Liverpool Bloggið » Auglýsingar

Liverpool Open 2011
Langar að minna stuðningsmenn Liverpool FC á Íslandi sem stunda golf íþróttina á Liverpool Open 2011 sem haldið verður á Urriðavelli (Golfklúbburinn Oddur) þann 6. ágúst nk.  Nánari upplýsingar hérna.

Miðar á Anfield fyrir 2011/2012 tímabilið
Liverpool Football Club er þessa dagana að breyta talsvert því fyrirkomulagi sem hefur verið á miðaúthlutun til stuðningsmannaklúbba um allan heim.  Á komandi tímabili þá verður algjörlega hætt með pappírs miða á völlinn eins og tíðkast hefur alla tíð, í staðinn koma svokölluð Smartkort.  Þetta þýðir einfaldlega að allir þeir sem ætla sér að fara í ferð í vetur (tímabilið 2011/2012) VERÐA að ganga í hinn opinbera stuðningsmannaklúbb Liverpool Football Club.  En hvað fá meðlimir fyrir það að ganga í þann stóra klúbb.

Eftirfarandi fylgir í kaupunum:

3 mánaða frí reynsluáskrift að LFCTV á netinu

Rafrænt fréttabréf mánaðarlega sem inniheldur einkaviðtöl og efni sem kíkir á bakvið tjöldin hjá LFC

Upphitunarpóstur í tölvupósti fyrir alla heimaleiki í ensku úrvalsdeildinni

Gjafapakki sem inniheldur USB lykil með sérstöku Liverpool efni á, að auki silfraður LFC penni

10% afsláttur í Liverpool búðinni, hvort sem um ræðir í gegnum netið eða opinberri verslun LFC

40% afsláttur af áskrift að LFC Weekly tímaritinu

30% afsláttur af áskrift að LFC Programme tímaritinu

10% afsláttur af opinberum LFC bókum

20% afsláttur af öllum Legends Tours og Anfield Stadium Tour & Museum (http://www.liverpoolfc.tv/history/tour-and-museum)

10% afsláttur af Anfield Experience og Ultimate Anfield Experience  (http://www.theanfieldexperience.com/)

10% afsláttur af mat í Boot Room Sports Cafe, Anfield

Afslættir og tilboð frá samstarfsaðilum og fleira

Sitt eigið Smartkort, sem verður virkjað sérstaklega þegar viðkomandi ætlar sér á völlinn og verður því miðinn inn

Verðið fyrir þetta er 18,99 pund, eða 3.600 krónur.

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Liverpoolklúbbinn á Íslandi í heild sinni, sem og alla meðlimi hans og þá sem hafa einhvern hug á því að fara á völlinn í vetur, að bregðast hratt við og ganga í alþjóða stuðningsmannaklúbbinn.  Fjöldi íslenskra meðlima þar inni mun ákvarða þann fjölda miða sem klúbburinn fær úthlutað á leikina í vetur.  Það er því mikið í húfi fyrir alla, bæði þá sem ætla sér á völlinn í vetur og eins þá sem hafa hug á því að gera það í nánustu framtíð.

Þeir sem gengu í All Red klúbbinn í fyrra, hafa væntanlega fengið boð um endurnýjun ganga bara frá henni eins og fram hefur komið í tölvupóstinum.  Við viljum þó biðja viðkomandi aðila um að senda okkur upplýsingar um sig, númer á Fan Card og í raun upplýsingarnar sem beðið er um hér að neðan, svo auðveldara verði fyrir okkur að halda utan um þetta og ganga fá miðamálum þegar þar að kemur.  Allir hinir, sem vilja ganga frá aðgangi geta gert það í gegnum Liverpoolklúbbinn á Íslandi.  Það sem senda þarf er eftirfarandi:

