að viðurkenna að ég hlakka til að sjá þetta einvígi – ég spái því að þeir mæti með varnaruppstillingu á Anfield og freisti þess að Berbatov & Co. nái að lauam inn einu marki. Þannig að í næstu viku gætum við verið að pressa mikið og reyna að skora mark/mörk til að eiga í veganesti fyrir útileikinn. Á Bay Arena-vellinum býst ég síðan við styrjöld, þar sem þeir munu mæta af fullum sóknarþunga og reyna að kála okkur með frábærum sóknarmönnum og mörgum mörkum – eins og Real Madríd fengu að reyna í haust.

Mig hlakkar bara til næstu viku. 16-liða Úrslit Meistaradeildar Evrópu er ekki eitthvað sem við ættum að taka sem sjálfsagðan hlut og því verður gaman að sjá okkar menn spreyta sig á þessari prófraun. :)

Það er BAYER LEVERKUSEN!

Jahá, sagði ég ykkur ekki!? Við drógumst gegn Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur, einfaldlega af því að við fáum séns á að þakka pent fyrir síðasta skipti sem við mættum þeim. Það eru tveir mánuðir í þessa leiki og það getur margt breyst á tveim mánuðum, við verðum vonandi komnir í fljúgandi gír þegar að þessum leik kemur … ég er bjartsýnn fyrir þessar viðureignir, bring it on!!!

Ó, og svo eiga hin tvö liðin sem ég held eitthvað með í Evrópu alveg frábæra leiki: AC Milan fær að éta Man U lifandi, mér til mikillar ánægju … og svo er stórviðureign þessarar umferðar BARCELONA og Chelsea. Ég get ekki lýst því hvað ég mun njóta þess mikið að horfa á Barcelona taka snobbhausana frá London í nefið… auðvitað geta United og Chelsea alveg tekið þetta, en að mínu mati eru AC Milan og Barca með sterkustu liðin í þessari keppni og því er ég mjög ánægður að þau skyldu lenda á United og Chelsea. Hehe…

En allavega, ég held að það geti allir glaðst yfir þessum fréttum. Ekki af því að Leverkusen verði auðveldir, við gerðum þau mistök síðast að halda það … þetta lið er rooosalega sterkt og þykir miklu sigurstranglegra liðið í þessum viðureignum við okkur, en eins og ég segi þá verður okkar mönnum mikið í mun að ná að hefna sín eftir vorið 2002. Þetta verður yndislegt!

Drátturinn í dag: 16 lið eftir!

Hópur 1: Mónakó, Arsenal, Chelsea, Juventus, AC Milan, Internazionale, Lyon, Bayer Leverkusen.

Hópur 2: Liverpool, PSV Eindhoven, Porto, Bayern Munchen, Barcelona, Werder Bremen, Man U, Real Madrid.

Við getum mætt: Juve, AC Milan, Inter, Lyon, Bayer Leverkusen.

Hverjum viljum við mæta? Að mínu mati er alltaf ákveðinn ljómi yfir því að spila á Ítalíu þannig að þótt þau séu feykisterk myndi ég ekkert gráta yfir að fá ítalskt lið. Hins vegar væri gaman að sigra Lyon, til að geta montað sig við United-menn sem réðu ekki við þá. Engu að síður verð ég að segja að mín persónulega ósk er að fá Bayer Leverkusen, en þeir slógu okkur einmitt úr þessari keppni fyrir tveimur og hálfu ári síðan á eftirminnilegan hátt.

Hefndin er best matreidd köld og eftir tvö og hálft ár hlýtur hún að vera orðin ansi girnileg, ekki satt?

Samt, þetta eru fimm súpergóð lið og ótrúlega erfiðar/spennandi viðureignir framundan, alveg sama hvaða lið við fáum. Þetta verður forvitnilegt að sjá.

Fyrir áhugasama bendi ég á frábæran útvarpsþátt Valtýs Björns og Hansa Bjarna, “Mín skoðun á Skonrokk”, FM 90.9. Þátturinn byrjar strax eftir hádegisfréttir eða um 12:20 og ef ég þekki þá rétt verða þeir með þennan drátt alveg í þráðbeinni um það leyti, þannig að endilega stillið inn á þáttinn og heyrið þetta í beinni…

Benitez öruggur um sigur

Rafa Benitez segist vera [öruggur um sigur gegn Olympiakos](http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/europe/4071359.stm) á miðvikudaginn. Liverpool þarf að vinna þann leik 1-0, eða þá með að minnsta kosti tveim mörkum.

Rafa segir:

>If you had told me when we started out that progress depended on beating Olympiakos at home, I would have settled for that.

Það er óhætt að segja að ég er orðinn *verulega* spenntur fyrir þessum leik. Mikið rooosalega væri gaman að vera á Anfield á miðvikudaginn. Stemningin verður pottþétt svakaleg!


Viðbót (Kristján Atli): Greetings, planet Earth! Ég er að kafna í próflestri, eins og eflaust fleiri, og því hefur verið lítið um uppfærslur hjá mér undanfarið. En ég verð að taka undir með Einari, leikurinn á miðvikudag (og Everton á laugardag) verða rosalegir! Ég hlakka ekkert smá lítið til þessa leiks, það mun sko enginn lærdómur heimsins geta haldið mér frá skjánum á miðvikudagskvöld!

