Liverpool Bloggið » HM 2006

10 atriði sem HM sýndi fram á
Það er dagurinn eftir þennan magnaða úrslitaleik og maður er rétt að koma sér í gírinn fyrir félagsliðaknattspyrnu á nýjan leik. Það var sannarlega ömurlegt að vakna í morgun og sjá að það eru nánast engar fréttir af leikmannamálum að hafa. Ágúst nálgast og enn eru Pennant/Alves/Trabelsi/Joaquin/Sabrosa hvergi í sjónmáli. Endar þetta sumar eins og það síðasta?

En allavega, HM í knattspyrnu lauk í gær og hún kemur ekki aftur fyrr en eftir fjögur ár. Svona rétt til að binda endahnútinn á þessa keppni hef ég tekið saman smá lista. Þetta eru þau tíu atriði sem við lærðum um knattspyrnu yfir þessari Heimsmeistarakeppni:

1. Leikaraskapur er orðinn faraldur í heimsknattspyrnunni. Já, faraldur. Sú staðreynd að í þessari keppni hafi fallið afgerandi flest gul og rauð spjöld í sögu HM, en samt hafi nánast ekkert verið um alvarleg meiðsli eða eftirminnileg slagsmál, segir alla söguna. Franz Beckenbauer er meðal þeirra sem hefur kallað á málþing meðal leikmanna, þjálfara og dómara til að reyna að stemma stigu við þessu vandamáli og ég tek undir það. Einnig tel ég að þessi Heimsmeistarakeppni hafi sýnt okkur fram á það, svo ekki verður um villst, að við verðum að taka tvennt upp í knattspyrnunni: notkun fimmta dómarans, sem situr uppi í stúku og horfir á endursýningar og talar svo beint við dómarann á vellinum, og refsingar fyrir leikaraskap eftir leiki. Ef menn bæta við dómara á vellinum mun það engu breyta, bara fjölga spjöldunum því nú eru tvær flautur sem hægt er að blása í, en með því að nýta sér tæknina á þennan hátt erum við að segja við leikmenn að það þýðir ekki að svindla. Myndavélin nær ykkur alltaf og því er ekki lengur hægt að fiska leikmann útaf öðruvísi en að dómarinn uppí stúku sjái það og stöðvi, og þú fáir svo leikbann sjálfur eftirá fyrir leikaraskap.

2. Dómgæslan í þessari keppni var farsi. Ekki nóg með það að við höfum séð spjaldaglöðustu dómara frá upphafi í þessari keppni, heldur sáum við líka hinar öfgarnar í leikjum eins og Frakkland – Portúgal og Ítalía – Þýskaland. Eins og það ætti allt í einu að hætta að gefa spjöld í undanúrslitum, af því að þá gætu menn misst af úrslitaleik HM. Það þarf að vera samræmi í dómgæslu, en fyrst og fremst held ég að dómarar ættu að fletta upp orðinu samræmi í orðabók og skoða hvað það þýðir.

3. Þessi tveggja-gulu-spjalda regla er úrelt. Sepp Blatter talaði sjálfur um það í miðri útsláttarkeppni að það þyrfti að breyta þessu í þrjú gul spjöld, og láta það gilda alla keppnina; ekki tvö gul spjöld í riðlum og svo aftur tvö gul spjöld í útslættinum. Þetta eru í mesta lagi sjö leikir ef þitt lið fer alla leið; ef þú færð þrjú gul spjöld í sex fyrstu leikjunum missirðu af þeim sjöunda. Það hljómar töluvert sanngjarnara í mínum eyrum.

4. 4-5-1 er nýjasta tískan í heimsboltanum. Af síðustu átta liðunum í keppninni spiluðu bara Þjóðverjar með tvo framherja; hjá hinum liðunum voru þeir Crespo, Schevchenko, Pauleta, Rooney, Toni, Henry og Ronaldo látnir um að bera framlínur sinna liða. Ég meina, meira að segja Brasilíumenn fórnuðu á endanum öðrum framherjanum fyrir miðjumann gegn Frökkum!

5. Englendingar þurfa að læra af þessari keppni. Þeir verða að átta sig á raunveruleikanum: þeir eru með gott lið sem gæti hæglega hafa unnið HM í ár, og gæti unnið næstu stórmót, en þangað til þeir breyta ekki umgjörðinni um liðið verður það aldrei að veruleika. Þá á ég við eftirfarandi: (1) öll umfjöllun í landinu er til skammar, gula pressan gerir allt sem hún getur til að rífa liðið niður og ætlar svo að slást í hópinn þegar vel gengur, eins og þeir hafi stutt leikmennina allan tímann. (2) allir þessir svokölluðu “sérfræðingar” sem eru að skipta sér af þessu eru ekki að hjálpa neitt til. Ég hef séð Alan Hansen hringsnúast mörgum sinnum í kringum þetta mót, með eða á móti, og á endanum gerðu þeir ekkert nema auka á ringulreið ensku þjóðarinnar. (3) hver svo sem er að þjálfa þetta lið þarf að átta sig á tvennu; fyrst þarf að finna þá leikaðferð sem hentar og koma auga á þann leikmann eða leikmenn sem eru mikilvægastir fyrir spilamennsku Englendinga. Í þessu tilfelli væru það Terry, Gerrard og Rooney eftir miðju vallarins. Í kringum þá þarf svo að byggja lið … sem þýðir að ef Lampard getur ekki spilað við hlið Gerrard þarf hann bara að fara út á vænginn eða á bekkinn. Erfiðir valkostir, en svona er þetta bara. Og til að Rooney geti notið sín þarf hann að fá annan framherja með sér öllum stundum! Þetta er ekki svo flókið, er það?