Nafn

Kennitölu

Heimilisfang

Póstnúmer

Sveitarfélag

E-mail

GSM númer

Ástæðan fyrir því að félagið (LFC) vill fá E-mail og GSM númer er að viðkomandi aðili mun fá sendan tölvupóst eða sms sé hann búinn að fá sæti á leik.  Þar kemur fram hvaða sæti og hvar það er staðsett.  Endilega sendið okkur þessar upplýsingar á felagaskraning@liverpool.is og við göngum frá málunum fyrir ykkur.  Skráningarfrestur er til 4. júlí nk.  Greiðsluna er hægt að inna af hendi með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:

0537-26-116662

kt:  460896-2319

Liverpool: The Complete Record – forpöntun lýkur í dag!
Fyrir tveimur vikum sögðum við frá nýrri bók þeirra Arngríms Baldurssonar og Guðmundar Magnússonar (snillingarnir á bak við LFC History-vefsíðuna). Við viljum minna áhugasama á að forpöntun lýkur í dag!

Með forpöntun fæst 20% afsláttur af verði bókarinnar en eftir það er samt sem áður hægt að panta bókina áfram út júní.

Bókin kemur í almenna sölu í haust en með forskráningu sleppa menn við að bíða. Smellið hér til að panta eintak af bókinni, og þið getið svo lesið ykkur meira til um bókina hér.

Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2011
Árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi árið 2011 verður haldin hátíðleg þann 16. apríl nk. á heimavelli okkar, Players í Kópavogi.  Að vanda verður mikið um dýrðir og ættu Poolarar svo sannarlega að geta komið saman og skemmt sér ærlega. Síðustu árin hefur alltaf verið uppselt á árshátíðina og því um að gera fyrir menn að vera snöggir að tryggja sér miða í tíma.

Staður:  Players Kópavogi

Miðaverð:  4.500 krónur

Dagsetning:  16. apríl

Húsið opnar:  19:00

Veislustjóri:  Sveinn Waage

Heiðursgestur:  Alan Kennedy

Forréttur:  Rjómalöguð aspassúpa

Aðalréttur:  Grísasteik með portvínssósu, grænmeti, eplasalati og sykurbrúnum kartöflum

Það má búast við miklu fjöri, því auk heiðursgestsins Alan Kennedy, þá mæta allavega 4 af mestu söngpípum The Kop. Það er aldrei dauð stund í kringum þá!

Að vanda verður happdrættið góða í gangi og að sjálfsögðu er aðalvinningurinn að vanda ferð á Anfield. Inngangsmiðarnir eru númeraðir og gilda í happdrættinu.  Það eru því góðar líkur á vinningum.

Fulltrúar frá Opus Events í Liverpool verða einnig á svæðinu og verða nokkrir “priceless” hlutir boðnir upp og verða því ekki “priceless” mikið lengur.  Hlutir sem verða á uppboðinu eru meðal annars: Árituð Steven Gerrard treyja, árituð Jamie Carragher treyja, árituð Kevin Keegan treyja, árituð Ian Rush treyja, skór og treyja árituð af Robbie Fowler, VIP ferð á leik með Liverpool.

Undanfarin ár hafa færri komist að en vildu og því um að gera fyrir menn að hafa hraðar hendur og panta sér miða hið fyrsta.  Eins þarf að greiða fyrir miðana sem fyrst, því þeir verða seldir þeim sem á biðlista verða, í síðasta lagi 3 dögum fyrir árshátíðina.  Til að skrá sig geta menn sent póst á Braga Brynjarsson (bragi@liverpool.is) eða ef menn vilja hringja í hann í síma 820-9206 eftir klukkan 16:00 á virkum dögum.

Hægt er að greiða miðana með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:

0537-26-116662, kennitala 460896-2319

En menn geta líka greitt með kredit korti í gegnum síma.

Auglýsingar: JJ Fjármál og Humarsalan
Þið afsakið vonandi truflunina á fótboltaspjallinu en ég vildi tilkynna áhugasömum að við erum búnir að selja í auglýsingaplássin okkar til lengri tíma. Það eru annars vegar JJ Fjármál sem verða með okkur út næsta tímabil frá og með deginum í dag, og hins vegar Humarsalan sem hafa verið með okkur frá áramótum og verða hjá okkur út árið.

