Liverpool Bloggið » Meiðsli

Opinn þráður (UPPFÆRT – Lucas frá!)
Uppfært:

Liverpool Football Club hefur í dag staðfest að Lucas Leiva hefur skaddað krossbönd í hné og þarf að gangast undir uppskurð sem verður til þess að hann hefur lokið keppni tímabilið 2011 – 2012.

HRÆÐILEGAR FRÉTTIR í alla staði og ljóst að fram í janúar verða margir möguleikar kannaðir.  Fram að þeim tíma verður okkar breidd að taka á vandanum.

Upphafleg færsla Kristjáns Atla hér fyrir neðan.

Ég minni á nýjan þátt af Podcasti Kop.is (#10) í færslunni hér fyrir neðan. Endilega tékkið á því.

Þetta er opinn þráður. Þið getið rætt það sem þið viljið hér. Lucas Leiva er að öllum líkindum meiddur út tímabilið og í kvöld var dregið í undanúrslit Deildarbikarsins eftir að Crystal Palace komu öllum að óvörum og slógu Manchester United út á Old Trafford.

Okkar menn mæta Manchester City í undanúrslitum. Auðvitað. Gátum varla fengið auðveldan drátt, var það? En fyrri leikurinn er í Manchester, seinni á Anfield sem ætti að vera okkur í hag. Í hinum undanúrslitunum mætast Cardiff og Crystal Palace. Þetta verður epík.

Landsliðsmenn
Af forvitni, fyrir mig alveg jafnt og ykkur, þá er hér yfirlit yfir hvar landsliðsmenn Liverpool eru staddir í dag:

Skotland: Charlie Adam er meiddur á mjöðm eftir leikinn gegn Tékkum sl. laugardag og missir því af leik Skota gegn Litháen á morgun. Danny Wilson kom inná á laugardaginn og verður væntanlega aftur í hóp á morgun.

England: Stewart Downing lék allan leikinn gegn Búlgaríu á föstudag og lék vel. Hann verður væntanlega aftur í liðinu á morgun gegn Wales. Andy Carroll er einnig í hóp en kom ekkert inná á föstudag. Gæti fengið spilatíma á morgun.

Danmörk: Danirnir áttu frí á föstudag en spila heimaleik á morgun gegn Noregi. Daniel Agger verður væntanlega í liðinu.

England U-21: Jordan Henderson var fyrirliði U-21 liðs Englendinga í 6-0 stórsigrinum á Azerbaijan sl. fimmtudag og skoraði m.a. glæsilegt mark. Í kjölfarið sagði Stuart Pearce að hann vildi gefa honum frí þar sem hann hefði verið mjög þreytulegur í Evrópumóti U-21-liða í sumar þannig að Henderson er farinn aftur til Liverpool, verður ekki með á morgun. John Flanagan, Andre Wisdom og Jonjo Shelvey verða þó væntanlega í hóp í kvöld gegn Ísrael eins og sl. fimmtudag og þar af mun Flanagan væntanlega byrja aftur í hægri bakverði.

Holland: Dirk Kuyt skoraði mark í 11-0 sigri Hollendinga (!!!) á San Marínó sl. föstudag. Hollendingar eiga útileik gegn Finnum á morgun og Kuyt verður væntanlega áfram í liðinu þar.

Wales: Nýi framherjinn okkar, Craig Bellamy, fékk gult spjald gegn Svartfjallalandi á föstudag og verður því í banni í leik liðsins gegn Englandi á Wembley á morgun. Hann ætti því að vera ferskur fyrir Stoke-leikinn á laugardag.

Slóvakía: Martin Skrtel var í vörn Slóvakíu sem náði 0-0 jafntefli í Írlandi á föstudag og verður aftur í eldlínunni gegn Armeníu á morgun.

Spánn: Pepe Reina vermdi varamannabekkinn eins og venjulega þegar Spánverjar sigruðu Chile í æfingaleik á föstudag. Heims- og Evrópumeistararnir eiga auðveldan heimaleik gegn Liechtenstein á morgun í forkeppni Evrópukeppninnar og Reina verður eflaust aftur á bekknum þar sem Iker Casillas er landsliðsfyrirliði og því varla hvíldur í keppnisleik.

Úrúgvæ: Luis Suarez lagði upp tvö mörk í 3-2 sigri á Úkraínu í Úkraínu á föstudag. Sebastian Coates var varamaður í þeim leik. Úrúgvæar eiga ekki fleiri leiki í bili þannig að Suarez og Coates eru væntanlega komnir aftur til starfa á Melwood í dag.

