Liverpool Bloggið » Meistaradeildin

Peningar Manchester City
Í gærkvöld dó síðasta veika von okkar manna um það að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili þegar að Manchester City unnu Tottenham.  Um leið varð ljóst að okkar menn eiga talsvert góða möguleika á sæti í Evrópudeildinni.

Í fyrra var það erfitt að horfast í augu við þá staðreynd að við myndum ekki spila í Meistaradeildinni.  Í ár höfum við gert okkur grein fyrir þessu lengi, en sú staðreynd að það er Manchester City sem komst inn, er þó erfið.  Því það er erfitt að ímynda sér sorglegra lið en Manchester City.

Aðdáendur þess liðs hafa mætt á leiki liðsins í tugi ára án þess að sú tryggð hefði hjálpað árangri liðsins af einhverju viti.  En í gærkvöld mættu þeir til að horfa á málaliðaher City vinna Tottenham og þökk sé peningum frá Abu Dabi þá eru þeirra menn allt í einu komnir í Meistaradeildina.

Oft hneykslar fólk sig á því af hverju við á Íslandi höldum svona með Liverpool og finnum til tengsla við liðið.  Ég held að stór hluti af þeirri tryggð sé sá að við erum í einhverjum tengslum við liðið og okkur finnst við virkilega skipta máli.  Við kunnum að ofmeta hlutverk okkar, en við vitum þó að velgengni Liverpool og vinsældir liðsins hafa drifið liðið áfram.  Við kaupum búninga og sjónvarpsáskriftir og ferðir til Liverpool.  Og þegar þetta safnast saman með peningunum, sem koma inn frá Liverpool aðáendum í Liverpool og Singapore og í Noregi, þá hefur okkar lið úr peningum að ráða, sem það getur nýtt til þess að borga leikmönnum laun.  Velgengni, saga og vinsældir veldur því að félagið á meiri peninga.  Þetta er öfugt við lið einsog Manchester City, sem eru leikfang milljarðamæringa, sem að dæla peningum í liðið til að upphefja sjálfa sig, sín fyrirtæki eða sitt land.  Þar skiptir framlag aðdáenda nánast engu, en öllu skiptir að eigendurnir séu tilbúnir að dæla peningum úr eigin vasa í leikfangið sitt.  City hefðu getað boðið uppá ókeypis miða á völlinn og það hefði skipt eigendurna litlu máli.

Það var pínulítið sorglegt að horfa á stuðningsmenn Manchester City í gærkvöld því þeir eiga afskaplega lítinn þátt í velgengni liðsins síðustu tímabil.  Þeir eiga engan heiður af því að liðið er allt í einu komið í Meistaradeildina.  Nei, Manchester City er í Meistaradeildinni vegna þess að einhverjum barónum í Abu Dhabi datt í hug að henda peningum sínum í félagið og að nógu margir fótboltamenn eru nógu æstir í næsta launatékka til þess að leika fyrir liðið.  Af hverju ættu annars menn einsog Yaya Toure eða Carlos Tevez að fórna ferli hjá Barcelona og Manchester United til þess að spila fyrir City?

Í Meistaradeildina fyrir England fara því á næsta tímabili tvö lið sem komast þangað á eigin verðleikum: Manchester United og Arsenal.  Og tvö lið sem komast í Meistaradeildina vegna þess að eigendur þeirra liða eiga meiri pening en eigendur annarra liða.  Það er sorglegt, en satt.

Hver er tilgangur knattspyrnuklúbbsins Manchester City í dag?  Til hvers eru Abu Dhabi menn að dæla í félagið pening?  Er það vegna þess að þeim þykir svo vænt um liðið eða vegna þess að þeim þykir svo vænt um fólkið í Manchester?  Elska eigendurnir stórkostlegan sóknarleik Roberto Mancini?  Nei, velgengni City á að tryggja eigendunum virðingu og betri stöðu.  Alveg einsog Chelsea hefur gefið Roman Abramovitz virðingu og stöðu í London, sem að milljón lúxus snekkjur myndu ekki veita honum.

Ég er gríðarlega ánægður að úr eigendakrísu Liverpool í vetur kom upp sú staða að Liverpool eiga í dag menn sem ætla að reka liðið einsog fyrirtæki, sem á að skila þeim arði.  Það er ánægjulegt því að lið sem eru rekin sem leikföng eigendanna og hafa það að markmiði að upphefja heiður eigendanna munu aldrei eiga sér bjarta framtíð.

