20. mars, 2007
Yfir bloggarinn (og Liverpool aðdáandinn) Streingrímur Sævarr skúbbar því á blogginu sínu að Sýn sé búið að kaupa réttinn að Formúlunni fyrir næsta tímabil.
Þetta er athyglisvert í ljósi þeirra umræðu sem hefur verið á þessari síðu og víðar um verðlagningu Sýnar. Mig minnir að ég sé í dag að borga einhvern 5.000 kall fyrir Sýn (áskriftarvefurinn virkar ekki - þannig að ég get ekki staðfest verðið). Eina efnið sem ég horfi á er Meistaradeildin og Barcelona í spænska boltanum, sem ég geri ráð fyrir að séu tveir dýrustu dagsrkárliðirnir.
Núna bætast hins vegar við Formúlan (sem er af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vinsæl - og eflaust dýr í innkaupum) og svo enski boltinn (sem er brjálæðislega dýr). Spurningin er þá: Hvað á þetta eiginlega að kosta? Fyrir marga er gervihnattardiskur ekki möguleiki og því erum við föst með Sýn vegna langt genginnar fíknar í enska boltann. Spurningin er svo hvort ég þurfi á næsta ári að borga fyrir golf, formúlu, fitness og annað dót, sem ég hef engan áhuga á, eða hvort Sýn ætli að hafa enska boltann á sér stöð? Einnig verður fróðlegt hvort að þeir ætli að rukka aukalega fyrir hliðarrásirnar.