Liverpool Bloggið » Leikskýrslur

Wolves – Liverpool 0-3
Þetta stefnir allt í rétta átt, Carroll er farinn að spila vel og meira að segja skoraði gott mark í dag. Kuyt er búinn að skora tvo leiki í röð og Liverpool skoraði þrjú mörk í þriðja sigurleiknum á þessari viku.

…já og Suarez er að koma í næsta leik.

Ef gengi Liverpool gegn þessum svokölluðu veikari liðum hefði ekki verið svona skelfilegt undanfarið þá væri þriggja marka sigur á Wolves ekkert stórmál, en eins og við vitum er ekkert sjálfgefið þegar kemur að Liverpool í ár og því megum við sannarlega fagna þessum góða sigri enda liðið án okkar bestu leikmanna.

Þetta var þriðji leikurinn sem Liverpool spilar á innan við viku og því ljóst að eftir erfiðan og góðan sigur á Manchester United var Dalglish alltaf að fara hvíla einhverja leikmenn og nota hópinn. Gerrard og Maxi voru alveg hvíldir og það er eitthvað slúðrað um það að Gerrard sé eitthvað smávægilega meiddur. Downing, Carragher og Kelly voru síðan allir settir á bekkinn fyrir leikinn gegn Wolves. M.ö.o. Kóngurinn gerði rétt og hvíldi okkar sterkari menn í leiknum gegn United (nema Gerrard) en  setti þá aftur inn fyrir stórleikinn gegn Wolves.

Byrjunarliðið var svona:

Reina

Johnson – Skrtel – Agger – Enrique

Spearing – Adam

Kuyt – Henderson – Bellamy

Carroll

Bekkur: Doni, Aurelio, Coates, Downing, Carra, Shelvey, Kelly.

Fyrri hálfleikur var ágætur þó óneitanlega hafi maður fengið gamalkunna tilfinningu frá þessu tímabili um glötuð færi, Kuyt var strax á 3.mínútu rétt búinn að skora eftir góðan undirbúning frá Bellamy og Carroll en Hennessey náði einhvernvegin að bægja hættunni frá.

Liverpool hélt boltanum meira en heimamenn voru ávallt hættulegir og leikurinn ágætlega opinn á köflum. Á 20.mín virtist Bellamy vera kominn í gegn og náði að pota boltanum framhjá Hennessey en hann rúllaði líka faramhjá markinu. Þremur mínútum seinna tók Bellamy horn sem Agger náði og átti fínan skalla að marki sem Hennessey varði mjög vel.

Hefði leikurinn ekki endað með sigri Liverpool væri atvik frá 35.mínútu líklega mun umdeildara en það verður en þá var Frimpong mjög heppinn að fá ekki dæmt á sig víti er hann felldi Adam inni í teig. Umdeildasta ákvörðun hjá dómara leiksins sem var á þeirri línu að hvert brot Liverpool manna í leiknum verðskuldaði gult spjald (á móti flaut leikurinn annars vel hjá dómaranum).

En staðan var 0-0 í hálfleik og óhætt að segja að ónotatilfinning hafi hríslast um mann og jinx-masterinn Kristján Atli setti þetta m.a. á Twitter:

Kristján Atli

Fyrir hvern leik hugsa ég með mér að nú muni Carroll hrökkva í gang. Fyrir hvern einasta leik. NOT. TODAY. #Vonlaus

Það þurfti því engan vísindamann til að finna það út að Andy Carroll myndi brjóta ísinn fyrir okkar menn í dag. Það gerði hann blessunarlega strax á 53.mínútu eftir flotta sendingu frá Charlie Adam. Mikill léttir og Kristján vinur minn var heldur betur kátur með sinn mann.

Kristján Atli

ANDREW MOTHAFUCKIN CARROLL!!! Svoleiðis langbestur! Það stöðvar ekkert þennan dreng!

Það þurfti gömlu sálfræðina sem virkaði svo oft á John Arne Riise til að kveikja á Carroll (drulla nógu duglega yfir hann) og núna er að vona að hann hefji loksins leik fyrir alvöru hjá okkar mönnum, nákvæmlega ári eftir að hann kom. Hann hefur verið að sýna betri leik undanfarið og Suarez gæti hjálpað mikið til við að láta hann líta vel út.

Eftir að ísinn var brotinn virtist aðeins vera formsatriði að klára þennan leik og það er gott að sjá í Liverpool leik aftur. Bellamy skoraði verðskuldað mark á 61.mínútu og átti það alveg skuldlaust sjálfur. Hann fékk boltann úti við hliðarlínu og setti hausinn undir sig og brunaði í átt að marki og náði sæmilegu skoti fyrir utan teig sem lak í gegnum hendur Hennessey og þaðan í markið.

Dirk Kuyt sem var að spila sinn fyrsta leik í fantasy liði Babu skoraði svo þriðja og síðasta mark leiksins á 78.mínútu eftir góðan undirbúning. Jose Enrique vann boltann í vörninni og vann einnig baráttu við Ebanks-Blake áður en hann átti frábæra skiptingu yfir á Kuyt sem fann Adam fyrir utan teig, Skotinn fann Kuyt aftur sem skilaði boltanum af öryggi í hornið. Flott mark hjá Liverpool sem var með öll völd á vellinum.

Wolves átti sín færi í þessum leik og Ebanks-Blake var næst því að skora fyrir þá á lokakaflanum er hann smellti boltanum glæsilega í stöngina á marki Liverpool. Reyndar var þetta það eina sem sá ágæti drengur gerði af viti í dag og svei mér þá ef leikur Wolves liðsins hafi ekki orðið mun vonleysislegri eftir að Eggert Jónsson var tekinn útaf snemma í seinni hálfleik.

Þrjú stig í dag er það sem skiptir máli, sérstaklega þar sem Chelsea tapaði stigum í dag, mark frá Carroll er frábært mál í bónus og núna fáum við sæmilega hvíld fyrir hrikalega erfiðan leik gegn Spurs á mánudaginn.

Maður leiksins: Fyrir mér var Craig Bellamy langmesta ógnin í Liverpool liðinu og hann er sé eini sem spilaði dag með þann hraða sem við verðum að hafa gegn svona liðum, svo ekki sé talað um baráttuanda. Hann fannst mér mikilvægastur í dag en Andy Carroll gæti líka fengið mörg atkvæði, hann var að vinna mikið betur úr því sem hann fékk úr að moða en hann hefur verið að gera og skoraði loksins loksins.

Keep it up LFC

Babú

Liverpool 2 Man Utd 1
Dásamlegt í alla staði.

Eftir þessa viku er erfitt að vera eitthvað lógískur og ég ætla bara að leyfa tilfinningunum að ráða hér.

Set þó upp byrjunarliðið:

Reina

Kelly – Skrtel – Agger – Enrique

Carragher

Downing – Henderson – Gerrard – Maxi

Carroll

Óvænt liðskipan sem satt að segja gekk ekki vel upp. Við byrjuðum ágætlega, en mjög varfærið. Það var hins vegar fín ákvörðun hjá Rauðnef að setja David De Gea í markið og hann var ekki að líta vel út þegar við komumst yfir eftir horn. Captain Fantastic klíndi bolta á markteiginn, keeperinn fraus og Daniel Agger skallaði boltann í netið við mikinn fögnuð.

Því miður duttu okkar menn alltof aftarlega eftir þetta og United refsaði okkur fyrir það þegar Enrique leit illa út, tapaði tæklingu fyrir Rafael sem setti hann á Park sem jafnaði 1-1 og þannig var staðan í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn var áfram sá sami, United var með boltann en skapaði ekki mörg færi og við á hælunum. Á milli 60. og 70. mínútu ákvað Dalglish að hætta leikkerfistilrauninni, tók Maxi, Gerrard og Carragher útaf, henti Adam, Kuyt og Bellamy inná og stillti upp í 4-4-2:

Reina

Kelly – Skrtel – Agger – Enrique

Kuyt – Henderson – Adam – Downing

Carroll – Bellamy

Satt að segja var ekkert í gangi og það stefndi í replay sem hefði orðið fyrsti leikur Suarez eftir bannið.