Heimaleikur, hreinn úrslitaleikur, í Meistaradeildinni þar sem okkur dugir ekkert annað en sigur? Síðast þegar það gerðist var fyrir tveimur og hálfu ári, þegar við unnum Roma 2-0 á Anfield og Emile Heskey spilaði eins og besti framherji í heimi! Frábærar minningar frá þeim leik, frábær leikur og ógleymanlegt Anfield-kvöld!

Vonandi verður miðvikudagurinn jafn eftirminnilegur… :) …þetta er svo spennandi að maður er að faaaaa-aaaaa-aaaaarast!

Naaauuujjj! Mellor byrjar inná!

Vá, Rafa Benítez er búinn að tilkynna byrjunarliðið sitt í kvöld, og þar eru nokkrar breytingar:

Kirkland

Finnan – Carragher – Hyypiä – Traoré

Gerrard – Biscan – Hamann – Riise

García – Mellor

Vá! Finnan fer í bakvörðinn í stað Josemi (og ég sem var að segja að það væri ekki séns að Josemi færi á bekkinn… ), Igor Biscan kemur inn í stað Xabi Alonso (sem var vissulega slakur á laugardaginn) og Neil Mellor kemur inn í stað Harry Kewell! Hvern hefði grunað þetta?

Þetta er í raun svona blanda af 4-5-1 og 4-4-2, svipað og ég talaði um í síðustu færslu. Þ.e.a.s. að ef García fer fram í holuna fyrir aftan Mellor þá getur Gerrard, og jafnvel Biscan, kóverað hægri vænginn á meðan án þess að skilja miðjuna eftir óvarða. Hins vegar, ef þeir sækja hart að okkur eða ef aðstæður kalla á það, getur García dottið niður á hægri kantinn og þá erum við komnir niður í 4-5-1.

En þetta er sennilega með óvæntustu byrjunarliðum tímabilsins það sem af er. Hvern hefði grunað að hann myndi setja Josemi, Alonso og Kewell á bekkinn fyrir Gerrard, BISCAN … og MELLOR???

Vá. Þetta verður rosalega spennandi í kvöld. Hvernig stendur Mellor sig í Meistaradeildinni? We are about to find out…

Vandræði hjá Mónakó…

barosmonaco2.jpg Ókei, það er kominn mánudagur og nú er mál að reka af sér slyðruorðið eftir helgina. Það á bæði við um undirritaðan (sem er að stíga upp úr rúminu eftir flensu), aðdáendur Liverpool (sem vildu sennilega allir hoppa fyrir strætó síðdegis á laugardag) og leikmenn Liverpool (sem voru lélegir, vægast sagt). Það er kominn tími til að hressa sig við og líta fram á veginn!

Mónakó komu í heimsókn á Anfield þann 15. september sl. og voru gjörsigraðir, 2-0 í leik sem hefði getað endað 8-0 fyrir Liverpool. Auðveldlega. Það var fyrsti leikur liðanna í riðlakeppninni í vetur og mörk Liverpool í leiknum skoruðu þeir Djibril Cissé og Milan Baros. Hvorugur þeirra verður með á morgun, sem flokkast undir vandræði af hálfu okkar manna.

En þó eiga fleiri í vandræðum fyrir annað kvöld. Mónakó hefur leikið frekar illa í deildinni heimafyrir að undanförnu, auk þess sem að þeir eru stigi á eftir Liverpool og Olympiakos fyrir þessa næstsíðustu umferð. Þeir eiga lokaleik í riðlakeppninni á útivelli gegn Deportivo, þannig að ljóst er að það er að duga eða drepast fyrir þá á heimavelli gegn Liverpool á morgun. Ef þeir tapa fyrir okkar mönnum annað kvöld, eða jafnvel gera jafntefli, verður þetta afskaplega erfitt í lokaumferðinni.

Þá eiga þeir í meiðslum eins og við: Fyrirliðinn Julien Rodriguez er meiddur og verður ekki með annað kvöld, auk þess sem hinn sterki miðjumaður Lucas Bernardi missir af leiknum með meiðsli í nára. Þetta er mikil blóðtaka fyrir Mónakó-liðið, sem var mjög illa mannað fyrir eftir miklar blóðtökur í sumar. Segja má að það eina sem gefi þeim ástæðu til bjartsýni fyrir annað kvöldið sé það að undrabarnið Javíer Savíola verður með gegn okkur, en hann var í banni í fyrri leik liðanna.

Sami Hyypia segist allavega óttast stubbinn Saviola, sem nær honum rétt upp að hnjám. Og ef Big Sami er hræddur þá er ég hræddur.

Samt hef ég í rauninni ekkert svakalegar áhyggjur af vörninni. Jú, hún var lek gegn Crystal Palace og Middlesbrough og gæti verið lek líka á morgun en ég hef meiri áhyggjur af því að við skorum engin mörk með tvo bakverði á köntunum og tvo kantmenn frammi. Ef við ætlum að ná stigi eða stigum á morgun þykir mér ljóst að við verðum að skora a.m.k. eitt mark, ef við ætlum ekki að halda hreinu gegn þessu liði. Þannig að við verðum að leggja meira undir í sókninni á morgun og ég vona að Rafa Benítez stjóri Liverpool setji nú a.m.k. einn framherja í liðið á morgun.