6. Brasilíumenn eru bestu knattspyrnumenn í heiminum. Að því leyti eru þeir ennþá algjörlega meistarar. En þar sem þeir voru ekki best skipulagðir, með bestu taktíkina, með besta þjálfarann, með lið í meistaraformi og með leikmenn sem voru reiðubúnir að deyja fyrir málstaðinn komust þeir ekki lengra í þessari keppni. Og var það fyllilega verðskuldað. Svona eftir á að hyggja er algjör synd og skömm að þeir skuli ekki hafa áttað sig á öllum vandamálunum sem blöstu við þeim fyrir mótið; en þeim til varnar, þá áttuðum við hin okkur engan veginn á þeim heldur. Maður blindaðist af stjörnufans og hæfileikanægð Brassanna og hreinlega trúði ekki að þeir gætu tapað. Annað kom á daginn, og Brassarnir verða að mæta skipulagðari til leiks næst.

7. Ég held að Afríkuþjóðunum hafi ekki gengið jafn illa á HM í núna sextán ár. Og næsta HM verður haldin í Suður-Afríku. Og menn segja að það sé bara tímaspursmál hvenær afrísk þjóð vinnur HM. Gott og vel, en þeir verða þá að girða sig í brók, því betur má ef duga skal. Einhverra hluta vegna heillast ég jafnan af afrísku liðunum og vill að þeim gangi vel, en í ár var frekar lítið um dýrðir frá þeirri heimsálfu.

8. Zinedine Zidane vann gullknöttinn fram yfir Fabio Cannavaro, og sannaði þar með endanlega hina ódauðlegu reglu knattspyrnunnar: sá sem getur tekið skæri er alltaf betri knattspyrnumaður en sá sem er fullkominn tæklari. Zidane var frábær í þessari keppni, þótt hann færi hægt af stað og endaði hroðalega, en Cannavaro var algjörlega stórkostlegur frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Hann átti að vinna knöttinn, rétt eins og Jamie Carragher átti að vera valinn mikilvægasti leikmaður Meistaradeildarinnar fyrir rúmu ári síðan, en ekki Steven Gerrard.

9. Mótlæti er eitthvert besta veganesti sem lið geta haft með sér í svona mót. Hafi leikið einhver vafi á því áður þá er varla hægt að rífast um það núna. Ég meina, sjáið bara fyrir ykkur liðsmenn annarar- og þriðju-deildarliða Ítalíu færa HM-styttuna heim að sjúkrarúmi Gianluca Pessotto …

10. Eins og Marco Materazzi sannaði í gær, þá komast menn upp með að segja nánast hvað sem er ef dómarinn heyrir það ekki. Fjórði dómarinn gat ekki mögulega heyrt það sem Marco Materazzi sagði, en hann sá viðbrögð Zidane og því fór sem fór. Ef við hefðum verið með hljóðnema á staðnum er engin spurning að dómari leiksins hefði lyft tveimur rauðum spjöldum í stað eins. Ég veit ekki hver lausnin á þessu er; ættum við að láta alla leikmenn bera hljóðnema, svipað og leikmenn bandarískra ruðningsliða, svo að fimmti dómarinn sem ég stakk upp á að sitji uppí stúku og horfi á endursýningar geti líka hlustað á það hvað mönnum fór á milli og ráðlagt refsingar við hæfi? Ég veit það ekki, það yrði langsótt, en þótt svívirðingar, móðganir og almennt ljótt orðbragð séu hluti af leiknum verður einhvern veginn að stemma stigu við. Ég veit ekki hvað Materazzi sagði til að fá Zidane til að tapa sér svona, en við getum verið viss um að hvað sem það var átti það ekkert skylt við fótbolta eða Fair Play.

Og þar með er HM í ár lokið fyrir mér. Hvernig væri nú að kíkja út, er ekki sumar … ?

Ítalía Heimsmeistari!
Í upphitunum helgarinnar talaði ég um að þessi leikur væri að öðrum ólöstuðum leikur áratugarins. Þótt ég efist um að nokkur knattspyrnuleikur á þessum áratug muni nokkurn tíma takast að vera betri, skemmtilegri og dramatískari en leikur Liverpool og AC Milan í Meistaradeildinni fyrir rúmu ári, þá er þetta sennilega eini leikurinn sem er klárlega stærri en úrslit Meistaradeildarinnar. Og það kom á daginn að þessi leikur olli ekki vonbrigðum.

Leikurinn fór vel af stað og eftir sex mínútna leik fengu Frakkar vítaspyrnu eftir að Marco Materazzi hafði brotið á Florent Malouda innan teigs. Það var erfitt að sjá snertinguna í sjónvarpinu en að mínu mati var samt klárt að Materazzi braut á Malouda; hann stöðvaði hlaupaleið hans og vítið fannst mér augljóst strax áður en ég sá það endursýnt. Úr vítinu skoraði svo Zinedine Zidane með einhverri ótrúlegustu spyrnu sem ég hef séð um ævina. Hann sendi Gianluigi Buffon í vitlaust horn og vippaði helvítis knettinum upp í slána og þaðan niður á grasið … rétt fyrir innan marklínuna. Markið gott og gilt, og ég sagði við sessunauta mína að þetta væri eitthvert ótrúlegasta mark sem sést hefur á HM. Stend við þau orð og mig grunaði jafnvel að þetta víti yrði ekki toppað hvað varðar ótrúlegheitin. Ég átti eftir að hafa rangt fyrir mér.

Á nítjándu mínútu tók Andrea Pirlo frábæra hornspyrnu sem datt niður í miðjan teig Frakka. Þar reis Marco Materazzi manna hæst, át Patrick Vieira upp til agna í skallaeinvígi og jafnaði metin fyrir Ítali. Staðan því orðin 1-1 eftir tuttugu mínútur og strax ljóst að hér væri klassískur leikur á ferð. Næstu 70 mínúturnar kom ekkert mark en leikurinn bauð upp á hina bestu skemmtun; í fyrri hálfleik skiptust liðin á að sækja enda á milli og hefðu bæði getað komist yfir fyrir hlé, en í síðari hálfleik var eins og botninn dytti úr leik Ítala sem hurfu sífellt aftar á vellinum. Það var um þetta leyti sem það sem margir áttu von á að myndi gerast fór að gerast; Zinedine Zidane fór að sýna sig meira og meira í spili Frakka og undir lok leiksins var hann orðinn svo gjörsamlega allsráðandi á vellinum að maður beið eftir því hvenær Frakkar skoruðu sigurmarkið, ekki hvort. Ítalir héldu þó út og leikurinn fór í framlengingu.