Þannig að ef ykkur vantar aðstoð við skattaskýrsluna getið þið fengið faglega aðstoð hjá grjóthörðum Púllurum hjá JJ Fjármálum og fagnað svo skattaskilunum með stórhumri frá Hornafirði frá Humarsölunni!

Við þökkum þeim og öðrum áhugasömum fyrir frábær viðbrögð í dag og eiginlega bara síðan við byrjuðum auglýsingasöluna. :)

KOP QUIZ / BJÓRKVÖLD FÖS. 20:00
Á morgun gerist það, fyrsta Pub Quiz Liverpool bloggsins og þ.a.l. einstakt tækifæri fyrir lesendur síðunnar, vini þeirra og aðra púllara að athuga hvar þeir standa í Liverpool fræðunum gagnvart þeim allra hörðustu.

Fyrir þá sem þurfa afsökun fyrir slæmu (eða góðu) gengi þá er Liverpool klúbburinn með bjórkvöld á sama tíma og á sama stað sem er ótrúleg tilviljun og kostar vökvinn hjá þeim svipað mikið og hann kostaði það herrans ár 2007 eða þar um bil.

Ef við setjum dæmið upp á svo einfaldan hátt að jafnvel SSteinn skilur það:

Hvar: Players Kópavogi, heimavelli okkar hér á landi.

Hvenær: Flöskudaginn 12.nóv (á morgun)

Bjórkvöld hefst klukkan 20:00

Kop Quiz hefst 21:00 (21:00 er teygjanlegt hugtak).

Verð: Frítt á Bjórkvöld og Quiz (sem er mjög gott verð), bjórinn kostar rétt rúmlega einn rauðan (sem er líka fínt verð).

Eftir Bjórkvöld/Quiz: Það er hið óviðjafnanlega Júlla diskó, sem trekkti ekki færri en 600 manns að síðast. Mikið betra geim en nafnið gefur kannski til kynna. Þar er líka frítt inn og bara hundar og læti.

Hvað er Pub Quiz: Fyrir þá sem ekki vita hvað Pub Quiz er þá er þetta ótrúlega einfaldur spurningaleikur og hreint frábær afsökun til að fá sér bjór, sérstaklega þegar viðfangsefnið er Liverpool FC. Það er ekkert betra viðfangsefni til þegar kemur að pub quiz og ég fullyrði aldrei betra tækifæri fyrir mjög marga sem kíkja reglulega hingað inn til að líta út fyrir að vera gáfaðir. Pub Quiz bara með Liverpool spurningum er eins og draumur þegar kemur að spurningaleikjum. Þetta er samt blanda af nokkuð þungum og léttum spurningum og ekkert endilega víst að “proffarnir” rústi þessu og ætti klárlega að vera við ALLRA hæfi :-)

Þetta virkar þannig að það eru tveir saman í liði og þeir eiga að reyna að svara eins mikið af spurningum og þeir geta. Það er ekki leyfilegt að vera þrír saman í liði en hafi menn engan partner er auðvitað guðvelkomið að spila einn eða sjá hvort ekki sé einhver stakur á Players sem hægt er að spila með. Spurningarnar koma allar til með að snúast um Liverpool FC en viðfangsefnum er skipt í 6 flokka og eru sex spurningar í hverjum þeirra.

Sem dæmi þá kemur einn flokkurinn til með að leggja aðeins áherslu á síðuna okkar, kop.is þannig að ekki væri úr vegi fyrir menn að vita eitthvað um hana, þó spurningarnar séu auðvitað aðallega um Liverpool í þeim flokki líka. Einn flokkurinn er síðan bara bland í poka þannig að til að vera hann á hreinu þarftu að vita ALLT um Liverpool. Hinir flokkarnir fjórir fjalla svo bara um klúbbinn á hefðbundinn hátt og verður ekkert gefið upp um viðfangsefnið í þeim flokkum. Þó skal tekið fram að við tökum mjög vel í allar tegundir af mútum.