Brasilía: Brassarnir leika vináttuleik gegn Ghana á Craven Cottage, heimavelli Fulham, í Lundúnum í kvöld. Þar verður Lucas Leiva væntanlega á miðjunni hjá þeim gulu.

SAMANTEKT: Charlie Adam er meiddur og óviss fyrir Stoke-leikinn. Luis Suarez, Sebastian Coates, Craig Bellamy og Jordan Henderson hafa lokið landsliðsstörfum í bili og eru einnig komnir heim. Daniel Agger og Lucas Leiva spiluðu ekkert yfir helgina en spila í kvöld og á morgun. Dirk Kuyt, Danny Wilson, Stewart Downing, Andy Carroll, Martin Skrtel, Jonjo Shelvey, John Flanagan, Andre Wisdom og Pepe Reina eru einnig allir með landsliðum sínum í kvöld og á morgun.

Og nú er bara að krossleggja fingur og tær og vona að Adam verði eina fráfall þessa blessaða #=)”#=)%#”! landsleikjahlés.

Gerrard ekki með til Asíu
LFC.tv staðfestir í dag: Steven Gerrard fyrirliði fer ekki með liðinu til Asíu í næstu viku.

Að vissu leyti er þetta eðlilegt og sniðug ákvörðun. Gerrard er að jafna sig eftir uppskurðinn sem batt enda á tímabil hans í mars sl. og því skiljanlegt að hann verði eftir heima til að einbeita sér að því að jafna sig. Hins vegar er þetta líka þörf áminning að við getum ekki treyst á Súpermann lengur. Gerrard er nýorðinn 31s árs gamall og ekki jafn sprækur og hann var fyrir 4-5 árum.

Það verður að byggja upp í kringum hann og nota hann sem plús ofan á það sem er fyrir, í stað þess að leggja of mikla ábyrgð á hans axlir og panikka svo ef/þegar hann meiðist eitthvað. Þess vegna grunar mig að við höfum byrjað sumarið á að kaupa Henderson og séum líka að reyna við Adam, af því að þá er breiddin á miðjunni áfram feykigóð þótt Gerrard eða Spearing, sem hafa meiðst mest af miðjumönnunum okkar sl. ár, missi eitthvað úr.

Breiddin skiptir máli. Fyrirliðinn minnir okkur á það. Vonandi þýðir þetta að hann verður 100% klár og óþreyttur í fyrsta deildarleik í ágúst, þótt vissulega sé svekkjandi fyrir aðdáendur í austurlöndum fjær að fá ekki að berja Súpermann augum.

Einnig: Gael Clichy, sem við buðum í, er farinn annað. Ég ætla ekki að hafa áhyggjur, ég ætla ekki að hafa áhyggjur, ég ætla ekki að hafa áhyggjur…

Gerrard & Agger komnir í sumarfrí
Fyrst: Voru ekki allir búnir að lesa færslu SSteins um árshátíð Liverpool klúbbsins, og panta sér svo miða?

Meiðslafréttir: það er núna staðfest að Steven Gerrard er kominn í sumarfrí, en meiðslin sem tóku sig aftur upp fyrir síðustu helgi hjá honum munu halda honum frá út maí. Þá var Daniel Agger einnig kominn í sumarfrí eftir að hafa meiðst í liðböndum við hné gegn W.B.A. um síðustu helgi.

Glen Johnson og Martin Kelly verða frá í a.m.k. þrjár vikur áður en þeir geta spilað aftur og ég mæli með því að þeir fái að fara í sumarfrí líka. Það er ekki að miklu að keppa og fyrir mér er mikilvægara að þessir menn séu allir orðnir 100% á undirbúningstímabilinu í sumar heldur en að láta þá rembast út af engu núna.

Hvað segiði annars, væri ekki ágætt að hafa Insúa þessa dagana?

Opin umræða: Jonjo og Xavi
SSteinn hitar upp fyrir leik helgarinnar seinna í dag en á meðan eru tvö atriði sem ég vil benda á. Fyrst, þá verður Jonjo Shelvey frá í þrjá mánuði. Því miður. Ég er hrifinn af stráksa og fannst mjög jákvætt að sjá hann reglulega sem varamann undir stjórn Dalglish. Hann er jú bara 18 ára og verður orðinn fastamaður í þessu byrjunarliði okkar eftir 2-3 ár. Vonandi setur þetta ekki strik í reikninginn.