Sjáum til. En meiðsli í herbúðum Frakkanna eru a.m.k. góðar fréttir fyrir okkur. Eins dauði er annars brauð og allt það … kannski mun fjarvera fyrirliðans þeirra ríða baggamuninn á morgun, á sama tíma og fyrirliðinn okkar kemur (væntanlega) inn í byrjunarliðið.

Það er allavega ástæða til að brosa í dag … eftir erfiða helgi.

Riðill A:

champsleague.JPGRiðill A:

Deportivo la Coruna
Liverpool FC
AS Mónakó
Olympiakos

Þannig fór það nú. Það var dregið í riðla í Meistaradeildinni í dag og Liverpool lenti í A-riðli með þessum þremur liðum sem nefnd eru hér að ofan. Að mínu mati þá er þetta ágætis dráttur, við fengum ekki stóru-stóru-stóruliðin en við fengum heldur ekki of óþekkt eða auðveld lið. Þannig að þetta var fínt að mínu mati. Þá er einnig gott að þurfa ekki að ferðast til Austur-Evrópu eða Rússlands, sem getur tekið á. Þetta eru ekkert of erfið ferðalög, það versta er nokkurra tíma flug frá Liverpool-flugvellinum til Grikklands en það er ekkert sem drepur menn.

Deportivo La Coruna er rrrosalega gott lið. Þeir hafa verið í 8-liða-úrslitum og undanúrslitum Meistaradeildarinnar nær undantekningarlaust síðustu árin. Þá hafa þeir líka gert það gott heima á Spáni. Þetta lið er sigurstranglegast í riðlinum en það er vel hægt að sigra þá. Ég sagði það fyrir dráttinn að ég vildi helst ekki fá Porto, Bayern Munchen eða hin þrjú spænsku liðin úr fyrsta styrkleikaflokki og því fagnaði ég í hljóði þegar Liverpool dróst í riðil með Depor. En þótt ég hafi fagnað þá verða þetta rosalega erfiðar viðureignir! Samt … það er gaman að Rafa fái að fara með nýja liðið sitt til Spánar!

Mónakó komust alla leið í úrslitin í þessari keppni í fyrra en töpuðu þar fyrir Mourinho og Co. í Porto, 3-0. Þeir hafa misst þrjá lykilmenn: Ludovic Giuly fyrirliði fór til Barcelona, Fernando Morientes fór heim til Real Madríd og Jerome Rothen fór til París St. Germain. Í staðinn hafa þeir fengið Javier Saviola að láni frá Barcelona og þá er gamla franska brýnið Didier Deschamps enn við stjórnvölinn. Þetta verða erfiðir og eflaust skemmtilegir leikir, en ég tel að við eigum vel að geta haft betur gegn þessu liði!

Olympiakos enduðu í 2. sæti í grísku deildinni, en það var í fyrsta skipti síðan vorið 1996 sem að liðið vann ekki deildarkeppnina í Grikklandi. Þeir hafa hreinlega átt grísku deildina síðasta áratuginn eða svo og eru með sterkan kjarna af leikmönnum sem voru burðarásar í gríska landsliðinu sem vann EM í sumar! Þannig að þetta verða rosalega erfiðir leikir, bæði heima og úti. Þá hefur þetta lið spilað í Meistaradeildinni á nærri því hverju einasta ári síðan hún var stofnuð og hafa því massamikla reynslu af Meistaradeildinni. Það vegur þungt í svona jöfnum riðli.

Og þar hafiði það. Þetta er að mínu mati riðill sem Liverpool á hæglega að geta unnið – en þetta er líka riðill sem Liverpol gæti lent í neðsta sæti! Þetta er feykilega jafn riðill og nú verður bara spennandi að sjá hvað drengirnir hans Rafa Benítez gera í keppni þeirra bestu í vetur! Spennandi!

Fyrsti leikur verður miðvikudaginn 15. september á Anfield í Liverpool, gegn Mónakó. Þannig að það eru 20 dagar eða rétt tæpar þrjár vikur í fyrsta leik. Shjitt hvað það verður gaman þegar Meistaradeildin byrjar að rúlla!!!

Dregið í riðla í dag!

Liverpool-aðdáendur: verið velkomnir í Meistaradeild Evrópu veturinn 2004-05. :)

Þar sem liðið frá Bítlaborginni komst í gegnum forkeppnina og inn í riðlakeppnina verða augu okkar allra á UEFA á morgun (í dag, þar sem ég er að skrifa þetta eftir miðnætti). Þá verður dregið í riðla í Meistaradeild Evrópu og þau lið sem koma til greina eru sem hér segir:

1. flokkur: Porto (ríkjandi meistarar), Real Madríd, Valencía, Barcelona, Manchester United, Bayern Munchen, Deportivo la Coruna, Arsenal

2. flokkur: AC Milan, Liverpool, Juventus, Inter Milan, Roma, Lyon, Chelsea, Panathinaikos

3. flokkur: PSV Eindhoven, Bayer Leverkusen, Glasgow Celtic, Sparta Prag, Mónakó, Anderlecht, Ajax Amsterdan, París St Germain

4. flokkur: Rosenborg, Dinamo Kiev, Olympiakos, Werder Bremen, Shaktar Donetsk, Fenerbache, Maccabi Tel-Aviv, CSKA Moskva

