05. apríl, 2007
Jæja, það er nú ekki mikið að frétta þessa dagana, en þar sem tilefni þessarar færslu er fremur illa dulbúin lauglýsing, þar verð ég að fela auglýsinguna í einhverju efni, þannig að….
Tvennt virðist vera aðallega fjallað um á netmiðlum. Annars vegar var Samuel Eto’o í viðtali á Spáni þar sem hann sagðist bera virðingu fyrir Liverpool, en ætti samt samning við Barcelona til 2010. En snillingunum í breskum fjölmiðlum tekst auðvitað að kreista þvílíkar stórfréttir útúr þessu afskaplega litla efnivið. Einsog Sky, sem segja: Eto’o admits Reds liking og Mirror, sem slá því upp: ETO’O: I WOULD LOVE TO PLAY WITH STEVIE G
Bleeeeeh, segi ég. Það hefði verið hægt að spyrja hvaða knattspyrnumann í heimi sömu spurninga og fá sömu svör. Hver vill ekki spila með besta miðjumanni í heimi?
Hin fréttin er að Daniel Alves er orðaður við Arsenal. Það er byggt á frétt í hinum afskaplega áreiðanlega miðli The S*n þar sem sagt er að Wenger hafi áhuga á að kaupa Alves. Ég hef litla trú á að það gangi, frekar en að ég haldi að Alves komi til Liverpool. Held að hann endi frekar hjá Chelsea fyrir einhverja rugl upphæð eða Barcelona. Ég held að Rafa hafi misst af stórkostlegu tækifæri síðasta sumar.
Fyrir þá, sem vilja gráta yfir því missta tækifæri þá bendi ég á þessa grein. Ég á allavegana bágt með að komast í gegnum greinina án þess að gráta.
Eina sem getur huggað mig er að manchester united
tapaði í gær og Chelsea er í vandræðum gegn Valencia. Ætli það þurfi enn einu sinni að vera Liverpool sem heldur uppi heiðri enskra liða í Meistaradeildinni? Dæs! - someone’s gotta do it!
Og þá að auglýsingunni, sem allir hafa beðið eftir: Jú, Serrano á Hringbraut verður opinn alla páskana!!! Það þýðir að staðurinn er opinn í dag 10-23, verður opinn á morgun föstudag frá 10-03 (það er 10 um morguninn til 3 morguninn eftir, 10-03 á laugardaginn, 10-23 á Páskadag og 10-23 á Annan í Páskum. Semsagt, opið alla páskana. Jibbí jei! Opið í Kringlunni í dag og á laugardaginn.