beach
« Byrjunarliðið komið gegn Man U . | Aðalsíða | Barcelona á morgun. »

03. mars, 2007
Liverpool - Man U 0-1

Þetta er ÓTRÚLEGT helvítis rassgat! Við eigum allan leikinn og töpum samt… og hver skorar sigurmarkið John O´Shea sem kom inná fyrir Rooney!

Til að gera langa sögu stutta þá áttum við allan leikinn. Sköpuðum okkur fullt af færum og vorum gjörsamlega með þennan leik. Vantaði bara að nýta færi (hefur nú reyndar gerst áður) og þegar maður skorar ekki mörk þá vinnur maður víst ekki. Síðan kemur loka mínútan og fast leikatriði og einhvern vegin grunaði mér þetta… bara alltof týpískt fyrir okkur að gera svona mistök eða vera svona óheppnir.

Strákarnir voru á leiknum og eru væntanlega á leið á pubbinn að drekka sorgum sínum. Þeir sendum mér eina mynd fyrir leikinn og er hún hérna: strakarnir%20okkar.bmp

En ég bendi þeim sem vilja fá lýsingu á hvernig leikurinn gekk og var á Sky Sports eða BBC Sport.

Allt liðið átti góðan leik og skipulagið gekk fullkomlega upp hjá Rafa í 89 mín. nema hvað okkur vantaði mörkin. Bellamy, Crouch, Riise o.s.frv. fengu færi til að klára leikinn en ekki vildi boltinn inn. Bellamy skoraði reyndar mark en það var dæmt af vegna rangstöðu. Það var réttur dómur.

Scoles fékk rautt spjald fyrir að slá til Alonso eða réttara sagt að hóta því. Hann mun því væntanlega vera á leið í 3ja leikjabann.

En núna er manchester united búið að vinna 3 leiki í röð á meistaraheppni (Lille og Fulham) og væntanlega endar þetta með því að þeir vinna titillinn. Maður leiksins: Ég vel Carragher fyrir að vera hann sjálfur og spila ALLTAF vel. Snillingur!

.: Aggi uppfærði kl. 14:40 | 255 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (44)

Ástæðan fyrir því að LFC tapaði í dag er sú að liðið er EKKI NÓGU GOTT. Það er ekkert flóknara. Ef við förum aðeins nánar í það af hverju liðið tapaði í dag eru ástæðurnar tvær: Peter Crouch og Steve Finnan.

A) Peter Crouch sannaði það endanlega og eftirminnilega í dag að hann er langt frá því að vera nógu góður fyrir stórlið. Nefnið heimsklassa framherja sem hefði EKKI nýtt þetta færi sem PC klikkaði úr? Einmitt, sá heimsklassa framherji er ekki til því það sem skilur framúrskarandi menn frá meðalmönnunum er einmitt það að þeir DREPA þegar tækifærið gefst.

Ég er ekki að segja að þetta hafi verið auðveldasta færi í heimi og er alls ekki að gera lítið úr vörslu þess hollenska. Heldur einungis að benda á að alvöru framherjar, toppframherjar SKORA úr þessum færum og þess vegna eru þeir taldir með “þeim bestu”. Peter Crouch er klárlega ekki í þeim hópi.

B) Steve Finnan. Það sannaðist svo í dag að í allan þennan tíma hefur Hössi haft rétt fyrir sér. Steve Finnan gaf manchester united þennan sigur í dag, og það svo ummunaði. Það sem Finnan gerði í dag er með því alvarlegasta sem ég veit um en hann kostaði okkur LFC menn heilt ár að skömm. Það að Finnan skuli brjóta svona á Utd. manninum er ÓAFSAKANLEGT. Þvílíkt asnabrot og ekkert smá áberandi. Hann sannaði í raun í dag með þessum byrjendamistökum að hann er ekki nógu góður fyrir stórlið. Alla vega, hvaða heimsklassa bakvörður brýtur svona á móti manchester united þegar mest á reynir? Sá heimsklassa bakvörður er ekki til. Svona agaleysi er hreinlega ömurlegt að horfa upp á og það að svona dómgreindarleysi skuli verða til þess að manchester united vinnur okkur á OKKAR HEIMAVELLI gerir mig brjálaðann.