Þetta verður rrrrrrosalega spennandi! Auðvitað er hver einasti leikur í svona keppni ótrúlega erfiður, en þó verður að viðurkenna að þarna eru sum lið erfiðari en önnur. Til að mynda gætum við lent í svokölluðum dauðariðli, þar sem við fengjum t.d. tvö heimsklassalið og síðan lið frá Austur-Evrópu. Dæmi:

Real Madríd – Liverpool – Ajax Amsterdam – Dynamo Kiev

Hins vegar gætum við orðið “heppnir” með dráttinn og fengið öllu þægilegri riðil, t.d. hvað varðar ferðalög (Austur Evrópa: slæm!, Skandinavía: góð! ) og getu liða. Dæmi:

Deportivo la Coruna – Liverpool – Anderlecht – Rosenborg

Það verður spennandi að sjá hvernig drátturinn verður. Skv. reglum UEFA mega lið frá sama landi ekki dragast saman í riðla þannig að við getum ekki mætt Arsenal eða ManU úr fyrsta styrkleikaflokki, auk þess sem Chelsea eru í sama styrkleikaflokki og við og mæta okkur því ekki í riðlum.

Hins vegar … þá eru mörg lið þarna sem við vildum eflaust forðast, en samt er það nú alltaf svo að maður mætir einmitt þeim liðum sem væri mest kaldhæðni í að þurfa að mæta. Dæmi um slík lið:

Real Madríd: Eitt nafn útskýrir af hverju við viljum helst sleppa við þetta lið í vetur: Michael Owen. Liverpool-aðdáendur eru með stórt hjarta en það er búið að berja svolítið á því í ágústmánuði. Það var erfitt að kveðja eftirlætissoninn … myndu menn ráða við það ef hann færi að skora gegn okkur? Ég held ekki!

Valencía: Rafa Benítez yfirgaf þá og kom til okkar í sumar og við erum búnir að styrkja okkur talsvert í leikmannamálum … en það skal ekki farið í neinar grafgötur með það að Valencía eru ennþá með talsvert öflugra lið en við. Auk þess er sjálfur Claudio Ranieri núverandi þjálfari Valencia og af öllum þjálfurunum í Meistaradeildinni – fyrir utan þjálfara ensku liðanna – þá þekkir enginn okkur betur en Ranieri. Þannig að þetta gætu orðið skelfilega erfiðir leikir.

Glasgow Celtic: Síðast þegar við mættum þeim unnu þeir okkur á Anfield. Martin O’Neill er farinn að gera það að vana að sigra Liverpool, bæði sem stjóri hjá Leicester og nú Celtic. Það er alltaf viss rómantík sem fylgir því að Liverpool og Celtic mætist en við höfum oft farið illa út úr þessum viðureignum. Þetta er lið sem ég vill helst forðast, allavega þar til komið er í útsláttarfyrirkomulagið eftir áramót.

Dynamo Kiev: Við höfum ekki mætt þeim áður í Evrópukeppni, allavega ekki síðasta áratuginn eða svo, en riddararnir frá Kænugarði elska fátt meira en að sigra ensk lið í Meistaradeildinni. Og það sem meira er – þeir eru virkilega góðir í að sigra ensk lið í Meistaradeildinni. Spyrjið bara Newcastle og ManU! Forðist eins og heitan eldinn!

Þannig er nú það. Þetta verður rrrrrosalega spennandi dráttur og ég vona að við verðum heppin með mótherja! Við þurfum svo á því að halda að komast upp úr riðlinum … það hlýtur að vera lágmarkstakmark liðsins!

Það er dregið í riðla kl. 16:00 að mið-Evrópskum tíma, sem útleggst sem 14:00 eða 2 eftir hádegi að okkar tíma. Ég mæli með að fólk hlusti á dráttinn í beinni á UEFA.com eftir hádegið á morgun, auk þess sem allir helstu fréttamiðlarnir munu uppfæra fréttir af þessu jafnóðum! Ég mun svo skrifa um riðilinn sem við fáum annað kvöld og spá í spilin. Þetta er svo spennandi að ég er að deeeyja! ;)

Leikur við Graz í kvöld!

Liverpool mæta AK Graz frá Austurríki í seinni leik liðanna í kvöld, á Anfield Road vellinum í Liverpool-borg. Búist er við því að völlurinn verði pakkfullur er Liverpool-liðið leitast við að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á komandi vetri. Eftir 2-0 sigur í fyrri leiknum, á útivelli í Austurríki, verður að teljast yfirgnæfandi líkur á því að Liverpool komist áfram úr þessu einvígi.

Hvað leikmenn varðar þá er vitað að Josemi er tæpur, en hann meiddist í baki á laugardaginn í leiknum gegn ManCity og varð að fara útaf. Hann gæti verið orðinn leikfær í kvöld en ég held að Benítez muni ekki hætta honum í þennan leik heldur hvíla hann, leyfa honum að jafna sig alveg fyrir Bolton-leikinn á sunnudaginn.

Þá hefur Benítez einnig gefið í skyn að hann muni jafnvel hvíla leikmenn og gefa nokkrum öðrum séns í leiknum í kvöld, sem gerir liðsuppstillinguna spennandi. Hann hefur stillt upp sama byrjunarliðinu síðustu þrjá leiki liðsins í röð, en nú býst ég við að það verði einhverjar breytingar … bæði vegna meiðsla Josemi og þess sem Benítez vill kannski hvíla nokkra leikmenn.

