Aftur á forsíðu
« Oh, it's ON! | Aðalsíða | Byrjunarliðið gegn City »

13. apríl, 2007
Man City á morgun.

stuart-pearce-%2410852%24180.jpgÁ morgun fara okkar menn til Manchester spila á City of Manchester Stadium. Þetta verður erfiður leikur líkt og ávallt gegn Man City. Við höfum unnið síðustu þrjá leiki gegn þeim, 1-0 þann 25. nóv á síðasta ári á Anfield, 1-0 á City of Manchester Stadium þann 26. feb. 2006 og 26. nóv 2006 á Anfield 1-0. Þannig að útfrá því vinnum við 1-0 þennan leik :-) en málið er að Man City er á góðu skriði síðustu vikurnar og hafa þeir ekki tapað leik síðan gegn Chelsea 14.mars 0-1. Þeir hafa unnið 3 leiki af 4 og eitt jafntefli og hafa allir sigurleikirnir verið á útivelli, Fulham (1-3), Newcastle (0-1) og Middlesboro (0-2). Síðan gerðu þeir steindautt 0-0 jafntefli gegn Charlton á heimavelli.

Okkur hefur einnig gengið vel undanfarið og var síðasta tapið í deildinni í byrjun mars þegar við töpuðum með ótrúlegum hætti gegn manchester united en ég hef ekki áhuga að fara nánar útí það.

Micah Richards og Paul Dickov eru meiddir hjá Man City en Dietmar Hamann er víst klár og verður með á morgun. Leikmaður sem er dáður í Liverpool og var hann einn af mínum uppáhaldsleikmönnum. Hann hefur verið í miklum meiðslavandræðum frá því hann fór til Bolton/Man City.

Hjá okkur eru þeir Luis Garcia, Harry Kewell og Fabio Aurelio allir frá vegna meiðsla sem og Craig Bellamy. Aðrir munu vera heilir og tilbúnir í slaginn.

Hvernig Rafa stillir upp liðinu er líkt og ávallt erfitt að segja til um en ég tel ljóst að Gerrard, Carragher, Finnan og Kuyt komi inní byrjunarliðið eftir hvíld gegn PSV sem og Zenden gæti haldið sæti sínu eftir fínan síðasta leik. Gonzalez hefur ekki verið að nýta þau tækifæri sem hann hefur fengið miðað við t.d. Pennant sem hefur komið mjög sterkur upp seinni part tímabilsins.

Reina

Finnan - Agger - Carragher - Riise

Pennant - Alonso - Gerrard - Zenden

Kuyt - Crouch

Bekkurinn: Dudek, Fowler, González, Mascherano, Arbeloa, Hyypia og Sissoko. Hver verður nákv. á bekknum hef ég ekki hugmynd um.

Ég hef ávallt haft “soft-spot” fyrir Stuart Pearce, stjóra Man City. Ég fílaði hann sem leikmann, ótrúlegur nagli og fastur fyrir. Þannig virðist hann einnig vera sem stjóri. Hann virkar afar hreinskilinn og er óhræddur að taka áhættur. Ef illa gengur þá tekur hann sína ábyrgð og kennir ekki eingöngu leikmönnum um ef illa gengur. Hann virðist hafa góða stjórn sínum leikmönnum og hefur náð að þroska leikmenn eins og Joey Barton.

Núna lítur út fyrir það að City sé búið að bjarga sér endanlega frá falli með góðu gengi undanfarið og ætla mætti að leikmenn myndu þá jafnvel slaka á þar sem tilætluðum árangri er náð. En Stuart Pearce er ekki sammála og segir m.a.:

“If you ask me whether we are in a league position I will find acceptable if that is where we end up, the answer is no. For me to start turning around and make noises about being safe would send out a message that our season is finished - and it is far from that.”

Mín spá er einfaldlega 1-0 fyrir okkar mönnum þar sem markamaskínan Crouch skorar enn og aftur.

.: Aggi uppfærði kl. 09:08 | 523 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (6)

Fín grein um Crouch

Einar Örn sendi inn - 13.04.07 15:13 - (Ummæli #5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Man City 0-0 Liverpool
·Liverpool 1 - PSV 0
·Reading 1 - Liverpool 2
·PSV 0 - Liverpool 3
·Liverpool 4 - arsenal 1!

Leit:

Síðustu Ummæli

Aggi: Já reyndar alveg líklegt að Rafa hvíli e ...[Skoða]
Einar Örn: Fín grein um [Crouch](http://www.anfield ...[Skoða]
Siggi: Vonandi spilar Zenden ekki, hann er slak ...[Skoða]
FDM: Er ekki líklegt að Gerrard verði fremstu ...[Skoða]
Beggi: Hugsanlega Arbeloa í vinstri bak og Riis ...[Skoða]
SSteinn: Finnst afar líklegt að við förum í uppst ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Chelsea - Liverpool pælingar
· 18 ár liðin frá Hillsborough slysinu
· Man City 0-0 Liverpool
· Byrjunarliðið gegn City
· Man City á morgun.
· Oh, it's ON!

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeildin · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License