Xabi og Djib að hressast

Ok, ég er kominn heim, þannig að nú ætti uppfærslum aðeins að fjölga á síðunni. Ekki það að Kristján og Benni hafa staðið sig einsog hetjur!

Allavegana, góðar fréttir svona á föstudegi. Echo skrifa nefnilega um það að [Xabi Alonso muni mögulega spila síðasta mánuðinn á tímabilinu](http://icliverpool.icnetwork.co.uk/0500liverpoolfc/tm_objectid=15179410%26method=full%26siteid=50061%26headline=alonso%2drecovery%2dis%2dboost%2dfor%2dbenitez-name_page.html). Þetta eru magnaðar fréttir, þar sem Rafa hafði gefið það út að hann ætti ekki von á að sjá hann spila á þessu tímabili. Þannig að Xabi getur spilað úrslitaleikinn í Meistaradeildinni, sem er gott.

Einnig góðar fréttir að Djibril Cisse mun hugsanlega byrja að hlaupa eftir aðeins mánuð! Harry Kewell mun hins vegar ekki hafa náð sér enn nógu vel.

Benitez gefur svo í skyn að annaðhvort Smicer eða Nunez muni fylla í skarðið hans Luis Garcia á morgun gegn Birmingham. Ég hef ekki séð Liverpool leik í meira en 2 vikur, svo ég er að deyja úr spennu :-)

Alonso frá út tímabilið

Það hefur verið minnst á þetta í kommentum, en semsagt Rafa hefur staðfest að Xabi Alonso verður [frá út tímabilið](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N147609050125-0833.htm).

Er virkilega hægt að segja eitthvað meira um þessi meiðslavandræði okkar?

Enn versnar meiðslavandinn

Ja hérna. Það ætlar ekki af þessu liði að ganga. Læknar hafa nú staðfest að Xabi Alonso verði ekki frá í 5 vikur. Nei, hann verður frá í [**10 vikur**](http://icliverpool.icnetwork.co.uk/0500liverpoolfc/0100news/tm_objectid=15040889%26method=full%26siteid=50061%26headline=benitez%2ds%2dinjury%2dworries%2dcontinue-name_page.html). Tveir og hálfur mánuður. Hann spilar ekki aftur fyrr en í enda mars.

Einnig, þá þarf Chris Kirkland að fara í aðgerð og verður frá í **3-4 mánuði**. Hann hefur þar með endanlega sannað það fyrir mér að það þurfi að láta hann fara frá liðinu. Getum ekki treyst á mann, sem er heill í mánuð á ári.

Xabi frá í 6 vikur

Jæja, Rafa er búinn að staðfesta þetta: [Xabi Alonso verður frá í 6 vikur](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N147303050101-1555.htm)

Gleðilegt ár!

Ó Nei! Milan ekki með!

Jæja, það er orðið ljóst að Milan Baros [verður ekki með](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N147288041231-1450.htm) á móti Chelsea!

Jæja, þá verðum við að treysta á Flo-Po og Mellor.

Kewell frá í mánuð!

Ekki gott: Harry Kewell [verður frá í mánuð vegna nárameiðsla](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N147283041230-1235.htm). Einhverjir hafa tekið eftir því að við höfum búið til nýjan flokk hér á Blogginu, sem heitir einfaldlega “meiðsli”. Veitir víst ekki af.

Benitez bjartsýnn

Rafa býst við því að [Finnan, Baros og Kewell](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N147275041229-0838.htm) verði allir heilir fyrir Chelsea leikinn.

Það er frábært. Mér leist nú ekkert á ástandið í gær þegar það spurðist út að Baros væri meiddur, en við vonum allavegana það besta. Það er alveg ljóst að við þurfum á þessum mönnum að halda gegn Chelsea.