Þannig að þetta er mjög erfitt um að spá, en ég ætla samt að skjóta á liðsuppstillingu. Svo verður gaman að sjá í kvöld hvað ég hef margar stöður réttar. :-) En liðið í kvöld, skv. minni spá, verður væntanlega svona:

JERZY DUDEK

FINNAN – CARRAGHER – HYYPIÄ – RIISE

KEWELL – GERRARD – HAMANN – WARNOCK

PONGOLLE – BAROS

Sem sagt, skv. minni spá verða þrjár breytingar í kvöld og þar af eiga tvær sömu ástæðu. Meiðsli Josemi verða til þess að Benítez færir Finnan niður í sína náttúrulegu stöðu og notar um leið tækifærið og gefur hinum unga Stephen Warnock fyrsta byrjunarliðssætið sitt á ferlinum fyrir Liverpool. Það virðast flestir búast við því að Warnock fái að byrja inná í kvöld, enda er hann ungur heimamaður sem á það fyllilega skilið að fá þennan séns. Ég vona allavega að hann verði í liðinu.

Þá held ég að hann muni hvíla annan hvorn framherjann í kvöld og þótt ég spái Baros í byrjunarliðinu gæti það allt eins orðið Cissé. Ég held að hann reyni að hvíla þá báða þannig að ef Baros byrjar inná kemur Cissé inn fyrir hann snemma í seinni hálfleik … eða öfugt. Það held ég allavega, þannig notar hann alla þrjá framherjana í kvöld, gefur Sinama-Pongolle gott tækifæri í byrjunarliðinu og heldur bæði Baros og Cissé ferskum fyrir sunnudaginn.

Höfum eitt á hreinu – leikurinn í kvöld er miklu, miklu mikilvægari fyrir Liverpool heldur en nokkurn tímann leikurinn gegn Bolton á sunnudaginn. Við megum við því að tapa gegn Bolton á sunnudag, þar sem við höfum heila 35 leiki til að jafna okkur eftir slíkt reiðarslag.

Ef við töpum í kvöld gætum við misst af riðlakeppni Meistaradeildarinnar, sem og bílhlassi af peningum. Slíkt áfall gæti riðið liðinu að fullu … ég get ekki til þess hugsað að þetta fari illa í kvöld! Því verður að setja fulla áherslu á leikinn í kvöld, tryggja sigur í þessum leik fyrst og fremst … síðan hafa áhyggjur af öðru, svo sem:

-Að enginn leikmaður meiðist, vonandi.
-Að ná að hvíla nokkra lykilmenn eins og t.d. framherjana eins og ég stakk uppá, sem og kannski taka Gerrard útaf í seinni hálfleik.
-Gefa ungu strákunum í hópnum tækifæri og dýrmæta reynslu í Evrópukeppni. Þeir eiga meiri séns á að spila gegn Graz AK heldur en gegn Juventus eða Real Madríd í riðlakeppni.

Þannig er nú það. Byrjunarliðið í kvöld, að mínu mati, eins og segir hér að ofan. Nú, mín spá fyrir leikinn í kvöld er einfaldlega öruggur sigur. Við fáum ekki á okkur mark – það á varla að geta gerst miðað við getumun þessarra tveggja liða – og ég geri ráð fyrir blússandi sóknarbolta og allavega 2-3 mörkum í frábærri stemningu á Anfield Road í kvöld.

Sjáum til hverjar lokatölurnar verða. Áfram Liverpool!

Hópurinn farinn til Austurríkis! (Uppfært!)

TEAMtalk: Murphy fjarverandi er Liverpool-liðið heldur til Austurríkis.

Hópurinn sem fór til Austurríkis lítur svona út:
>Dudek, Kirkland, Finnan, Josemi, Henchoz, Hyypia, Carragher, Riise, Kewell, Gerrard, Biscan, Diao, Hamann, Owen, Baros, Cisse, Sinama-Pongolle, Harrison, Warnock, Whitbread, Traore.

Það sem vekur strax athygli við þennan hóp, fyrir utan það að Murphy er ekki með og að Gerrard er með (s.s. búinn að jafna sig af meiðslunum) er það að þeir Michael Owen og Steve Finnan eru með.

Varðandi Michael Owen og hugsanlega sölu hans til Real eða Barca, þá er augljóst að ef hann spilar annað kvöld þá er hann ekki að fara neitt. En ef hann spilar ekki, þrátt fyrir að vera fullfrískur þessa dagana, þá er augljóst að hann er að öllum líkindum að fara. Þannig að við fáum endanlegt svar með hann á morgun, þegar við sjáum annað hvort hann eða Milan Baros ganga út á völlinn í Austurríki við hlið Djibril Cissé.

Ef Owen spilar á morgun má hann ekki spila með öðru liði í neinni Evrópukeppni það sem eftir er af tímabilinu. Þannig að ef hann spilar á morgun get ég ekki ímyndað mér að Real eða Barca vilji hann. Þetta kemur í ljós annað kvöld.