Í fyrri hálfleik framlengingar var mikið um baráttu og miðjumoð en Frakkar sköpuðu sér þó hættulegri færi. Það besta kom undir lok hálfleiksins, þegar Willy Sagnol gaf frábæra fyrirgjöf frá hægri á óvaldaðan Zidane sem átti fastan og flottan skalla að markinu. Þeir eru ekki margir markverðirnir sem hefðu varið þennan bolta en til allrar ólukku fyrir Zidane var Buffon í marki Ítala starfinu vaxinn og blakaði boltanum yfir. Zidane öskraði af pirringi, maður sá það á honum að hann vissi að þarna hafði farið kjörið tækifæri fyrir hann að tryggja sinn sess meðal knattspyrnuguðanna. Það kom á daginn að þetta átti eftir að verða það síðasta jákvæða sem við sáum til Zidane á hans langa og gifturíka ferli.

Fyrir leikinn hafði ég íhugað hversu grimm örlög það væru fyrir Zidane að enda mögulega feril sinn á því að tapa í úrslitaleik HM. Ég hugsaði með mér sem svo að það væri varla til ömurlegri endir á ferlinum fyrir þennan mikla kappa. Ég hafði rangt fyrir mér. Eitthvað gerðist utan myndavélar í upphafi síðari hálfleiks framlengingar og maður vissi ekkert hvað var að gerast þegar dómarinn hljóp að Buffon í marki Ítala til að stilla til friðar. Buffon var mjög æstur og Arnar Björnsson talaði eitthvað um David Trezeguet. Loks kom endursýningin, það sem aðal-myndavélin hafði ekki náð og ég held ég tali fyrir hönd okkar allra, knattspyrnuunnenda um allan heim, þegar ég segi að þessi þriggja sekúndna endursýning var sennilega eitt ógeðfelldasta atvik í sögu knattspyrnunnar.

Þarna var það, skýrt eins og sólin: Zinedine Zidane er að hlaupa framhjá Marco Materazzi en snýr skyndilega við, hleypur að þeim ítalska og skallar hann fast í bringuna. Gengur svo í burtu. Kjálkinn á mér í gólfinu, engin orð til að lýsa því sem ég sá. Síðan ég sat á sófa í Bandaríkjunum og horfði á World Trade Center hrynja í beinni útsendingu fyrir fimm árum síðan, þann 11. september, hefur enginn sjónvarpsatburður hneykslað mig jafn mikið, sjokkerað mig jafn svakalega.

Seinni endursýningar sýndu að Materazzi, sem ég hef áður sagt að er einhver ógeðfelldasti og svindlóðasti leikmaður í heiminum í dag, greip um Zidane í vítateig Ítala í hornspyrnu rétt áður. Hann virtist gera meira en halda utan um Zidane, hann virtist klípa í geirvörtu þess franska og láta einhver fúkyrði falla. Svo skokkuðu þeir báðir út úr teig Ítala er sóknin fjaraði út og Materazzi hélt áfram að hrópa svívirðingar í átt að Zidane. Að endanum virðist hann hafa hitt á hina gullnu móðgun, því Zidane sneri sér við og skallaði hann.

Þegar dómarinn var búinn að stilla til friðar og ráðfæra sig við aðstoðardómarann hljóp hann til Zidane og gaf honum rauða spjaldið. Ferlinum lokið. Það var þá sem það virtist daga uppi fyrir Zidane hverjar afleiðingar gjörða sinna eru: hann hafði ekki aðeins hneykslað heiminn og valdið sjálfum sér ótrúlegri skömm á þessari stærstu og glæstustu stund ferils síns (hugsið ykkur bara hvað hann var góður í leiknum) heldur var hann líka búinn að tryggja það að, sama hvernig leikurinn færi, hann yrði samt skúrkur dagsins. Ef Frakkar ynnu leikinn myndi Fabien Barthez hampa titlinum sem fyrirliði, ekki Zidane, og hann yrði vart velkominn í fagnaðarlætin nema þá bara í París daginn eftir. Það sem átti að vera stærsti dagur lífs hans hafði, með nokkrum vel völdum orðum hjá Marco Materazzi og yfirgengilega heimskulegum og ofbeldisfullum viðbrögðum þessa leikreynda kappa breyst í svörtustu martröð. Það síðasta sem við sáum til goðsagnarinnar var er hann grét í örmum Gianluigi Buffon, og svo þegar hann gekk niðurlútur framhjá Heimsmeistarastyttunni og til búningsklefanna.

Nú, eftir þetta atvik var eins og sjokkið drægi allan kraft úr báðum liðum. Franskir áhorfendur á vellinum púuðu það sem eftir lifði leiks, og ég skil þá vel því þeir höfðu ekki endursýningarnar sem við heima í stofu höfðum, og ég vorkenni þeim sárlega að eiga eftir að fara heim til sín og, ofan í öll sárindin að hafa tapað þessum leik, sjá síðan hvernig hetjan þeirra sveik frönsku þjóðina með hegðun sinni.

Eins stórkostlegur leikmaður og Zidane er, og eins viðbjóðslegur og Materazzi er og hefur alltaf verið sem leikmaður, þá þykir mér nánast ómögulegt að vorkenna þeim franska. Tíu mínútur eftir af framlengingu í úrslitaleik fokking Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, síðustu tíu mínútur þíns glæsta ferils og það eina sem þú þarft að gera er að bregðast ekki við móðgunum Ítalans á ofbeldisfullan hátt. Það er það eina sem þú þarft að gera; þú getur mætt heim til Materazzi strax á morgun með nokkra vini og kylfur og jafnað málin, en láttu það bara bíða í TÍU FOKKING MÍNÚTUR! Þið eruð með yfirburði á vellinum og hafið þetta allt í hendi ykkur. Og þú gast það ekki. Ég veit vel að Zinedine Zidane les þessa síðu ekki en ég ætla samt að segja þetta: SKAMMASTU ÞÍN!