Til eru miklu fleiri meðalmenn í LFC en þessir tveir og miklu fleiri menn sem eru ekki nógu góðir til að vinna þessa deild. Ég nenni ekki að fara nánar í staka menn hérna. En ástæðan fyrir sigri manchester united er EINFÖLD. Þeir nýta sín færi – við ekki. Þeir eru agaðir í vörninni og brjóta ekki heimskulega – við ekki. Ástæðan fyrir sigri þeirra er ekki flóknari. Betra og hæfileikaríkara liðið einfaldlega vann. Ekki heppnara liðið heldur það BETRA.

Stefán sendi inn - 03.03.07 15:01 - (
Ummæli #4)

Ég skil ekki í Stefáni að halda því fram að betra liðið hafi unnið. Ég talaði strax við frænku mína sem er eldheitur manchester united aðdáandi og hún viðurkenndi að þetta hefði ekki verið sanngjarnt - enda er sanngirni ekki til í fótbolta.

Að úthúða Steve Finnan og tala um dómgreindarleysi og kenna honum um markið er fáránlegt! Eins og einhver "heimsklassabakvörður" hefði örugglega ekki brotið af sér? Hvernig veistu það, hvernig geturðu fullyrt það ...!!!!!!? Talandi um heimsklassa menn ... Paul Scholes er reyndur og þykir hafa verið að spila frábærlega. Hvað gerir hann??? Hann hoppar í loftið og reynir að kýla Alonso ... -- Af hverju er ég að minnast á þetta? Nú vegna þess að allir geta gert mistök! En út af því að Finnan braut akkúrat þarna af sér ... þá er hann bara búinn að sanna að hann sé meðalmaður???

Ég er samt enginn fremsti aðdáandi Finnans, en mér finnast rökin á bakvið þessar blammeríngar ekki standast. Og að taka þetta eina færi sem Crouch fékk og halda því fram að allir aðrir hefðu nýtt það????? Hvaða bull er þetta? Hvernig geturðu haldið þessu fram? Larsson er af mörgum talinn klassaframherji - ekki gat hann skít í dag. Rooney hefur átt markaþurrðartímabil og brennt af færum ... - mér þætti gaman að sjá tölfræði skota/færa og marka - og sjá hvar Peter Crouch lendir!

Betra liðið vann ekki í dag!

Doddi sendi inn - 03.03.07 15:39 - (Ummæli #8)

Ég hef ávallt stutt Rafa í starfinu þó ég hafi verið mjög ósammála honum í ýmsu...helst skiptingum og liðsuppstillingu. Ég var mjög ánægður með sigurinn á Nou Camp og hef fagnað þeim bikurum sem hann hefur fært í hús. Hann á hrós skilið fyrir þá.

Eftir leikinn í dag þarf hann að gera eitthvað af eftirfarandi til að ég missi ekki endanlega trúna á honum.

A) Vinna Champions League í vor

B) Vinna amk. 2 af 3 leikjum gegn Man Utd. Chelsea og Arsenal í haust og vera í einu af tveimur efstu sætunum um áramót.

C) Bæði A og B

Ég hef ekki látist glepjast af Sissoko eins og margir hérna og held því fram að hann sé meinloka Rafa í dag. Jú, hann brillerar þegar liðið dettur djúpt eins og gegn Barca um daginn, en Liverpool er lið sem í 90% af leikjum sínum er með boltann meirihlutann á vallarhelmingi andstæðinganna. Því miður er drengurinn algjörlega vanhæfur um að spila boltanum. Hann þarf að setjast niður með Best of Makelele í spilaranum og horfa á hann, sitja djúpt, vinna boltann, senda <5 metra og bíða.

Þangað til er óréttlætanlegt að setja Gerrard út á kantinn. Bestu leikmenn United spila í sínum bestu stöðum. Bestu leikmenn United eru heldur ekki teknir útaf eins og Craig Bellamy. Það virðist einhver lenska hjá Rafa að setja framherja á bekkinn þegar þeir spila vel.