Hvað Finnan varðar þá vill ég ekki missa hann úr hópnum eins og staðan er í dag. Ég held að fólk sé bara að slúðra um það að hann geti verið á förum, vegna þess að Josemi er kominn í bakvörðinn. En mér sýnist Benítez alveg gera ráð fyrir Finnan í hópnum. Hann notaði Carragher í miðverðinum í Ameríku og Finnan á hægri kantinum, og miðað við hvað miðjuhópurinn er þunnskipaður gæti ég alveg séð Finnan fyrir mér spila fullt af leikjum sem kantmaður í vetur. Ég vill a.m.k. ekki sjá að hann verði seldur fyrr en við erum komnir með góðan hægri kantmann í staðinn!

Mín spá fyrir byrjunarlið annað kvöld: Dudek – Josemi, Hyypia, Carra, Riise – Finnan, Hamann, Gerrard, Kewell – Cissé, Owen/Baros.

Biscan er í banni og því verður Hamann væntanlega á miðjunni, auk þess sem ég geri ráð fyrir að sjá Finnan á kantinum. Eina spurningin, eins og ég sagði áður, er það hvort Owen trítlar út á völlinn eða ekki. Sjálfur mun ég gleðjast ógurlega ef það gerist, miðað við hvað það merkir, þar sem ég vill alls ekki missa hann. En ef það gerist ekki, þá treysti ég Milan Baros fyllilega til að jarða þá austurrísku!

Þessi vika er að verða alveg fáránleg. Ég mun ekki geta hugsað um neitt annað en Liverpool næstu dagana!!!!!!!


Aaaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh!

MEIRI UPPLÝSINGAR UM MICHAEL OWEN, og þið trúið þeim aldrei!?!?!?!?

Þetta er tekið af YNWA.TV-spjallborðinu og er frá áreiðanlegum heimildum (gaurinn sem setur þetta inn var sá sem skúbbaði Josemi-kaupunum). Það þarf að skrá sig til að komast inn á spjallborðið, þannig að ég vitna bara í hann hér:

>I don’t mind going a bit public on this.

>When Liverpool had Cisse paraded at Anfield, there was supposed to be another announcement…………David Beckham

>However the announcement was called off at the last minute for a reason unknown to myself.

>So how does this grab you ?

>Beckham is due to be annouced.
>Owen yet to sign.
>Annoucement called off. – hitch with deal.
>Owen says he’s closer to signing than ever.

>Deal is back on.

>Owen speaks to Madrid.

>Now then, I’m not saying that Beckham to Liverpool is back on or even on, but the story has been around for a while and I’ve had it confirmed twice.

>Another acid test could be if Beckham plays for Madrid or not this week.

Lesist: DAVID BECKHAM! Skyndilega virkar salan á Michael Owen til Real mjög líkleg. Ef hann, skv. forsíðu YNWA.tv er á leiðinni til Real Madríd þá gæti það verið mjög líklegt að Beckham sé að koma til okkar í staðinn.

Það var vitað að Beckham var á leiðinni til Englands fyrr í sumar, þótt enginn klúbbur væri nefndur opinberlega. Hins vegar var slúðrið undir niðri, á spjallborðum og öðru slíku, á fullu þess eðlis að hann væri að koma til Liverpool. Því kemur það mér ekki á óvart að ástæðan fyrir því að fréttamannafundi Djib var frestað hafi verið vegna þess að menn vonuðust til að kynna annan leikmann líka: David Beckham!

Og nú, skv. þessum “heimildum”, gæti ástæðan fyrir því að Liverpool vilja leyfa Owen að fara til Real verið sú að við fáum David Beckham í staðinn!?!?!?

Real-menn eru í raun í sömu stöðu og við núna. Það hefur verið talað í allt sumar um að hann sé að fara … og prófið hjá Beckham kemur á miðvikudag, þegar Real-menn spila í forkeppninni. Þannig að við fáum að vita það annað kvöld hvort Owen er að fara frá Liverpool, og á miðvikudag hvort Beckham er að fara frá Real. Þannig að ef Beckham og Owen spila hvorugur í Meistaradeildinni þessa vikuna……?!?!?!?!??

Og kaupum svo Xabi Alonso? Munið, þetta er enn bara slúður … en það neitar því enginn að það er spennandi hugmynd!

Damn, ég er kominn með hausverk. Of mikið súrefni. Má ekki tapa mér svona í slúðrinu, hversu líklegt eða trúanlegt sem það virðist vera núna.

Vika dauðans! Það er opinbert!!!

Dregið í Meistaradeildina

Á morgun klukkan 10 verður [dregið í undankeppni Meistaradeildarinnar](http://www.uefa.com/competitions/UCL/news/Kind=1/newsId=210904.html). Liverpool er þar í hópi sterkari 16 liðanna, sem liðið mun EKKI dragast gegn. Þar á meðal eru:

Real Madrid, ManU, Juventus, Internazionale, AS Monaco, PSV Eindhoven, Deportivo La Coruña, Dynamo Kyiv og Bayer Leverkusen.

Liverpool mun **EKKI** dragast gegn þessum liðum.

Liverpool mun hins vegar lenda gegn einu af hinum 16 *veikari* liðunum. Eitt þeirra sérstaklega ætti að gefa öllum Liverpool stuðningsmönnum martraðir: **FC Basel**. Ég man enn vel þegar ég horfði á ósköpin í seinni leiknum gegn Basel á Ölveri, meðal tuga stuðningsmanna. Það var hrikalega sárt og má segja að síðan sá leikur fór fram hafi það verið afskaplega erfitt að vera stuðningsmaður Liverpool.