Ekki missa af þessu, það er ekki Pub Quiz um Liverpool á hverju ári, það er ekki bjórkvöld hjá Liverpool klúbbnum í hverjum mánuði og það er ekki á hverjum áratug sem þér lesandi góður gefst tækifæri til að sjá Magga með berum augum. Hvað þá að sjá eftir Quiz-ið manninn sem er allra manna fróðastur um Liverpool hér á landi…eða jafnvel vera sá maður.

Þeir meðlimir kop.is sem eru á landinu mæta ferskir

Kveðja

Aðstandendur kop.is og Liverpool klúbbsins.

BlackBerry Curve 8520 (seldur!)
UPPFÆRT: SELDUR! Þakka góð viðbrögð en ég er búinn að selja símann.

Afsakið mig snöggvast en ég ætla að nota síðuna í eigingjörnum tilgangi svona eins og einu sinni.

Málið er það að ég er að selja símann minn, BLACKBERRY CURVE 8520. Allar nánari upplýsingar um símann, það sem fylgir með og myndir af honum má finna á heimasíðunni minni. Þetta er frábær sími sem ég mæli með.

Fleira var það ekki í bili.

Auglýsingar og ummæli
Það eru tvö mál tengd síðunni sem ég vil nefna stuttlega á þessum föstudegi.

Í fyrsta lagi vil ég þakka frábær viðbrögð við tilkynningu okkar um auglýsingar á síðunni. Við höfum fengið fjölda fyrirspurna og erum búnir að selja auglýsingar fyrir þó nokkra mánuði af næsta árinu.

Þó vil ég benda áhugasömum á að **desember, janúar og febrúar eru ennþá á lausu** þannig að ef einhver er enn að velta fyrir sér að taka slaginn þá er ekki seinna vænna. Til að fá frekari upplýsingar getið þið haft samband við mig á kristjanatli@gmail.com.

Eins og glöggir hafa séð er fyrsti auglýsandinn kominn á síðuna. Það var klippistofan Rebel sem reið á vaðið og sést auglýsing þeirra hérna hægra megin á síðunni. Þá geta menn vingast við þá á Facebook-síðunni þeirra og að sjálfsögðu skellt sér í klippingu án þess að þurfa að panta sér tíma. Miðað við aðstöðuna þarna held ég að við getum fullyrt að þetta sé eitthvað fyrir lesendur þessarar síðu (hver vill ekki taka í kjuðann á meðan beðið er eftir að stóllinn losni?) og myndi ég eflaust gera það sjálfur, ef ég hefði hár. ;)

Seinna atriðið sem ég vil minnast á eru **þið, lesendur síðunnar**. Eins og hefur (því miður) ekki farið framhjá okkur hefur liðið okkar lent í áður óséðri lægð síðustu vikurnar. Síðasti einn og hálfi mánuðurinn hefur verið skelfilegur og hafa umræðurnar á síðunni verið eftir því, mjög hitaðar og skoðanaskiptar. Ef við tökum síðustu tíu færslur á síðunni hafa alls verið skráð 742 ummæli þegar þetta er skrifað eða 74,2 ummæli að meðaltali á færslu! Þetta er að ég held mesta magn ummæla sem hefur komið inn á síðuna á svo stuttum tíma og sýnir kannski bæði að síðan er enn að auka við sig í vinsældum og það að fólk er farið að taka meiri þátt í umræðunum.

Það sem er hins vegar undarlegt við þennan ummælafjölda er hversu fá ummæli við Einar Örn höfum þurft að ritskoða eða fjarlægja. Yfirleitt þegar liðið tapar leik höfum við farið á svokallaða sjálfsmorðsvakt hér inni, því oft höfum við þurft að henda út frekar mörgum ummælum þegar illa gengur. Í haust hefur hins vegar orðið merkjanleg breyting á þessu og ég hugsa að það séu varla tíu ummæli sem við þurftum að henda út í öllum októbermánuði. Það er stórkostlegt miðað við þann fjölda ummæla sem koma hér inn nú orðið að svo lítill hluti þeirra sé fyrir neðan tilgefna staðla.