Ef þetta væri fyrsti leikurinn sem tapast á þennan hátt gegn United þá væri þetta ósanngjörn gagnrýni á þjálfarann og klúbbinn. Því miður var þetta eitthvað svo fyrirsjáanlegt...hefur gerst allt of oft áður... klúðurmörk eða mörk frá United á síðustu mínútu, allt frá Pallister, Cole, Beckham, Yorke, Forlan, Rooney, Ferdinand, Silvestre, Scholes og nú O´Shea.

Að segja að þetta hafi verið ósanngjarnt er væl. Þá var sigur okkar manna á Barcelona ósanngjarn því að Barcelona var meira með boltann. Liverpool var ekki að vaða í færum í dag og einhvernveginn finnst manni maður hafa séð þetta alltsaman áður.

Daði sendi inn - 03.03.07 15:47 - (
Ummæli #9)

Það eru greinilega til menn hérna sem einfaldlega geta ekki tekið ósigri. Ég nefni engin nöfn (Ari, Stefán ...). :-)

Alveg merkilegt. LFC verður á að tapa leik og þá er allt ómögulegt. Benitez (með Z!) ekki nægilega góður, liðið einfaldlega ekki nógu gott og strax farið að pikka út ákveðna leikmenn og segja hvað þeir eru ömurlegir. Þar á meðal Finnan, sem hefur verið einn okkar besti maður í vetur, og skilar sínu nánast 100% leik eftir leik. Honum verður á mistök (ef mistök mætti kalla) og þá stimpla sumir hann strax sem miðlungsleikmann og ekki nægilega góðan fyrir LFC? Hvað er í gangi?

Svo er líka gaman að sjá að þegar vel gengur, t.d á móti Barca fyrir rúmri viku, þá heyrist ekki múkk í þessum sömu aðilum, nei, þeir láta bara heyra í sér til að vera neikvæðir.

Eru ekki annars allir með það á kristaltæru hvernig fótboltinn er? Það geta allir tapað fyrir öllum. LFC var ekki að tapa á móti Watford í dag. Nei, við áttum þennan leik með húð og hári en af einskærri óheppni þá tapaðist hann. Hvað ef aukaspyrnan hjá Riise hefði verið u.þ.b 5-10 cm lengra til hægri? Hvað ef Kuyt hafði verið kominn skrefinu lengra þegar fyrirgjöfin hjá Bellamy kom?

Svona er þetta bara. Menn verða að geta tapað leik án þess að allt sé ómögulegt og liðið og einstakir leikmenn séu stimplaðir sem ónytjungar. Svona er boltinn. Knattspyrnulið tapa leikjum af og til. Alveg sama hvaða lið á í hlut.

Svo er bara að vona það besta á þriðjudagskvöldið.

Haukur H. Þ. sendi inn - 03.03.07 20:50 - (
Ummæli #24)

Það svíður sennilega fátt eins sárt og tapa fyrir Man.Unt. á Anfield!! Að þurfa horfa upp á Gary Neville systir fagna eins og maniac á Anfield í lok leiks er líklega ógeðslegasta sýn sem ég hef barið augum og tek með mér í mínu verstu martraðir.

Við unnum leikinn tölfræðilega en ekki "raunverulega". Það er ekki í fyrsta skipti í vetur sem við sitjum eftir með sárt ennið eftir að hafa "dóminerað" leiki!

Hvað er það að fá 12 hornspyrnur og nýta ekki eina einustu þeirra? Hornspyrna er fast leikatriði og mér finnst okkar menn allt of oft skapa litla sem enga hættu í hornspyrnum sínum. Það pirrar mig. Þrátt fyrir sóknartilburði þá sköpuðum við fá dauðafæri í þessum leik.

Mér fannst Kuyt vanta grimmd í þessum leik. Ekki hans besta frammistaða síðan hann kom til Liverpool. En það er sko langur vegur frá að ég fari að úthrópa hann. Kuyt er frábær framherji.