ENNNNNNN! Direct route eitt tryggði okkur sigur. Útspark frá Reina, Carroll SULTAÐI Evans og flikkaði boltanum í gegn, sem betur fer var Evra inná, hann spilaði Dirk Kuyt réttstæðan, hann stillti sig af og dúndraði á nærhornið hjá De Gea sem var alltof aftarlega, 2-1 og völlurinn trylltist.

Það sem eftir var vorum við nærri því að skora, Carroll átti frábæran skalla í stöng og Kuyt dauðafæri upp úr því en það þurfti ekki meir, 2-1 sigur á liði hins illa og allt geðveikt, Suarez hljóp niður í klefa og þar er gleði núna.

Dásamlegur áfangi og miðað við það sem Twitter-menn tala um var stanslaust sungið um Hillsborough í útiáhorfendaboxinu án svara heimaliðsins. Það allra besta sem gat gerst, við unnum og leikurinn virðist hafa verið auglýsing fyrir fallegasta og besta klúbb í heimi!

Get ekki meir, er úrvinda og farinn að fagna. Viðurkenni það að ég hafði ekki trú á að við færum svona með þessa viku, en KÓNGURINN KENNY sýndi okkur hvað er hægt að gera með skipulagi, einurð og hjarta.

Get ekki valið mann leiksins, elska alla sem komu nálægt þessum leik.

IN ISTANBUL WE WON IT FIVE TIMES

Hjartanlega til hamingju öll – njótið dagsins og næstu samskipta við United-menn!

Liverpool – Man City 2-2 (3-2)
Liðið sem við þekkjum sneri aftur í dag og náði í þau úrslit sem þurfti gegn Manchester City í hörku leik sem var allt of spennandi. Þetta þýðir að Liverpool er aftur á leiðinni á Wemley og það í fyrsta skipti á þessari öld.

Dalglish hafði ekki úr neinum djúpum miðjumanni að velja fyrir þennan leik, Lucas og Spearing eru meiddir og valdi því að fara inn í þennan leik með þrjá á miðjunni og tókst það vel.

Byrjunarliðið var svona:

Reina

Johnson – Skrtel – Agger – Enrique

Kuyt – Henderson – Adam – Downing

Gerrard

Bellamy

Bekkur Doni, Kelly, Carroll, Maxi, Coates, Carragher, Shelvey.

Leikurinn var spilaður á nokkuð rólegu tempói í fyrri háfleik þar sem City var meira með boltann en Liverpool var liðið sem sótti mun meira og skapaði hættulegu færin. Fyrsta færið kom á 4.mínútu þegar Jose Enrique fékk boltann óvænt í dauðafæri og átti ágætt utanfótarskot sem $%##%$% Joe Hart varði, óþolandi markmaður með öllu og sá lang besti í Englandi á þessu tímabili.

Lið Man City inniheldur tvo af mínum uppáhalds leikmönnum í enska boltanum, Balotelli og Stefan Svavic, sá síðarnefndi var með í dag og einfaldaði það töluvert allann sóknarleik okkar manna án þess þó að við næðum að nýta það nægjanlega vel. Reyndar var Charlie Adam ljónheppinn á 18.mínútu að fá ekki dæmt á sig víti eftir að hann sparkaði Dzeko niður inni í teig en við sluppum með skrekkinn þar.

Á 31.mínútu skoruðu þó gestirnir og til að sýna hversu gegn gangi leiksins það mark var þá var það Nigel De Jong sem skoraði með mjög flottu skoti fyrir utan teig upp í markhornið, óverjandi fyrir Reina. Bölvaður grís reyndar hjá De Jong sem rann í skotinu sem sveif engu að síður svona glæsilega í markið.

Joe Hart reyndi einhverja sálfræði á Gerrard fyrir vítaspyrnuna, Gerrard svaraði (annað mark hans úr víti gegn Hart í þessari rimmu). - Lærdómur, ekki sálfræðistríð við Gerrard, hann vinnur.

Steven Gerrard var alltaf að fara vinna þennan leik og hann jafnaði metin af öryggi eftir vítaspyrnu sem dæmd var er Richards varði boltann með hendi innan teigs. Agger átti þrumuskot sem fór í Richards og þaðan í höndina á honum. Fyrir mér var þetta víti enda fór hann eins og markmaður í tæklinguna.

Staðan 1-1 í hálfleik og því verr og miður fór Savic útaf fyrir Aguero. Savic valdi kannski að fara til City í fyrrasumar en hann stóð sig engu að síður vel fyrir Liverpool í dag og hefði átt að fá meiri tíma í sóknarleiknum hjá okkur.

Seinni hálfleikur byrjaði vel og Liverpool var mun líklegri til að skora fyrstu 20.mínúturnar. Þá fór liðið aðeins að bakka og að manni fannst gefa eftir í pressunni og nánast um leið settu City menn annað mark. Kolorov braust upp kantinn og sendi þaðan fyrir mark Liverpool þar sem Agger steingleymdi sér í dekkningunni og Edin Dzeko gat ekki annað en potað boltanum í autt markið. 1-2 og útlitið ekki gott og danski miðvörðurinn brjálaður út í sjálfan sig.

Aftur svöruðu okkar menn frábærlega og rúmum fimm mínútum eftir mark City var Bellamy búinn að jafna með mjög góðu marki. Kuyt sem var mjög góður í dag fann Bellamy í teignum, þar sendi hann á Johnson og fékk boltann aftur áður en hann setti hann í netið framhjá Joe Hart. Persónulega var ég farinn að halda að Liverpool gæti ekki skorað fram hjá Hart úr „open play“ og datt með þvílíkum glæsibrag í stólum er ég reyndi að fagna markinu.

Staðan því 2-2 og 3-2 samanlagt og þannig náðu okkar menn að halda henni allt til loka og bóka ferð á Wembley þar sem við mætum Cardiff! Óneitanlega spurning um að færa þann leik bara aftur til Cardiff reyndar upp á ferðalög og svona, en pant ekki segja Steven Gerrard frá þessari hugmynd. Hann hefur aldrei spilað með Liverpool á Wembley (svo ég muni) og það er kominn tími til.

Aron Einar leikmaður Cardiff sagði á Twitter í gær að City væri óska mótherji í úrslitum og ég skil hann vel. Blessunarlega gekk það ekki eftir.

Flottur leikur hjá okkar mönnum og algjörlega frábær ef við miðum við síðustu leiki. Reyndar óþolandi að fá á sig 2 mörk eftir tvö skot á markið en liðið hafði karakter í það í dag að koma tvisvar til baka og það gegn moldríku Man City sem hefur verið í banastuði, það sýnir að það er ennþá karakter í þessu liði.

Maður leiksins: Það koma nokkrir til greina í dag. Martin Skrtel er að spila mjög vel allajafna á þessu tímabili og var mjög öflugur í dag. Gerrard fékk tvo með sér á miðjuna og þannig virkar hann best og Liverpool vann miðjubaráttuna í dag. Dirk Kuyt var að spila sinn besta leik í vetur og líktist sjálfum sér í dag. En minn maður leiksins er alltaf Craig Bellamy sem fékk standandi lófaklapp frá öllum viðstöddum er hann yfirgaf völlinn í dag. Hann hefur hraðann sem við verðum að fá meira af í okkar lið, hann var stöðugt ógnandi gestunum og það var hann sem kom okkur á endanum á Wembley.

Deildarbikarinn er ekki stærsti bikarinn í boltanum, en einhversstaðar verðum við að byrja og hefðir þú boðið mér þetta, bara einhvertíma á síðasta tímabili hefði ég tekið því.

Næst er það FA Cup og hitt (litla) liðið frá Manchester borg, bring it on.

Wembley er tilbúinn og hlakkar til að fá Liverpool

Bolton 3 Liverpool 1
Ja hérna. Hvað er að frétta eiginlega?!