Og Marco Materazzi má skammast sín líka. Helvítis viðbjóður að horfa á þennan leikmann, leik eftir leik alltaf með sömu ruddataktana. Maður getur rétt ímyndað sér hvað í ósköpunum hann sagði sem fékk Zidane til að fórna öllu sem hann hafði unnið svo hörðum höndum að síðasta mánuðinn, en ég satt best að segja veit ekki hvað í ósköpunum hann hefur getað sagt. Það hlýtur að hafa verið eitthvað magnað, eitthvað ofboðslega móðgandi, og þótt það afsaki gjörðir Zidane engan veginn þá á Materazzi mikla skömm í þessu máli líka.

Nú, að endingu fór þessi leikur í vítaspyrnukeppni og þar voru framkvæmdar níu spyrnur. Ítalir skoruðu úr sínum fimm en Frakkinn David Trézeguet sendi Gianluigi Buffon í rangt horn og skaut knettinum svo upp í markslána og niður á marklínuna. Einn sentimetri til og hann hefði skorað líka. Það er alltaf harður veruleiki að þurfa að tapa í vítaspyrnukeppni, en í kvöld var vart hægt að tapa með minni mun, og það í sjálfum úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar.

Þannig að á endanum eru Ítalir heimsmeistarar, og ég óska þeim innilega til hamingju. Þeir voru þegar allt kemur til alls vel að þessu komnir, höfðu verið jafnbesta liðið allt frá byrjun móts og sýndu bæði frábæra knattspyrnu og hetjulega baráttu í þessum leik. Þeir héldu höfði og Marcello Lippi höndlaði þetta taktískt séð frábærlega. Þeir eru verðugir sigurvegarar í þessari keppni!

Dagurinn í dag
Ég segi bara … ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ!!!

Megi betra liðið vinna. :)

Leikur Áratugarins (Frakkland)
“Auðvitað erum við sáttir við mótið hingað til, jafnvel stoltir, en við erum ekki enn búnir að ná markmiði okkar. Við megum ekki dást að okkar eigin afrekum of snemma, til að draumurinn rætist þurfum við að vinna einn leik til viðbótar.”

-Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka

Þann 13. júní síðastliðinn skrifaði ég um franska landsliðið að þeir væru “ótrúlega bitlausir” og stakk upp á því að S-Kórea og Tógó gerðu þeim greiða og linuðu þjáningar frönsku þjóðarinnar. Þetta skrifaði ég eftir fyrsta leik liðsins, 0-0 jafntefli gegn Sviss, og eftir annað jafntefli, 1-1 gegn Suður-Kóreu, var ég reiðubúinn að veðja hægri handleggnum á það að Frakkar myndu aldrei í helvíti komast lengra en í 16-liða úrslit keppninnar. Bæði af því að ég sá hversu andlaust liðið var, og af því að ég vissi að eftir jafnteflið gegn S-Kóreu voru þeir líklegast að fara að lenda í öðru sæti riðils síns og mæta Spánverjum í 16-liða úrslitum. Og ég var sko viss um að þeir ættu ekki séns í Spánverjana.

Svo gerðist nokkuð skrýtið. Ég sat heima hjá vini mínum og við horfðum á leik Frakka og Spánverja saman. Og fyrsta hálftímann einkenndust samræður okkar af því að leikurinn, þennan fyrsta hálftíma eða svo, virtist staðfesta allt sem við vissum um Frakkana; þeir voru andlausir, of gamlir, bitlausir og á leiðinni heim.

Svo fékk Patrick Vieira boltann; spænska vörnin lék Henry rangstæðan en gott hlaup Frank Ribery innfyrir kom þeim í opna skjöldu og þessi smávaxni vængmaður, sem kallaður er Jókerinn í heimalandi sínu vegna brunasára í andliti, var skyndilega búinn að jafna leikinn og “slá í gegn” á HM, eins og þulurinn orðaði það. En það var ekki jöfnunarmark Frakka sem varð til þess að á mig runnu tvær grímur. Nei, það voru viðbrögð þeirra. Þegar fagnaðarlátunum linnti sá ég, svo ekki varð um villst, hversu ákveðnir þeir voru. Zidane hljóp manna á milli rétt áður en Spánverjar tóku miðju og sendi hverjum manni sérsniðin skilaboð. “Henry, mundu hlaupin þín.” “Vieira, haltu áfram svona.” “Ribery, hlauptu þangað.” Eitthvað í þá áttina, en það var ljóst að heilinn í Zidane var að brenna yfirum á akkúrrat þessu augnabliki.

Nokkrum mínútum síðar var flautað til hálfleiks og á leiðinni til búningsklefanna sá maður Zidane, Gallas, Thuram og Makelele í hrókasamræðum. Kóngurinn lét ekki staðar numið við sóknarleikinn heldur var hann að samstilla sig  og varnarmennina fyrir aftan sig líka. Þennan hálfleikinn spurðu ég og félagi minn okkur í fyrsta sinn í þessari keppni: Eru Frakkar að hrökkva í gang?

Svarið var ótrívætt já, og síðan Ribery skaut sér innfyrir vörn Spánverja og skoraði hafa þeir ekki litið um öxl. Ólíkt Ítölum, sem hafa verið massífir alla keppnina, má sjá ákveðinn stíganda hjá Frökkunum. Þeir hafa eftir því sem liðið hefur á mótið þróast úr algjörri meðalmennsku upp í að sýna sitt gamla, góða form:

Sviss: 0-0 jafntefli.

S-Kórea: 1-1 jafntefli.

Tógó: 2-0 sigur.

Spánn: 3-1 sigur.

Brasilía: 1-0 sigur.

Portúgal: 1-0 sigur.

Sex leikir; tvö jafntefli og svo fjórir sigrar. Markatalan er 8-2. Spánverjar skoruðu úr vítaspyrnu gegn þeim og Ji-Sung Park jafnaði fyrir Kóreu á lokamínútum þess leiks með poti yfir Barthez, sem verður að skrifast á markvörðinn. Og talandi um markvörðinn, þá er erfitt að finna bilbug á franska liðinu varnarlega þessa dagana en ef það er eitthvað sem getur látið undan þá er það Fabien Barthez. Við þekkjum hann allir og höfum séð þetta allt margoft til hans – spyrjið bara Rikka Daða. Hann er mistækur, og þótt honum hafi ekki verið refsað nógu grimmilega í þessari keppni hingað til (hefur átt a.m.k. eitt klúður í hverjum einasta leik) þá er hann að fara að mæta grimmustu framherjum heims; þeim ítölsku, og þeir munu éta upp öll mistök hans og nýta þau betur en Figo og félagar gerðu í undanúrslitunum.

