10. febrúar, 2007
Í dag tapaði Liverpool 2-1 fyrir Newcastle á útivelli í ensku Úrvalsdeildinni. Eftir markalaust jafntefli gegn Everton um síðustu helgi má því segja að það sé komið hikst í vélina eftir tæpa þrjá frábæra mánuði í deild.
Fyrir leikinn var ekki víst hvort af honum yrði vegna úrhellis í Newcastle en á endanum stytti aðeins upp svo að hægt var að hefja leik. Rafa gerði nokkrar breytingar á liðinu frá því um síðustu helgi, en Xabi Alonso var í leikbanni í dag. Liðið var sem hér segir:
Reina
Finnan - Carragher - Agger - Riise
Pennant - Gerrard - Sissoko - Zenden
Bellamy - Kuyt
Bekkur: Dudek, Hyypiä, Arbeloa, Guthrie, Crouch.
Strax frá upphafi leiks var greinilegt að blautur völlurinn yrði í aðalhlutverki en menn áttu erfitt með að fóta sig. Það skilaði strax marki en aðeins örfáar mínútur voru liðnar þegar Steve Harper markvörður Newcastle klúðraði frásparki, Jermaine Pennant tók boltann og lék framhjá varnarmanni og inní teiginn, gaf hann þaðan út á Craig Bellamy sem skoraði í tómt markið. 1-0 fyrir okkar menn og maður bjartsýnn á framhaldið.
Restin af fyrri hálfleiknum var frekar villimannslega leikin, en þó var leikurinn aldrei grófur. Menn hentu sér í tæklingar og börðust grimmilega og bæði lið reyndu að sækja hratt og nýta sér hröðu leikmenn sína, Bellamy og Obafemi Martins, á blautum vellinum. Okkar menn höfðu þegar uppskorið með marki Bellamy en um miðjan hálfleikinn fengu Newcastle-menn jöfnunarmarkið á silfurfati. Boltinn kom innfyrir vörn Liverpool og Daniel Agger barðist við Martins og náði að skýla honum frá boltanum svo að Pepe Reina gæti hreinsað frá. Reina kom askvaðandi út úr vítateignum en í stað þess að hreinsa boltann fram völlinn eða upp í stúku skaut hann í Agger og þaðan lak boltinn inn í vítateiginn þar sem Martins skaut óvaldaður í tómt markið. Sérlega kómískt mark og sjaldséð mistök hjá hinum sparkvissa Reina.
Í kjölfarið á jöfnunarmarkinu kom ótrúlegur leikkafli hjá okkar mönnum. Craig Bellamy slapp þrisvar í gegnum vörn Newcastle-manna með boltann; í fyrsta skiptið gaf hann slaka sendingu á Kuyt sem Harper markvörður greip inní, í annað skiptið var hann búinn að leika á Harper en hitti ekki boltann fyrir opnu marki og í þriðja skiptið skaut hann í þverslána úr opnasta færinu. Stuttu síðar slapp Bolo Zenden einn innfyrir en Harper varði slakt skot hans úr dauðafæri og því var enn jafnt þegar Mark “Headlines” Halsey dómari flautaði til leikhlés, heimamönnum til mikils léttis.
Síðari hálfleikur var svo alveg jafn opinn og hraður og sá fyrri og okkar menn fengu haug af sóknum til að gera út um þetta. Dirk Kuyt og Steven Gerrard klúðruðu báðir skotum og fyrirgjöfum úr kjörstöðum á meðan Craig Bellamy hélt áfram að láta Steve Harper verja frá sér.
Þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka dró svo til tíðinda. Steven Taylor, bakvörður Newcastle, lék með boltann inní teiginn og framhjá John Arne Riise sem rétti út löppina til að reyna að ná til boltans. Taylor hljóp framhjá honum án snertingar, steig eitt skref í viðbót og renndi sér svo til jarðar. Í endursýningunni sást að hann gerði sér grein fyrir að þetta var of augljós leikaraskapur því hann stóð upp án þess að biðja um nokkuð og virtist alveg jafn hissa og varnarmenn Liverpool þegar Mark “Headlines” Halsey dæmdi fáránlega vítaspyrnu. Sannarlega skelfileg dómgæsla hjá dómara leiksins. Úr vítinu skoraði svo Nolberto Solano sigurmark leiksins.
Eftir þetta setti Rafa Arbeloa (í sínum fyrsta leik), Guthrie og Crouch inná fyrir Pennant, Zenden og Finnan en allt kom fyrir ekki, Newcastle-menn pökkuðu í vörn og héldu forskotinu nokkuð auðveldlega út leikinn og lokatölur urðu því 2-1.
Eins pirrandi og það er að tapa með tveimur jafn kómískum mörkum og í dag (ein jólagjöf í febrúar og einn blindur vítaspyrnudómur) þá er ekki hægt að kenna óheppni eða dómgæslu um tapið í dag. Þessi leikur átti að vera kominn í svona 4-1 eða 5-1 áður en flautað var til leikhlés og það er hreint skelfilegt að horfa upp á liðið klúðra jafn ótrúlegum dauðafærum og það gerði í dag. Fyrir viku síðan gegn Everton gat liðið ekki skapað sér eitt einasta færi til að sigra leikinn - í dag voru færin jafn mörg og regndroparnir en mönnum virtist bara fyrirmunað að nýta þau. Newcastle-menn áttu fjögur skot á rammann og skoruðu tvö, okkar menn áttu níu skot á rammann og skoruðu bara eitt. Niðurstaðan = verðskuldaður sigur heimamanna. Þeir vinna sem nýta.
Maður leiksins: Ef Craig Bellamy hefði drullast til að skora úr einhverjum af færum sínum eftir jöfnunarmark Newcastle væri hann hiklaust maður leiksins, því hann var alveg jafn góður og hættulegur í dag og Kuyt var litlaus og glataður. En af því að hann klúðraði nokkrum af dauðafærum ársins fær hann þann titil ekki.
Þess í stað ætla ég að velja Jermaine Pennant, sem var eini leikmaður liðsins fyrir utan Bellamy sem spilaði af einhverri sóknargetu í dag, lagði stórvel upp markið fyrir Bellamy og hefði getað átt svona þrjár stoðsendingar í dag ef framherjarnir hefðu nýtt sín færi betur. Pennant stóð upp úr annars miðlungsgóðu Liverpool-liði í dag.