Í öðru lagi, þá eiga allir að lesa þetta viðtal við Xavi Hernandez. Xavi er besti miðjumaður heims í dag, hefur verið undanfarin ár og var sá leikmaður sem átti HM í fyrra að mínu mati. Skoðanir hans á fótbolta og enskri knattspyrnu eru merkilegar og viðtalið er stórgott. Ég er sammála nánast hverju einasta orði sem hann segir. Líka því sem hann segir um Jamie Carragher, John Terry og Liverpool-aðdáendur.

Meiðsli: afsökun eða tækifæri?
Um helgina horfði ég á Tottenham vinna Blackburn með öðru auganu. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema að ég tók sérstaklega eftir byrjunarliði Tottenham:

Gomez

Hutton – Kaboul – Gallas – Assou-Ekotto

Jenas – Van der Vaart – Modric – Bale

Crouch – Pavlyuchenko

Tottenham eru vanir að stilla upp svona liði á heimavelli. Fáránlega sókndjarft, ekki einn varnarsinnaður miðjumaður í liðinu og tveir mjög sókndjarfir bakverðir. Þeir keyrðu yfir Blackburn, komust í 4-0 og þegar þeir misstu einbeitninguna undir lokin og Blackburn náðu tveimur mörkum til baka, þá fyrst tók Redknapp miðjumann og framherja út af fyrir Sandro og Palacios, tvo varnarsinnaða miðjumenn.

Af hverju skiptir þetta máli? Jú, af því að klukkutíma síðar horfði ég á Liverpool liggja í vörn og skíttapa. Gegn Stoke.

Nú er landsleikjum vikunnar lokið og nokkuð líklegt að við fáum Martin Skrtel, Dirk Kuyt og Steven Gerrard meidda til baka (takk, England, Fjandans Asnar). Þar á ofan er Lucas Leiva í banni og Daniel Agger og Glen Johnson væntanlega enn meiddir.

Við erum að spila heima á laugardag gegn lélegasta liði Úrvalsdeildarinnar, West Ham. Fyrir mér býður þetta upp á mjög augljósan valkost, með tilliti til hvaða leikmenn vantar og hverjir mótherjarnir eru. Hodgson gæti tekið Redknapp á þetta og stillt upp þessu liði á laugardaginn:

Reina

Kelly – Carra – Kyrgiakos – Konchesky

Maxi – Meireles – Shelvey – JCole

Ngog – Torres

Hann gæti gert þetta og að mínu mati er ekkert sem mælir gegn því. Taka handbremsuna af liðinu, keyra yfir andstæðingana, nota framherjana sem við eigum og eru heitir, gefa miðjumanninum sem hefur unnið fyrir því (Shelvey, ekki Poulsen) séns á að sanna sig enn frekar.

Hins vegar gæti Hodgson líka farið þessa leið, sem ég er mjög ósammála og óttast að bjóði hættunni heim:

Reina

Kelly – Carra – Kyrgiakos – Konchesky

Meireles – Poulsen – Spearing – Maxi

JCole

Torres

Miklu varnarsinnaðri miðja, enginn hraði í liðinu, einn framherji, allt of mikil virðing sýnd liði sem er klassa neðar en öll önnur í Úrvalsdeildinni. Rétt eins og gegn Blackpool myndi ég spá okkur jafntefli eða tapi ef hræðslan og varnarþunginn yrðu ofan á í liðsvali. Og það versta er að stjórinn myndi hafa afsakanirnar klárar ef illa færi – fyrirliðinn meiddur, Lucas í banni og svona. Erfiður leikur á erfiðum heimavelli gegn góðum andstæði bla bla bla.

Við erum án lykilmanna á laugardag, það er ljóst. Liðið hefur spilað illa, það er líka ljóst. Hvort verður þetta notað sem tækifæri til að hrista upp í liðinu og koma með ferska strauma inn á völlinn (þið vitið – við erum Liverpool, við sækjum á heimavelli, við óttumst engan, þess háttar „ný hugsun“) eða verður tækifærið notað til að smella Poulsen og Spearing inn, pakka í vörn og vonast eftir að Torres galdri fram sigurmark eins og venjulega.

Ég held við vitum öll hvað Roy mun velja.

Agger og Mascherano meiddir
Samkvæmt opinberu vefsíðunni eru Daniel Agger og Javier Mascherano meiddir og verða ekki með gegn Trabzonspor á morgun.

