Þegar Liverpool dróst gegn Barcelona í desember ræddu “sérfræðingar” Sky Sports í Englandi um dráttinn, fóru yfir hverja rimmu fyrir sig og ræddu loks stóru rimmu umferðarinnar, þar sem meistarar sl. tveggja ára í Meistaradeildinni myndu mætast.
Það sem gerðist þar í beinni útsendingu fór mikið í taugarnar á Liverpool-aðdáendum um víða veröld og olli talsverðu fjaðrafoki á netinu. Þegar ég sá myndband á netinu af þessu hugsaði ég með mér að Rafa Benítez bara hlyti að sýna leikmönnum sínum þetta umrædda atvik, til að hvetja þá til dáða.
Sagan er sú að þegar sá möguleiki var nefndur á Sky Sports að Liverpool gætu unnið Barcelona tók “sérfræðingurinn” og fyrrum Arsenal-leikmaðurinn Paul Merson sig til og sprakk úr hlátri. Af því að tilhugsunin um að Liverpool sigraði Barcelona í Meistaradeildinni var svo fáránleg.
Hvað haldiði að hafi gerst á miðvikudaginn? Og nú um helgina voru Merson og hinir “sérfræðingarnir” aftur kallaðir til á Sky Sports til að ræða fótboltaúrslit vikunnar. Og þar voru, meðal annars, Liverpool-mennirnir Phil Thompson og Jamie Redknapp. Sem þýddi að Merson átti ekki séns í helvíti að sleppa óáreittur úr þessari útsendingu.
Þetta eru rúmar sjö mínútur, en ég mæli með að þið horfið á þetta. Þetta er einfaldlega yndislegt myndband …
Í viðtali á official síðunni kemur reyndar fram að Sissoko á hvorki fleiri né færri en 14 systkini og þar minnist hann á þessa tvo sem Hjalti bendir á. Hvort þessi í Udinese sé einn þessarra 14 Sissokoa hef ég annars ekki hugmynd um en grunar þó að Momo hefði sjálfur minnst á hann í þessu viðtali ef svo væri, það er allavega stærra í mínum augum að spila með Udinese en WBA. Svo væri þetta nú tæplega í fyrsta sinn sem óskildir menn með sama eftirnafn kunni að spila knattspyrnu.
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
Kristján Atli: Ég veit það ekki, Biggi ... er eitthvað ...[Skoða] Biggi: Er ekki kominn tími á nýja frétt ? :smi ...[Skoða] Þröstur: Það er spurning hvort að þegar maður er ...[Skoða] Einar Örn: Gaurinn heitir Mohamadou. Ef þeir eru s ...[Skoða] Svenni: <a href="http://www.liverpoolfc.tv/news/ ...[Skoða] Hjalti: Sá ekki svarið þitt Einar fyrr en mitt v ...[Skoða] Hjalti: Þessi kappi í Udinese heitir Mohamadou S ...[Skoða] Einar Örn: Ég veit ekkert um þetta, en Momo Sissoko ...[Skoða] Bragi Skaftason: Sælir Liverpool menn
Þar sem þið eruð a ...[Skoða] Jón H.: "boys keep swinging...boys always works ...[Skoða]