25.05.2005
Það eru fimm ár síðan skemmtilegasti dagur sem ég man eftir sem Liverpool stuðningsmaður átti sér stað, maður er ekki beint í stuði til að fara ítarlega út í þá keppni núna en læt þennan link þó fylgja með, mjög góð ferðasaga af opinberu síðunni.

Leiðindakvikindi eins og Einar Örn og SSteinn eru betur í stakk búnir að lýsa því hvernig þetta var live! Bölvaðir.

Höfum við í lið gegn Lyon?
Sjitt. Samkvæmt Tony Barrett hjá The Times, sennilega best tengda blaðamanninum þegar kemur að fréttum úr herbúðum Liverpool, hefur meiðsla- og veikindalistinn hjá okkar mönnum bara versnað ef eitthvað er eftir leikinn í gær.

Eftirfarandi leikmenn eru frá vegna meiðsla og taldir mjög tæpir fyrir leikinn á miðvikudag:

Steven Gerrard, Albert Riera, Martin Kelly, Glen Johnson, Martin Skrtel, Daniel Agger, Fabio Aurelio, David Ngog.

Þá eru Alberto Aquilani og Diego Cavalieri sagðir vera enn að berjast við flensuna sem við héldum að fleiri hefðu fengið fyrir Fulham-leikinn, en það virðast bara vera þeir tveir og hinir höfðu víst allir meiðst.

Þar að auki er Philipp Degen ekki til taks fyrir Lyon-leikinn þar sem hann var ekki skráður í 25-manna hóp okkar í Meistaradeildinni. Við erum s.s. ekki með Johnson, Degen og Kelly fyrir hægri bakvörðinn.

Ef við skoðum hópinn á UEFA.com eru því eftirfarandi leikmenn löglegir og væntanlega til í slaginn fyrir þennan leik:

Markmenn: Pepe Reina, Martin Hansen.

Varnarmenn: Sotirios Kyrgiakos, Jamie Carragher, Emiliano Insúa, Stephen Darby, Andrea Dossena.

Miðjumenn: Yossi Benayoun, Javier Mascherano, Lucas Leiva, Jay Spearing, Damien Plessis, Nathan Eccleston, Dirk Kuyt.

Sóknarmenn: Fernando Torres, Andriy Voronin, Ryan Babel, David Amoo.

Þetta eru akkúrat átján leikmenn, eða einn leikmannahópur, og ég sé ómögulega hvernig við getum sett saman úr þessu lið sem er nógu sterkt til að vinna Lyon á útivelli. Hvað þá að ætla að eiga einhverja jákvæða valkosti á varamannabekk. Svo er Torres varla heill í heilan leik þessa dagana, sem er ekki á bætandi.

Það er því ljóst að við einfaldlega verðum að fá einhverja af þessum fjölmörgu meiðslapésum inn fyrir þennan leik ef ekki á að vera úti um þátttöku okkar í Meistaradeildinni eftir þrjá daga.

Mér líst bara ekkert á þetta. Gæti varla verið svartsýnni fyrir þennan leik. Maður gæti lokað augunum og reynt að sjá fyrir sér Babel og Voronin skora sitthvort markið í óvæntum útisigri, en nei, ég get það samt varla. Fyrir mér er það augljóst að ef við fáum ekki suma af þessum lykilmönnum okkar heila fyrir þennan leik munum við tapa.

Já, og Barrett segir einnig í grein sinni að starf Rafa sé ekki í hættu fyrir Lyon-leikinn því eigendurnir séu rólegir og viti sem er að hann er að berjast við ótrúlega óheppni í meiðsla- og veikindamálum þessa dagana. Vonandi taka stuðningsmenn liðsins það til sín líka og anda rólega ef illa fer. Við erum öll hundsvekkt yfir ástandinu og það er enginn saklaus í því, síst Rafa, en það er einfaldlega ekki hægt að ætlast til kraftaverka þegar hálfur leikmannahópurinn er fjarri góðu gamni. Ekki gegn liði eins og Lyon.

Við fylgjumst grannt með fréttum af þessum meiðslalista næstu daga. Vonandi fáum við einhverja ástæðu til bjartsýni á morgun.

