Á morgun fáum við nágranna okkar í Everton yfir Stanley Park. Á nokkrum dögum er það lagt á okkur að þurfa tvisvar að spila við þá, deildarleikur á morgun og seinni leikurinn er í FA Cup.
Ég verð að viðurkenna að ég er svolítið smeykur við þennan leik, Everton hefur verið á góðu róli undanfarið og er með gott lið, við höfum átt í basli með að klára leiki allt of oft á þessu tímabili og einfaldlega vegna þess að allt annað sem hugsanlega gat gengið upp hjá United hefur gengið upp hjá þeim. Þeir hafa með góðum sigri á Chelsea, slæmum sigri á Wigan og ömurlegum sigri á Bolton tekist að setja á okkur þó nokkra pressu sem afar gott væri að losa, með sigri í mjög stórum nágrannasalg við okkar næst mestu óvini. Annað sem gefur mér smá ónotatilfinningu er sú staðreynd að þessi leikur er á mánudegi, það er aldrei neitt gott við mánudaga, það á að halda annan í hvíldardegi heilagan. Síðan hvenær fórum við að spila á mánudagskvöldum?

En já, nóg um það, einbeitum okkur að því sem skiptir máli, næsta leik. Þrátt fyrir að hinn ofur óhugnalega pirrandi Stoke leikur dragi mann aðeins niður þá er ekki hægt að segja annað en að það hefur verið ágætt run á liðinu undanfarið, Bolton var pakkað saman og Newcastle var slátrað á þeirra eigin heimavelli áður en harmleikurinn gegn Stoke átti sér stað. Við höfum bara einu sinni verið rændir öllum þremur stigunum í vetur og höfum ekki tapað fyrir Everton á Anfield í a.m.k. síðustu fimm viðureignum. Þannig að já, maður verður nú að vera smá bjartsýnn fyrir morgundaginn. Gamla klisjan á auðvitað við að þetta er ekki venjulegur leikur og það skiptir virkilega engu máli hvar liðin eru í deildinni, Liverpool – Everton eru alltaf sérstakir leikir, oft líkt við bikarleiki………. getum kannski dæmt betur um það í lok vikunnar.

Úr okkar herbúðum hefur verið mikið að frétta undanfarið, slæmu fréttirnar eru um að Rafa vilji ekki semja og að Agger sé hugsanlega að fara (sé hvorugt gerast), eins fór Benitez í þriðju aðgerðina vegna nýrnasteina en ætti að vera orðinn góður af því og því á bekknum á morgun.
Góðu fréttirnar eru þær að allir okkar menn eru til þjónustu reiðubúnir. Fyrir utan auðvitað Harry Kewell Degen og Insua sem er ennþá í einhverju fáránlega tímasettu krakkamóti. Það verður nú að teljast nokkuð jákvætt svona í janúar að skakkaföllin eru ekki meiri en þetta. Alonso er blessunarlega tilbúinn og endurheimtum við þar aðra af aðalástæðum þess að við unnum ekki Stoke um daginn (hin er sú að Kuyt spilaði frammi og kláraði leikinn). Fernando Torres hefur einnig fengið rúma viku til að ná sér af meiðslunum og ætti því að vera kominn á ágætis ról núna. Sama má segja um Skrtel sem virkaði frekar ryðgaður í síðasta leik.
Það er því ekkert létt verk að stilla upp líklegu byrjunarliði:
Reina
Arbeloa – Skrtel – Carra – Aurelio
Alonso – Mascherano
Kuyt – Gerrard – Riera
Torres
Bekkur: Cavalieri, Keane, Hyypia, Dossena, Babel, Benayoun, El Zhar.
Ég er nokkuð viss um að Reina verði í markinu, annað er ég bara ekki mikið viss um. Ég vona að Arbeloa komi í hægri bakvörðinn þar sem Carra greyið er bara hreinlega ekki hægri bakvörður. Þetta er staða sem öskrað var á að þyrfti að bæta fyrir þetta tímabil og verður Degen því að teljast “örlítil” vonbrigði það sem af er. Arbeloa hefur verið fínn og bætt sig töluvert, en alls ekkert frammúrskarandi.
Hinu megin hafa vonbrigðin verið aðeins öðruvísi, nýji bakvörðurinn fékk vissulega að spila, og hann hefur verið í sama gæðaflokki og Josemi var, það eru rosaleg vonbrigði. Aurelio er svo alltaf meiddur og því ekki hægt að treysta á hann og Insua fer í krakkamót um leið og hefur unnið sé sæti í byrjunarliðinu, hann er samt lausnin held ég og líklegur til að verða besti vinstri bak hjá Liverpool í háa herrans tíð. Tippa á að brassinn byrji leikinn á morgun en yrði ekki hissa að sjá Dossena koma þarna inn.
Í miðvarðarstöðunni er fínt að geta sagt með hreinni samvisku að það geta 4 menn auðveldlega komið til greina í þessar tvær stöður. Ég efa að Agger sé að fara fet og mér finnst frábært að hafa alla þessa kappa loksins heila. Á morgun tippa ég á að Carra komi aftur í miðvörðinn og hafi Skrtel með sér. Everton er afar stór leikur þegar kemur að Jamie Carragher og því finnst mér við hæfi að hafa hann í hjarta varnarinnar.

Á miðjunni verður Alonso bara að koma inn, hann er svipað mikilvægur Liverpool og tómastósa er pulsu með tómat og steiktum. Mascherano verður með honum og tekur indjána vörn á Cahill eða Arteta. Gerrard verður á sínum stað í holunni tippa ég á og vonandi með Torres fyrir framan sig, ef ekki hann þá Robbie Keane. Tippa á Riera vinstra megin og vona heitt og innilega að Everton verði ekki gefið þá forgjöf að hafa Kuyt upp á toppi, set hann á sinn stað, á hægri kannti.
Sterkt lið og sterkur bekkur. Í bikarleiknum gæti ég svo trúað að menn eins og Lucas, Babel, Keane og Agger fái meira áberandi hlutverk.
Mín spá: Síðast þegar þessi lið mættust á Anfield var það Torres sem kláraði þá á 7.mínútu. Leikurinn var í mars og setti okkur í góða stöðu gagnvart Everton….í baráttunni um 4. sætið. Miðað við allt of marga leiki á þessu tímabili virðist það vera akkurat það sem þarf. Torres er master lykillinn fyrir Liverpool líðið þegar kemur að því að klára leiki, sem annars enduðu jafntefli ef notast væri við venjulega lykla. Hann skorar og skapar jafnframt mikið meira pláss fyrir meðspilara sína framar á vellinum.
Spái 2-0 á morgun, Torres og Alonso með mörkin í seinni hálfleik.
Babú