Sissoko er frábær varnartengiliður...svona Hammann týpa. Stoppari. Ég er bara ekki að skilja afhverju Benites þrjóskast við að reyna að búa til "playmaker" úr honum!! Það er algjörlega óþolandi að horfa á spilið rúlla 70% í gegnum hann þegar við höfum "ef til vill" besta miðjumann í heimi á kanntinum!!!! Steven Gerrard á að vera á miðjunni.....ALLTAF. Það er mín skoðun og ég ét það ekki ofan í mig nema við verðum Englandsmeistarar og fyrsta staða Gerrard þá leiktíð væri kantmaður!!!!! Ég var búinn að lofa sjálfum mér að hætta í þessum kantgrátkór en ég bara þoli ekki að tapa fyrir Man.Unt. trekk í trekk..... Andskotinn.

Jæja...sem betur fer þá er stutt í næsta leik.. :-) Nú er bara að klára dæmið á móti Barcelona. Við bara verðum. Ég þarf á því andlega að halda...... :-)

YNWA......áfram Liverpool

Jón H. sendi inn - 04.03.07 09:08 - (
Ummæli #31)

Ég nenni ekki að bölsóttast úti þá "stuðningsmenn" sem væla alltaf eins og kellingar eftir hvern einasta leik og eru með tvær lausnir á vandamálunum, reka benitez (enginn segir hvern hann vill fá í staðinn) og kaupa heimsklassaleikmenn í allar stöður. Þetta er einfaldur heimur sem þið lifið í.

Mig langaði samt að minnast á markið og verð að segja að mér finnst órúlegt að vera að kenna jose reina um þetta. Hvað gat maðurinn gert? Saha sótti að honum og var nálægt því að slæma fæti í boltann (ef hann náði því ekki) og þetta var frábær aukaspyrna. Það sem klikkaði aftur á móti að mínu mati var tvennt. í fyrsta lagi á einhver varnarmaður að eiga sjéns á að sparka í boltann áður en hann kemur að markinu þegar hann er svona neðarlega. Í öðru lagi þá er það algjörlega óafsakanlegt að o´shea sé fyrsti maður í boltinn. Reina sló hann eins mikið til hliðar og hann gat miðað við aðstæður og þar á varnarmaður að vera fyrstur að boltanum og sparka honum uppí stúku. Í þessu tilviki var það Finnan sem klikkaði fannst mér en hann er samt sem áður einn besti hægri bakvörðurinn í úrvalsdeildinni. Við erum í dilemmu með stóru liðin og það þarf að lagast. En ég man eftir þeim tíma þegar við unnum oftar en ekki stóru liðin en töpuðum svo oftar en ekki fyrir litlu liðunum. Það er styttra í að laga þetta finnst mér og liðið er á réttri leið. En nú er tíminn til þess að fara að spá í næsta leik. Það verður gaman að lesa kommentin hérna inni ef við töpum honum 2-0.

Jóhann sendi inn - 05.03.07 16:32 - (
Ummæli #41)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool - Man U 0-1
·Liverpool 4-0 Sheffield United
·Barcelona 1 - Liverpool 2
·Nýliðar með sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
·N'castle 2 - L'pool 1

Leit:

Síðustu Ummæli

Daði: Eins og ég segi þá er ég ekki búinn að g ...[Skoða]
Siggi: Daði, verður maður ekki að halda í vonin ...[Skoða]
Aggi: Jæja hættum nú að ræða þennan leik. Ég g ...[Skoða]
Jóhann: Ég nenni ekki að bölsóttast úti þá "stuð ...[Skoða]
Daði: Siggi segir... "Síðan er það bara deildi ...[Skoða]
Fannar Már: Þegar Momo sparkaði boltanum upp í lofti ...[Skoða]
Siggi: Úff hvað það eru margir brjálaðir út í þ ...[Skoða]
Arnar Ó: Djöfuls væll er þetta. Liðið spilaði gl ...[Skoða]
Addi: Sorglegt að vera vitni að þessu skelfile ...[Skoða]
BigGun: Fannst Liverpool liðið bara mun betra í ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Barcelona á morgun.
· Liverpool - Man U 0-1
· Byrjunarliðið komið gegn Man U .
· Man U á morgun.
· Áminning: ferðalag
· Samuel? Uppfært: Fowler?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License