Fyrir framan Barthez er hins vegar feykisterk vörn, sú sterkasta í keppninni á eftir þeirri ítölsku, og rétt eins og hjá Ítölunum er vörnin vernduð af tveimur miðjupaurum í feykistuði – Claude Makelele og Patrick Vieira – og þar fyrir framan eru tveir iðnir og góðir kantmenn, Malouda og Ribery, og svo krúnudjásnið sjálft, Zidane. Fremstur er svo Thierry Henry, sem þrátt fyrir að hafa skorað þrjú mörk í þessari keppni og fiskað eitt víti hefur ekki náð að sýna sínar bestu hliðar, enda er honum ekki eðlislægt að spila sem fremsti maður en hann skilar því hlutverki samt ágætlega sem slíkur.

Vandamál Frakka liggur því ekki í vörninni, og ef Barthez á góðan dag þarf ekki að hafa áhyggjur af honum. Vandamál Frakkanna liggur í því hvernig í ósköpunum þeir ætla að brjóta ítölsku vörnina á bak aftur. Átta mörk í sex leikjum er ekkert sérstök tölfræði fyrir lið sem er komið í úrslit HM, og ætti því ekki að skjóta Ítölunum skelk í bringu. Enn fremur, þá hafa aðeins fjórir Frakkar skorað þessi átta mörk; Henry (3), Zidane (2), Vieira (2) og Ribery (1). Á móti hafa tíu Ítalir skorað ellefu mörk, en Luca Toni er sá eini sem er kominn upp í heil tvö stykki í þeirra herbúðum. Þannig að þótt Ítalir skarti engum einum framherja sem er jafn skæður og Thierry Henry þurfa Frakkar að hafa áhyggjur af töluvert fleiri Ítölum, sóknarlega séð, en öfugt.

Á móti kemur þó að Frakkar hafa ekki aðeins besta framherjann í keppninni (já, ég sagði það!) heldur líka öflugasta miðjumanninn. Langöflugasta. Það þarf eitthvað alvarlega mikið að gerast til að Zinedine Zidane verði ekki valinn leikmaður mótsins, og ef hann vinnur HM á morgun með Frökkum getum við neglt það fast að hann verður valinn leikmaður ársins hjá FIFA líka næstkomandi desember. Þannig er það bara, og ég ætla að leyfa mér að varpa smá sprengju hérna: hvernig sem þessi úrslitaleikur á morgun fer er Zinedine Zidane, með frammistöðu sinni í þessu móti, búinn að tryggja sér sess við hliðina á þeim Pele og Diego Maradona sem þrír bestu knattspyrnumenn allra tíma! Allt frá því að ég man eftir mér hafa menn talað um þá tvo sem guði knattspyrnunnar, klassa ofar en alla aðra, en Zidane hefur að mínu mati sýnt það síðastliðin tólf ár (frá því ég tók fyrst eftir honum hjá Bordeaux; hann skoraði frá miðju í Evrópukeppni félagsliða og ég sá það í íþróttaþætti Ríkissjónvarpsins, gleymi því aldrei) að hann er fyllilega jafnoki þeirra tveggja.

Sumir myndu kannski vilja benda á Franz Beckenbauer og/eða Johan Cruyff í þessum efnum, en ég segi á móti að Cruyff vann ekkert í líkingu við það sem Zidane hefur afrekað sem leikmaður og Beckenbauer, þrátt fyrir að hafa unnið HM, var ekki sami listamaðurinn með knöttinn og Zidane. Hvernig sem fer á morgun þá held ég að menn geti farið að venjast því að tala um þrjá guði knattspyrnunnar. Kannski tyllir Ronaldinho sér endanlega á stall með þessum þremur á næstu árum; sem Barcelona-maður vona ég það allavega, en það er ekki hægt að neita því að ég hef rétt fyrir mér varðandi manninn sem kallaður er Zizou í heimalandi sínu.

Sem sagt, stærsti leikur áratugarins fer fram í Berlín á morgun og þar mætast tvö lið sem eru að upplifa ákveðin vatnaskil í knattspyrnusögu sinna þjóða. Hvort sem Frakkar vinna eða tapa er ljóst að lið þeirra mun hljóta endurnýjun lífdaga strax í haust, þegar gamla meistarasveitin með Zidane í broddi fylkingar lætur af störfum og nýir menn fá það verkefni að byggja upp lið, væntanlega í kringum Thierry Henry. Ef Ítalir vinna HM á morgun gætu margir leikmanna þeirra lent í þeirri skrýtnu stöðu að vera heimsmeistarar í knattspyrnu, en spilandi í næstefstu deild heimalands síns, eða jafnvel þriðju efstu. Á föstudaginn kemur verður dæmt í spillingarmálinu á Ítalíu og ef Ítalir vinna HM á morgun gæti sá dagur orðið mjög blendinn fyrir leikmenn landsliðsins.

Hvað sem verður er ljóst að dagurinn verður rosalegur. Totti, Del Piero,  jafnvel Cannavaro hætta með landsliði Ítala eftir þennan leik og allt liðið er að leika til heiðurs vini sínum, Gianluca Pessotto sem er á spítala eftir sjálfsmorðstilraun. Heima fyrir er ítalska þjóðin, í miðju hneyksli, að verða ástfangin af hinni fallegu íþrótt upp á nýjan leik, á gamla mátann. Gegnt þeim eru fyrrverandi heims- og Evrópumeistarar Frakka, margir af snjöllustu leikmönnum síðustu ára með knattspyrnuguðinn Zinedine Zidane í fararbroddi.

Þetta verður magnað. Ég get ekki beðið, og mér dettur ekki í hug að spá fyrir um úrslit leiksins. AÐEINS EINN DAGUR TIL STEFNU!

