beach
« Sagan endalausa | Aðalsíða | Tveir leikmenn Liverpool í Evrópuúrvalinu. »

12. febrúar, 2007
Hvar eru veikleikar okkar?

Ég er ennþá frekar pirraður eftir tapið gegn Newcastle og þá aðallega vegna þess að við ÁTTUM alls ekkert að tapa þessu. Við vorum betri aðilinn í þessum leik en nú sem áður þá erum við ekki að nýta þau færi sem við fáum til að klára leikina. Bellamy átti að ósekju að skora þrennu í þessum leik og Kuyt eitt en skoruðum aðeins eitt mark og uppskárum ekkert stig. Mig grunaði að þetta gæti orðið erfiður leikur sérstaklega í ljósi þess að við vorum með þá Zenden og Sissoko inná frá upphafi en þeir hafa ekki verið með síðan í nóvember vegna meiðsla og það sást klárlega í leiknum. Sissoko var orðinn mjög þreyttur í lok leiksins og Zenden var horfinn þegar honum var skipt útaf.

Ég og vinur minn, Rúnar, gerum okkur stundum ferð á hverfiskránna hérna í borginni við höfnina og ræðum um Liverpool. Þá eru spurnningar líkt og: Hvaða stöður séu vandamál? Hvar við séum vel mannaðir? Hverja við getum keypt o.s.frv. oft bornar á borð og þær rökræddar út í hið óendanlega. En veltum þessu aðeins fyrir okkur.

Hvar eru okkar helstu veikleikar? Að mínu viti er okkar veikasta staða ennþá hægri kanturinn þar sem þeir Pennant og Garica hafa helst spilað. Gerrard stóð sig vel í þeirri stöðu í fyrra en hann er fyrst og fremst miðjumaður. Pennant hefur átt ágætis spretti inná milli en er ekki og verður ekki lykilmaður í liði sem er að berjast um titla. Garcia er frábær varamaður og getur komið inná og breytt leikjum. Einnig er hann gríðarlega fjölhæfur og getur leyst báðar kantstöðurnar, verið í “holunni” og spilað sem framherji. Ég held að Rafa hjóti að leggja gríðarlega áherslu á að kaupa heimsklassa kantmann sem getur bæði tekið varnarmenn á og gefið góðar sendingar fyrir markið. Ekki er síðan verra að hann gæti sett eitt og eitt mark. Hver þessi leikmaður er veit ég ekki en ég treysti því að þeir njósnarar sem Liverpool er með á sínum snærum séu fullfærir um að finna þennan leikmann einhversstaðar í heiminum.

Hins vegar er ljóst að þótt Rafa finni þann leikmann sem passar þá er langur vegur í að hann komi til okkar. Kannski vill hann ekki spila á Englandi og hvað þá búa í Liverpool. Það eru margir þættir sem þurfa að smella þegar leikmenn utan Englands eru keyptir og þá sérstaklega þeir sem tala ekki málið. Til að allt gangi upp þarf einnig fjölskylda viðkomandi leikmanns að aðlagast vel nýja umhverfinu og er oft vandamál.

Þurfum við nýja framherja? Er Bellamy nógu góður fyrir Liverpool? Hvað þá Crouch? Og jafnvel Kuyt? Ég met stöðuna sem svo að eins og staðan var þegar Bellamy var fenginn þá var hann góður kostur og sama á við Pennant. Hins vegar hefur Rafa sýnt það að hann er tilbúinn að viðurkenna sín mistök og selja leikmenn eftir eina leiktíð. Ef t.d. David Villa er á lausu fyrir raunhæfan pening þá er hann klárlega betri en Bellamy og Crouch. Ég tel að Kuyt hafi alla burði heimsklassa framherja og eftir ákveðinn aðlögunartíma þá muni hann sýna það.

