02. mars, 2007
Man U á morgun.
Jæja þá tökum við á móti manchester united
á morgun og ekki nóg með það þá verða þeir Kristján Atli, Sigursteinn, Einar Örn og Hjalti á vellinum. Það eitt segir okkur að við VERÐUM að vinna þennan leik. Í þessum töluðum orðum eru þeir í langferðabíl (ekkert kvenkyns með í þessari ferð) á leið til Liverpool frá London.
Fyrr í vetur spiluðum við á Old Trafford og töpuðum sannfærandi 0-2 þar. Það má ekki gerast aftur og bara það hversu illa við spiluðum í þeim leik hlýtur að kveikja í mönnum fyrir leikinn.
Við unnum manchester united
síðast í deildinni 24. apríl 2004 (á Old Trafford) og skoraði þá Danny Murphy eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Þannig að það er klárlega kominn tími á sigur gegn erkifjendunum frá Manchester. Eins og staðan er í dag þá er manchester united
í efsta sæti deildarinnar með 69 stig eftir 28 leiki, Chelsea með 60 stig eftir 27 leiki og Liverpool í þriðja sætinu með 53 stig eftir 28 leiki. Í fjórða er síðan Arsenal með 49 stig eftir 26 leiki.
Leikir gegn manchester united
er ávallt mikilvægir sama hvernig staða liðanna er í deildinni. Þetta er spurning um meira en 3 stig, þetta er spurning um stolt! ÞÚ VILT EKKI TAPA GEGN manchester united
! Það er líka orðið langt um liðið síðan ég gat strítt Þóri Snæ vini mínum eftir að við höfum tekið hans menn í bakaríið. Á morgun mun það takast og ég verð óþolandi út næstu viku
Liverpool hefur ekki tapað leik í deildinni á heimavelli í ár og í rauninni höfum við ekki tapað á Anfield síðan 2.október 2005 og þá gegn Chelsea 1-4. Ég hef ekki áhuga að fara nánar út þann leik hér né annarsstaðar. Liverpool hefur einnig ekki fengið á sig mark á þessu ári á heimavelli.
… og já reyndar má einnig benda á það að manchester united
hefur ekki tapað í 7 leikjum í röð.
Skv. BBC Sport þá er þetta hópurinn sem verður á morgun: Reina, Finnan, Agger, Carragher, Riise, Gerrard, Alonso, Sissoko, Pennant, Kuyt, Bellamy, Crouch, Gonzalez, Fowler, Hyypia, Dudek, Arbeloa, Zenden, Mascherano. Og út frá þessum hóp ætla ég að setja þetta byrjunalið upp:
Reina
Finnan - Carragher - Agger - Riise
Gerrard - Sissoko - Alonso - Gonzalez
Kuyt - Bellamy
Það er samt ómögulegt að segja til um hvaða liði Rafa stillir upp þar sem við eigum framundan leik í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar gegn BARCELONA á Anfield á þriðjudaginn. Vel má vera að hann hvíli einhverja lykilmenn s.s. Carragher, Gerrard, Alonso, Finnan, Kuyt o.s.frv. en ég skýt á að Rafa geri minni breytingar en margir búast við og stilli næstum upp sterkasta liðinu. Hann vill vinna þennan leik og þótt það sé stutt í leikinn gegn Barca þá ætti það að vera nægur tími fyrir menn að jafna sig.
Hvernig Ferguson stillir upp á morgun er mér slétt sama en manchester united
mætir Lille á miðvikudaginn og gætu þeir því einnig hvílt einhverja lykilmenn en þetta skýrist ekki fyrr en ca. klst. fyrir leik.
Það er ekki hægt að segja að leikirnir gegn manchester united
séu markaleikir en síðustu 6 leikir hafa endað 0-0, 0-1, 0-1, 1-2, 1-2, 1-0 þannig að það er nokkuð góð ágiskun að segja að við vinnum 1-0 tja eða töpum 0-1.
Ég sé okkur vinna þennan leik á morgun og líkurnar eru að það koma ekki fleiri en eitt mark í leknum en ég held að það sé klárt að af því strákarnir eru á leiknum þá kemur eitt aukamark frá einhverjum ólíklegum t.d. Finnan, Carragher eða Sissoko. Fyrra markið mun fyrirliðinn Gerrard skora eftir góða sendingu frá Alonso. Sem sagt 2-0 sigur og málið er látið!