23. febrúar, 2007
Ég þykist vita hvað flestir Púllarar eru að hugsa. Eftir stórleikinn á Nou Camp á miðvikudag vildum við flest helst geta hraðspólað tímann fram um tvær vikur og spilað seinni leikinn á Anfield strax. Það er eitthvað svo óaðlaðandi við það að spila við nýliða í Úrvalsdeildinni eftir að hafa þreytt kappi við Barcelona í Meistaradeild. Meira að segja leikurinn við manchester united
í deildinni eftir rúma viku mun sennilega falla í skuggann af seinni leiknum við spænsku meistarana.
Hvað sem því líður þá verður að taka leikina í réttri röð, og á morgun spila okkar menn við Sheffield United á Anfield í 28. umferð Úrvalsdeildarinnar. Það þýðir að það eru ellefu leikir eftir af deildarkeppninni og margt vatn á eftir að renna til sjávar. Við mættum nýliðum United í fyrstu umferðinni í haust á Bramall Lane og þá varð niðurstaðan 1-1 jafntefli í leik sem okkar menn voru hreinlega heppnir að tapa ekki.
Síðan þá hefur gengi liðanna verið ólíkt, en þó gæti ég trúað að United-menn séu glaðari með sinn árangur en við með okkar. Okkar menn sitja sem fyrr í þriðja sætinu með 50 stig, tíu stigum á eftir Chelsea í öðru sætinu en fyrir neðan okkur eru Arsenal aðeins stigi á eftir og með leik til góða. Sheffield United sitja hins vegar í fimmtánda sætinu með 30 stig, heilum tíu stigum frá fallsæti og því verður að teljast yfirgnæfandi líklegt að þeir verði enn í Úrvalsdeild á næstu leiktíð. Það verður að teljast stórgóður árangur hjá þeim.
Samkvæmt Sky Sports mun vanta einhverja 4-7 fastamenn í lið United á morgun. Leigh Bromby og Keith Gillespie eru í leikbanni og nokkrir aðrir frá vegna meiðsla. Það er ljóst að lið United má ekki við að missa svo marga menn út í svona erfiðum útileik og því verður lið þeirra að teljast mjög veikt fyrir á morgun.
Hjá okkar mönnum er talið líklegt að Momo Sissoko hvíli vegna hnjasksins sem hann varð fyrir á miðvikudag og menn eru jafnvel að spá því að Javier Mascherano fái sinn fyrsta leik í byrjunarliði í hans stað. Ég reyndar efa það en mig grunar þó að Rafa muni rótera liðinu talsvert á morgun, hvíla menn eftir Nou Camp og stilla kannski upp sókndjarfara liði.
Eins og venjulega er nær ómögulegt að spá fyrir um hverjir munu spila en ef ég pæli aðeins í því hvaða leikmenn hefðu gott af hvíld getur maður kannski stillt upp liði. Ég spái því að Steve Finnan, Jamie Carragher, Momo Sissoko og Dirk Kuyt verði hvíldir á morgun og að liðið muni líta svona út:
Reina
Arbeloa - Hyypiä - Agger - Riise
Pennant - Gerrard - Alonso - Gonzalez
Crouch - Bellamy
Svo gæti ég trúað því að Mascherano og Fowler spili nokkuð stóra rullu sem varamenn á morgun. Ég hefði allavega ekkert á móti því að hvíla lykilmenn liðsins og við ættum að geta nýtt breiddina í leikinn á morgun án þess að tapa stigum.
MÍN SPÁ: Hjartað í mér segir það sama og heilinn fyrir þennan leik. Sheffield United-liðið er þegar búið að ná þeim árangri sem þeir ætluðu sér í deildinni í vetur og því verða þeir ekkert sérstaklega grimmir á morgun, á meðan okkar menn mæta til leiks með sjálfstraust á við gjósandi eldfjall eftir sigurinn á Spáni. Jafnvel þótt Rafa róteri liðinu ætti klassamunur þessara tveggja liða að skína í gegn og ég geri ráð fyrir að við innbyrðum skyldusigur í þessum leik.
Lokatölur: 3-0 fyrir Liverpool. Koma svo!!