Pælið aðeins í því sem þið eruð að segja! Samkvæmt ykkur ætti hinn fullkomni hópur að vera svona:
Tveir heimsklassamarkverðir, einn frábærlega efnilegur markvörður.
Fjórir heimsklassamiðverðir, fjórir heimsklassabakverðir (tveir hvorum megin) og svo svona 3-5 ótrúlega efnilegir varnarmenn.
Fjórir heimsklassamiðjumenn, tveir heimsklassakantarar hvorum megin og svo kannski eins og einn Kaka sem getur spilað "inn á milli."
Fjórir heimsklassaframherjar, menn sem eru annað hvort jafn góðir og eða betri en Dirk Kuyt (þannig að Bellamy og Crouch koma ekki til greina). Og svo tveir litlir Owen/Fowler-gaurar á leiðinni upp í gegnum unglingaliðið.
Ég spyr: Er þetta raunhæft???
Tökum miðjuna sem dæmi. Eins og er höfum við á að skipa Xabi Alonso, Momo Sissoko og Steven Gerrard sem eru í hæsta gæðaflokki. Í fyrra var Didi Hamann hér einnig og nú virðist Javier Mascherano, ekki síður þekktur og virtur miðjumaður, vera kominn í hans stað. En hvað gerið þið? Þið vælið ENDA-fokking-LAUST yfir því að Bolo Zenden skuli vera í þessum hópi og fá að spila nokkra leiki!
Og hvað með það þó að Voronin sé ekki heimsklassaleikmaður? Ef hann verður einn af 4-5 framherjum sem hefja leik hjá okkur næsta haust ásamt hópi eins og t.d. Kuyt, Crouch, Bellamy/annar og Pongolle, þá mun ég ekki kvarta. En þið getið ekki séð það þannig, fyrir ykkur virðist ekkert minna en Kuyt, Eto'o, Henry, David Villa og Ibrahimovic duga sem framherjahópur Liverpool.
Hver hugsar svona? Hversu veruleikafirrt er þetta?!? Það sýnir andskotann ekki neitt metnaðarleysi að fá 27 ára framherja sem hefur ágætis feril að baki í þýsku Búndesligunni og er að auki reyndur í Meistaradeildinni og með landsliðum til Liverpool án kaupverðs til að vera svona 3.-4. kostur í framherjahópnum okkar. Það er andskotann ekkert metnaðarleysi!
Svo veit maður ekki einu sinni hvernig Voronin mun spjara sig. Einu sinni keypti Liverpool framherja sem enginn þekkti. Hann hét (og heitir) Ian Rush og sló öll met sem leikmaður Liverpool. Svo, einu sinni, keypti Liverpool einn frægasta framherja í heiminum, Fernando Morientes, og hann bara spjaraði sig alls ekki sem framherji fyrir liðið. Hvernig í fjandanum getið þið þóst vita í hvorn flokkinn Voronin fellur?
Benni Jón og félagar sem sjáið ekkert nema rautt yfir Zenden (og væntanlega Voronin líka), slakið aðeins á og pælið af alvöru í þessu. Og nei, Benni Jón, ég er ekki með skítkast í þína átt heldur bara heiftarlega ósammála þér. Það er andskotann ekkert merki um metnaðarleysi að vera með mann sem var leikmaður ársins hjá Middlesbrough sem fjórða kost í sinni stöðu hjá okkur, og það er ekkert merki um metnaðarleysi að vera með næstbesta framherja Úkraínu og einn frægasta framherja þýsku Búndesligunnar sem þriðja eða fjórða kost í framherjastöðu hjá okkur. Síst af öllu þar sem þessir leikmenn komu báðir frítt til liðsins.