Ég var svo hissa á þessu öllu saman eftir leik að ég ákvað að fá mér kvöldmat og svæfa dótturina áður en ég reyndi að finna einhvern flöt á þessu. Þetta var svo neyðarleg frammistaða hjá „Liverpool“ að ég veit varla hvar ég á að byrja. Bolton byrjuðu betur, voru komnir yfir eftir þrjár mínútur og voru skrefi á undan í nákvæmlega allt það sem eftir lifði leiks. Um það þarf ekkert að fjölyrða.

Þess í stað ætla ég að deila með ykkur niðurstöðum Stóra Dóms sem hefur tekið sér síðustu tólf mánuðina í að meta ákveðna hluti:

Við söknum Lucas Leiva alveg fáránlega mikið. Mikilvægasti leikmaður liðsins? Ég held það nú bara. Liðið lék miklu betur án Gerrard og með Lucas en það gerir í dag þegar þeir hafa svissað um hlutverk. Ég lýsi því yfir að allur efi um gildi Lucas Leiva í þessu liði er hér með bannfærður. Niðurstaða: Þið hafið ekki lengur leyfi til að efast um Lucas.

Að því sögðu, þá getum við með með fullri vissu horft á liðsuppstillingar Dalglish á köflum í vetur og spurt, einfaldlega: What the fuck?! Í síðustu tveimur leikjum hefur hann stillt upp 5-4-1 á heimavelli gegn Stoke og 4-4-2 gegn Bolton-liði með þriggja manna miðju, á útivelli. Uppskeran úr þeim leikjum? Heilt stig. Eitt. One. Uno. Að Dalglish skuli halda áfram að spila með tvo miðjumenn í fjarveru Lucas hefur bara gert illt verra. Það er eitt að missa Lucas og þurfa að biðja honum slakari leikmenn eins og Spearing eða Adam um að kóvera stöðuna hans. Það er allt annað að sleppa því bara alveg að fylla í þessa stöðu. Miðjan hjá okkur í kvöld var yfirspiluð af Nigel Reo-Coker, Fabrice Muamba og Mark Davies. Tveir þeirra skoruðu mörk með því að rölta upp MIÐJA MIÐJUNA, í gegnum flata varnarlínu og skjóta. Lucas, Mascherano … fjandinn sjálfur, Spearing hefði aldrei einu sinni leyft því að gerast. Niðurstaða: Dalglish er of villtur í taktík á milli leikja og skýtur sig fyrir vikið allt of oft í fótinn.

Þetta lið okkar er vonlaust sóknarlega. Þá er ég ekki bara að tala um nýja leikmenn heldur þá sem fyrir voru. Kuyt hefur enn ekki skorað í vetur, Maxi var fínn í mánuð í haust en hefur svo horfið og Gerrard átti góða innkomu úr meiðslum um jólin en hefur ekki sýnt rassgat í janúar. Bætið svo við skitunni hjá nýju sóknarmönnunum og þá er ekki hægt annað en að gagnrýna Dalglish fyrir þetta getuleysi. Það er hægt að skamma einn eða tvo leikmenn fyrir lélega spilamennsku en þegar einhverjir 6-7 sóknarmenn eru að eiga martraðatímabil verður að líta til knattspyrnustjórans og spyrja erfiðu spurninganna. Niðurstaða: Dalglish er ekki að ná því besta út úr sóknarmönnum okkar.

Þótt Dalglish sé gagnrýnisverður þá verðum við líka að bæta þessari augljósu niðurstöðu við: Andy Carroll og Stewart Downing eru ekki leikmenn í Liverpool-klassa. Carroll er ungur en þótt hægt sé að tala um bjarta framtíð ungra leikmanna verða þeir að sýna eitthvað sem vísar í þessa björtu framtíð. Jonjo Shelvey hefur staðið sig það vel að maður spáir bjartri framtíð. Martin Kelly, John Flanagan og Jack Robinson líka. Carroll? Hann hefur verið ógeðslega ömurlegur í öllum nema svona tveimur leikjum síðan hann kom til okkar fyrir ári síðan. Hann verður ekki afskrifaður strax, sökum aldurs, en hann er ekki rétti maðurinn í framlínuna hjá okkur núna og verður það kannski aldrei. Stewart Downing hefur hins vegar engar slíkar afsakanir. Hann er 27 ára, var keyptur því hann átti að bæta þetta lið strax og hefur bara ekki verið nálægt því einu sinni. Hans dagar eru taldir og þeim fer fækkandi.

Við verðum enn og aftur að horfa á Dalglish og Comolli og spyrja: er þetta innkaupastefnan? Eru þetta öll töfrabrögðin? Á árinu 2011 voru keyptir 9 leikmenn, þar af tveir sem við tölum ekki um núna, varamarkvörðinn Doni og hinn unga Coates. Hina sjö getum við dæmt eftir þetta ár og af þeim getum við bara sagt að þrír hafi staðið undir verði og væntingum: Suarez, Enrique og Bellamy. Carroll, Downing, Henderson og Adam hafa hins vegar engan veginn staðið undir væntingum. Henderson hefur verið þeirra skástur og á (vonandi) bjarta framtíð fyrir sér, á meðan Adam var langódýrastur þeirra og byrjaði tímabilið vel en hefur sópað sjálfum sér í ruslið eftir að Lucas meiddist. Um þá tvo leyfi ég mér að efast en er ekki reiðubúinn að fella neina Stóra Dóma strax. Ég er hins vegar tilbúinn með þessa niðurstöðu: Comolli og Dalglish verða að gera betur á leikmannamarkaðnum í framtíðinni. 72m punda í Carroll, Henderson og Downing og sóknin hjá liðinu hefur farið mörg skref afturábak frá því sem var í fyrra. Það er alls, alls, ALLS ekki nógu gott.

Og að lokum…

Niðurstaða Stóra Dóms: Aðeins kraftaverk á leikmannamarkaðnum næstu tíu dagana getur breytt þeirri (núverandi) augljósu staðreynd að þetta Liverpool-lið er aldrei að fara að ná Meistaradeildarsæti í vor!

Svo við súmmerum þetta upp í eina málsgrein: Dalglish þarf að hætta tilraunastarfsemi sem ringlar liðið og sætta sig við að 4-4-2 virkar ekki með þennan mannskap. Hann og Comolli fá bágt fyrir leikmannakaup ársins 2011 og verða að byrja strax á morgun að gera betur áður en illa fer. Meirihluti leikmannanna sem voru keyptir árið 2011 eru ekki í Liverpool-klassa og of margir af lykilmönnunum sem voru fyrir þurfa að axla ábyrgð á því að hafa brugðist liðinu í vetur. Við söknum Lucas Leiva og Luis Suarez óheyrilega mikið, sérstaklega þar sem breiddin er engin. Ef enginn sóknarmaður verður keyptir í janúar getum við gleymt Meistaradeildinni.

Dómi er slitið. Réttarvörður, handjárnaðu þá seku og leiddu þá afsíðis…

Það er kannski hægt að bæta því við að ég fékk SMS frá þremur mismunandi Liverpool-aðdáendum yfir leiknum í kvöld og þeir sögðu allir það sama: er ekki Rafa Benítez laus þessa dagana? Ekki skjóta sendiboðann.

Og alveg að blálokum skal það tekið fram að ekkert af því sem ég skrifaði hér að ofan gildir um Craig Bellamy. Hann er dásamlegur, maður leiksins enn og aftur í kvöld og hreinlega einn af okkar bestu mönnum í vetur, ef ekki sá besti.

Liverpool 0 – Stoke 0
Jæja, enn eitt ömurlega jafnteflið á Anfield staðreynd.

Dalglish stillti upp furðulegu liði.  Uppstilling, sem hefði verið skiljanleg á útivelli gegn Stoke, en varla á Anfield.  Mér leist ekki vel á þessa uppstillingu í byrjun leiks og því miður þá reyndist þetta vera jafn bitlaust og maður óttaðist.

Reina

Johnson – Coates – Carra – Skrtel – Enrique

Downing – Adam – Gerrard – Henderson

Kuyt

Bekkurinn:  Aurelio, Carroll, Doni, Shelvey, Kelly, Flanagan, Bellamy.