Önnur vandamálastaða er vinstri kanturinn en þar taldi ég okkur vel mannaða fyrir tímabilið en vegna tíðra meiðsla Kewell, Aurelio og Gonzalez þá eru við alls ekki vel mannaðir þar. Hægt er að setja raunhæft spurningamerkið við Kewell í dag en hann er búinn að vera meiddur meira og minna allan sinn ferill hjá Liverpool. Þegar hann er spilklár þá hefur hann staðið sig fantavel og er oft sá leikmaður sem gerir út um leiki með góðri sendingu og fallegu marki. Gonzalez er ennþá ungur drengur og mun taka sinn tíma fyrir hann að aðlagast Englandi og að spila í stóru félagi. Hann þarf í það minnsta eitt tímabil sem “back up” áður en hann mun láta taka til sín af einhverju viti en hæfileikana hefur drengurinn. Það sýndi hann á Spáni bæði með Albacete og Sociedad. Aurelio var oft meiddur hjá Valencia og heldur uppteknum hætti hjá okkur. Ef það gengur ekki yfir þá getum við alveg eins selt hann til liðs hefur efni á að hafa lykilmenn meidda. Hæfileikarnir leyna sér ekki hjá drengnum en alltaf þegar hann er að ná góðu skriði í byrjunarliðinu þá meiðist hann. EN hvaða leikmaður getur leyst þessa stöðu betur en þeir sem fyrir eru? Ég hef ávallt verið hrifinn af Duff en hann er engu betri en Kewell hvað meiðslin varðar. Ég á því von að Rafa taki púlsinn á öllum vinstri kantmönnum okkar eftir tímabilið og út frá því meti hvort þörf sé að liðstyrk hérna.

Það er auðvelt að pirrast yfir Riise og sérstaklega í ljósi liðinna atburða þá er Normaðurinn oft auðvelt skotmark. Hann er ótrúlega mikill “basic” knattspyrnumaður, duglegur en alls ekki hæfileikaríkur. Er gríðarlega skotfastur en ekki skotviss og er bestur þegar hann ofmetur ekki sína eigin getu (sem hann því miður gerir of oft). Þrátt fyrir þetta þá er Riise með gríðarlega reynslu og líklega þyrftum við að punga út fullt af milljónum punda til að fá leikmann sem væri betri en Riise. Kostir Riise eru þeir að hann er búinn að vera lengi í Liverpool, veit til hvers er ætlast af honum og hann meiðist næstum ALDREI. Það er kostur. Hins vegar væri náttúrulega frábært ef Aurelio myndi ná að vera heill í fleiri en tvær vikur í einu og gæti þá sett smá pressu á hann.

Úr einu yfir í annað… núna er framundan leikur gegn Barcelona á Camp Nou. Strákarnir okkar eru nú á leið til Portúgals þar sem þeir munu undirbúa sig sem best fyrir átök gegn Eiði og félögum. Okkur hefur nú ávallt liðið best sem “under dogs” í átökum okkar í Evrópukeppnunum og á ég ekki von á því að þessi leikur verði nein undantekning frá því. Ég hlakka til leiksins og vonandi sjáum við okkar menn í stuði á miðvikudaginn eftir viku.

Góðar stundir.

.: Aggi uppfærði kl. 20:30 | 981 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (17)

Þetta eru alltaf skemmtilegar pælingar Aggi, menn vilja auðvitað alltaf þá bestu og hingað til hefur það verið fjarlægur draumur.

En með tilkomu nýrra eigenda þá held ég að óhætt sé að gera sér vonir um 2-3 stjörnur í sumar, leikmenn á heimsmælikvarða sem færa Liverpool FC upp á hæsta plan. Ef ég man rétt þá var Benitez líka að tala um það að liðinu í dag vantaði 3 klassa leikmenn til að ná upp á hæstu hæðir.

Það er klárt mál að nokkrar stöður eru veikari en aðrar, að mínu mati eru það báðar bakvarðarstöðurnar, hægri og vinstri kantur (geri þá ráð fyrir að Kewell nái sér aldrei heilum) og svo myndi það vera sterkur leikur að bæta einum gæða manni í sóknina.

Mér þætti ekki óeðlilegt að Benitez gerði aðra tilraun til að ná Alves eða Simoa í sumar. Nú hefur hann þessa 1-2 milljónir sem vantaði uppá síðast.

Með tilkomu Alves værum við komnir með framtíðar mann í hægri bakvörðinn, plús mjög svo frambærilegan hægri kantmann.

Simoa er í miklu uppáhaldi hjá mér og að mínu mati gæti hann orðið okkar svar við Ronaldo hjá manu. Kosturinn við Simoa er sá að hann er jafnvígur á hægri og vinstri kant. Því gæti það dugað Rafa að kaupa hann í sumar og gefa svo Kewell og Gonzalez næsta vetur til að sanna sig.

