beach
« Kewell á förum? | Aðalsíða | Stóð Evans sig betur en almennt er talið? »

15. febrúar, 2007
Arsenal-Bolton í Mogganum

Einsog glöggir menn sjá eflaust, þá fjallar þetta blogg ekki um Arsenal heldur Liverpool. Ég ætla þó að gera smá undantekningu núna eftir að hafa lesið Morgunblaðið í morgun. Ég verð að segja að mér finnst magnað að leikskýrsla fyrir leik Arsenal og Bolton skuli hafa verið birt í jafn góðu blaði og Mogginn er.

Skýrslan er hér (smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu):

Til að byrja með sjá glöggir menn villu í undirfyrirsögninni. Annaðhvort er greinarhöfundur með slæmt minni, eða þá að hann þekkir ekki svarta Brasilíumenn í sundur, því millifyrirsögnin er svona: “Julio Baptista misnotaði tvær vítaspyrnur…”

Baptista misnotaði hins vegar bara aðra spyrnuna. Gilberto Silva, sem er jú svartur og frá Brasilíu misnotaði hina. Blaðamaður endurtekur svo mistök sín með því að segja í inngangi:

Julio Baptista, framherji Arsenal,misnotaði tvær vítaspyrnur í leiknum og fær eflaust ekki að taka fleir slíkar spyrnur í leikjum liðsins.

Magnað.

Það sem fór þó meira í taugarnar á mér er furðuleg árátta höfundar að vitna í lýsendur BBC. Ég veit ekki hvort að blaðamaður er að monta sig af nýja gervihnattadisknum sínum eða hvað, en í stað þess að koma með sín komment á leikinn þá vitnar hann tvisvar í lýsendur BBC:

Eftir það mark sagði Guy Mowbray, þulur BBC, að Arsenal hefði aldrei tapað leik þar sem Adebayor skoraði.

Ég skil ekki tilganginn með þessu kommenti. Og svo:

Baptista skaut yfir markið úr vítaspyrnunni og sagði Mark Lawrenson, þulur BBC, að boltinn hefði hafnað á M61-hraðbrautinni fyrir aftan leikvanginn.

Já, er það? Minntist Lawrenson ekkert á að Baptista hefði ekki skotið neitt, heldur að það hafi verið Gilberto Silva? Og hvaða skrýtni stíll er þetta að vitna í þuli á BBC í leikskýrslu í virtasta blaði landsins?

Einnig:

Skömmu áður hafði Emmanuel Adebayor skotið í stöng fyrir opnu marki og fer það færi líklega í metabækur félagsins.

Ég leyfi mér að efast um að Arsenal haldi metabækur utanum versta klúðrið í fótboltaleik.


Uppfært (EÖE): Björgvin bendir í kommentum á enn eina snilldina, sem ég tók ekki eftir:

Anelka fékk gult spjald fyrir brotið en hefði með réttu átt að fá rautt spjald. Gilberto hélt uppteknum hætti og skaut yfir markið úr vítaspyrnunni.

Þessi leikskýrsla er klassík!

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 19:38 | 369 Orð | Flokkur: Fjölmiðlar
Ummæli (20)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Nýliðar með sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
·N'castle 2 - L'pool 1
·L'pool 0 - (ritskoðað) 0
·West Ham 1 - Liverpool 2
·Liverpool - Chelsea 2-0

Leit:

Síðustu Ummæli

einsidan: Það fer ekki fram hjá neinum að hið anna ...[Skoða]
Gunnar: Ég vil leiðrétta samt eitt hérna. Menn f ...[Skoða]
Helgi: Gleymið því ekki að yfirmaður íþróttamál ...[Skoða]
Friðgeir Ragnar: M61 eða M62 hraðbrautin. Er þetta hvorut ...[Skoða]
Aggi: Úff þetta er nú meira klúðrið. ...[Skoða]
Daði: Eins gott að ég fái ekki vinnu á Mogganu ...[Skoða]
Daði: Besta grein sem ég hef séð í Mogganum va ...[Skoða]
Gummi: Þetta er ótrúleg grein, mér finnst þetta ...[Skoða]
eikifr: Er hjartanlega sammála Jón Frímann með s ...[Skoða]
Nonni: Ekki gleyma KR-mafíunni á Mogganum. ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Barcelona á morgun!
· Rafa um Voronin.
· Yfirlýsing frá Rafa
· Voronin til Liverpool?
· Ha? WTF? (uppfært)
· Cruyff um LEIKINN

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License