Lyon koma á Anfield á morgun.
Já hvað getur maður sagt eftir úrslit og mark helgarinnar? Einbeitt sér að næsta leik, já klárlega og sérstaklega þar sem ég er kominn með nóg af því að ræða um MARKIÐ og hvernig liðið spilaði gegn Sunderland. Og þá er það komið… næsti leikur er á morgun þegar Lyon kemur í heimsókn og góðu fréttirnar eru þær að Gerrard er leikfær og mun spila á morgun. Torres nær ekki leiknum en það er bót í máli að fyrirliðinn spilar. Við getum ekki verið svona lélegir í 2 leikjum í röð, það er bara ekki hægt. Liðið hlýtur að vera mótiverað, ekki bara í ljósi leiksins um helgina heldur einnig eftir tapið gegn Fiorentina. Við megum einfaldlega ekki tapa neinum heimaleik í Meistaradeildinni. Með góðum sigri á morgun gæti liðið aftur komist á rétta braut og farið að spila almennilega. Hvernig verður liðið? Ekki guðmund en ég sett mitt óska byrjunarlið hérna:

Reina

Johnson – Carragher – Agger – Aurelio

Kuyt – Gerrard – Mascherano – Babel

Benayoun

Ngong

**Bekkur:** Cavalieri, Lucas, Insúa, Spearing, Riera, Voronin, Skrtel.

Þetta verður hörkuleikur og gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að ná sigri og aftur stemmingunni í liðinu sem hefur verið svo góð í Meistaradeildinni. Það væri frábært ef við gætum náð góðum sigri á morgun sem væri neistinn sem myndi kveikja í liðinu og ég hef alveg trú á því. Liðið er gott og ef sjálfstraustið er til staðar þá getum við unnið hvaða lið sem er. Meistaradeildin hefur oftar en ekki verið góð fyrir okkur, liðið hefur einnig oftast spilað betur þar en í deildinni. Vonandi nýtum við þennan leik rétt, losum okkur við þetta rugl sem liðið sýndi gegn Sunderland og hefjum tímabilið (loksins).

Ef hins vegar við höldum áfram þessu rugli og undanfarið og jafnvel töpum á morgun þá getur þetta tímabil orðið langt og erfitt því vítahringurinn sem liðið gæti lent í væri of sterkur til að komast út úr. En þar sem ég er bjartsýnismaður af eðlisfari sem og ég trúi því að liðið sé betra en það hefur sýnt undanfarið þá vil ég trúa því að leikmenn liðsins mæti 110% klárir í þennan leik!

Þar sem enginn af okkur hérna á Íslandi sér liðið æfa dagsdaglega né þekkir leikmennina persónulega er erfitt að dæma um hvernig liðið hefur brugðist við þessu mótlæti undanfarið en VONANDI er Rafa með kraftinn til staðar til að mótivera liðið!

Áfram Liverpool.

Fiorentina 2 – Liverpool 0
Dembum okkur af stað í dapurlega lesningu.

Byrjunarliðið var eftirfarandi:

Reina

Johnson – Carragher – Skrtel – Insua

Lucas – Aurelio

Kuyt – Gerrard – Benayoun

Torres

Á bekknum eru: Cavalieri – Voronin – Riera – Kyrgiakos – Babel – Spearing – Plessis.

Ljóst að reyna átti að koma Gerrard í “second striker” stöðuna sem oft hefur gefist vel í Evrópu og Brassarnir Aurelio og Lucas látnir reyna sig.  Skulum bara orða það rólega þannig…….  Það virkaði ekki!

Liðið hóf þennan leik varkárt, eins og yfirleitt á erfiðari útivöllum þessarar keppni, og satt að segja virtist ekki ætla að gera tilraun til að skora í fyrri hálfleik.  Ítalirnir fengu smám saman sjálfstraustið og eftir um 25 mínútna leik var orðið ljóst að við værum í töluverðum vanda.

Enda fengum við á okkur tvö mörk á 8 mínútum, fyrst eftir að boltinn tapaðist illa á miðsvæðinu og Insua klikkaði alveg á rangstöðulínunni, og það seinna eftir háa fyrirgjöf frá hægri sem við lentum í miklum vandræðum með að hreinsa, uns boltinn féll vel fyrir fætur Fiorentinaleikmanns sem dúndraði honum í markteiginn þar sem Skrtel svaf og horfði á Jovetic skora.  Reyndar gerði hann fyrra markið líka.  2-0 eftir 37 mínútur og ljóst að plan Rafa var s***fallið um sjálft sig.

