30. janúar, 2007
Jæja, Liverpool unnu í kvöld fínan útisigur á Íslendingaliði West Ham í London.
Það þýðir að liðið hefur unnið 5 leiki í röð í deildinni og að forskot Chelsea á Liverpool er komið niður í tvö stig, en Chelsea eiga leik til Blackburn á morgun til góða.
Nú verð ég eiginlega að játa mig sekan með það að ég var ansi duglegur við að skipta á mill stöðva í kvöld. Landsleikurinn gegn Dönum var auðvitað í gangi og einnig var fyrri hálfleikurinn á Upton Park einfaldlega frekar slappur og lítið í gangi.
Liðin voru nokkuð jöfn, og lítið markvert gerðist.
Allavegana, Rafa byrjaði með 3-4-3 líkt og gegn Watford.
Reina
Carragher - Agger - Hyypia
Finnan - Gerrard - Alonso - Riise
Bellamy - Kuyt - Crouch
Í byrjun seinni hálfleiks breyttist svo allt því eftir 11 sekúndur var Dirk Kuyt búinn að skora. Crouch tók boltann glæsilega niður eftir langa sendingu og sendi á Kuyt, sem skoraði með bogaskoti yfir Carroll af löngu færi. Frábært mark.
Eftir þetta stjórnaði Liverpool leiknum næstu 25 mínúturnar og gátu oft bætt við. Það gerðist svo að liðið komst í 2-0. Það mark kom eftir glæsilega sókn, sem byrjaði með samspili hjá Xabi og Gerrard, sem gaf svo langa sendingu fram á Bellamy sem gaf innfyrir á Riise, sem gaf svo boltann fyrir á Peter Crouch sem setti boltann í skeytin. Glæsilegt spil og glæsilegt mark hjá okkar mönnum.
Eftir þetta hélt ég að þetta yrði auðvelt, en svo datt spil Liverpool niður í eitthvað kæruleysi og eftir að liðið missti boltann klaufalega náði West Ham að minnka muninn þegar að Kepa Blanco skoraði eftir hraða sókn. West Ham var eftir það meira með boltann, án þess þó að ógna Reina að ráði.
Maður leiksins: Það er erfitt að velja einhvern sem stóð uppúr í kvöld. Ég ætla þó að veita heiðursverðlaun, sem að Pepe Reina fær í kvöld. Ég segi það og skrifa að mér hefur aldrei liðið jafnvel með mann í marki Liverpool einsog með Reina. Hann er einfaldlega stórkostlegur markvörður og að mínu mati er hann búinn að vera besti markvörðurinn í enska boltanum á þessu tímabili. Hann stjórnar vörninni, grípur inní skyndisóknir andstæðinganna, er öruggur í fyrirgjöfum og ver þá bolta sem koma á markið. Hann gat ekki neitt gert í marki West Ham í kvöld en hann hafði ekki fengið á sig mark allan janúar mánuð og núna hefur hann fengið á sig 2 mörk í síðustu 13 deildarleikjum.
Það er líka svo að annað árið í röð stefnir í það að Reina verði sá markvörður sem heldur oftast hreinu í úrvalsdeildinni. Hann hefur allavegana forskot í þeirri keppni núna.
Núna er bara að vona að Chelsea og manchester united
hiksti á mrgoun svo við getum minnkað forskotið á þau lið enn frekar. Munurinn er núna 2 stig í Chelsea og 8 stig í Man U.
Svo á laugardaginn koma Everton menn í heimsókn. Xabi verður í banni í þeim leik, þannig að vonandi verður Javier Mascherano orðinn leikmaður Liverpool fyrir þann tíma.