Færslur úr flokki: HM 2006

10 atriði sem HM sýndi fram á

Það er dagurinn eftir þennan magnaða úrslitaleik og maður er rétt að koma sér í gírinn fyrir félagsliðaknattspyrnu á nýjan leik. Það var sannarlega ömurlegt að vakna í morgun og sjá að það eru nánast engar fréttir af leikmannamálum að … Continue reading

Posted in HM 2006 | 16 Comments

Ítalía Heimsmeistari!

Í upphitunum helgarinnar talaði ég um að þessi leikur væri að öðrum ólöstuðum leikur áratugarins. Þótt ég efist um að nokkur knattspyrnuleikur á þessum áratug muni nokkurn tíma takast að vera betri, skemmtilegri og dramatískari en leikur Liverpool og AC … Continue reading

Posted in HM 2006 | 23 Comments

Dagurinn í dag

Ég segi bara … ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ!!! Megi betra liðið vinna. :)

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Leikur Áratugarins (Frakkland)

“Auðvitað erum við sáttir við mótið hingað til, jafnvel stoltir, en við erum ekki enn búnir að ná markmiði okkar. Við megum ekki dást að okkar eigin afrekum of snemma, til að draumurinn rætist þurfum við að vinna einn leik … Continue reading

Posted in HM 2006 | 20 Comments

Leikur Áratugarins (Ítalía)

“Við höfum safnað upp mikilli reiði á síðustu tveimur stórmótum. Í þessari keppni höfum við beislað þessa reiði og það hefur sýnt sig bersýnilega – við höfum nýtt þessa reiði okkar og gert úr henni eitthvað jákvætt” -Fabio Cannavaro, fyrirliði … Continue reading

Posted in HM 2006 | 8 Comments

Fowler ver sinn mann, en ekki hvað!

Robbie Fowler ver Jamie Carragher vegna vítaspyrnunnar sem hann klúðraði á dögunum gegn Portúgal (djö… var ég ánægður þegar Frakkland vann í gær). Tord Grip gagnrýndi Carragher nýverið og núna var fyrrum þrekþjálfari enska landsliðsins, Ivan Carminati, að segja að … Continue reading

Posted in HM 2006 | 1 Comment

Tord Grip gagnrýnir Carragher.

Tord Grip sem var aðstoðarmaður Sven-Goran Eriksson hjá enska landsliðinu gagnrýnir Carragher fyrir að hafa ekki verið með reglurnar á hreinu varðandi framkvæmd vítaspyrnukeppni þ.e. Carragher skaut áður en dómarinn flautaði vítið á. Mér segir sá hugur að Carragher hafi … Continue reading

Posted in HM 2006 | 6 Comments

Fjögur Lið Eftir

“Við fórum kannski hægt af stað, en þær þjóðir sem voru að spila best í byrjun móts munu allar horfa á undanúrslitin í sjónvarpinu.” -Raymond Domenech, þjálfari Frakka Michael Ballack. Francesco Totti. Luis Figo. Zinedine Zidane. Fjórar af stærstu og … Continue reading

Posted in HM 2006 | 17 Comments

HM: Portúgal í undanúrslit!

Og þar með er þátttöku leikmanna Liverpool á HM lokið, eftir að Englendingar töpuðu í vító fyrir Portúgal í dag. Peter Crouch spilaði síðasta hálftímann og framlengingu og var margfalt nær því að skapa mark eða skora sjálfur heldur en … Continue reading

Posted in HM 2006 | 14 Comments

Lampard meiðist

Sven Göran Eriksson, þetta eru skilaboð frá almættinu: Spilaðu 4-4-2 með Beckham, Carrick, Gerrard, Cole á miðjunni og Crouch & Rooney frammi. Öðruvísi munt þú ekki vinna! Í alvöru, ef að þetta sænska fífl ákveður að spila aftur með Rooney … Continue reading

Posted in HM 2006 | 3 Comments

HM: 8-liða úrslitin hefjast á morgun!

