20. apríl, 2007
Wigan á morgun sem þýðir að það styttist enn í leikinn stóra gegn Chelsea, stærsta leik tímabilsins, eins og staðan er núna… alltaf auðvelt að segja svona, og þetta hefur áður heyrst á tímabilinu. Eftir þann leik verður líka seinni leikurinn svo stærsti, og svo framvegis….
Það er erfitt að einbeita sér að leik gegn Wigan á morgun með svona leik framundan. Meira að segja ég er ekki búinn að tala um neitt annað í þessari upphitun fyrir leikinn á morgun. Jæja, við einbeitum okkur að Chelsea á sunnudaginn.
Wigan já. Paul Jewell, sem er fæddur í Liverpool, er búinn að gera ágætt mót með þetta lið sem er þó enn í fallbaráttu. Það situr í 15 sæti með 35 stig, þremur stigum meira en Charlton sem vermir 18 sætið. Það er því mikið í húfi hjá þeim. Okkar menn eru eins og við vitum í þriðja sætinu, með tveimur stigum meira en Arsenal. Það eru 10 stig í Everton og Bolton og þetta Meistaradeildarsæti er tryggt, það er alveg klárt mál. Auðvitað viljum við lenda í þriðja sæti frekar en því fjórða en þessi 500 þúsund pund skipta engu máli, heiðurinn og tölfræðilega hliðin skipta auðvitað máli samt sem áður.
Rafa mun væntanlega nota tækifærið og hvíla menn fyrir stórleikinn í næstu viku. Auk þess er þetta gott tækifæri til að leyfa nokkrum minni spámönnum og þeim sem hafa ekki spilað mikið tækifæri til að sýna sig í deildinni. Eigum reyndar enga minni spámenn nema hann fari að nota kjúklingana….
Rafa veit eflaust nú þegar hvernig hann mun byrja leikinn gegn Chelsea (vá hvað er erfitt að minnast ekki á þennan leik!
, ef ekkert óvænt kemur upp á æfingum hvað varðar form eða meiðsli. Því velur hann líklega liðið á morgun með hliðsjón af því.
Aftast í hausnum á leikmönnum, og greinilega mér líka, er þessi leikur gegn Chelsea búinn að hringsóla síðan í síðustu viku. Við spiluðum illa gegn Manchester City og mér skilst að leikurinn gegn Boro hafi ekki verið góður. Sá hann að vísu ekki. Ég á ekki von á neinum stjörnuleik frá okkar mönnum á morgun heldur en ég held að þetta Wigan lið eigi samt ekki að vera nein fyrirstaða.
Wigan eru veikir varnarlega að mörgu leiti og það er ekki hlaupið að því að skora á Anfield eins og við vitum. Þetta er eiginlega nágrannaslagur þar sem Wigan er aðeins 20 mílum frá Liverpool en það er athyglisvert að það hefur tapað öllum leikjum sínum gegn “stóru fjórum” frá því þeir komust upp í deildina árið 2005.
Wigan býður upp á Emile Heskey í sókninni sinni. Ég held að Carra hafi lítinn áhuga á því að láta hann skora hjá sér. Kirkland verður ekki í marki þeirra, og búið ykkur undir þetta – Hann er meiddur. Ég á ekki eitt aukatekið… Ég hef alltaf verið nokk hrifinn af Henri Camara, finnst hann góður leikmaður. Svo eru þeir með nokkra fyrrum leikmenn Everton og svona. Skiptir samt engu máli.
Okkar menn? Bellamy gæti fengið að spila eftir meiðsli, annars eru þessir hefðbundu meiddir. Ómögulegt að spá í byrjunarliðið. Ætla að tippa á þetta.
Reina
Finnan - Carragher - Hyypia - Riise
Gerrard - Alonso - Mascherano - Gonzalez
Kuyt - Fowler
Bekkur: Dudek, Agger, Sissoko, Crouch, Bellamy.
Ég held að Crouch verði einn frammi gegn Chelsea, Gerrard rétt fyrir aftan hann og Pennant á kantinum. Speedy verður að spila þennan leik. Rafa gæti reyndar róterað þessu meira, til dæmis sett bara Paletta í byrjunarliðið, og svo erum við með fjóra frábæra miðjumenn. Kannski spila bara tveir þeirra gegn Chelsea. Hann gæti notað hina tvo á morgun. Held samt að þeir verði þrír í báðum leikjum, ef Gerrard er einn af þessum svokölluðu miðjumönnum.
Kyut var ekki með gegn Boro og ekki Finnan heldur. Fowler kallinn… vona að hann spili. Agger gæti fengið hvíld fyrir frænda sinn, kannski ekki - kemur í ljós!
Mín spá: Svipað og gegn Boro, ekkert spes leikur, en við innbyrðum öruggan sigur gegn Wigan sem mun aldrei sjá til sólar á Anfield. 3-0, Fowler, Gerrard og Kuyt.