Leikur Áratugarins (Ítalía)
“Við höfum safnað upp mikilli reiði á síðustu tveimur stórmótum. Í þessari keppni höfum við beislað þessa reiði og það hefur sýnt sig bersýnilega – við höfum nýtt þessa reiði okkar og gert úr henni eitthvað jákvætt”

-Fabio Cannavaro, fyrirliði Ítala

Tólf ár. Það er sá tími sem það tekur ítalska landsliðið að hlaða upp í alvöru atlögu að heimsmeistaratigninni í knattspyrnu. Árið 1970 voru þeir gjörsigraðir í úrslitaleik HM af liði Brasilíumanna sem sumir vilja meina að sé það besta í sögu knattspyrnunnar. Árið 1982 unnu þeir HM á Spáni með sigri á Vestur-Þýskalandi, en það ár var öll ítalska knattspyrnan í uppnámi vegna hneykslismála í sambandi við mútuþægni og spillingu. Hljómar það kunnuglega? Árið 1994 töpuðu þeir í úrslitum, aftur fyrir Brasilíumönnum, í vítaspyrnukeppni. Og nú, tólf árum síðar, eru þeir aftur komnir í úrslit.

1970: tap fyrir Brasilíu.

1982: mútuhneyksli, og svo sigur gegn Evrópuþjóð.

1994: tap fyrir Brasilíu.

2006: mútuhneyksli, og svo _____ gegn Evrópuþjóð?

Fyrir keppnina hefði ég sagt fólki að Frakkland og Ítalía væru tvö af minna spennandi Evrópuþjóðunum í keppninni. Ítalir hafa undanfarin ár getið sér góðs orðs fyrir að vera allt of varnarsinnaðir, varkárir og hreinlega leiðinlegir sem landslið, auk þess að vera með mikinn leikaraskap inná vellinum. Í þessari keppni hafa Portúgalir fyllilega tekið við Óskarsverðlaununum sem Ítalir hömpuðu áður, og svo hefur komið á daginn að þeir bláklæddu hafa verið með skemmtilegri, öflugri og betri liðum keppninnar. Leikir þeirra hingað til í keppninni hafa farið svo:

Ghana: 2-0 sigur.

USA: 1-1 jafntefli.

Tékkland: 2-0 sigur.

Ástralía: 1-0 sigur.

Úkraína: 3-0 sigur.

Þýskaland: 2-0 sigur.

Sex leikir; fimm sigrar og eitt jafntefli, og það í leik þar sem þrjú rauð spjöld litu dagsins ljós. Aðeins eitt mark fengið á sig í allri keppninni, og það kom gegn Bandaríkjunum þegar varnarmaðurinn Zaccardo ætlaði að hreinsa frá eigin marki en hitti boltann ekki og setti hann framhjá Buffon í staðinn. Zaccardo hefur spilað lítið í mótinu síðan hann skoraði sjálfsmark, og vörnin hefur fyrir utan þetta eina atvik verið gallalaus í þessari keppni. Markatala Ítala er 11-1 fyrir úrslitaleikinn.

Maður spyr sig hvort það geti eitthvað lið stöðvað þá. Auk þess að vera með besta markvörð í heimi og frábæra vörn skarta þeir geggjaðri miðju; ef Totti á góðan dag er hann lykilmaður þeirra og þeir Pirlo og Gattuso munu láta Zidane hafa meira fyrir hlutunum en nokkur önnur miðja sem hann hefur mætt til þessa. Simone Perrotta og Mauro Camoranesi hafa komið sterkir inn á vængjunum í keppninni, auk þess sem bakverðirnir Fabio Grosso og Gianluca Zambrotta hafa tekið við krúnu Roberto Carlos og Cafú sem kóngar sóknarbakvarðanna. Frammi hefur þjálfarinn Marcelo Lippi svo úr þeim Luca Toni, Alberto Gilardino, Vicenzo Iaquinta og Alessandro Del Piero að velja. Ekkert smá öflugur mannskapur það.

Svo er það bara spurning hvort örlögin eru ekki með Ítölum í þessari keppni? Sagan segir okkur allavega að þeir vinni Úrslitaleiki á HM, ef þeir eru að mæta Evrópuþjóðum og ef það eru hneykslismál heima fyrir. Þeir eru líka með vörn sem ég á erfitt með að sjá Frakkana brjóta á bak aftur, miðju sem gæti mögulega eyðilagt örlagadag Zinedine Zidane og sóknarmenn sem eru nógu grimmir til að nýta sér öll þau mistök sem Frakkar kunna að gera.

Það er allavega ljóst í mínum huga að ef Ítalir verða heimsmeistarar á sunnudaginn verða þeir vel að titlinum komnir; þeir hafa verið sterkasta liðið í þessari keppni frá fyrstu til síðustu leikja og virðast vera með besta landslið í heiminum akkúrrat núna, sem er það sem gildir í svona keppni.

Spurningin er bara: getur eitthvað lið stöðvað Ítali? Spáum í Frakkland á morgun.

Fowler ver sinn mann, en ekki hvað!
Robbie Fowler [ver Jamie Carragher](http://home.skysports.com/worldcup/article.aspx?hlid=401045&CPID=4&clid=114&lid=3&title=Fowler+blasts+Carra+critics) vegna vítaspyrnunnar sem hann klúðraði á dögunum gegn Portúgal (djö… var ég ánægður þegar Frakkland vann í gær). Tord Grip gagnrýndi Carragher nýverið og núna var fyrrum þrekþjálfari enska landsliðsins, Ivan Carminati, að segja að Carragher hafi guggnað.

“There are plenty of players who don’t possess an ounce of courage and go missing when the chips are down. But to say that Carra doesn’t have bottle is ridiculous. You only have to look at his performances for Liverpool during big games to know nothing could be further from the truth. When the chips are down, Carra is one of the first players you would want alongside you in the trenches. It is insulting to blame Carra or any of the other players – it’s not as if they missed on purpose.”

Fowler klikkar aldrei og mun verja sína liðfélaga fram í rauðan dauðann (ætli Ronaldo myndi gera það?)