Jæja, það er komið að því. Á morgun eru fyrri tveir leikirnir í 8-liða úrslitum HM í knattspyrnu og það verður sko rosaleg veisla fyrir fótboltaaðdáendur! Af því að maður er þegar kominn með fráhvarfseinkenni, eftir tveggja daga frí frá … Continue reading

Posted in HM 2006 | 1 Comment

Engillinn Thierry Henry

Ég var eiginlega búinn að gleyma þessu, en var minntur þegar ég las frétt á BBC. Allavegana, eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni kom Thierry Henry fram með þessi ummæli: Next time I’ll learn to dive maybe, but I’m not a woman … Continue reading

Posted in HM 2006 | 35 Comments

Adios España

Jæja, okkar menn í spænska landsliðinu eru dottnir útaf HM. Þeir töpuðu fyrir Frakklandi. Þetta var verulega sárt, því Spánn hefði vel getað unnið þennan leik, þeir höfðu svo sannarlega styrk til þess. En Spánverjar réðu hreinlega ekki við vörn … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Strachan

Rödd skynseminnar í dag: Gordon Strachan: Bring back Crouch and let Rooney do his own thing. Já, og svo vill Ronaldo bara fara frá Man U. Ja hérna! Man U menn verða í verulegum vandræðum ef þeir missa bæði van … Continue reading

Posted in HM 2006 | 12 Comments

Kewell og félagar úr leik (uppfært: Sviss líka!)

Jæja, ævintýri Ástrala á HM er núna lokið, en Harry Kewell og félagar töpuðu 1-0 fyrir Ítölum í dag. Leikurinn var skemmtilegur og þrátt fyrir að Ítalir hafi verið sterkari, þá gátu Ástralir klárlega klárað þennan leik. Harry Kewell lék … Continue reading

Posted in HM 2006 | 12 Comments

HM: England og Portúgal í 8-liða úrslit!

Ókei, tveir leikir í dag en ég ætla bara að fjalla um einn. Fyrst unnu Englendingar nauman 1-0 sigur á Ekvador í einum leiðinlegasta leik mótsins. Ef Beckham hefði ekki sett þessa aukaspyrnu inn hefðu Englendingar ekkert gert til að … Continue reading

Posted in HM 2006 | 18 Comments

HM: Argentína og Þýskaland í 8-liða úrslit!

Jæja, 16-liða úrslitin hófust með háværum hvelli í dag þar sem heimamenn Þjóðverjar og Argentínumenn tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitunum, en þessar tvær þjóðir munu mætast á föstudaginn kemur. Þjóðverjar unnu stórgóðan 2-0 sigur á Svíþjóð í leik sem … Continue reading

Posted in HM 2006 | 4 Comments

HM molar

Jæja, í gær lauk riðlakeppninni með því að Frakkar og Svisslendingar komust áfram úr G-riðli, og því er orðið ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitunum. Þau eru sem hér segir: Þýskaland – Svíþjóð Argentína – Mexíkó England – Ekvador … Continue reading

Posted in HM 2006 | Comments Off

KEWELL!

Ég veit ekki með ykkur, en mikiða afskaplega var ég ánægður með að sjá Harry Kewell senda Króata heim og tryggja Ástrala inní 16 liða úrslitin Í gærkvöldi. Frábært hjá honum. Og mikið rosalega var þetta skemmtilegur leikur! Og ekki … Continue reading

Posted in HM 2006 | 18 Comments

HM: C og D riðlar klárir

Jæja, í dag voru 4 leikir á HM. Snemma í dag unnu Portúgalar Mexíkó á meðan að Angóla og Íran gerðu jafntefli. Þar með komust Mexíkóar og Portúgalar áfram úr D riðli. Í kvöld gerðu Argentína og Holland jafntefli á … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Owen sleit krossbönd

Michael Owen sleit krossbönd í gær í leiknum gegn Svíþjóð og verður frá í minnsta kosti 5 mánuði. Það á ekki af drengnum að ganga með meiðsli og núna eru það krossböndin frægu. Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir enska … Continue reading

Posted in HM 2006 | 6 Comments

HM: A og B riðlar klárir

Jæja, þá er búið að spila til lykta A- og B-riðlana og orðið ljóst hverjir mætast í fyrstu tveimur leikjum 16-liða úrslitanna á laugardaginn. Eftir að Þjóðverjar unnu auðveldan 3-0 sigur á Ekvador, sem hvíldu marga menn í dag, og … Continue reading

Posted in HM 2006 | 11 Comments

HM: Tvær umferðir búnar! (uppfært)

Jæja, þá eru búnar tvær umferðir í öllum riðlum en Spánverjar sigruðu Túnis í kvöld með þremur mörkum gegn einu. Nú eru búnir 32 leikir, eða helmingur þeirra leikja sem verða spilaðir í mótinu, og það hafa alls verið skoruð … Continue reading

Posted in HM 2006 | 3 Comments

HM: Liverpool á bekkinn

Samkvæmt fréttum mun SNILLINGURINN Sven Göran Eriksson setja Steven Gerrard og Peter Crouch á varamannabekkinn gegn Svíþjóð á þriðjudaginn. Þetta kemur til af því að Gerrard, Crouch og Frank Lampard eru allir á gulu spjaldi og SGE vill ekki þurfa … Continue reading

Posted in HM 2006 | 3 Comments

HM: Sex – Núll!!!