Seinni hálfleikurinn hófst vel, en það tókst ekki að skora þrátt fyrir fín færi.  Hittum yfirleitt ekki rammann eða lokasending klikkaði.  Smám saman fjaraði lífið úr okkar mönnum, Ítalirnir lokuðu og unnu að lokum sanngjarnan sigur sem í bland við úrslit kvöldsins úr Ungverjalandi segja okkur að þarna er hörkuriðill í gangi, þar sem mikil barátta mun fara fram um sætin tvö milli Lyon, Fiorentina og okkar.  Úrslit kvöldsins gætu hæglega hitt okkur illa í bakið.

Ég verð að fá útrás fyrir gamla plötu.  Ég veit fátt leiðinlegra en að horfa á LFC í leikjum eins og í kvöld.  Rafa gerir alltaf eins.  Fer varkár inn í leikinn, fullt af varnarmönnum og sækir á 3 – 4 mönnum fyrst í stað.  Oftast gengur það, en í kvöld gerðist ekkert nema það að Ítalirnir fengu sjálfstraust og punduðu okkur til baka.

Svo verður hann þrjóskur og breytir ekki neinu í hálfleik.  Lætur áfram miðjuna rúlla, þó hún virkaði ekki.  Með Insua í bakverðinum, þó hann hafi átt stinker og Kuyt/Benayoun látnir böðlast áfram án þess að skapa neitt, en senda 80% boltanna í átt að eigin marki.  Við héldum víst boltanum 62% í kvöld, en til einskis.

Svo líður tíminn og lítið gerist.  Þá kemur skipting þegar 20 mínútur eru eftir og síðan þegar 9 mínútur eru eftir.  Engin þriðja skipting.  Skildi þetta einhver?  Það var að mínu mati hægt að taka alla útaf fyrir utan “big four”, þá Reina, Carra, Gerrard og Torres, en greinilega var það ekki á!  Ekki það að Babel og Voronin voru arfar þegar þeir komu inná.  En okkar frábæri stjóri, og ég meina það, sýndi í kvöld þá einu hlið á sér sem ég á erfitt með að skilja.  Mér fannst hann þrjóskur (jafnvel hrokafullur?) í því að berja hausnum við stein og satt að segja held ég að svona leik ætti hann að horfa á sem oftast.  Því í kvöld sá Fiorentina við honum.  Frekar auðveldlega meira að segja.

Í svona leik finnst mér best að nota orðin “minnst lélegi” leikmaðurinn.  Ekki það að slíkt skipti nokkru máli.  Mér fannst Gerrard minnst slakur, en algerlega sama þó menn séu ekki samála.

Það er töluverð samkeppni um “mest lélega”, usual suspects munu örugglega koma upp, þetta var ekki leikur Lucasar, Kuyt, Benayoun eða Aurelio og ég er sannfærður að margir munu nýta það tækifærið í ummælum hér á eftir.  Ég hrökk þó mest við að sjá Martin Skrtel eiga arfaleik og svo ná varla andanum í leikslok.  Vona að Agger hafi komist vel í gegnum varaliðsleik kvöldsins, vill alveg fara að sjá hann.

En auðvitað má maður reikna með því að liðið eigi sína toppa og botna, ég er að vona að þessi botn leiði af sér topp á sunnudaginn gegn Chelsea.  Hef alveg trú á okkar mönnum þar.  Úrvalsdeildin er það sem blívur í bili elskurnar!

Hópurinn í Meistaradeildina ákveðinn
Liverpool tilkynnti UEFA um Meistaradeildarhóp sinn í gær og sést á  opinberu heimasíðunni

Í þeim hópi er lítið sem kemur á óvart, Rafa hefur ákveðið að Philip Degen sé ekki klár í það verkefni og kemur allavega mér ekki á óvart.

Auk þessara leikmanna má svo LFC kalla til leikmenn yngri en 21s árs sem hafa verið hjá liðinu í þrjú ár eða meira.  Sem gætu verið t.d. Gulasci markmaður og/eða Pacheco.

En klárt að þarna fer hópur sem getur komist langt!

Uppfært

Eftir athugasemd kíkti ég á reglurnar um B-listann, eða þá leikmenn sem hægt er að kalla inn.  Á B-listanum eru leikmenn sem fæddir eru 1.janúar 1986 eða seinna (21s árs og yngri) og hafa verið hjá félaginu í tvö ár samfellt, óháð þjóðerni.  Tveir áðurnefndir eru því á þeim lista, auk Ayala.

Nornaveiðar
Leikmannaglugganum lauk síðdegis í gær. Liverpool keyptu engan né seldu, þannig að umræða um það er óþörf.

