beach
« Alþjóðasamfélag í Liverpool. | Aðalsíða | Kewell á förum? »

14. febrúar, 2007
Bloggferðalag

Jæja, þá er komið að því. Þá er loksins komið að því. Draumurinn mun rætast í mars, og þótt fyrr hefði verið. Let’s get it on!!!!!!!!!!

google-uk.pngAllavega, í marsbyrjun munu fjórir/fimmtu af bloggurum Liverpool bloggsins ferðast saman yfir hafið og “niður” til Liverpool-borgar. Í apríl verða liðin þrjú ár síðan ég og Einar Örn opnuðum þessa síðu saman (vá hvað tíminn flýgur) og þetta verður fyrsta ferð okkar bloggaranna saman, og það er sko óhætt að segja að menn hlakki til.

Dagskrá ferðarinnar er sem hér segir:

  • Fös. 2. mars = Flogið til London, rúta til Liverpool, SSteinn svæfður kl. 21 og svo djamm fyrir okkur hina.

  • Lau. 3. mars = Hádegisleikur, Liverpool - Man Utd í Úrvalsdeildinni. SSteinn svæfður kl. 19 og svo djamm fyrir okkur hina.

  • Sun. 4. mars - mán. 5. mars = Þetta venjulega túristastöff … menn skiptast á að vera á hótelinu og passa SStein.

  • Þri. 6. mars = Kvöldleikur, Liverpool - Barcelona í Meistaradeildinni. SSteinn svæfður eftir leik og svo djamm fyrir okkur hina.

  • Mið. 7. mars = Rúta til London, flogið heim.

Með í för verða eftirtaldir bloggarar: ég (Kristján Atli), Einar Örn, SSteinn og Hjalti. Upphaflega átti SSteinn ekki að fá að koma með af því að hann er svo lítill og ósjálfbjarga, en þá fór hann að gráta og við leyfðum honum að koma með. Við héldum hins vegar leynifund okkar á milli og ákváðum að Aggi mætti ekki koma með, og því var honum ekki boðið. Nei í alvöru, þá er hann svo óheppinn að búa úti í Danmörku og komst því ekki með að þessu sinni.

Það segir sig sjálft að á meðan við hinir fjórir erum úti í draumaferðinni mun Aggi sinna síðunni af sinni alkunnu snilld, og svo verða (vonandi) djúsí myndir og/eða ferðasögur í boði þegar við hinir erum komnir heim.

Eru einhverjir fleiri þarna úti á meðal lesenda síðunnar á leiðinni á þessa leiki? Endilega látið okkur vita ef þið verðið þarna, aldrei að vita nema þið getið hitt uppáhalds bloggarana ykkar á The Park fyrir leik … :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 21:23 | 349 Orð | Flokkur: Um síðuna
Ummæli (16)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Nýliðar með sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
·N'castle 2 - L'pool 1
·L'pool 0 - (ritskoðað) 0
·West Ham 1 - Liverpool 2
·Liverpool - Chelsea 2-0

Leit:

Síðustu Ummæli

Sigtryggur Karlsson: :-) Það verður gaman að fylgjast með ...[Skoða]
T.I: ég fór mína jómfrúarferð á anfield 3. fe ...[Skoða]
Illugi: Glæsileg ferð sem þið eruð að fara á?? s ...[Skoða]
True Scouser: Aðalatriðið er að gæta þess að Ssteinn p ...[Skoða]
Páló: málið er að afmælið mitt er á milli þess ...[Skoða]
Vargurinn: Paló, ég var að heyra það að EINN miði v ...[Skoða]
Bjarki: Er á leiðinni á Anfield í fyrsta skipti. ...[Skoða]
Páló: ég var að á fullu að reyna að fá miða á ...[Skoða]
Palli G: Já, rosalega öfunda ég ykkur af því að t ...[Skoða]
SSteinn: he he he, Ég er hræddur um að ef dagskr ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Kewell á förum?
· Bloggferðalag
· Alþjóðasamfélag í Liverpool.
· Nýliðar með sinn fyrsta leik fyrir Liverpool
· Tveir leikmenn Liverpool í Evrópuúrvalinu.
· Hvar eru veikleikar okkar?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License