Það er óþarfi að skipta umfjölluninni á milli hálfleika, því þetta voru sömu leiðindin frá mínútu 1 til 90.  Stoke hafði aldrei í huga að reyna að vinna þennan leik.  Þeirra plan var að liggja gríðarlega aftarlega og vonast til að halda hreinu.  Vel skiljanleg leikaðferð hjá þessu hundleiðinlega liði.  Þetta áttu Liverpool að vita – ekkert við leik Stoke kom á óvart.

Liverpool liðið var með boltann nánast allan tímann, en náðu varla að skapa eitt færi í leiknum.  Ömurlega bitlaus sóknarleikur er enn og aftur staðreyndin og sæti í Meistaradeildinni verður með hverrum leiknum fjarlægari draumur.

Eina góða við þennan leik er að nú styttist í að Suarez komi tilbaka.

Ég nenni ekki að velja mann leiksins.  Varnarlínan og Reina þurftu ekki að gera neitt – ætli Johnson hafi ekki verið okkar besti maður.  En enn og aftur voru það sömu menn og alltaf sem voru að bregðast.  Downing, Carroll og Kuyt þurfa að gefa okkur allavegana eina ástæðu fyrir því af hverju þeir ættu að teljast í Liverpool klassa.  Aðallega þeir tveir fyrrnefndu.  Þeir eru ekki bara lélegir, heldur virðist þeim vera nokk sama um það.

Þetta er sama sagan og í allan vetur.  Fyrir áramót var þetta lið á tímum að spila stórkostlegan fótbolta og óheppnin elti okkur og olli því að við náðum ekki að vinna þá leiki sem við dómieruðum.  En síðustu vikur höfum við æ oftar séð leiki þar sem liðið spilar það illa að það á ekki skilið neitt.  Þetta var einn af þeim leikjum.  Sóknarleikur okkar manna var einfaldlega ömurlegur.  Vörnin bar upp boltann trekk í trekk, svo var reynt að koma boltanum útá kant þar sem að kom léleg sending fyrir, sem Stoke hreinsaði burt inná okkar vallarhelming þar sem að okkar vörn bar upp boltann og svo framvegis ad infinitum.

Við höfum núna leikið 11 leiki á Anfield.  Unnið fjóra, engum tapað en gert SJÖ jafntefli.  Við erum núna 5 stigum frá fjórða sætinu þar sem Chelsea er.

Ég reyni oftast að finna eitthvað jákvætt í þeim leikskýrslum sem ég skrifa en það er afskaplega erfitt að finna eitthvað jákvætt eftir þennan leik í dag.  Það er nóg eftir og allt það, en núna þurfum við að vinna upp 5 stig á Chelsea og allt að 4 stig á Arsenal.  Okkar menn hafa núna skorað 24 mörk í 21 leik.  Já, þið lásuð þetta rétt.  Það er 1,14 mark í leik.  Í fyrra var þetta hlutfall 1,55 mörk og á fyrir þrem árum var þetta hlutfall 2,02 mörk í hverjum leik.  Og það var undir stjórn Rafa Benitez, sem allir vita að var ómögulegur og varnarsinnaður þjálfari.  Meira að segja á síðasta hörmungartímabili Rafa var hlutfallið 1,6.  Á síðasta tímabili Houllier þar sem ég var að tryllast úr pirringi yfir ömurlegum bolta var hlutfallið 1,44 – með Emile Heskey sem fremsta mann.  Þegar að Kenny Dalglish vann síðast titil með Blackburn þá var hlutfallið 2,10.

Þetta lið GETUR EKKI SKORAÐ MÖRK!  Kenny Dalglish keypti til okkar í fyrra dýrasta leikmann í sögu Liverpool Andy Carroll á 35 milljónir punda.  Þrátt fyrir að ég hafi varið Carroll og sé ekki enn tilbúinn að gefast upp á honum þá verður hann að fara að sýna eitthvað.  Hann virkar áhugalaus, kraftlaus og er nánast aldrei líklegur að skora.  Ég gæti þulið upp ansi langan lista af leikmönnum sem ég myndi frekar vilja sjá inná fyrir Liverpool en Andy Carroll.  Í sumar keypti Dalglish menn einsog Downing og Henderson til að búa til mörk fyrir liðið.  Það hefur þeim mistekist fullkomlega.  Ég myndi án nokkurs efa velja Downing sem verstu vonbrigði þessa tímabils.  Hann er 27 ára gamall – ætti að vera á toppi síns ferils.  Hann hefur verið áskrifandi að plássi í þessu Liverpool liði.  Og hann hefur brugðist í hvert einasta skipti.

Ef Andy Carroll og félagar sýna ekki eitthvað og halda samt áfram að fá tækifæri þá er ekki bara ferill þeirra í hættu hjá Liverpool heldur líka ferill Kenny Dalglish.

Ég hef séð nógu marga frábæra leiki hjá þessu Liverpool liði í vetur til að sannfærast um að Dalglish er ennþá frábær þjálfari.  En sóknarleikur liðsins er að versna, ekki batna.  Þetta verður Dalglish að laga.  Annars fer ég að sakna Rafa Benitez meira en góðu hófi gegnir.

Man City 0 – Liverpool 1
Svo komum við aftur á Etihad, gaman verður að sjá hverning kóngurinn og þjálfarateymið bregðast við því.

Svona endaði ég leikskýrslu frá Etihad stadium núna fyrir nokkrum dögum, eftir 0-3 tap fyrir fjármálajöfrunum í City.  Það var svo í kvöld sem við fengum svarið við þessari spurningu og það svar var gleðilegt. MJÖG

Kóngurinn kom allavega mér á óvart með uppstillingunni:

Reina

Kelly – Skrtel – Agger – Johnson

Downing – Gerrard – Spearing – Henderson – Bellamy

Carroll

Á bekknum: Doni, Enrique, Coates, Kuyt, Carragher, Shelvey, Adam.

Johnson í vinstri bak og í raun vorum við kannski að spila 4-4-1-1 með Gerrard og Spearing aftan við Henderson.

Byrjun okkar manna var svakaleg svo ekki verði meira sagt.  Á fyrstu 11 mínútunum varði Joe Hart hrikalega vel frá Carroll, Gerrard og Downing og sýndi mér enn það sem hefur leitt til þess að mér finnst hann besti markmaður deildarinnar núna í vetur.  En það hlaut bara eitthvað að láta undan og á 13.mínútu kom eina mark leiksins.

Uppúr horni fintaði Agger sig framhjá varnarmanni og var að verða kominn í skotstöðu þegar Stefan nokkur Savic kom og straujaði Danann niður, klárt víti. Fínt hjá Savic sem við reyndum að kaupa í sumar!

Fyrir nokkrum vikum hefði maður bara lokað augunum þegar við fáum víti, en það var allan daginn ljóst að Captain Fantastic var með allt á hreinu.  Tók boltann – horfði beint í augun á Hart og klíndi boltanum óverjandi í markhornið niðri hægra megin við keeperinn.  Einhvern tíma heyrði ég að það væri öruggasti staðurinn að skjóta í. Kemur út frá þeirri lógík að fæstir markmenn eru örvfættir og því verra að spyrna sér upp af vinstri fæti.  Nóg um þá “useless” vitneskju, 0-1 og auðvitað var það Steven Gerrard sen leiddi sitt lið.

Næstu 30 mínúturnar stjórnuðum við þessum leik, án þess þó að skapa okkur mikið.  Bellamy, Downing, Henderson og Carroll gríðarlega duglegir í pressunni og flestar sóknartilraunir City enduðu í löngum bolta sem við átum, eða fóru útaf.  Reyndar urðum við að breyta uppstillingu um miðjan hálfleikinn þegar Spearing fór útaf og Adam kom í hans stað.  Balotelli fór sömu leið fyrir City, augljóslega ekki tilbúinn í leikinn, einfaldlega enn meiddur.

City átti sitt fyrsta skot á 43.mínútu en Reina varði það vel og staðan sú sama í hálfleik.