Ég veit hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu. Fékk vitrun fyrr í dag. Málið er ekki bara það að Argentínumenn hafi á að skipa mjög reyndum og færum markverði í Abbondanzieri. Málið er heldur ekki það að þeir séu með einn … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

HM: “Liverpool” 2 – T&T 0

Peter Crouch, má ég kynna þig fyrir heiminum. Heimur, þetta er Peter Crouch … :) Ég var kominn á fremsta hlunn með að skrifa aðra kvabbfærslu um England og slappan leik þeirra þegar Beckham þrykkti einum sveittum fyrir og Peter … Continue reading

Posted in HM 2006 | 19 Comments

HM: Ekvador!

Jæja, Ekvador voru að skella liði Kosta Ríka í annarri umferð A-riðils. Þeir unnu auðveldan og sannfærandi 3-0 sigur sem þýðir að þeir eru á toppi riðilsins með sex stig ásamt Þjóðverjum, á meðan Kosta Ríka-menn og Pólverjar sitja eftir … Continue reading

Posted in HM 2006 | 2 Comments

HM: Spánverjar í banastuði!

Spánverjar gerðu sér lítið fyrir og rústuðu Úkraínu, 4-0, í opnunarleik riðils síns í dag. Þeir fóru einfaldlega á kostum frá fyrstu til síðustu mínútu og ef þeir geta haldið áfram þessari spilamennsku þykir mér ljóst að þeir koma sterklega … Continue reading

Posted in HM 2006 | 2 Comments

Tógó?

Smáríkið Tógó frá Afríku hefja leik á HM klukkan 13 í dag gegn Suður-Kóreu, og eru einnig með Frökkum og Svisslendingum í riðli en þau lið mætast síðar í dag. Ég hef tekið þá ákvörðun að halda ekki með Tógó … Continue reading

Posted in HM 2006 | 10 Comments

HM dagur 4: Socceroooooooooos!

Jæja, þá er leikdagur fjögur á HM búinn og þremur frábærum leikjum lokið. Þetta hefur svo sannarlega verið stórskemmtilegur leikdagur. Flugeldasýningin hófst snemma þegar Ástralir unnu Japana, 3-1, í sínum fyrsta leik í úrslitum HM. Þetta var stórskemmtilegur leikur á … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

HM í dag: Holland og Mexíkó

Í dag spiluðu tvö uppáhaldsliðin mín á HM leiki, Holland og Mexíkó. Ég hef haldið með Hollandi verulega lengi. Ég man að þegar ég var pínulítill þá hélt ég uppá Michel Platini og franska landsliðið. Sú aðdáun dó þó á … Continue reading

Posted in HM 2006 | 5 Comments

England 1 – Paragvæ 0

Jæja, Englendingar unnur Paragvæ í frekar leiðinlegum leik á HM í dag. Ég er enginn sérstakur Englandsáhugamaður, því að Holland, Mexíkó og Argentína eru ofar á listanum hjá mér. En þetta vakti áhuga minn þar sem tveir Liverpool menn voru … Continue reading

Posted in HM 2006 | 5 Comments

Crouchy og Gerrard með, Carra á bekknum

Jæja, enska liðið gegn Paragvæ er komið. Liðið er einsog í síðasta æfingaleik, nema að Gary Nev*?´- er í bakverðinum í staðin fyrir Carragher. Robinson Neville – Ferdinand – Terry – A.Cole Beckham – Gerrard – Lampard – J.Cole Owen … Continue reading

Posted in HM 2006 | 3 Comments

HM í dag: Þýskaland og Ekvador unnu

HM í Þýskalandi hófst með háværum hvelli í dag. Í opnunarleik mótsins í ár unnu Þjóðverjar 4-2 sigur á Kosta Ríka í stórskemmtilegum leik, sennilega einhverjum skemmtilegasta opnunarleik í marga áratugi. Það var mikil pressa á heimamönnum sem voru án … Continue reading

Posted in HM 2006 | 1 Comment

Ókeypis miði á HM!!!

Já, þið lásuð þetta rétt. Ég var beðinn um að auglýsa hérna á blogginu miða á HM, sem fæst ókeypis. Þetta er 1 miði á England – Trinidad – 15 júní í Nurnberg. Miðinn er fyrir aftan annað markið í … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Crouchy

Skemmtileg komment frá þjálfara Paragvæ: “Peter Crouch is a concern for me. We hardly come across players like him, very seldom. In football it is not easy to find such a tall player with such good control. He has this … Continue reading

Posted in HM 2006 | Comments Off

Robbie um Carra

Robbie Fowler skrifa um enska landsliðið í Echo WATCHING England’s final warm-up match against Jamaica last Saturday, I was left speechless during one part of John Motson’s commentary. As he was talking to Mark Lawrenson about England’s possible starting line-up … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Verður Cisse í franska liðinu?

