09. mars, 2007
Í Echo er athyglisverð grein um nokkuð, sem ég hef talsverðan áhuga á eftir ferðalög mín, það er vinsældir Liverpool í Asíu.
Í greininni er viðtal við Steve McMahon, sem spilaði fyrir Liverpool, en vinnur nú sem sérfræðingur hjá ESPN í Singapoure. Ég horfði einmitt á hann mjög oft þegar ég var á ferðalagi um Suð-Austur Asíu. Vinsældir enska boltans þar eru hreint magnaðar. Um hverja helgi eru sýndir beint um 6-8 leikir í ensku deildinni við miklar vinsældir.
Það er einnig ljóst að Liverpool er gríðarlega vinsælt lið þar. Ég labbaði oft um í Liverpool búningnum mínum og fékk mikla athygi útá það og í ófá skipti komu uppað mér heimamenn, sem vildu endilega tala um Liverpool. McMahon heldur því fram að Liverpool og manchester united
séu vinsælustu liðin á svæðinu.
Það þrátt fyrir að Liverpool sé nánast ekki að gera neitt til að auka vinsældir sínar. manchester united
rekur fulltaf verslunum og ég tók eftir því að Arsenal og Chelsea treyjur fengust mun víðar en Liverpool treyjur. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem að nýju eigendurnir ætli að bæta.
Í raun eru þessi treyjumál mögnuð. Ég er til dæmis lengi búinn að leita mér að langerma rauðri Liverpool treyju og hélt nú að ég myndi fá eina slíka í Liverpool borg. En nei nei, þrátt fyrir að hafa farið í þrjár búðir (official búðina á Anfield og í miðbænum og aðra íþróttabúð) þá fann ég enga treyju í stærð minni en XXL. Það finnst mér með hreinum ólíkindum. Liverpool mun ekki skipta um aðalbúning í sumar og því er það fáránlegt að búningar fáist ekki í öllum stærðum. Liverpool tapaði þarna 40 punda viðskiptum og ég er ábyggilega ekki sá eini sem fór vonsvikinn útúr Liverpool búðinni. Á þessum sviðum er ansi margt sem má bæta fyrir Liverpool.