Seinni hálfleikurinn hófst með mikilli pressu City og eftir 15 mínútur ákváð þjálfarateymið að draga úr sóknarvinnu liðsins og skipti um leikmann og taktík.  Downing fór út fyrir Enrique og þegar allar skipanir voru ljósar leit liðið svona út:

Reina

Johnson – Kelly – Skrtel – Agger – Enrique

Henderson – Gerrard – Adam – Bellamy

Carroll

Einfaldar skipanir, níu menn fyrir aftan boltann þegar við verjumst, senda langan bolta á Carroll til að halda eða flikka áfram. Leyfa City að vera með boltann.  Þetta kerfi virkaði fínt lengstum en þegar um kortér var eftir fannst mér heimamenn vera orðnir líklegri, fóru mikið á Enrique sem átti í erfiðleikum þar sem Bellamy var orðinn þreyttur og Spánverjinn lenti því oft einn gegn tveimur.  “Step in Carra lad” var skipunin, Bellamy út.  Fyrst stilltum við þessu upp sem hreinum skiptum en í lokin var Carra kominn framan við hafsentana og Henderson, Gerrard og Adam sáu um að loka á kantana.

Skemmst frá því að segja skapaði City aldrei hættu þrátt fyrir pressu sína, ekki síst þar sem við átum alla skallabolta í teignum og það var í rauninni bara einu sinni sem Reina þurfti að hafa fyrir því að halda hreinu.  0-1 sigur og allt í einu hefði maður bara viljað að viðureignin kláraðist í kvöld.

Þessi leikur var eins og svart og hvítt miðað við síðast.  Mitt mat er það að það hafi ráðist fyrst og fremst út af því að okkar plan gekk upp.  Í stað þess að sitja til baka eins og í deildarleiknum, byrjuðum við á hápressu sem skilaði marki.  Svoleiðis kláruðum við fyrri hálfleikinn, sem var algerlega frábær.  Horfði á leikinn hjá BBC og í hálfleik töluðu Shearer, Hansen og Dixon allir um frábært leikskipulag okkar manna.

Mér finnst svo vendipunkturinn á að við klárum verkefnið svo glæsilega vera viðbrögð okkar manna á bekknum þegar City fór að koma með yfirtölu fram á við.  Ég hrökk alveg við fyrstu mínúturnar þegar verið var að stilla upp fimm manna vörninni, en eftir smástund þegar menn komu sér í fókus vorum við bara með leikinn.  Svo þegar hættan kom frá hægri væng City var ekkert beðið og bara brugðist við.  Eftir þetta kvöld er ég handviss.  Mourinho átti ekki mestan þáttinn í ógnarlegum varnarleik Chelsea, heldur Steve nokkur Clarke.

Fyrir gamlan markmann var stórkostlegt að sjá agann, yfirvegunina og skipulagið í varnarleiknum sem skilaði sér í vonleysi heimamanna, langskotum og almennum pirringi.  Liðið okkar sýndi það í kvöld að það er til í að berjast fyrir úrslitum og það að hafa unnið á Etihad er enn einn gríðarlegi áfanginn fyrir okkar hóp í uppbyggingu sjálfstrausts og sigurvilja.

Ef ég gæti valið þjálfaraliðið mann leiksins gerði ég það, og í öðru sæti liðsheildina sem var frábær.  Allir 14 leikmennirnir sem þarna komu við sögu fylgdu plani og lögðu sig 100% í leikinn.  En það er í mínum huga bara einn sem hægt væri að pikka út.  Steven Gerrard hélt áfram að minna okkur á hversu mikið við höfum saknað hans í vetur.  Það var ekkert hik í vítinu, hann sást oft vera að garga menn til og frá, leiðtogi þessa liðs og sá sem horft er til.  Var orðinn ÖRÞREYTTUR í lokin en skilaði sínum mönnum í höfn.

He’s big and he’s f***ing hard – Steve Gerrard

Þessi viðureign er alls ekki búinn, við eigum seinni leikinn eftir á Anfield og það er í SVAKALEGRI viku þar sem við spilum við Tottenham helgina á undan(rugl á mér) United helgina á eftir, feita konan er alls ekki farin að syngja.

En við skulum pæla í því síðar og gleðjast yfir FRÁBÆRUM úrslitum, sem ég satt að segja þorði alls ekki að reikna með!

Liverpool 5 – Oldham 1
Jæja, okkar menn mættu Oldham í bikarnum á Anfield og eftir dálítið brösuga byrjun þá var niðurstaðan öruggur sigur og meira að segja Andy Carroll og STEWART DOWNING skoruðu.  Það er ekki hægt annað en að vera glaður eftir þennan leik.

Kenny stillti upp sterku liði:

Reina

Kelly – Carragher – Coates – Aurelio

Maxi – Gerrard – Spearing – Shelvey

Bellamy – Kuyt

Á bekknum: Doni, Carroll, Henderson, Downing, Adam, Skrtel, Flanagan

Þetta byrjaði frekar brösulega og Oldham menn voru sterkir, einsog mátti svosem alveg búast við enda allir að spila stærsta leik lífs síns.  Þeir sköpuðu sér nokkur fín færi og eftir um hálftíma komust þeir yfir með glæsilegu marki.

Þetta kveikti í Liverpool liðinu og mínútu síðar jöfnuðu þeir með marki frá Craig Bellamy, sem skallaði í markið eftir skot frá Jonjo Shelvey.

Stuttu fyrir leikhlé fengum við svo vítaspyrnu þegar að brotið var á Maxi.  Þar sem við erum með svona 20% vítanýtingu var ég ekkert að missa mig af fögnuði, en Steven Gerrard sýndi samherjum sínum hvernig á að klára víti og staðan því 2-1 í hálfleik.

Í seinni hálfleik var sigurinn svo sem aldrei í hættu.  Jonjo Shelvey skoraði sitt fyrsta mark fyrir klúbbinn, sem var mjög ánægjulegt enda áttu hann og Gerrard fínan leik.  Dalglish skipti svo Aurelio (ekki meiddum!) fyrir Flanagan og síðar Downing fyrir Bellamy og Carroll fyrir Kuyt.

Og á síðustu mínútunum skoruðu okkar menn tvö mörk, sem glöddu mig gríðarlega.  Fyrst skoraði Andy Carroll frábært mark og var svo næstum því búinn að skora annað mark eftir sendingu frá Stewart Downing.  En á síðustu sekúndunum náði Stewart Downing svo loksins loksins loksins að skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool.  Frábærar fréttir fyrir Downing og auðvitað Liverpool.

En semsagt, fínn og jákvæður sigur á liði Oldham.  Frábært fyrir Carroll, Shelvey og Downing að skora mörk í kvöld.  Við getum ekki beðið um meira.

Man. City 3 – Liverpool 0
Efsta liðið mótherjinn, á erfiðum útivelli.  Síðasti leikurinn í löngu jólaprógrammi og því hægt að segja með sanni að viðfangsefni kvöldsins hafi verið fullorðins.

Í kjölfar frétta um það að Suarez er farinn í bann kom byrjunarliðið kannski ekki svo mjög á óvart, kóngurinn skellti þessu hér upp:

Reina

Johnson – Skrtel – Agger – Enrique

Kuyt – Henderson – Adam – Spearing – Downing

Carroll

Bekkur: Doni, Gerrard, Maxi, Carragher, Shelvey, Kelly, Bellamy.

Ákvað semsagt að standast freistinguna með að spila Gerrard, bara nákvæmlega sama upplegg og á Anfield, byrja passívt og aftarlega á vellinum og síðan vinna sig inn í leikinn þegar á leið.  Leit vel út, Downing átti auðvitað að skora eftir flotta vinnu Carroll og Henderson en þó eigum við ekki að taka það af Joe Hart, besta markmanninum í enska boltanum að mínu mati, að hann varði færið afar vel.

