30. janúar, 2007
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum sem
Sky vitna í þá hefur Deportivo samþykkt að selja fyrrverandi Real Madrid bakvörðinn Alvara Arbeloa til Liverpool fyrir 2,64 milljónir punda.
Samkvæmt Sky þá eru Liverpool líka við það að fá að lána 18 ára strák frá Malaga, sem heitir Francis Duran.
Nú verð ég að játa algjöra vanþekkingu mína á báðum þessum leikmönnum.
Uppfært - HÞH: Á
Wikipedia má lesa smá upplýsingar um Arbeola. Real Madrid býður upp á myndina. Ætli hann verði ekki bara back up fyrir Finnan strax en ekki einn af þessum ungu strákum sem eru bara upp á framtíðina? Það er líklegt.
Þá erum við búnir að fá til okkar sex menn í janúar og með Mascherano verða þeir sjö. Hversu mikið þeir munu spila á tímabilinu er mismunandi en líklega spila aðeins tveir af þeim, Arbeola og Mascherno með því en hinir, Jordy Brouwer, Astrit Ajdarevic (sem lítur ALVEG eins út og Patrick Berger!), Daniele Padelli og Emiliano Insua, eru meira upp á framtíðina……