10. apríl, 2007
Svona á þetta að vera, skammt leikja á milli hjá okkar mönnum! Við leikum semsagt gegn PSV Eindhoven frá Hollandi á morgun, síðari leikinn í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður í beinni á Sýn, svona til að hafa formsatriðin á hreinu.
Ég veit að þetta er ekkert búið, enn 90 mínútur eftir, blablabla og okkur tókst það í Istanbúl og allt það en það er ekki fræðilegur séns í helvíti að PSV stoppi okkur í því að komast í undanúrslitin! Að PSV skori þrjú mörk gegn engu okkar á Anfield er svo óhugsandi að það er ekki einu sinni fyndið. Í mesta lagi skoplegt.
Ég var búinn að fjalla aðeins um PSV og fyrri viðureignir og slíkt í upphituninni fyrir hinn leikinn….
PSV tapaði um helgina, var lélegt gegn okkur í fyrri leiknum og eftir leikinn sagði bæði þjálfari liðsins og einn geðþekkur leikmaður að nafni Jan Kromkamp að þetta einvígi væri einfaldlega búið. Hversu lélegt mér þykir af einhverjum að gefast svona upp er annað mál en það er rétt hjá þeim. Philip Cocu er maður að mínu skapi, segir í dag að hann sé ekki á Englandi í fríi, hann er raunsær, en vonast til að skora fyrst og sjá svo til.
Ofan á 3-0 tap á heimavelli mun Koeman stilla upp ungu, óreyndu og enn veikari liði en hann gerði á heimavelli. Samkvæmt opinberu síðunni okkar er hann með tvo algjöra kjúklinga í 18-manna hópnum, Rens van Eijden and Olivier ter Horst, og þá eru Ibrahim Afellay, Jan Kromkamp, Edison Mendez, Michael Reiziger og Alex allir meiddir auk þess sem Alcides, John de Jong og Género Zeefuik eru ekki löglegir eða eru í banni.
Að okkar mönnum. Þeir eru hver á eftir öðrum búnir að sýna mikla fagmennsku með því að koma fram og segja að þetta sé ekkert búið þrátt fyrir að vel hafi gengið í Hollandi og svona. Flott hjá þeim og það sem maður býst við frá svona atvinnumönnum. Breytir því ekki að gaurinn á bloggsiðunni á Íslandi segir að þetta verði ekkert nema formsatriði
Það verður að teljast líklegt að Rafa breyti liðinu frá helginni, hversu mikið er eins og endranær erfitt að segja til um. Við höfum úr öllum leikmönnum að velja nema Dirk Kuyt sem er í banni, Kewell, sem þó styttist í, Luis Garcia og Fabio Aurelio. Vinstri vængurinn okkar er því frekar þunnskipaður, en samt ekki, við erum með breiðan hóp góðra og fjölhæfra manna sem leysa þetta vel.
Pennant var frábær þegar hann kom inn gegn Reading og lagði upp sigurmarkið á lokamínútunum og ég held að hann fái að spila núna. Það þýðir að tveir af frábærum miðjumönnum okkar munu verma varamannabekkinn. Mascherano er búinn að spila nokkra leiki í röð og ég held að hann og Sissoko verði á bekknum. Alonso og Gerrard því á miðjunni og Riise vinstra megin.
Arbeola því í vinstri bakverði og Agger kemur aftur inn. Frammi? Crouch inn fyrir Kuyt og verður því frammi með Bellamy. Liðið yrði því svona:
Reina
Finnan - Carragher - Agger - Arbeola
Pennant - Alonso - Gerrard - Riise
Crouch - Bellamy
Bekkurinn: Restin af hópnum!
Þetta er kannski of sterkt lið? Það er kannski líklegt að Rafa hvíli fleiri menn? Ég giska allavega á þetta en kannski hvílir hann bara Gerrard alveg? Alonso var ekki með um helgina vegna smávægilegra meiðsla, kannski verður Sissoko bara sem varnarsinnaður miðjumaður fyrir Alonso! Kannski ekki samt. Kannski verður Gonzalez inná og Arbeola á bekknum? Kannski kannski kannski….
Mín spá: Sigur, ekki spurning, og það án þess að gestirnir skori. Ég segi aftur 3-0 bara þar sem Bellamy, Pennant og Crouch skora! Í það minnsta förum við áfram og mætum þar vonandi Valencia! Ég mun fylgjast spenntur með leikjunum í kvöld sem og á morgun…
YNWA
UPPFÆRT: Rafa segir að hann hvíli hugsanlega “the big guns” eins og Tjallinn kallar þetta. Þá verða Carra, Gerrard og fleiri ekki inni og Fowler líklega frammi. Bara svona til að bæta aðeins á óvissuna og fáfræði mína
Ég skýt þessu bara hérna inn, en
David nokkur Villa gefur sitthvað í skin hérna