Auk Basel er án efa sterkasta liðið Benfica frá Portúgal. Þarna eru einnig lið einsog Banik Ostrava (gamla liðið hans Milan Baros), Maccabi Haifa frá Ísrael og fleiri lið, sem gætu verið afar erfið viðureignar.

Forkeppni Meistaradeildar 2004

Jæja, Meistaradeildinni lauk í gær með glæsilegum sigri Porto frá Portúgal. Sumarið er nú endanlega gengið í garð, félagsliðin komin í frí og sviðsljósið beinist nú sterklega að landsliðunum sem gera sig klár fyrir Evrópukeppnina í júní.

Þó er eitt sem mig langar að ræða um og það er forkeppni Meistaradeilarinnar fyrir næsta tímabil. Eins og menn vita þá er Liverpool í þessari forkeppni. Hún er spiluð í þremur umferðum – fyrsta og önnur umferðin er fyrir lið víðs vegar að úr Evrópu sem ekki eru í “efsta styrkleikahópi”. Þau lið sem komast áfram úr þessum fyrstu tveimur umferðum dragast svo á móti þeim liðum sem eru í efsta styrkleikahópnum, en ef ég skil reglurnar rétt þá er það svo að liðin í efsta styrkleikahópnum geta ekki dregist á móti hvort öðru í þriðju umferðinni.

Í efsta styrkleikahópi eru m.a.: Real Madríd, Deportivo La Coruna, Juventus, Internazionale Milan, Glasgow Rangers, ManU og Liverpool FC. Þannig að við þurfum væntanlega ekki að hafa áhyggjur af því að mæta Real í forkeppninni.

Meðal liða sem við gætum mætt, og eru talin líkleg til að komast alla leið í þriðju umferð forkeppninnar, eru: FC Basel (sem ég fæ enn martraðir um), Red Star Belgrade, PFC Moskva og Banik Ostrava (gamli klúbbur Milan Baros).

Þannig að við gætum þurft að fara enn einu sinni til Austur-Evrópu (þrátt fyrir að hafa klárað flugkvótann þangað sl. vetur) til að tryggja okkur þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu veturinn 2004-05.

Annað sem mér fannst merkilegt er það í hvaða styrkleikaflokki liðin verða þegar þau koma inn í riðlaútdráttinn. Real Madríd, Juventus, Mónakó og ManU verða t.d. öll þar í fyrsta styrkleikaflokki, á meðan Liverpool FC verður í öðrum styrkleikaflokki. Hins vegar er Liverpool næsta lið inn í fyrsta styrkleikaflokk, þannig að ef t.d. Mónakó eða ManU skyldu á einhvern undraverðan hátt ekki komast í gegnum forkeppnina þá færi Liverpool í þeirra stað í fyrsta styrkleikaflokk sem gefur mönnum góða stöðu fyrir riðlakeppnina.

Það á mikið vatn eftir að renna til sjávar áður en að þessari forkeppni kemur, það er dregið í 3. umferð forkeppninnar 30. júlí n.k. og þangað til á margt eftir að breytast innan vébanda Liverpool FC – auk þess sem Evrópukeppni landsliða mun stytta okkur stundir þangað til. En það er samt gaman að spá í þessu. Á maður kannski að vera kræfur og spá hvaða liðum Liverpool lendir með í riðli, ef þeir komast í gegnum forkeppnina eins og búist er við?

Mín spá: Valencia, Liverpool, Celtic og PSV. Það yrði vissulega flottur riðill, sérstaklega ef Benítez mætti þar sínum gömlu félögum í Valencia og við fengjum ‘Battle of Britain’ einu sinni enn. En maður má láta sig dreyma, sem stendur eru þetta bara skot út í loftið… :)

Porto: Evrópumeistarar 2004

carlosalberto.jpg Porto frá Portúgal urðu í kvöld annað liðið í sögu Evrópukeppnanna í knattspyrnu til að vinna í tveimur mismunandi Evrópukeppnum tvö ár í röð. Hitt liðið? Jú, Liverpool, sem unnu í UEFA keppninni 1976 og svo Evrópukeppni meistaraliða árið eftir, 1977.

Vissulega einstakt afrek, og ef litið er á feril José Mourinho þjálfara Porto þá hefur hann núna unnið tvær þrennur í röð. Í fyrra rústaði Porto deildinni í heimalandinu, vann bikarinn portúgalska auðveldlega og sigruðu loks Celtic frá Glasgow í úrslitum UEFA keppninnar. Þrennan. Í ár eru þeir þegar búnir að sigra í deildinni (aðeins einn tapaður leikur í vetur), komnir með bikarinn annað árið í röð og voru svo í kvöld að kóróna þetta með stórglæsilegum 3-0 sigri á Mónakó í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

Þetta eru sex titlar á tveimur tímabilum. Sex titlar á þrettán mánuðum. Houllier vann sex titla á sex árum með Liverpool (og þar af í raun aðeins fjórir alvörutitlar, ef við eigum að tala í hreinskilni). Ef það að ráða Mourinho er ekki skref upp á við á eftir Houllier þá veit ég ekki hvaða þjálfari getur talist vera skref upp á við! Og ef við förum út í taktíska umræðu, þá tel ég ljóst á leiknum í kvöld að Mourinho er taktískur snillingur.