Það merkilega við þessa frétt er samt þessi tilvitnun hér:

“..while Agger is still suffering from concussion after a ball to the face which has left him with no recollection of Sunday’s clash.”

Og hann kláraði leikinn! Það er alvöru harka!

Ég vona að þeir verði báðir orðnir heilir (og enn hjá klúbbnum) fyrir stórleikinn á mánudag gegn Man City. Við ættum að geta klárað Trabzonspor á Anfield án þeirra, það yrði verra ef þeir væru ekki með gegn Jóakim Aðalönd og félögum.

Torres frá út tímabilið!
Fokkití fokk fokk. Opinbera síðan segir að ákveðið hafi verið að senda Torres í aðgerð á hné strax í kvöld og að eðlilegur tími til að jafna sig eftir slíka aðgerð sé almennt um sex vikur, sem þýðir að Torres verður frá út maímánuð og er í besta falli vafaatriði fyrir Spánverja á HM í sumar. Tímabilið hans hjá Liverpool er hins vegar búið.

Við þessu er aðeins eitt að segja: skammist ykkar, Liverpool FC og Spánn, fyrir að hafa níðst á drengnum síðustu tvö árin. Öll skiptin sem Spánverjar hafa valið hann í hóp og látið hann spila æfingaleiki þegar hann var nýkominn inn úr meiðslum, og öll skiptin sem Rafa hefur teflt honum fram þótt hann hafi ekki verið búinn að ná sér 100% af meiðslum. Hann hefur ekki fengið neinn séns á að jafna sig að fullu í hnénu í vetur og það er einfaldlega að koma í bakið á mönnum í dag.

Það skal enginn segja mér að Torres hefði verið ofnotaður svona í vetur ef við hefðum haft a.m.k. einn framherja í sama gæðaflokki og hann innan okkar raða. Menn uppskera eins og þeir sá og ef við ætlum ekki að eyðileggja þennan ótrúlega fótboltamann ætla ég rétt að vona að það verði mannskapur til staðar til að kóvera fyrir hann á næsta tímabili. Ngog hefur staðið sig vel og er efnilegur en þegar menn þykjast vera að berjast um stóru titlana þarf leikmenn eins og Torres.

Boðskapur sögunnar: klárið þessi helvítis eigenda- og/eða þjálfaraskipti og kaupið alvöru framherja í þetta lið í sumar.

Pirringur.

Torres með gegn Atletico
Jæja, góðar fréttir: Fernando Torres mun líklega geta spilað gegn Atletico Madrid eftir tæpa viku.

Eftir sigur Tottenham í fyrradag þá er baráttan um fjórða sætið endanlega úti fyrir okkar menn (þótt að tölfræðilega sé enn örlítill möguleiki, en þá þurfa Man City og Tottenham að hrynja í síðustu umferðunum) – og því eru leikirnir gegn Atletico Madrid hið eina sem skiptir máli á þessu tímabili.

Það hafa vonandi flestir haft tíma til að melta vonbrigðin við því að ná ekki inní Meistaradeildina, en við megum ekki gleyma því að til dæmis Chelsea lék bara 8 leiki í Meistaradeildinni á þessu tímabili, þannig að það er ekki einsog næsta tímabil sé í ræsinu þótt við komumst þar ekki inn.  Aston Villa geta reyndar komist upp fyrir okkur í sjötta sætið (þeir eiga ekki erfitt prógramm eftir fyrir utan útileik gegn Man City).

Ég er í raun ekki búinn að gera upp við mig hvort ég vilji að Liverpool komist í Europa League á næsta tímabili.  Það hefur vissulega verið gaman að taka þátt í 32 liða úrslitum og uppúr, en ég er ekki alveg viss um að það sé spennandi að taka þátt í riðlakeppninni.  Kannski er ágætt að liðið einbeiti sér á næsta tímabili bara að prógramminu á Englandi.

En allavegana, leikirnir gegn Atletico eru allavegana tækifæri til að enda þetta tímabil á góðum nótum.  Hvað sem verður sagt um allt annað á þessu hræðilega tímabili þá væri tímabil sem endaði með sigri í Evrópudeildinni ekki afskrifað sem alveg afleitt.  Það eru líkur á að við myndum eftir 10 ár bara muna eftir þeim sigri og hafa gleymt tímabilinu í deildinni.