Þess í stað langar mig að drepa á tveimur málum hér sem hafa komið frekar illa við mig síðustu daga. Þetta eru málefni tveggja leikmanna sem gætu talist andstæðingar Liverpool, þeirra Eduardo da Silva hjá Arsenal og Adrian Mutu hjá Fiorentina, sem mæta okkar mönnum einmitt í E-riðli Meistaradeildarinnar nú í vetur.

Eins og flestir hafa heyrt var Eduardo í dag dæmdur í tveggja leikja bann í Evrópu eftir að hafa kastað sér í jörðina og fiskað vítaspyrnu gegn Celtic í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku. Mér þykir þetta fáránlega hörð refsing, og ég skal útskýra af hverju.

Fáum það fyrst á hreint að Eduardo fleygði sér án þess að markvörðurinn snerti hann. Þetta var dýfa, leikaraskapur, og það er engin leið að verja það sem hann gerði. Hins vegar er tveggja leikja bannið í engu samræmi við lagabókstafinn – ef dómarinn hefði áttað sig á leiktilburðum Eduardo í stað þess að gefa vítið hefði hann dæmt á framherjann og gefið honum gult spjald. En af því að dómarinn sá ekki leiktilburðina, eða lét blekkjast, fær hann ekki gult spjald heldur tveggja leikja bann. Frekar hart. Annað hvort er tveggja leikja bann fyrir allan leikaraskap, hvort sem dómarinn sér hann eða ekki, eða þá að þetta leikbann Eduardo er bara skrípaleikur.

En í þessu atriði felst einmitt vandinn. Arsene Wenger sagði í síðustu viku að það væri bara verið að gera stórmál út úr þessu hjá UEFA af því að skoska knattspyrnusambandið væri að beita sér fyrir því þar innan dyra, og að eina ástæðan fyrir því að skoska knattspyrnusambandið væri að tromma þetta mál upp hjá UEFA og í fjölmiðlum væri að ef menn væru að ræða sviksemi Eduardo myndi það veita athyglinni frá þeirri neyðarlegu staðreynd að næstbesta lið Skotlands átti ekki séns í fjórða besta lið Englands, samkvæmt deildarkeppni síðasta vetrar.

Hvort sem það er rétt hjá Wenger eða ekki er alveg ljóst að það er bara tímaspursmál áður en þetta leikbann verður opinberað sem skrípaleikur. Það er nefnilega einu sinni svo að Eduardo er langt því frá að vera fyrsti leikarinn í Evrópuleik, og hann á pottþétt ekki eftir að vera sá síðasti. Okkar eigin Steven Gerrard fiskaði t.a.m. vítaspyrnu gegn Atletico Madrid í riðlakeppninni í fyrra sem reddaði okkur jafntefli á lokamínútunum, og ég man eftir nokkrum fleiri. Þetta viðgengst hjá öllum liðum og annað hvort eru menn hér með búnir að taka þá ákvörðun að veita ÖLLUM þeim sem leika tveggja leikja bann í vetur eða þá að orð Wengers verða staðfest og þetta bann Eduardo verður afhjúpað sem lítið annað en skrípaleikur.

Bíðið bara og fylgist með næsta leikara sleppa við bann og þær nornaveiðar sem Eduardo hefur mátt þola að undanförnu. Bíðið bara.

Hitt málið er þó öllu alvarlegra, og það er mál Chelsea FC gegn Adrian Mutu. Ég skrifaði fyrir fimm árum færslu á þessa síðu þar sem ég tíundaði hvers vegna ég taldi Mutu-málið vera hið skítlegasta fyrir Chelsea FC og hið óréttlátasta fyrir Mutu, og ég stend við hvert einasta orð enn í dag. Niðurstaðan er alltaf sú sama fyrir mér, svona gerir bara skítaklúbbur. Maðurinn var/er fíkill, veikur maður sem þurfti á aðstoð að halda við að horfast í augu við sjúkdóm sinn, til að geta náð bata. En þess í stað voru það Chelsea-menn, sem höfðu góðan grun um fíkniefnanotkun hans, sem pöntuðu lyfjaprófið sem hann svo féll á, sögðu svo upp samningi hans og ráku hann með skít og skömm frá klúbbnum.

