beach
« Jamie Carragher talar! | Aðalsíða | Newcastle á St. James Park á morgun. »

08. febrúar, 2007
Pongolle óviss um framtíðina.

Florent Simana-Pongolle var lánaður fyrir tímabilið til Recreativo de Huelva á Spáni. Liðið er nýliði í La Liga og hefur vegnað mjög vel á tímabilinu, er sem stendur í 7. sæti og þar með evrópusæti. Pongolle hefur einnig staðið sig afar vel og er nú þegar búinn að skorað 7 mörk þrátt fyrir að vera ekki með fast sæti í byrjunarliðinu.

Pongolle er ánægður með dvölina á Spáni en er samt óviss um framhaldið þe. hvort hann verði áfram hjá Recreativo, fari aftur til Liverpool eða verði seldur annað. Hann mun vera í góðu sambandi við Rafa og segir m.a. sjálfur:

“He always rings me when I score and asks me how I am. We get on well and he gives me advice”

Það hefur ekki farið framhjá honum frekar en öllum öðrum (í heiminum) að búið er að selja Liverpool:

“We don’t know what will happen because I understand two businessmen have just bought Liverpool.”

Ég hef ávallt verið afar hrifinn af Pongolle sem leikmanni og tel að hann eigi fullt erindi í 16 manna hóp liðsins. Ólíkt Le Tallec þá virðist Pongolle eflast við mótlæti og þrátt fyrir ungan aldur (22 ára) þá hefur hann gengið í gegnum margt á sínum stutta atvinnumannaferli. Að koma til Liverpool ungur að árum, gríðarlegar væntingar gerðar til hans (enda talaði Houllier oft um hann og Le Tallec sem snillinga), slíta krossbönd, þjálfaraskiptum og síðast en ekki síst fá ekki að spila reglulega.

Það er enginn vafi í mínum huga um getu drengsins, spurninginn er bara hvort hann passi inní framtíðaráform Rafa og hans leikkerfi. Ég hef séð nokkra leiki með Recreativo í vetur og hefur Pongolle ávallt staðið sig fantavel, hvort sem hann byrjar inná eða kemur af bekknum. Mig grunar að Rafa sjái hann fyrir sér sem framtíðar framherja og muni leysa td. Fowler af hólmi á næsta tímabili, hvort ég reynist sannspár kemur væntanlega í ljós í sumar.

Eitt er víst að framtíð Anthony Le Tallec hjá Liverpool er löngu ráðinn, hann fer!

.: Aggi uppfærði kl. 23:23 | 334 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (4)

Þú meinar kolamolinn :-)

Þröstur sendi inn - 09.02.07 11:16 - (Ummæli #3)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·L'pool 0 - (ritskoðað) 0
·West Ham 1 - Liverpool 2
·Liverpool - Chelsea 2-0
·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6

Leit:

Síðustu Ummæli

Aggi: Le Talle er í láni hjá Sochaux út tímabi ...[Skoða]
Þröstur: Þú meinar kolamolinn :-) ...[Skoða]
Vargurinn: Hvað...! er ekki þegar búið að gefa Le T ...[Skoða]
Óli Haukur: Já, ég er einn af þeim sem hrífst mjög a ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Rafa stjóri mánaðarins.
· Newcastle á St. James Park á morgun.
· Pongolle óviss um framtíðina.
· Jamie Carragher talar!
· Slúðrið byrjað!
· Tíunda ríkasta knattspyrnufélag í heimi.

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License