Tord Grip gagnrýnir Carragher.
Tord Grip sem var aðstoðarmaður Sven-Goran Eriksson hjá enska landsliðinu [gagnrýnir Carragher fyrir að hafa ekki verið með reglurnar á hreinu](http://home.skysports.com/worldcup/article.aspx?hlid=400461&CPID=4&clid=114&lid=2&title=Grip+blasts+Carragher) varðandi framkvæmd vítaspyrnukeppni þ.e. Carragher skaut áður en dómarinn flautaði vítið á.

Mér segir sá hugur að Carragher hafi verið stressaður og bara farið á taugum og þess vegna skotið of snemma. Annars finnst mér nú lágkúrulegt að taka Carragher út þar sem vítin hjá m.a. fyrirliða okkar voru nú engu betri. En betra er að þeir tapi í vítaspyrnukeppni með enska landsliðinu en Liverpool.

Fjögur Lið Eftir
“Við fórum kannski hægt af stað, en þær þjóðir sem voru að spila best í byrjun móts munu allar horfa á undanúrslitin í sjónvarpinu.”

-Raymond Domenech, þjálfari Frakka

Michael Ballack. Francesco Totti. Luis Figo. Zinedine Zidane. Fjórar af stærstu og mestu hetjum evrópskrar knattspyrnu síðasta rúma áratuginn, og burtséð frá áliti manna á hverjum og einum þeirra þá er eitthvað svo rétt við það að einn þeirra muni hampa heimsmeistaratitlinum eftir viku. Jafnvel þótt Fabio Cannavaro sé fyrirliði Ítala, og ekki Totti, þá þekki ég nokkra Ítali sem munu láta eins og allt sé gott í heimi vorum ef Totti fær að halda á styttunni þungu áður en hans ferli lýkur.

Eins og Raymond Domenech sagði eftir frækinn sigur á núverandi heimsmeisturum Brasilíu í gær, þá skiptir ekki mestu máli að byrja vel heldur að enda vel. Við Liverpool-menn þekkjum þessi fræði; þegar okkar menn töpuðu fyrir Olympiakos og Mónakó á útivelli, og spiluðu frekar illa, þá grunaði engann að nokkrum mánuðum síðar myndi Steven Gerrard lyfta Evrópubikarnum í Istanbúl (besta dæmi sem ég þekki um karmískt réttlæti heimsins, það sem Þjóðverjar, Ítalir, Portúgalir og Frakkar láta sig nú dreyma um). Það skiptir öllu að enda keppnina vel.

Hverjir munu standa uppi sem sigurvegarar? Margir veðja á að heimamenn fari alla leið, úr því þeir gátu unnið Argentínu, og benda þar á hina klassísku seiglu sem virðist vera hluti af súrefninu í Þýskalandi. Aðrir segja að Frakkarnir séu líklegir, þar sem í þeirra röðum séu enn margir leikmenn sem hafa farið alla leið áður og vita hvað til þarf. Enn aðrir segja svo eflaust að Ítalir hljóti að vinna þetta, þar sem hið dramatíska “slys” Gianluca Pessotto fyrir tæpri viku síðan hafi þjappað hóp þeirra saman og myndað þéttari einhug en fyrr, á meðan síðasti hópurinn vill meina að Big Phil Scolari, landsliðsþjálfari Portúgala, einfaldlega geti ekki tapað leik í Heimsmeistarakeppni.

Allt góðar og gildar ástæður fyrir sigri á HM, og allt eru þetta góðir leiðtogar og vel hæfir til að leiða lið sín til sigurs í stærstu íþróttakeppni heims. En það er nú einu sinni svo í knattspyrnunni að ekkert er fyrirfram öruggt; það er eitt af því sem gerir hana svo skemmtilega. Og rétt eins og Þjóðverjar gátu unnið Argentínumenn, sem flestir héldu að væru að innbyrða þessa keppni frekar létt, þá gætu þeir tapað fyrir Ítölum einmitt þegar engir nema Ítalir trúa að þeir geti tapað á heimavelli. Og rétt eins og Zidane reis upp úr ösku eigin ferils eins og fönix og hóf sig hátt til flugs í gær gegn Brasilíumönnum (besta frammistaða eins leikmanns í keppninni, ekki spurning) gæti Figo fellt hann á eigin bragði nú þegar allir halda að Frakkar séu ósigrandi.

Fyrir mótið var ég næsta viss um að Brasilíumenn yrðu ekki stöðvaðir. Í raun trúði ég því enn ekki að þeir gætu tapað fyrr en svona kortér var eftir í leik þeirra gegn Frökkunum. Í upphafi móts hugsaði ég fyrst með mér að kannski væri tími Spánverjanna loks kominn (hversu vitlaus getur maður verið?) og svo að Argentínumenn væru of góðir til að vinna þetta ekki. Nú síðast í gærmorgun fann ég svo innilega á mér að Englendingar gætu farið alla leið að ég var hreinlega steinhissa að sjá þá tapa fyrir Portúgölum.

Í dag finnst mér Zinedine Zidane vera langbesti leikmaður sem ég hef verið svo heppinn að sjá spila á minni ævi, Þjóðverjar vera sannarlega ósigrandi á heimavelli og algjörlega ómögulegt að hugsa til þess að Chelsea vinni ekki Englandsmeistaratitilinn á næstu leiktíð. En ég hef verið viss um margt í knattspyrnu áður, og jafnharðan verið minntur á að ekkert er fyrirfram öruggt. Þannig að ég býst við að vera leiðréttur; fyrst í undanúrslitum Heimsmeistarakeppninnar og svo vonandi í vetur líka. :)

Hvað halda menn? Hverjir verða Heimsmeistarar í knattspyrnu árið 2006? Skráið ykkar skoðun hér í dag, svo þið getið sagt “I told you so” við okkur hina eftir viku.

