14. mars, 2007
Samkvæmt BBC munu nýju eigendur Liverpool hafa ákveðið að fresta fyrstu skóflustungunum á nýja leikvangnum um nokkrar vikur til að fara betur yfir skipulagið á honum. Í fréttinni segir að þeir ætli meðal annars að skoða hvort stækka eigi (og megi) fyrirhugaðan áhorfendafjölda úr 60.000 í stærri tölu, þó svo að það sé ekki víst að komi til þess.
Þetta er að vísu ekki staðfest, BBC segir samkvæmt heimildum sínum (BBC understands) en ég efast um að sjálfur Phil McNulty, sem skrifar fréttina og er yfirmaður fótboltans á BBC, fari með svona nema hann sé með pottþétta heimild.
Leikvangurinn á að opna árið 2009 en maður verður bara að vona að þetta tefji ekki þá dagsetningu. Þetta er einmitt það sem ég bjóst við þar sem mikið hefur verið talað um hvað Bandaríkjamenn séu góðir að byggja leikvanga og hafa þeir kumpánar verið sérstaklega góðir í því skilst mér.
Mér þótti það frekar skrýtið að þeir muni því ekki breyta neinu eftir að þeir keyptu félagið en teikningarnar voru til fyrir löngu síðan. Þetta kemur því í raun ekki á óvart, ekki mér í það minnsta. Svo er aftur á móti spurning hvort einhverju verði breytt yfir höfuð….
Chris Bascombe, sá maður sem ég treysti best þegar kemur að fréttum um Liverpool, er einnig með viðtal við Rafa í Echo í dag. Þar kemur meðal annars fram að Gillett og Hicks koma til Englands þann 31. mars og þá vill Rafa setjast niður með þeim og ræða framtíð klúbbsins. Bascombe talar mikið um áhuga Real Madrid á Rafa og staðhæfir nánast að Capello verði rekinn í sumar. Real Madrid vilja víst Rafa, Mourinho eða Bernd Schuster sem nú stýrir Getafe. Ég vona að það verði Portúgali við stórnvölin hjá þeim á næsta tímabili, ég segi ekki annað