Vissulega geta Mónakó-menn huggað sig við nokkur “hvað ef”. Dæmi: hvað ef Ludovic Giuly hefði spilað allan leikinn? Dæmi: hvað ef einn af þremur röngum rangstöðudómum hefði ekki verið dæmdur? Dæmi: hvað ef þeir hefðu spilað eins og menn í kvöld?

En staðreyndin er samt sú að þú spilar aldrei betur en andstæðingurinn leyfir. Þetta veit hvaða þjálfari sem er og Mourinho nýtti sér allar sínar brellur í kvöld.

Byrjum á Rothem, vinstri kantmanni Mónakó og vafalítið þeirra hættulegasta manni. Mourinho tvímennti á hann frá byrjun og er þetta eflaust hans slakasti leikur í Meistaradeildinni í allan vetur. Hann var hakkaður, tekinn, stöðvaður og átti aldrei séns.

Það sama gildir um Morientes. Hann þrífst á því að fá stungubolta í svæðin frá miðjumönnum sínum … en þar sem Porto-menn pressuðu Mónakó allan leikinn og neyddu þá til að senda langa bolta á Morientes (og klipptu þar með út miðjuna hjá Mónakó) þá var lítið sem Spánverjinn knái gat gert sér til viðreisnar. Hann átti einfaldlega aldrei séns.

Loks er það Porto-liðið. Í raun má segja að við höfum séð tvö Porto-lið í þessum leik, og þau voru bæði súper-góð. Fyrra liðið var það sem spilaði fyrri hálfleikinn og byrjun seinni hálfleiks. Þetta lið pressaði Mónakó-menn alveg niður að eigin vítateig og gjörsamlega stjórnaði hverri einustu stöðu á vellinum. Þeir unnu miðjuna, þeir unnu kantana og þeir pressuðu smáríkið alveg streitulaust!

Seinna liðið var síðan það sem birtist þegar Mónakó-menn ákváðu að reyna að pressa og fá jöfnunarmark. Í stöðunni 1-0 fyrir Porto ákvað Mourinho að taka Carlos Alberto útaf og setja Rússann Alenitchev inná í staðinn á vinstri vænginn. Þegar þetta gerðist hafði Hörður Magnússon þulur á Sýn það á orði að nú ætluðu Porto-menn sér að stilla í vörn. Þvert á móti, þá voru tvær ástæður fyrir þessari skiptingu og hvorug þeirra kom varnarleik nokkuð við.

Sú fyrri var sú að Carlos Alberto, aðeins 19 ára gamall, var með gult spjald á bakinu og Mourinho vildi augljóslega ekki taka sénsinn á að missa strákinn útaf með annað klaufalegt spjald (hann fékk það fyrra fyrir að fara úr að ofan er hann skoraði fyrsta markið). Hann ákvað að taka ekki sénsinn á að lenda einum manni færri.

Seinni ástæðan – og þetta vita allir sem sáu Porto gera jafntefli við Lyon í Frakklandi í 8-liða úrslitunum – er sú að Alenitchev er frábær hraðaupphlaupsmaður. Þegar boltinn kemur út úr teignum og á að hefja hraða sókn eru fáir menn jafn góðir saman og Deco og Alenitchev. Það tók þá varla nema nokkrar mínútur að sanna þetta, en upphlaup þeirra tveggja endaði með því að Alenitchev lagði boltann út á Deco sem skoraði annað mark Porto af öryggi.

Nokkrum mínútum seinna voru þeir svo komnir í 3-0 og aftur voru það Deco og Alenitchev, ásamt framherjanum Derlei, sem voru arkitektarnir. Í þetta skiptið var það Alenitchev sem rak smiðshöggið á hraðaupphlaup sem var svo snöggt að Mónakó-menn vissu varla hvaðan á sig stóð veðrið!

Meistaradeildin er á enda og Porto frá Portúgal vinna verðskuldaðan sigur í ár. Á leiðinni lögðu þeir m.a. ManU, Lyon frá Frakklandi og Deportivo La Coruna frá Spáni. Geri aðrir betur.

Auðvitað þýðir þessi sigur að Abramovich mætir með milljónirnar sínar inn á teppi hjá Mourinho strax í fyrramálið og reynir allt sem hann getur til að lokka hann til Chelsea. Ef eitthvað vit er í okkar mönnum, þeim Parry og Moores, munu þeir reyna það sama.

Þessi maður er einfaldlega taktískur snillingur – og svo er hann augljóslega frábær man-manager. Hann virðist ná öllu því sem hægt er að ná út úr mannskapnum sem hann hefur úr að moða og samstaðan í liðinu er til eftirbreytni – sjáið bara hvernig varamennirnir og þjálfaraliðið stóðu og læstu öxlum saman á hliðarlínunni undir lokin. Og Mourinho í miðjunni. Þessi maður er frábær þjálfari og ég sé hann algjörlega fyrir mér breyta Liverpool í annað gullaldralið á næstu árum!

Moores og Parry: heyrið þið í mér? Semjið við þennan gaur! Hann veit hvað hann er að gera!