Læknar eru á því að það sé mögulegt fyrir Torres að spila gegn West Ham á mánudaginn, en ég held að (sérstaklega ef að Tottenham og Man City tapa ekki bæði um helgina) Benitez muni gefa honum frí og freista þess að hann geti spilað í Madríd næsta fimmtudag.  Það verður allavegana gleðilegt bæði fyrir Torres sjálfan og svo okkur aðdáendur.

Ýmsar fréttir
Tony Barrett staðfestir í Times Online í dag að Fernando Torres fór í aðgerð á hné í Barcelona-borg í gær. Aðgerðin heppnaðist að sögn algjörlega og nú er bara eftir fyrir hann að hvíla og koma svo til baka. Við erum að tala um sex vikur og niðurtalningin hefst í dag, sem þýðir að hann ætti að vera klár til æfinga um mánaðarmótin febrúar/mars og vonandi leikfær sem fyrst eftir það. Vonum að hann noti líka tímann til að jafna sig á mjaðmarmeiðslunum sem hafa hrjáð hann í vetur. Fullfrískur Torres gæti reynst ómetanlegur í kapphlaupinu um Evrópusæti í mars-maí.

Þá segir Barrett einnig að Rafa hafi brugðist við meiðslum Torres með að reyna að fá Kenwyne Jones hjá Sunderland að láni. Fyrst á hann að hafa boðið Sunderland Ryan Babel í staðinn í varanlegum skiptum en Steve Bruce var víst ekki hrifinn af því (og ekki Babel heldur segir slúðrið að utan) þannig að nú er hann að reyna að fá hann lánaðan. Ef það gengur ekki get ég ímyndað mér að hann kíki á leikmenn eins og Pavlyuchenko hjá Tottenham eða Heskey hjá Aston Villa. Það er allavega nokkuð ljóst að það verður allt reynt til að fá framherja inn fyrir lok janúar.

Hérna er svo fín grein í Daily Mail þar sem Chris Wheeler fjallar um baráttugleði Liverpool-liðsins í gær. Ég verð að taka undir með honum, eftir að ég komst yfir upphaflega pirringinn sem fylgdi því að missa þetta klaufalega niður í jafntefli verð ég að segja að við getum allavega huggað okkur við hversu baráttuglaðir og grimmir okkar menn voru í gær.

Okkur vantar Gerrard, Torres, Johnson, Riera, Benayoun og nokkra fleiri. Þetta eru flest allt leikmenn sem eru með flinkari mönnum í liðinu hjá okkur og því er kannski eðlilegt að Rafa bregðist við því með því að stilla upp líkamlega sterku liði sem getur barist og tekið á móti. Ef við getum ekki yfirspilað andstæðinginn, þar sem gæðadripplarana vantar, er alveg eins gott að taka smá Stoke á þetta og reyna að valta yfir menn með krafti. Við sáum gott dæmi um það í frammistöðu Sotirios Kyrgiakos í gær. Hann var frábær að mínu mati, át alla skallabolta á teignum, hélt öllum framherjum Stoke í skefjum (Pulis skipti held ég báðum útaf til að reyna eitthvað nýtt) og kórónaði svo frammistöðuna með að troða boltanum í mark andstæðinganna, blóðugur um annað augað. Ég fékk svona nettan 300 fíling við að horfa á hann í gær: THIS! IS! SPARTA! ;)

Báðar greinarnar fjalla svo um frammistöðu dómarans, hins hæstvirta Lee Mason. Times-greinin segir að Rafa hafi lagt inn kvörtun vegna frammistöðu hans, enda ljóst að hann klúðraði illa í tveimur vítaspyrnudómum í gær (í báðum tilfellum brotið á Lucas sem átti betra skilið eftir frammistöðu sína) og hefur ekki beint verið hliðhollur Liverpool í vetur. Hann hefur rekið fjóra leikmenn útaf á tímabilinu, en þrír þeirra hafa verið Liverpool-menn. Eðlilegt að Rafa leiti skýringa.

Já, og af því að menn voru í ummælum leikskýrslunnar í gær að skeggræða neikvæð ummæli Danny Murphy í garð Rafa þá eru hér skemmtileg ummæli eftir meistara Salif Diao:

> “If Benitez is left there to do the job, he will do it. He has already showed his capabilities and with a bit of luck I think it’s a possibility that they will finish in the top four.”

Diao var hörmulegur á sínum tíma með Liverpool og við vorum fegnir að losna við hann en ég man eftir að hafa lesið aðeins um hann á sínum tíma og þar fer víst eðalnáungi. Gaman að sjá að hann hugsar á jákvæðu nótunum til síns gamla félags.