En þeir létu ekki staðar numið þar. Síðustu fimm árin hefur Chelsea FC nefnilega rekið lögsókn á hendur Mutu til að fá bættar þær milljónir sem þeir misstu af í mögulegri sölu á leikmanninum við að rifta samningi hans. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum staðfesti FIFA í sumar dóm sem hafði fallið Chelsea í hag og þarf Mutu því að greiða rúmlega 14 milljónir punda – FJÓRTÁN MILLJÓNIR PUNDA! - til Chelsea innan skamms tíma. Hann er víst að vinna að enn einni áfrýjuninni en fyrst FIFA er endanlega búið að staðfesta dóminn frá sinni hlið er talið óvíst að nokkur áfrýjun Mutu geti gengið.

Við skulum setja þetta aðeins upp á mannamáli: Mutu gengur til liðs við Chelsea. Mutu gengur illa hjá Chelsea. Chelsea fá sterkan grun um að Mutu sé fíkill. Chelsea senda hann í lyfjapróf sem hann fellur á. Chelsea ákveða að segja upp samningi hans og reka hann. Mutu réði ekki kaupverðinu sem Chelsea greiddi fyrir hann né réði hann neinu um ákvörðun Chelsea að reka hann í stað þess að selja eða reyna að hjálpa að ná bata. Hann afplánar bann sitt hjá FIFA og nær að losa sig við dópið og semur árið á eftir við Juventus. Þaðan fer hann ári seinna til Fiorentina og hefur verið þar í rúm þrjú ár. Hann hefur leikið fantavel hjá Fiorentina, skorað 47 deildarmörk í 77 deildarleikjum þegar þetta er skrifað.

Samt eru Chelsea að sækja til hans rúmlega 14m punda þegar það voru í raun þeir sem komu upp um misnotkunina, ráku hann og sömdu um kaupverðið upphaflega án þess að hann réði nokkru þar um. Og af enn skrítnari ástæðum virðist þessi sókn þeirra ætla að ganga.

Á mánudag var uppi hávær orðrómur á Ítalíu um að Mutu myndi yfirgefa Fiorentina fyrir lok gluggans. Fiorentina voru að sögn sumra búnir að samþykkja að gefa hann á frjálsri sölu til að hjálpa honum – þeir s.s. vildu styðja hann í þessari ómögulegu stöðu sem hann er í – svo hann gæti samið um mjög háa þóknun til sjálfs sín hjá öðru félagi sem væri til í að borga honum meira þar sem hann kostaði þá ekki neitt annað. Hann gæti þá fengið kannski 5-7m punda fyrir félagaskiptin og látið Chelsea hafa þau, og reynt svo að þéna nógu mikil laun það sem hann á eftir af ferlinum til að geta kannski, vonandi, þó líklega ekki náð að borga Chelsea skuldina að fullu áður en hann legði skóna á hilluna.

Þetta gerðist þó ekki þrátt fyrir orðróm og því virðist staðan vera sú að hann muni nær örugglega ekki ná að reiða fram rúmar 14m punda á eindaga – sem á að vera einhvern tímann núna í september – sem þýðir að þá geta Chelsea farið fram á að leikmaðurinn verði settur í leikbann þangað til hann greiðir.

Með öðrum orðum; ef hann getur ekki borgað núna strax geta Chelsea hirt af honum tekjulindina svo hann geti örugglega aldrei borgað. Eftir stæði Mutu, stórgóður, þrítugur knattspyrnumaður, sendur fyrir aldur fram á eftirlaun og dæmdur til að vera gjaldþrota skuldunautur Chelsea FC um ókomna tíð.

Svo ég endurtaki orð mín frá því haustið 2004: Svona gera bara skítaklúbbar. Ég get eiginlega ekki fundið nógu sterk orð yfir það hversu mikið ógeð ég hef á Abramovich & Co. fyrir að geta gert einum leikmanni þetta. Leikmanni sem vann sér það eitt til vansa að vera sjúkur, veikur. Allir sem hafa komist í kynni við fíkniefna- eða áfengisneytendur myndu segja ykkur það að þetta er ekkert annað en sjúkdómur. Sjúkdómur sem, eins og krabbamein, gerir engan mannamun.

Ég hlakka til Meistaradeildarinnar í vetur. Ég vona að við gjörsigrum Fiorentina-menn og óska engum þeirra neins góðs gegn mínum mönnum. Engum nema Mutu. Það er einfaldlega leikmaður sem ég get ómögulega óskað neins ills og ef hann á eftir að skora á Anfield á lítill hluti af mér eftir að gleðjast með honum. Það er bara ekki annað hægt eftir það sem hann hefur gengið í gegnum. Það er að segja, ef hann hefur ekki verið neyddur á eftirlaun þegar kemur að leiknum við Liverpool.