Nokkuð athyglisverðir hlutir eru að gerast í tengslum við franska landsliðið. Samkvæmt Reuters verður Djibril Cisse í byrjunarliðinu í síðasta æfingaleik Frakka fyrir HM, á morgun. Raymond Domenech hafði áður gefið það sterklega í skyn að liðið í síðasta æfingaleiknum … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Van Basten

Ég veit ekki með ykkur, en fréttaþurrðin er alveg að gera útaf við mig. Það er víst eins gott bara að maður hefur HM-fréttirnar til að ylja sér á þessum löngu dögum, annars veit ég ekki hvað ég myndi gera. … Continue reading

Posted in HM 2006 | 4 Comments

CROUCHY!

JÆJA, okkar maður Peter Crouch tók sig til og skorað ÞRENNU með enska landsliðinu gegn Jamaíka í síðasta upphitunarleiknum fyrir HM. Við ættum þar með að geta bókað að hann verði í byrjunarliðinu gegn Paragvæ næsta laugardag. Hann hefur því … Continue reading

Posted in HM 2006 | 7 Comments

Peter Crouch – The Robot

Peter Crouch fór á kostum í leik Englendinga og Ungverja í gær og skoraði frábært mark, sem að hann og Joe Cole bjuggu til. Í tilefni þess, nokkur myndbönd (í boði YNWA) Markið hans og fagnið: Hérna er myndasería með … Continue reading

Posted in HM 2006 | 8 Comments

Miðjumaðurinn

Dömur mínar og herrar, má ég kynna manninn sem ætlar að redda öllum miðjuvandræðum Englendinga í sumar… Samkvæmt Indenpendent ætlar Sven-Göran að spila með 5 manna miðju á móti Ungverjum annað kvöld. Semsagt, á miðjunni eiga að vera Beckham, Lampard, … Continue reading

Posted in HM 2006 | 8 Comments

Leikmenn Liverpool á HM

Jæja, nú eru opinberlega aðeins tíu dagar þangað til Heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst. Hún fer fram í Þýskalandi þetta árið, þannig að ólíkt síðustu keppni fær maður að horfa á leikina á mannsæmandi tímum. Allavega, vegna gríðarlegs fréttaleysis af Liverpool … Continue reading

Posted in HM 2006 | 1 Comment

Kromkamp í hollenska hópnum

Jæja, Van Basten virðist vera hættur í fýlu útí Jan Kromkamp, þar sem hann hefur valið hann í 23 manna landsliðshóp Hollands fyrir HM 2006. Gott mál. Dirk Kuyt (sem ég lærði að er borið fram Dirk Kæt) er líka … Continue reading

Posted in HM 2006 | 1 Comment

Dudek ekki á HM

Jerzy Dudek er ekki í pólska landsliðshópnum fyrir HM. Þjálfarinn valdi þrjá markmenn og er Dudek ekki einn af þeim. Markmennirnir eru Artur Boruc (Celtic), Tomasz Kuszczak (West Bromwich Albion), Lukasz Fabianski (Legia Warsaw)

Posted in HM 2006 | 2 Comments

Ekkert pláss fyrir Morientes í landsliðishópi Spánverja

Það kemur mér í rauninni ekkert stórkostlega á óvart. Og þó…. hvað hefur Nando fram yfir hina leikmennina? Hann hefur ekki verið mjög iðinn við kolann í vetur, en hann býr yfir mikilli reynslu sem gæti komið sér vel á … Continue reading

Posted in HM 2006 | 8 Comments

Djibril í franska hópnum

Jæja, Djibril Cisse sem hefur verið útí kuldanum hjá franska landsliðinu í smá tíma er aftur kominn inní 23 manna hópinn fyrir HM. Í hópnum er einnig Alou Diarra, sem Liverpool seldi til Lens síðasta sumar. Franski hópurinn er svona: … Continue reading

Posted in HM 2006 | 2 Comments

Allir Spánverjarnir okkar á HM!

Marca menn segjast hafa heimildir fyrir því hverjir 22 af 23 leikmönnunum, sem leika fyrir hönd Spánar á HM, eru. Samkvæmt blaðinu eru allir Liverpool mennirnir í hópnum. Þeir sem eru öruggir samkvæmt Marca: Markmenn: Casillas, Pepe, Canizares Varnarmenn: Salgado, … Continue reading

Posted in HM 2006 | 5 Comments