Talandi um markmenn þá er okkar að eiga sinn slakasta vetur frá því hann kom.  Eins mikið og ég elska Pepe Reina hljóta menn bráðum að fara að hafa áhyggjur af honum.  Ég ætla ekki að taka það af Dirk Kuyt að hann tók ömurlega ákvörðun og tapaði boltanum en skot Kun Aguero var æfingabolti af verstu sort, en Pepe missti þann bolta undir sig á skelfilegan máta og City komnir yfir, 1-0 eftir 10 mínútur.  Að mínu mati átti Pepe að koma í veg fyrir sigurmark Fulham og mörk Blackburn og Newcastle nýlega.  Með þessum mistökum sinum braut hann uppleggið í leiknum klárlega.

En frá mínútu 15 – 30 sýndu okkar menn afskaplega yfirvegaðan og góðan leik, allt þar til City skoraði mark númer 2.  Martin Skrtel leit út eins og barn þegar Kompany fékk frían skalla sem Reina varði vel í horn, upp úr því var allt í einu Glen Johnson farinn að dekka Yaya Toure, útkoman annað mark City, 2-0.  Ég heimta það að á æfingasvæðinu fari menn yfir hornspyrnur á næstu dögum.  Við erum í stanslausum vanda í þeim aðstæðum og það er hróplega vitlaust að hugsa til þess að menn voru tilbúnir að baula á svæðisdekkun Rafa á sínum tíma.  Maður á mann dekkun okkar í undanförnum leikjum er einfaldlega arfaléleg og því þarf að kippa í liðinn.

City liðið virkaði á mig mjög þreytt og við fengum að stjórna leiknum.  Á 74.mínútu fékk Gareth Barry svo rautt spjald, Gerrard og Bellamy komnir inná og maður öðlaðist von í 40 sekúndur.  Þar til við gerðum aulamistök upp úr aukaspyrnunni, Yaya Toure óð upp völlinn og greip tækifærið um leið og Martin Skrtel gerði mistök í að gefa færi á víti.  Milner skoraði úr vítinu, 3-0 og game over.

Þessi leikur hrópar á sömu staðreyndir og margir á undan.  Liðið er að verða fínt í að verjast pressu og heldur boltanum vel innan liðsins.  Við erum hins vegar ekki með mikið sjálfstraust, markmaðurinn okkar á erfitt og við erum lélegir í að verjast föstum leikatriðum.  Sóknarlega erum við grátlega daprir inni á lokaþriðjungnum.  Trekk í trekk snúa menn til baka eða eiga lélegar sendingar sem stoppa á fyrsta varnarmanni.  Það er ekki lengur hægt að tala um óheppni, það vantar einfaldlega gæði til að brjóta upp leikinn á þessu svæði, vissulega lagaðist það með innkomu Gerrard og Bellamy en mitt mat er að í janúar þurfum við að styrkja þann þátt liðsins með nýjum leikmanni.

En hins vegar lít ég ekki framhjá því að á löngum köflum leit liðið vel út með boltann og það ber að gleðjast.  Fleira jákvætt?  Klárlega frammistaða Andy Carroll sem var annar tveggja bestu mannanna okkar í kvöld, hann hlýtur hins vegar að hafa verið hundsvekktur með framlag samherjanna sem alltof oft höfðu ekki kjark í að koma framar á völlinn til að styðja hann í sinni vinnu.

Liðið okkar virkaði samt þreytt.  Hægri kanturinn var ÖMURLEGUR þann tíma sem Kuyt var inná.  Þessi geðugi drengur hefur algerlega horfið heillum í haust, ekki bara sóknarlega heldur er hann líka að missa það varnarlega.  Johnson átti líka afar slakan dag, fékk svona 15 sénsa til að senda boltann inní en gekk það illa.  Skrtel fannst mér alveg hundslakur, hann réð ekkert við Dzeko og það var að mínu viti Agger að þakka að ekki fór verr þar.  Agger var hinn leikmaðurinn sem getur verið glaður með frammistöðuna í kvöld, Enrique átti oft erfitt uppdráttar en þó var vinstri kanturinn miklu líflegri en sá hægri.  City hins vegar las það fljótlega og yfirdekkaði það út í eitt – sökum geldrar hugsunar hægra megin gekk það upp.

Miðjan okkar var eins og liðið, fín framm á lokaþriðjunginn.  Henderson var þar manna frískastur en það er alveg ljóst mál að bæði Spearing og Adam voru lykilmenn í því að hægja á okkur fram á við.  Ég hef sérstaklega áhyggjur af Charlie Adam – sá hann úti á Anfield með berum augum gegn QPR og þar leist mér mjög vel á hann.  Eiginlega frá þeim tíma hefur hann verið á hraðri niðurleið, kannski er það í tengingu við þreytuna í kringum sig.  En hann þarf að stíga upp!  Spearing var ekki slakur karlanginn, en mér fannst þarna svo augljóst að sjá hvað við söknum Lucasar okkar Leiva.  Hann PAKKAÐI Yaya Toure saman á Anfield, þarna fannst mér Toure geta gert það sem honum sýndist, ekki síst sökum þess að Spearing átti ekkert í hann.

Er áður búinn að skammast í Kuyt vini mínum sem var að mínu mati slakastur í byrjunarliðinu í kvöld, feilsending eftir feilsendingu og döpur varnarvinna.  Downing átti auðvitað að skora en mér fannst mesta hættan koma þegar hann kom á ferðinni á vinstri fótinn sinn.  Um leið og hann var settur á hægri með döprum Johnson dó hann.

Andy Carroll er stöðugt að verða sterkari í fótbolta – hversu langt sem það mun duga honum.  Hann lagði upp færi fyrir félaga sína og er mun betri í að halda boltanum uppi en hann áður var.  Gerrard og Bellamy komu ferskir inná og eru nákvæmlega týpur sem við þurfum.  Maxi heillaði mig ekki þann tíma sem hann var inná.

Enn einn leikurinn þar sem við erum meira með boltann og eigum miklu fleiri skot en andstæðingurinn, Carroll og Agger bestir.

Samantektin?

Við þurfum meiri gæði á sóknarþriðjungnum.  Ég treysti því að Comolli sé á fullri ferð að reyna að finna demant í janúar, en það er auðvitað erfitt.  Miðjan og sóknin í byrjunarliðinu okkar í kvöld var búin að skora 5 mörk samtals í vetur.  Þrátt fyrir að þar fari margur fínn fótboltamaðurinn en við þurfum að styrkjast á sóknarþriðjungnum.

Næst er það Oldham á Anfield næstkomandi föstudagskvöld, sem við einfaldlega skulum ekkert vanmeta en verðum að vinna.

Svo komum við aftur á Etihad, gaman verður að sjá hverning kóngurinn og þjálfarateymið bregðast við því.

Liverpool 3 – Newcastle 1
Okkar drengir í alrauða búningnum frá Merseyside léku þriðja leik sinn í jólatörninni í kvöld, mótherjarnir komu úr Norð-austrinu, heimaborg Andy nokkurs Carroll.  Já Newcastle United voru mótherjarnir fyrir framan pakkaðan Anfield í fínu formi.

Dalglish kom einhverjum á óvart, allavega mér, með því að setja Spearing inn í liðið á kostnað Maxi, en Bellamy nokkur var settur í framlínuna í stað Suarez sem við sjáum ekki um sinn, nema að LFC áfrýji banni hans.  Mér skilst að þá fái hann að spila gegn City en fari svo í bannið sitt.

Semsagt, byrjunarlið kóngsins var:

Reina

Johnson – Skrtel – Agger – Enrique

Downing – Adam – Spearing – Henderson

Carroll – Bellamy

Á bekknum: Doni, Maxi, Kuyt, Gerrard, Carragher, Shelvey, Kelly.

Fínt lið, sama varnarlína hugsuð en Spearing átti að sópa og hleypa Adam framar. Downing settur á “öfugan” kant til að tékka sig inn í skot.  Fyrri hálfleikurinn var ekki vel leikinn.  Þessir jólaleikir verða ansi oft frekar þreyttir, lágt tempó og liðin að reyna að spila mjög taktískt. Við vorum meira með boltann en sköpuðum ansi lítið fram á við.  Sendingahlutfallið aðeins 75% og enn minna á sóknarþriðjungnum.  Eina lífið var þegar Bellamy og Downing náðu að spinna sig framhjá mönnum en þá vantaði yfirleitt að teigurinn væri fylltur af okkar mönnum.