EF hann ákveður að Liverpool vanti vinsti kantmann þá kemur bara einn upp í hugan strax, Florent Malouda hjá Lyon. Frábær kantmaður með mikla tækni og mikin hraða, og spilar á hverju ári meðal þeirra bestu í meistaradeildinni, auk franka landsliðsins. Ég er klár á því að þessi kappi myndi færa liðinu aukin gæði.

Einnig gætum við klárlega haft not fyrir liðsfélaga Malouda, vinstri bakvörðin Eric Abidal. Stór og sterkur strákur sem hefur virkað vel á mig þegar ég hef séð hann spila. Annars er vinstri bakvaðarstaðan erfið því það eru mjög fáir afgerandi góðir vinstri bakverðir í heiminum.

Nú er mál að klára þennan vetur með stæl, því aðdráttarafl LFC verður minna ef meistaradeildarsæti er ekki tryggt.

Krizzi

Krizzi sendi inn - 13.02.07 10:03 - (
Ummæli #11)

Það fyndna við þetta allt saman og það sýnir kannski erfiðleikana sem að Rafa glímir við, er að það geta fáir bent á augljósa kosti sem myndu bæta liðið verulega.

Ég er sammála að Riise er ekki besti bakvörður í heimi, en spurningin er hver kemur í staðinn fyrir hann. Mestum vandræðum er ég samt í með hægri kants-stöðuna. Ég er dálítið hrifinn af Pennant, en ég geri mér grein fyrir að hann er ekki allra besti kostur í stöðunni. En þá er bara spurning hver er betri kostur? Menn nefna nánast alltaf sömu nöfnin yfir þá leikmenn sem þeir vilja: Simao, Alves og Villa. Af þessum leikmönnum er Simao einna líklegastur, en það má þó benda á að Simao verður 28 ára á þessu ári.

Alves verður líklega gríðarlega dýr næsta sumar og það sama má segja um Villa. Það er líka erfitt að segja hver forgangsatriðin eru því maður veit ekki almennilega hvað gerist.

Sem dæmi: Vinstri kanturinn er augljóslega forgangsatriði, nema að Harry Kewell verði í lagi. Hægri kanturinn er forgansatriði nema að Rafa sjái (einsog var talað um í grein um Mascherano) Xabi og Javier sem miðjupar og Gerrard á kantinum.

Eina sem maður veit með vissu er að vinstri bakvörðurinn er forgansatriði einsog Riise hefur verið að spila á þessu tímabili. Svo má einnig segja að það losni klárlega um eina framherjastöðu og það verður gaman að sjá hvort að Rafa kaupir backup framherja, eða hvort hann kaupi toppmann og færi hina framherjana neðar í goggunar-röðina.

Einar Örn sendi inn - 13.02.07 14:31 - (Ummæli #15)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·N'castle 2 - L'pool 1
·L'pool 0 - (ritskoðað) 0
·West Ham 1 - Liverpool 2
·Liverpool - Chelsea 2-0
·Watford 0 - Liverpool 3

Leit:

Síðustu Ummæli

Elías Már: Ef við röðum forgangi í leikmannakaupunu ...[Skoða]
Aggi: Ok það er ljóst að Finnan, Riise, Pennan ...[Skoða]
Einar Örn: Það fyndna við þetta allt saman og það s ...[Skoða]
Hössi: Þetta átti að vera Aggi en ekki Einar hé ...[Skoða]
Hössi: Vil bara taka undir með einarie hér að o ...[Skoða]
Halldór: Krizzi, eftir því sem tíminn líður, þeim ...[Skoða]
Krizzi: Þetta eru alltaf skemmtilegar pælingar A ...[Skoða]
Aggi: Ég held að Einar hafi svarað þessu varða ...[Skoða]
Einar Örn: >Aggi, finnst þér Liverpool borg virkile ...[Skoða]
JayMatteo: Aggi, finnst þér Liverpool borg virkileg ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Tveir leikmenn Liverpool í Evrópuúrvalinu.
· Hvar eru veikleikar okkar?
· Sagan endalausa
· N'castle 2 - L'pool 1
· Newcastle í dag frestað? Já? Nei?
· Rafa stjóri mánaðarins.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License