beach
« Sheff Utd á morgun! | Aðalsíða | Viðtal við Javier »

24. febrúar, 2007
Spekingar spjalla um markaskorun framherja Liverpool (uppfært)

Eru engin takmörk fyrir vitleysunni sem vellur uppúr íslenskum knattspyrnu lýsendum?

Í lýsingu við Fulham og manchester united leikinn áðan þá fór Guðmundur Torfa mikinn við að þylja upp markaskorun toppliðanna fjögurra. Hann minntist á að á lista yfir ELLEFU markahæstu menn Úrvalsdeildarinnar væri enginn Liverpool maður, en á listanum væru tveir Chelsea menn, tveir manchester united menn og tveir Arsenal menn.

Sagði Guðmundur þetta lýsandi dæmi um það að FRAMHERJAR Liverpool væru ekki að standa sig og að það væri hugsanlega ástæða fyrir að Liverpool væri ekki í toppbaráttunni. Þetta er alveg makalaust.

Fyrir það fyrsta, þá er það furðulegt að telja upp ellefu markahæstu mennina. Hver ætli sé í tólfta sæti? Jú, Dirk Kuyt framherji Liverpool sem hefur skorað 9 mörk eða einu marki færra en Wayne Rooney og Thierry Henry.

En hverjir eru þessir tveir leikmenn hjá Chelsea og manchester united sem sýna okkur hversu betur þessi lið standa sig í framherjamálum? Jú, markahæstur hjá manchester united er kantmaðurinn Cristiano Ronaldo og næstmarkahæstur hjá Chelsea er miðjumaðurinn Frank Lampard. Arsenal er því eina liðið sem státar af tveim framherjum á þessum topp 11 lista. Ef við skoðum topp 13 yfir markahæstu menn þá eru Chelsea, manchester united og Liverpool með 1 framherja og Arsenal með tvo: van Persie og Henry.

Ef við skoðum heildarskor framherjanna þá lítur þetta svona út:

Arsenal
van Persie 11, Henry 10, Adebayor 6. Samtals 27 mörk

Man U
Rooney 10, Saha 8, Solskjær 6, Larsson 1. Samtals 25 mörk

Liverpool
Kuyt 9, Bellamy 7, Crouch 6, Fowler 1. Samtals 23 mörk.

Chelsea
Drogba 17, Shevchenko 3, Kalou 2. Samtals 22 mörk

Semsagt, framherjar Arsenal hafa skorað 27 mörk. Framherjar manchester united hafa skorað 25 mörk, framherjar Liverpool 23 mörk en framherjar Chelsea 22 mörk. Liðið sem er í fjórða sæti hefur á að skipa marksæknustu framherjunum. Framherjar Liverpool hafa skorað tveim mörkum færra en framherjar toppliðsins.

Þannig að væntanlega hefði verið nær lagi að gagnrýna framherja Chelsea fyrir slælega frammistöðu. En hvað það kæmi lýsingu á leik manchester united og Fulham við er ofar mínum skilningi.

En látum það ekki hindra menn í að blaðra vitleysu í næstu útsendingu. Þetta eru jú bara staðreyndir og þær skipta engu máli þegar að menn vilja gagnrýna Liverpool sama hvað það kostar.


Uppfært (EÖE): Eftir umferð dagsins hafa framherjar manchester united sem áður skorað 25 mörk, en framherjar Liverpool eru nú þeim jafnir með 25 mörk líka þar sem að Robbie Fowler skoraði tvö mörk í dag.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 13:08 | 413 Orð | Flokkur: Fjölmiðlar
Ummæli (7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool 4-0 Sheffield United
·Barcelona 1 - Liverpool 2
·Nýliðar með sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
·N'castle 2 - L'pool 1
·L'pool 0 - (ritskoðað) 0

Leit:

Síðustu Ummæli

Einar Örn: Jú, vissulega væri Liverpool í vandræðum ...[Skoða]
maggi: Væri Liverpool ekki í algeru rusli án St ...[Skoða]
Einar Örn: Já, Kristján - þessi Ronaldo punktur ten ...[Skoða]
Kristján R: Einar fanst það svona óbeint vera sagt í ...[Skoða]
Einar Örn: Eitt í viðbót um þetta í kjölfar þessa l ...[Skoða]
Kristján Atli: Þetta er stundum eins og að slást við st ...[Skoða]
Gunnar A: Ég er sammála þessu, mér fannst þetta ag ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Liverpool 4-0 Sheffield United
· Byrjunarliðið komið: Dudek, Fowler og Mascherano byrja
· Viðtal við Javier
· Spekingar spjalla um markaskorun framherja Liverpool (uppfært)
· Sheff Utd á morgun!
· Myndir

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License