Fyrsta mark leiksins kom hins vegar upp úr fyrstu sendingu gestanna inn í teiginn.  Martin Skrtel lét teyma sig út úr stöðu sem þýddi að Glen Johnson sat uppi með að dekka Demba Ba þegar sending kom inn í teiginn, boltinn flaug þá yfir þá báða en hrökk af Agger sem var fastur á hælunum framhjá Reina, sem mér fannst eiga að gera betur.  0-1 eftir 25 mínútur.  Og maður hugsaði; “Here we go again”!

En fjórum mínútum síðar jöfnuðum við.  José Enrique átti þá djúpa sendingu sem rataði á Charlie Adam. Hann tékkaði sig framhjá varnarmönnum og dúndraði inn í markteiginn, boltinn hrökk af varnarmanni út á vítapunktinn þar sem Craig Bellamy afgreiddi hann snyrtilega af miklum krafti í fjærhorn.  1-1 og ákveðnu fargi létt af liðinu hélt ég.  Stuttu seinna skallaði Skrtel boltann framhjá, Downing fór illa með Gutierrez og fiskaði á hann spjald, en svo fjaraði leikurinn út.  Fram að hálfleik gerðist ákaflega lítið og staðan eftir 45 því jöfn.

Fyrstu 15 mínútur síðari hálfleiks gerðu svo Newcastle heiðarlega tilraun til að svæfa leikinn, og var alveg að takast það.  Fóru ekki endilega í sókn en héldu boltanum innan síns liðs út í eitt.  Okkar menn náðu litlum tökum á leiknum og þetta var farið að verða gamalkunnugt handrit.

En þá……

Captain Fantastic klæddi sig úr gallanum á 58.mínútu, fékk leiðbeiningar frá Dalglish og inná.  Kop-stúkan trylltist!  Leikkerfinu strax breytt í 4-4-1-1 þar sem Bellamy fór út á kant, Henderson inn á miðjuna með Spearing og Gerrard í frjálst hlutverk milli miðju og sóknar.  Það hefði átt að bera ávöxt strax á 64.mínútu þegar #8 sendi magnaða sendingu á Carroll sem kláraði það vandræðalega illa, hefði auðvitað bara átt að plaffa í fyrsta beint á markið, en mikið var gaman að sjá fyrirliðann finna strákinn strax – það mun hjálpa honum í framhaldinu.

Liðið fór í allt annan gír og á 67.mínútu komumst við yfir.  Agger átti flott hlaup sem endaði með því að hann fékk aukaspyrnu sirka 30 metra frá markinu. Rétt um það sem Bellamy tók sitt fyrsta skref í tilhlaupinu ákvað einn snillingurinn í gestaliðinu að bakka oní markmanninn sinn, Carroll fylgdi því strax og að lokum hljóp þessi ágæti varnarmaður inn í markmanninn sinn sem þýddi það að skot Walesverjans fór inn.  Takk fyrir það – staðan orðin 2-1 og allt í einu breyta í handritinu.

Stuttu seinna hefðu Newcastle svo getað jafnað.  Daniel Agger var í svefnpokanum þá aftur, missti Demba Ba og boltann framhjá sér, Demba chippaði boltanum yfir Reina en Skrtel kvittaði út mistökin sín í fyrri hálfleik með STÓRKOSTLEGRI björgun á línu. Strákurinn er þvílíkt vaxandi að hálfa væri hellingur, þessi björgun hans var marks virði!!!

Áfram hélt fjörið, við höldum áfram að vinna keppnina í að skjóta í markrammann, ógnvænleg sending Gerrard á Carroll fór af enni stráksins og braut næstum þverslána á mínútu 73 en á mínútu 78 var leikurinn kláraður og svei mér þá – þarna var komið nýtt handrit!

Flott hreyfing inn á sóknarþriðjungnum endaði með klókri sendingu frá Henderson í gegnum vörnina þar sem prinsinn Steven Gerrard stakk sér í gegn og klobbaði Tim Krul með vinstri.  Allt trylltist á vellinum, Gerrard hljóp og gaf kóngnum high-five, staðan orðin 3-1 og allt annar andi á ferðinni.

Það sem eftir lifði vorum við nær því að bæta við því fjórða en það varð ekki.  Öruggur sigur, 3-1, í þreyttum leik en frábær endir á árinu!  Já, sennilega átti Cabaye að fá rautt og jafnvel átti Bellamy að fá víti, en við eigum það bara inni.

Frammistaða liðsins var sveiflukennd, mikið um sendingarfeila og við vorum ekki eins mikið með boltann og í undanförnum leikjum.  Sendingahlutfallið lægra og færri skot.  Í 60 mínútur var ansi mikið líkt því að gerast og við höfum séð á Anfield í vetur.  Vörnin í kvöld var veikari en áður, mark Newcastle var lélegt og Agger leit vandræðalega illa út þegar Skrtel bjargaði honum.  Bakverðirnir tóku rispur en sáust lítið á milli, þó var Enrique mjög sterkur síðasta kortérið, virðist þindarlaus.

Miðjan átti erfitt þangað til fyrirliðinn mætti.  Downing var þar langbestur, hann fékk ekki stoðsendingar eða mark, en hann fiskaði örugglega 10 aukaspyrnur og skapaði færi með hraða sínum.  Carroll gerði hroðalega í besta færi sínu, en var virkilega óheppinn enn á ný með þverslárskallanum og hann náði oftar en áður að senda boltann af sér.  Eftir að Gerrard kom inná var honum bara stillt uppi á topp og þar á hann að vera.

Steven Gerrard. Megi hann lengi lifa. Einhverjir bullmiðlar hafa verið að reyna að tala um að hans ferli sem toppleikmanni sé að ljúka, hann sé “önnur týpa” af leikmanni en þeir margir sem hafa spilað langt fram á fertugsaldur.  ÞVÍLÍKT UTTER NONSENSE!!!!  Í kvöld sjáum við mun á því þegar lið af heimsklassagæðum spilar.  Newcastle réð ekkert við hann og hann gaf öllum vellinum og liðinu nýja trú.

Ég hef haldið því fram um sinn og verð alltaf sannfærðari um það að Kenny Dalglish ætlar að teikna liðið okkar í kringum Captain Fantastic, umræða um leikkerfi hingað til kannski þá óþörf, það að Gerrard rúlli laus og fái að skapa að vild verður það sem verður sett á teikniborðið og við munum sjá þetta hægt og rólega verða til.  Fá annan svona leikmann takk og við sjáum annan veruleika.  Ég táraðist þegar hann skoraði og hlakka GRÍÐARLEGA til þegar hann verður kominn í form fyrir 90 mínútur.

Að því sögðu þá vel ég hann ekki mann leiksins, heldur annan snilling sem sumar mannvitsbrekkurnar töldu hafa lokið ferlinum þegar Roberto Mancini lét hann fara.  Craig Bellamy er ekki 90 mínútna maður mörgum sinnum í viku lengur, en í kvöld var hann á fullri ferð í 70 mínútur, til stöðugra vandræða fyrir sínum fyrri félaga og mörkin hans í kvöld breyttu öllu.  Það er því welski snillingurinn Bellamy sem fær mann leiksins, en Gerrard í öðru sæti.

Næst er alvöru próf, fyrsti þáttur þríleiksins gegn Manchester City.  Það verður skemmtilegt!

Gleðilegt nýtt Liverpoolár öll – mitt glas í kvöld er meira en hálffullt, við erum á réttri leið…

Liverpool – Blackburn – 1-1
Líklega myndi ég ekki tjá mig um þennan leik strax ef ég ætti ekki skýrslu í dag, mikið djöfull er það einfaldlega lélegt að klára ekki þetta ákaflega vængbrotna Blackburn lið og það segir mikið meira en margt um vandamál okkar manna. Allt of margir leikmenn eru að spila langt undir getu og án sjálfstrausts og það sást enn eina ferðina í dag er við töpuðum tveimur stigum því það getur ekki talist annað en skandall að ná ekki í öll þrjú stigin í dag.