Það sem er kannski ótrúlegast við þessa sögu alla er hversu litla athygli hún fær enn í breskum fjölmiðlum. Það er klárt að þar eru menn frekar að þegja þessa frétt niður en hitt, enda lítur það vægast sagt illa út fyrir hinu almenna auga að stórfyrirtæki eins og CFC sé að gera sitt ítrasta til að eyðileggja feril fyrrverandi leikmanns síns. Hagsmunum Chelsea er einfaldlega best þjónað með því að fjalla ekki um þetta mál, á meðan þeir sækja milljónirnar sínar hart að tjaldabaki.

(Uppfært) Meistaradeildin: E-riðill!
Í dag verður dregið í riðlana í Meistaradeild Evrópu fyrir veturinn 2009/10. Eins og undanfarin ár eru ensku liðin fjögur öll í efsta potti og ættu því að forðast flest stóru liðin, en þó eru nokkrir athyglisverðir möguleikar í stöðunni.

Liðunum er skipt í fjóra eftirfarandi potta:

Pottur 1: Liverpool, Manchester United, Arsenal, Chelsea, Barcelona, Sevilla, AC Milan, Bayern München.

Pottur 2: Internazionale, Juventus, Real Madrid, Lyon, Porto, Glasgow Rangers, AZ Alkmaar, CSKA Moskva.

Pottur 3: Bordeaux, Marseille, Fiorentina, Atletico Madrid, Stuttgart, Olympiakos, Besiktas, Dynamo Kiev.

Pottur 4: Wolfsburg, Standard Liege, Maccabi Haifa, FC Zurich, Rubin Kazan (Rússland), Unirea Urcizeni (Rúmenía), APOEL (Kýpur), Debrecen (Ungverjaland).

Fyrstu þrír pottarnir eru einfaldlega fyrnasterkir. Það er nær ómögulegt að fá auðveldan drátt í dag, þetta verður alltaf erfitt og það besta sem menn geta vonast eftir er að fá nýliða eins og Debrecen eða APOEL sem fjórða liðið, en jafnvel þá er slíkt lið óskrifað blað og engan veginn hægt að taka því auðveldlega.

Ég uppfæri þessa færslu á eftir þegar búið er að draga í riðlana. Drátturinn fer fram kl. 16:00 að íslenskum tíma og er eins og venjulega sýndur beint á UEFA.com.

Uppfært (KAR): Þá er búið að draga í riðlana og fengu okkar menn ágætan og áhugaverðan drátt, eru í E-riðli ásamt Lyon, Fiorentina og nýliðum Debrecen frá Ungverjalandi.

Annars lítur drátturinn að fullu svona út:

Þá voru einnig veitt einstaklingsverðlaun fyrir síðasta tímabil. Edwin van der Sar var valinn markvörður ársins í Evrópu, John Terry varnarmaður, Xavi Hernandez miðjumaður og Lionel Messi sóknarmaður ársins. Kannski helst ósammála valinu á Terry, hefði valið Piqué sjálfur, en allt góð völ engu að síður.

Getum ekki kvartað yfir þessu. Ansi áhugaverðir leikir þarna, sér í lagi kannski Real Madríd og Kaká gegn AC Milan og Barca og Zlatan Ibrahimovic gegn Internazionale. En við höfum held ég fulla ástæðu til bjartsýni í þessari keppni.

Framför
Eins og flestir hafa eflaust séð vann Manchester United auðveldan sigur á Man City í nágrannaslagnum fyrr í dag, og svo í seinni leik dagsins vann Chelsea auðveldan útisigur á Arsenal. Staðan hvað baráttuna um titilinn varðar er því frekar slæm hjá okkar mönnum; United eru þremur stigum á undan okkur og eiga þrjá leiki eftir, við tvo. Ef þeir fá fjögur stig úr leikjunum gegn Wigan og Arsenal á næstu sex dögum verða þeir orðnir meistarar þegar okkar menn leika næst eftir viku. Það verður að teljast nánast öruggt að United hirði titilinn úr þessu.

Engu að síður verður deildarkeppnin í ár að teljast mjög jákvætt og stórt skref fram á við fyrir liðið okkar. Með sigrinum á West Ham í gær tryggðu okkar menn sér eitt af þremur efstu sætunum þar sem Arsenal geta ekki lengur náð okkur að stigum. Samkvæmt breytingum á aðgengi liða í Meistaradeildina sem kveða á um að þrjú efstu liðin í ensku Úrvalsdeildinni fara nú beint inn í riðlakeppnina þýðir það að okkar menn eru öruggir inn í riðlana í haust og þurfa ekki að spila tvo leiki í forkeppni. Það er að mig minnir í fyrsta sinn síðan 2002 sem okkar menn fara beint inn í riðlana og það er jákvætt að þeir virðast ætla að gera það með því að enda í öðru sæti í deildinni, frekar en því þriðja.