HM: Portúgal í undanúrslit!
Og þar með er þátttöku leikmanna Liverpool á HM lokið, eftir að Englendingar töpuðu í vító fyrir Portúgal í dag. Peter Crouch spilaði síðasta hálftímann og framlengingu og var margfalt nær því að skapa mark eða skora sjálfur heldur en Wayne Rooney hafði verið fyrsta klukkutímann. Steven Gerrard lék allan leikinn og lét verja hjá sér spyrnu í vító, á meðan Jamie Carragher var settur inná á 117. mínútu til þess eins að geta tekið víti, en hann lét Ricardo líka verja frá sér, sem og Chelsea-maðurinn Frank Lampard sem fullkomnaði martraðarmót sitt með sínu víti.

Ég var tilbúinn með reiðipistil um Sven Göran Eriksson, sem lætur nú af störfum sem landsliðsþjálfari Englendinga eftir sex ár sem hafa lofað miklu en skilað nákvæmlega engu. Ég hef verið ósammála flestu sem hann hefur gert í þessari keppni og fundist nær ótrúlegt að, eftir sex ár skuli hann enn hafa verið að prófa sig áfram með leikaðferðir í 16-liða úrslitum þessarar keppni. Á endanum var það þó ekki honum að kenna að þeir duttu út í dag.

Vafalítið munu ensku blöðin fjalla um þá Lampard, Gerrard og Carragher sem létu allir Ricardo verja frá sér víti í bráðabananum. Þeir verða eflaust málaðir sem skúrkar dagsins og talað verður um að þeir hafi brugðist trausti ensku þjóðarinnar. Svo munu þeir eflaust eftir ár leika í auglýsingu fyrir Pizza Hut með bréfpoka á höfðum sínum, eins og Stuart Pearce og Gareth Southgate gerðu eftir EM fyrir 10 árum síðan.

En ég er nánast fullviss um að Englendingar munu hlífa manninum sem var virkilega sökudólgurinn í dag. Því þótt hann hafi fengið erfitt hlutverk, einn frammi, og jafnvel þótt Englendingar hafi verið með fín tök á þessum leik, þá er alveg ljóst í mínum huga (og Einars, sem ég ræddi við eftir leikinn og orð hans sannfærðu mig um sök málsins)  að ungstirnið/ofurhetjan/undrabarnið WAYNE ROONEY skeit á sig í dag. Upp á bak!

Hvað var hann að hugsa? Að traðka á fjölskyldudjásnum Ricardo Carvalho, eftir að búið var að dæma aukaspyrnu á þann síðarnefnda? Og að innsigla svo brottvísunina með því að hrinda Cristiano Ronaldo, sem nota bene kom aðvífandi bara til þess eins að reyna að mana Rooney upp í frekari vitleysu? Það var mikið traust lagt á Rooney af hálfu ensku þjóðarinnar í ár, og jafnvel enn meira eftir að Owen haltraði meiddur af velli gegn Svíum, en í stað þess að leyfa Peter Crouch, sem hafði ekki brugðist trausti Englendinga svo mikið sem einu sinni, að axla hluta af ábyrgðinni og um leið gera Rooney auðveldara fyrir þarna frammi, þá tók Sven Göran þann stóra bara út úr liðinu algjörlega í síðustu tveimur leikjum og lét þetta allt saman standa og falla með Rooney.

Og á daginn kom að Wonder-Wayne stóð engan veginn undir þessari pressu, þessu áliti ensku þjóðarinnar eða því trausti sem hafði verið lagt á hann. Jú, hann var ekki í fullu leikformi í þessari keppni en hann var heldur ekki nægilega klókur leikmaður til að spila einn frammi, og á endanum hljóp skapið með hann í gönur.

Englendingar eru dottnir úr leik. Allt í lagi með það, mér hefur yfirleitt verið nokk sama um þá. En Gerrard og Carragher klúðruðu vítaspyrnum og verða örugglega hundeltir af fjölmiðlum fyrir vikið, sem er neikvætt fyrir okkur Púllarana. Það neikvæðasta af öllu saman þó er það að Portúgal – og þá sérstaklega Cristiano Ronaldo – eru komnir í undanúrslit. Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur, þurfi einhver staðfestingu á því eftir að hafa horft á þessa leiksýningu í dag: PORTÚGALIR ERU LEIÐINLEGASTA FOKKING FÓTBOLTALIÐ Í HEIMINUM!

Cristiano Ronaldo. Luis Figo. Simao Sabrosa. Maniche. Pedro Pauleta. Petit. Tiago Mendes. Helder Postiga. Hugo Viana. Og til að toppa þetta er Luis Boa Morte, einn mesti leikari í enska boltanum, á bekknum hjá þeim.

Er til leiðinlegra fótboltalið í heiminum? Ég held ekki. Og alveg burtséð frá því hvort Frakkar eða Brasilíumenn vinna í kvöld, þá mun ég styðja fyllilega við bakið á sigurliðinu úr þeim leik gegn Portúgal í undanúrslitum. Mér er sama hverjir vinna HM í knattspyrnu, svo lengi sem það er ekki mesta leikaralið í heiminum, Portúgal. Þeir einfaldlega mega ekki vinna þessa keppni!

En já, þið lásuð það fyrst hér: Rooney var óheppinn í dag en Gerrard, Carragher og Lampard ættu að skammast sín. Þannig mun enska pressan fjalla um þennan leik, því að Wayne Rooney gerir aldrei mistök. Er það nokkuð?!?

Lampard meiðist
Sven Göran Eriksson, þetta [eru skilaboð frá almættinu](http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/world_cup_2006/4991618.stm):  Spilaðu 4-4-2 með Beckham, Carrick, Gerrard, Cole á miðjunni og Crouch & Rooney frammi.  Öðruvísi munt þú ekki vinna!

Í alvöru, ef að þetta sænska fífl ákveður að spila aftur með Rooney einn frammi, þá mun England ekki vinna.  Þrátt fyrir að Rooney hafi klobbað einhverja Ekvadora, þá mun hann ekki geta staðið sig einn gegn Carvalho og félögum.  Auðveldasta lausnin er að setja Lampard á bekkinn, gefa Gerrard meira frjálsræði og spila frammi með Crouch og Rooney.

En hverjum er ekki svo sem sama.  Eina liðið mitt, sem er eftir í keppninni ætlar að taka Þýskaland í óæðri endann í dag.  **ARRRRRR-Gen-tina!**