Þannig að mig langar til að nota tækifærið og þakka YKKUR, lesendum síðunnar, fyrir að vera frábærir. Við sem skrifum á síðuna erum aðeins hluti þess sem gerir hana góða, það eru þessi fjölmörgu, frábæru ummæli ykkar sem gera hana að því sem hún er í dag. Þakka ykkur öllum fyrir!

Auglýsingar á Kop.is
Það hefur verið frekar langur aðdragandi að þessu en nú er komið að því að við ætlum loksins að byrja að selja auglýsingar á Kop.is.

Eins og ég sagði hefur þetta verið frekar lengi í bígerð hjá okkur eigendum síðunnar. Í upphafi ætluðum við að keyra þetta af stað strax en svo hefur þetta frestast tvisvar. Fyrst vegna annríkis hjá okkur félögunum og svo í seinna skiptið, og þá talsvert löng frestun, vegna bankahrunsins í fyrra. Þeir möguleikar sem voru uppi á borðinu við bankahrunið einfaldlega hurfu og það var ljóst í okkar huga að við yrðum að leyfa þjóðfélaginu aðeins að jafna sig áður en við settum þetta mál aftur á dagskrá.

Nú er hins vegar komið að því. Eins og kemur fram á upplýsingasíðu fyrir auglýsingar á Kop.is (sjá hér til hægri) eru skrifaðar að meðaltali tvær færslur á þessa síðu á dag og fær hún um 2.400 heimsóknir daglega, sem gerir hana að einni vinsælustu og víðlesnustu bloggsíðu landsins. Af þessu erum við gífurlega stoltir og sjáum því ekkert til fyrirstöðu að það ætti að vera gott tækifæri fyrir auglýsendur að nýta sér þessa stöðu okkar á meðal íslenskra bloggara.

Við eigendurnir höfum aldrei rekið þessa síðu til að græða á henni. Síðan er rúmlega fimm ára gömul og höfum við allan tímann lagt út fyrir kostnaði reksturs síðunnar úr eigin vasa. Okkar helsta markmið með því að selja auglýsingar á síðuna er einfaldlega það að ná inn fyrir kostnaði svo að síðan geti „rekið sig sjálf“ eins og sagt er. Þetta teljum við að sé raunhæfur möguleiki með því einu að bjóða upp á mjög ódýran og sanngjarnan birtingarkost fyrir auglýsendur.

Verð á auglýsingu á Kop.is er **krónur 10.000 á mánuði**, en þó bjóðum við upp á afslátt ef teknir eru fleiri en einn mánuður í einu. Þeir sem vilja hafa samband og ræða mögulegt samstarf eða fá frekari upplýsingar geta haft samband við Kristján Atla á netfanginu kristjanatli@gmail.com.

Með kveðju,

Einar Örn Einarsson og Kristján Atli Ragnarsson

stofnendur, eigendur og ritstjórar Kop.is.

Fótbolta pub quiz
Við vorum beðnir um að koma eftirfarandi á framfæri:

Fótbolta Pub Quiz Sammarans

Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér hvort þú vitir meira um fótbolta en aðrir? Nú geturðu fengið svarið.

Pub Quiz Sammarans fer fram í fyrsta skipti mánudagskvöldið 8. júní kl 20:00 á Enska Barnum. Það eru strákarnir á sammarinn.com sem standa fyrir viðburðinum og eins og einhver hefur eflaust getað sér til um tengjast allar spurningarnar fótbolta.

Formið er hefðbundið þar sem tveir eru saman í liði og hafa nú þegar nokkur sigurviss tvíeyki búin að boða komu sína á viðburðinn. Sammarinn reiknar með að halda keppnirnar á nokkurra vikna fresti hér eftir.

Efstu þrjú liðin hljóta í verðlaun 1 metra af bjór en auk þess verður bjórspurningin á sínum stað.

Hvað: Fótbolta Pub Quiz Sammarans

Hvar: Enski Barinn, Austurstræti 12

Hvenær: Mánudagskvöldið 8. júní kl 20

Hvers vegna: 1 metri af bjór og fyrsta flokks félagsskapur

Frekari upplýsingar: tumi@sammarinn.com