Að mínu mati er mjög mikilvægt, tryggi United sér titilinn á næstu dögum, að klára tímabilið samt sem áður af krafti og tryggja okkur annað sætið af þeirri einu ástæðu að frá árinu 1992 hefur ekkert lið unnið deildina nema að hafa lent í fyrsta eða öðru sæti árið áður. Það voru Leeds Utd sem unnu síðast titilinn, vorið 1992, eftir að hafa verið neðar en í öðru sæti árið áður. Þannig að bæði sögulega séð og andlega séð fyrir leikmennina er að mínu mati sterkt að klára deildina í öðru sæti og geta sagt við okkur að það sé búið að leggja grunninn að mögulegum titli á næsta ári.

Þar að auki er jákvætt að sjá stöðu liðsins í deildinni þetta árið; við erum búnir að skora 72 mörk í deildinni eða sjö mörkum fleira en næsta lið, United. Þetta er örugglega í fyrsta skipti í einhver tuttugu ár sem okkar menn skora mest allra í deildinni – ég man að við skoruðum flest mörk í öllum keppnum í fyrra en ekki flest í deildinni. Þá sitja okkar menn núna með 80 stig eftir 36 leiki og geta með tveimur sigrum endað tímabilið með 86 stig. Rafa hefur á sínum fjórum tímabilum hingað til endað á eftirfarandi hátt:

* 2008: 76 stig, 4. sæti.

* 2007: 68 stig, 3. sæti.

* 2006: 82 stig, 3. sæti.

* 2005: 58 stig, 5. sæti.

Af þessu leiðir að ef við náum a.m.k. þremur stigum í viðbót og höldum allavega öðru sætinu verður þetta besta tímabilið af fimm hjá Rafa í deildinni. Ef við bætum við þetta að við erum að skora mest í deildinni og að við erum búnir að tapa fæstum leikjum allra liða, aðeins tveimur, þá held ég að við getum, þessa erfiðu viku á meðan við horfum upp á United tryggja sér enn einn titilinn, verið nokkuð bjartsýn á framhaldið.

Það er erfitt að horfa á United vinna deildina, en við erum að þokast í rétta átt. Biðin er bráðum á enda. ;)

Enn af undanúrslitum
Við erum aðdáendasíða fyrir Liverpool FC. Engu að síður þá erum við einnig fyrst og fremst knattspyrnuunnendur og því er það alveg eðlilegt að við ræðum á þessari síðu það helsta sem er að gerast í knattspyrnunni hverju sinni. Undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eru stórmál ár hvert, hvort sem okkar lið er þar á meðal keppenda eða ekki, þannig að ég vil biðja þá sem nenna ekki að ræða leiki og úrslit ákveðinna erkifjenda okkar um að virða það við þá sem það vilja að láta umræðuna í friði.

Allavega, Heims-, Evrópu- og Englandsmeistarar Manchester United rústuðu Arsenal í gær og eru mjög svo verðskuldað komnir í úrslit Meistaradeildarinnar. Ég gæti skrifað langloku um þessa rimmu erkifjendanna en bendi þess í stað á góða umfjöllun á Arseblog.com, einni bestu fótboltabloggsíðu Englands.

Í kvöld er það svo leikur Chelsea og Barcelona. Taktíska vélin gegn knattspyrnufegurðinni. Ef við getum með semingi viðurkennt að United séu annað af tveimur bestu knattspyrnuliðum Evrópu í dag og eigi skilið að vera í úrslitunum hljóta menn að vona að hitt besta liðið, Barcelona, fari áfram í kvöld. Ég er Barca-maður og hef alltaf verið en burtséð frá því þá held ég að það nenni varla nokkur maður að horfa á aðra viðureign Manchester United og Chelsea í úrslitum, annað árið í röð. Það yrði í öllu falli aldrei jafn skemmtileg viðureign og Manchester United – Barcelona.

Sjáum hvað gerist. Við getum rætt þennan leik og úrslitin í gær í þessum þræði en ég vara menn við, öll ummæli sem ekki varða þessa tvo leiki verður umsvifalaust hent út.