Ekki misskilja mig samt, Liverpool var mikið betra en Blackburn í dag, áttum að fá víti og markvörður þeirra var að spila sinn besta leik fyrir sína menn, reyndar sinn fyrsta líka.

Byrjunarliðið í dag var svona:

Reina

Johnson – Skrtel – Agger – Enrique

Maxi – Henderson – Adam -Downing

Carroll – Suarez

Bekkur: Gerrard, Kuyt, Carragher, Doni, Shelvey, Kelly, Bellamy.

Hér er einn partur af vandamálinu að mínu mati, leikkerfið 4-4-2 er löngu hætt að vera hip og kúl og hefur ekkert gert fyrir Liverpool F.C. Hvorki á þessu tímabili frekar en því síðasta. Við höfum ekki tapað á Anfield í ár, níu leikir án ósigurs, en þetta eru 3 sigrar og 6 jafntefli!! Þetta verður svo bara verra þegar skoðað er við hverja við höfum verið að gera jafntefli.

Leikurinn í dag var bara copy/paste af meirihluta leikja Liverpool í vetur, sóknarmennirnir eru bara einfaldlega ekki að vinna vinnuna sína almennilega og nákvæmlega ekkert fellur með liðinu.

Jólasteikin hefur eitthvað farið vel í okkar menn í gær því þeir komust aldrei úr 2.gír í fyrri hálfleik. Blackburn var með Mark Bunn í markinu í fyrsta skipti, 17 ára pjakk í bakverðinum gegn Downing og fleiri leikmenn sem eru vanalega ekki einu sinni byrjunarliðsmenn í botnliði Blackburn. Ofan á það meiddust Hoilett og Dunn í dag og samt gátum við ekki klárað þetta lið. Það er bara hreint út sagt lélegt.

Eftir hálftímaleik var Liverpool búið að skjóta ca 8 sinnum á markið og bara einu sinni hitt það og Andy Carroll sem fékk stóra sénsinn í dag var búinn að koma u.þ.b. tvisvar við boltann. Á 32.mínútu voru gestirnir reyndar mjög heppnir að fá ekki dæmt á sig víti (ekki að það hjálpi okkur mikið) er Maxi var dæmdur rangstæður rétt eftir að Bunn hafði brotið á honum innan teigs. Sjónvarpstæknin gerði okkur kleyft að sjá að þetta var rangur dómur en svonalagað gerist í fótboltanum og það getur ekki komið stuðningsmönnum Liverpool á óvart lengur.  Eftir þetta héldu yfirburðir okkar manna áfram þó liðið væri bara á hálfum hraða allt þar til á 45.mínútu að Agger var eitthvað að gaufa með boltann með Yakubu í bakinu og endaði á því að gefa hornspyrnu. Charlie Adam toppaði sinn fyrri hálfleik svo með því að setja boltann glæsilega í eigið mark úr þessari hornspyrnu og var þetta alveg til að toppa alltsaman enda Blackburn varla farið yfir miðju  í leiknum. Staða sem við þekkjum of vel.

Okkar menn komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og lofuðu eins og svo oft áður góðu. Pressan jókst jafnt og þétt þar til Maxi skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir sendingu frá Martin Skrtel af öllum mönnum. 1-1 og feikinóg eftir til að klára þennan leik og vel það.

En nei okkar menn bara geta ekki klárað færin sín og þessi leikur var engin undantekning á því. Mark Bunn átti stórleik eftir að hann fékk markið á sig og vann þetta stig á lokamínútu uppbótartíma með einni af markvörslum ársins eftir skot frá Carroll sem var auðvitað í dauðafæri.

Lokatölur í dag 1-1 og það jákvæða við það er að líklega bara geta stjórnarmenn FSG ásamt Dalglish og co ekki annað en séð þörfina á nýju blóði í sóknarleikinn núna strax í janúar.

Það er búið að laga vörnina og hún er góð. Þetta var níundi leikurinn í röð sem við byrjum með Reina – Enrique – Agger – Skrtel – Johnson og þeir eru að standa sig mjög vel heilt yfir. Það er ekkert hægt að gera við marki eins og við fengum á okkur í dag og því lítið hægt að kvarta yfir varnarleiknum sem reyndar hafði mjög lítið að gera í dag. Reyndar fannst mér Enrique eiga afspyrnuslæman dag og er ég þá aðallega að meina sóknarlega. Það tókst lítið af því sem hann var að reyna og skotin hans voru aldrei hættuleg. Johnson var skárri og báðir náðu reyndar aðkoma vel upp vænginn og opna vörn gestanna vel en fyrirgjafirnar skiluðu engu.

Á miðjunni erum við í vandræðum, ég trúi ekki á þetta 4-4-2 kerfi og held að það láti þessa miðjumenn okkar líta illa út oft á tíðum. Adam var ekki góður í dag og var eðlilega skipt útaf fyrir Gerrard sem var mikið betri. Sjálfur hefði ég samt viljað Gerrard inná í frjálsara hlutverk á kostnað Carroll. Gerrard er mun villtari en Adam og betri miðja hefði jafnvel getað refsað okkur fyrir plássið sem Gerrard skildi eftir er hann kom inná.

Downing er síðan fyrir það fyrsta alls ekki nálægt því að vera hægri kantmaður, þetta er svipað og að láta John Arne Riise spila hægri bakvörð því þeir eru svipað einfættir. Hann átti marga spretti upp og fékk nánast fría flugbraut með þennan óreynda bakvörð á móti sér en þar sem hægri fóturinn á honum er forskrúfaður á kom enginn hættulegur kross fyrir og ekkert varð úr skotfærunum hans. Hann er góður leikmaður og gæti sannarlega hrokkið í gang með smá sjálfstrausti en gefur okkur alls ekki nóg eins og hann er að spila þessa dagana.

Maxi var skárri hinumegin og skoraði markið okkar í dag, en hann er ekki heldur vinstri kantur. Mig langar að sjá þessa menn spila á réttum köntum með slána eins og Carroll til að gefa á.

Ekki það að Carroll hafi heillað mig. Ég veit ekki hvað þarf til að hann skori mörk. Hann hefur nýtt þau tækifæri sem hann fær mjög illa finnst mér og þessi leikur var dauðafæri fyrir hann til að láta ljós sitt skína. Hann var eins og farþegi mest allann leikinn og loks þegar hann fór að skapa sér færin varð ekkert úr því. Við vitum öll hvað hann getur og hann þarf ekki mikið til að koma sér í gang en eins og hann hefur verið í vetur er erfitt að afsaka hann. Færið í uppbótartíma var síðan til að toppa þetta því þar sannaðist að lánlaust lið Blackburn er samt heppnara en Andy Carroll.

Luis Suarez er síðan stöðug ógn í sóknarleik okkar manna en nýtingin hjá honum í vetur er mikið áhyggjuefni. Hann hefur lent í miklum stormi í allann vetur og það hefur greinilega tekið sinn toll. Hann þarf samt að fara skila meiru til liðsins, skora og skapa fleiri mörk og það strax.

Hroðalega pirrandi að ná ekki í öll stigin í dag og maður skynjar smá vonleysi í liðinu meðan það bara getur ekki skorað. Þurfum nýtt blóð í þetta, karaktera sem þekkja það að vinna og þola alls ekki að tapa, menn sem eflast í mótlæti og vinna leiki. Það kom einn þannig af bekknum í dag og mætti sannarlega haldast heill það sem eftir er. Comolli er síðan vonandi að leita að öðrum þannig karakter. Enginn af þeim sem kom í sumar er með þetta quality finnst mér nema Craig Bellamy sem líka gefur alltaf 100% í leikinn. Ef allir væru að gefa allt sem þeir eiga í alla leiki ætti þetta Blackburn lið ekki glætu í dag. Það er nefnilega alls ekki nóg að vinna Chelsea og spila mjög vel gegn City og United, lið sem geta það bara eiga að vinna svona leiki, alltaf.

Maður leiksins: Úllen dúllen doff……Maxi, hann skoraði og það er nóg í dag fyrir leikmann Liverpool.