24. febrúar, 2007
Jæja, okkar menn unnu öruggan sigur á Sheffield United rétt í þessu. 4-0 var það og mörkin skoruðu Fowler, úr tveimur vítum, Sami og Gerrard.
Byrjunarliðið var svona skipað:
Dudek
Finnan - Hyypiä - Carragher - Riise
Pennant - Gerrard - Mascherano - Gonzalez
Crouch - Fowler
Bekkurinn: Padelli, Agger, Alonso, Sissoko og Kuyt.
Rafa gerði alls sjö breytingar á byrjunarliðinu sem lagði Barcelona í síðustu viku. Pepe Reina er uppi á fæðingarstofu en Finnan, Carra, Riise og Gerrard eru þeir sem byrjuðu á Nou Camp og byrjuðu á Anfield áðan. Mascherano byrjaði sinn fyrsta leik og Fowler fékk tækifæri í framlínunni.
Fyrsta færið okkar kom eftir tólf mínútur þegar Gonzalez tekur boltann á kassann eftir langa sendingu frá Hyypia en hann hitti boltann ekki alveg nægilega vel og skotið fór yfir markið. Það virtist vera erfitt fyrir okkar menn að ná upp einhverju spili og langar sendingar fram völlinn, sérstaklega frá Hyypia, voru áberandi í byrjun leiks.
Ég hef aldrei séð jafn stórkostlega fiskun á víti og hjá Steven Gerrard á sautjándu mínútu. Varnarmaður hélt höndunum út fyrir framan hann þegar þeir voru að bíða eftir hornspyrnu, hann horfði á dómarann og sýndi honum þetta, hljóp svo áfram á hendina á varnarmanninum, datt og búmm – víti. Í sömu andrá var sparkað í hausin á Crouch svo úr blæddi. Crouchy þurfti að fara útaf og Dirk Kuyt kom inn á.
Deja Vu – Robbie Fowler skoraði úr vítinu, eins og hann gerði á opnunardegi tímabilsins þegar Gerrard fiskaði vítið. Frábærlega tekið víti hjá Robbie og sjötta markið hans á tímabilinu staðreynd. 1-0 og grunnurinn að sigrinum lagður.
Fimm mínútum síðar – Frábær sókn, Pennant sendi inn í boxið, Kuyt skallaði boltann á Gerrard sem var að fara að skjóta þegar hann var togaður niður og ekki um annað að ræða en að dæma vítaspyrnu. Deja Vu númer tvö – Fowler tók spyrnuna, smá gabbhreyfing og Paddy Kenny vissi ekkert hvað hann var að gera áður en Fowler var farinn að fagna öðru marki sínu úr vítaspyrnu í dag.
Sheffield kom á Anfield í dag til að gera sitt besta í því að fá eitt stig, þeir spiluðu með Rob Hulse einan frammi og innan við 25 minútum eftir að leikurinn var flautaður á var Neil Warnock búinn að fá nóg og skipti strax inná. Hann var líklega bara að vonast eftir því að sjá ekki neinar risatölur í tapinu í dag. Ekki einu sinni dúllustyttan af einhverjum gullbirni sem foreldrar Hulse komu með frá Kína gátu bjargað United í dag. Á að vera einhver happastytta sem var færð aftur fyrir auglýsingaskiltið þegar leið á leikinn. Þeir sem sáu þetta skilja þetta, aðrir skulu bara gleyma þessu
Eftir aðra langa sendingu frá Hyypia hefði Gonzalez getað skorað fallegt mark eftir að Riise skallaði boltann til hans en það tókst því miður ekki. Eins og búast mátti við stjórnuðu okkar menn leiknum á meðan stuðningsmenn United fögnuðu sem óðir ef sínir menn komust yfir miðju og fengu jafnvel aukaspyrnu. Dudek hafði samt ekkert að gera í markinu.
Mér fannst við ekki eiga neitt sérstakan fyrri hálfleik. Það gekk lítið að spila og í raun fengum við bara eitt gott færi fyrir utan mörkin úr vítaspyrnunum. Völlurinn var þungur og blautur og það spilaði líklega inn í auk þess sem tíu manna varnarmúr Sheffield var augljóslega nokkuð þéttur fyrir. Staðan í hálfleik þó auðvitað mjög viðunandi, 2-0.
Eftir uppistandskeppni, þar sem Gerrard og Kuyt fóru að mér sýndist á kostum, byrjaði síðari hálfleikurinn bara ekkert vel eiginlega. Mér finnst að lið eins og Sheffield United eigi ekkert að fá að spila svona mikið á Anfield og gestirnir gerðu hosur sínar grænar yfir því að pota inn marki. Engin hætta svosem og við stjórnuðum þessum leik alveg.
3-0: Sami Hyppia! Eftir horn já, en ekki með skalla…. Boltinn skoppaði í jörðinni og síðan í varnarmann, þaðan barst hann til Hyypia sem þrumaði honum með vinstri í markmanninn og inn. Ekki fallegasta markið en svo sannarlega gott og gilt eins og öll önnur. Þetta var fyrsta markið hans á tímabilinu.
Dudek varði frábærlega strax eftir markið en ég hafði það á tilfinningunni að allir vildu hjálpa Fowler í leit að fyrstu þrennunni sinni í sex ár fyrir Liverpool, sinni tíundu fyrir félagið. Hann átti nokkrar ágætar tilraunir, gott skot og ágætan skalla en því miður tókst það ekki að þessu sinni. Þrennan bíður
4-0: Frábært mark hjá okkar mönnum. Gott einfalt samspil, sending af miðjunni á Fowler sem sendi á Gerrard, hann plataði varnarmann upp úr skónum og þrumaði boltanum svo í fjærhornið. Glæsilega gert og Anfield stóð upp í heild sinni og hyllti fyrirliðann sem var skipt útaf strax eftir markið fyrir Alonso. Fínt að hann fái smá hvíld og Carra fékk svo að kasta mæðinni og Agger kom inn á.
United skaut í slánna eftir slakan varnarleik en sem betur fer náðum við að halda hreinu. Sigurinn var í raun aldrei í hættu, þetta var bara spurning um að brjóta ísinn og eftir að það tókst opnuðust flóðgáttirnar.
Mascherano spilaði vel í leiknum fannst mér. Hann vann fullt fullt af boltnum, stöðvaði sóknir og átti nokkrar frábærar tæklingar en mátti kannski skila boltanum aðeins betur frá sér. Minnti mjög á Sissoko auðvitað…. Frábært að fá hann til okkar. Bolo Zenden er í dag sterklega orðaður við PSV, liðið sem hann byrjaði feril sinn hjá. Kæmi mér ekki á óvart að hann fari þangað í sumar.
Maður leiksins: Ég get ekki annað en valið Gerrard. Fowler kláraði bæði vítin en Gerrard fiskaði þau, tók hornið sem Hyypia skoraði upp úr og skoraði svo sjálfur. Hann var gjörsamlega úti um allan völl, sívinnandi fram og aftur. Mikið rosalega er ég ánægður að þessi maður er í liðinu mínu…
Næst: manchester united
á Anfield. Ég hlakka til að vera á pöllunum
YNWA