beach
« Ungur Hollendingur til Liverpool (Staðfest) | Aðalsíða | Diao farinn (Neeeeeeei) »

24. janúar, 2007
Þurfum við viðbætur?

Nú fer að styttast í að þessum svokallaða leikmannaglugga verði lokað. Það verður að segjast eins og er að lítið hefur verið að gerast hjá okkar mönnum. Stephen Warnock er horfinn á braut, Salif Diao er búinn að fá sína síðustu útborgun frá Liverpool og svo hafa þrír “kjúklingar” bæst í hópinn sem flokkast undir framtíðarkaup. Lucas Neill ákvað að fara í West Ham og FIFA er enn að fara yfir málefni er varðar lánssamning Javier Mascherano. Hvernig er þá staðan? Þurfum við nauðsynlega að bæta við okkur? Fyrir mér persónulega þá á janúarglugginn ekki að vera nýttur nema af einhverjum eftirtöldum ástæðum:

a) Leikmaður sem við höfum verið að reyna að ná í verður skyndilega í boði fyrir réttan pening

b) Gæðaleikmanni verður skyndilega frjálst að fara frá sínu félagi

c) Krísuástand og reyna þarf að finna einhverjar skammtímalausnir

d) Meiðsli og leikmannaskortur er varðar einstaka stöður

Er varðar Liverpool, þá flokkaðist Lucas Neill klárlega undir lið a) og d). Þ.e. leikmaður sem við höfum verið að reyna að ná í varð laus og spilar einnig þá stöðu þar sem okkur hefur vantað backup leikmann fyrir. Javier Mascherano flokkast svo klárlega undir lið b). Sumir telja að liður c) eigi vel við, en ég er einfaldlega ekki sammála þeim mönnum. Við getum klárlega haldið áfram því góða formi í deildinni sem við höfum verið í undanfarið. Þar sem við eigum bara tvær keppnir eftir, þá er nánast útilokað að finna leikmann sem er gjaldgengur í Meistaradeildina (einhvern gæðaleikmann) og styrkir liðið mikið. Þá þurfum við að horfa til deildarinnar. Þar sé ég ekki neinn leikmann heldur sem uppfyllir fyrrnefnd skilyrði.

Tökum bara hverja stöðu fyrir sig:

Markverðir: Er hissa á að Dudek hafi ekki enn farið, sér í lagi þar sem búið er að fá efnilegan ítalskan markvörð til liðsins. Staðan er því klárlega vel mönnuð og ekkert meira verður gert í henni.

Hægri bakverðir: Þarna höfum við hinn áreiðanlega Steve Finnan, og honum verður nú ekki bolað út si svona. Hann er greinilega aðal ástæðan fyrir því að Neill kom ekki. Hann greinilega taldi sig ekki eiga séns á að bola Íranum úr sinni sinni stöðu. Við höfum auðvitað Carra sem backup mann, og svo hinn unga Peltier. Ég segi því að þetta sé sú staða sem við helst þyrftum að bæta, en þó ekki með hverjum sem er. Hver er til í að koma og vera varamaður Finnan? Að mínum dómi getum við vel haldið þessari stöðu í góðum gír fram á vorið. Það væri þó óneitanlega afar slæmt að missa Steve í meiðsli.

Miðverðir: Sami, Agger og Carra eiga þessa stöðu með húð og hári. Paletta er ennþá óslípaður, en hann verður þó aldrei meira en fjórði maður inn. Hef því litlar áhyggur af þessari stöðu eins og staðan er í dag.

Vinstri bakverðir: Warnock farinn og eftir standa Riise og Aurelio. Báðir fínir bakverðir, þó þeir geti verið ansi misjafnir. Erum einnig búnir að fá ungan Argentínumann í hópinn, sem menn segja kláran í slaginn. Daniel Agger hefur líka spilað þessa stöðu með miklum ágætum með Brondby og Dönum.

Hægri kantur: Pennant hefur verið að koma sterkur inn upp á síðkastið og vonandi heldur hann því áfram. Það eru ekki margir í viðbót sem geta tekið þessa stöðu upp á sína arma og virðast vera fáir góðir hægri kantmenn á lausu í boltanum í dag. Stevie G getur svo leyst hana með miklum ágætum og hugsar Rafa eflaust innkomu Javier með það í huga. Sérstaklega eftir að Luis meiddist og verður frá það sem eftir er tímabils. Kewell er vonandi á leið tilbaka og hann hefur verið iðinn við kolann að skora fyrir okkur þegar hann hefur spilað þarna. Sem sagt, þá er þetta sú staða sem þarf styrkingar, en það virðist vera að það sé ekki úr mörgu að velja í janúar. Þessi staða, sem og hægri bakvörður er klárlega eitthvað sem þarf að fara í að styrkja í sumar.

Miðjan: Við erum í ansi góðum málum í þessari stöðu. Xabi og Stevie G hafa spilað eins og kóngar inni á miðjunni, svo eru Momo og Bolo að koma tilbaka og geta leyst þá að hólmi. Svo verður Javier einnig hugsaður þarna ef tekst að koma hans málum í gegn.

Vinstri kantur: Þeir sem hafa spilað þessa stöðu fyrir Liverpool eru ekki fáir. Aurelio, Riise, Kewell, Garcia, Bolo og Gonzalez. Af þessum er það einungis Garcia sem ekkert meira verður með. Menn eru að gera sér vonir um að Kewell komi tilbaka núna í febrúar og er ég á því að það séu fá lið með jafn mikið úrval leikmanna í þessa stöðu eins og Liverpool. Klárlega staða sem við þurfum ekki að spá frekar í núna.

Framherjar: Kuyt, Crouch, Bellamy og Fowler. Menn hafa verið að tala um að kaupa framherja núna. Hvers vegna? Hvern? Viljum við þá ekki framherja sem er betri en þeir sem fyrir eru? Eru þeir á lausu? Eru mörg lið sem eru með betri fjórða framherja en við? Fowler er ekki jafn öflugur og hann var þegar hann var að byrja sinn feril, en hann er klárlega í mínum huga góður kostur sem fjórði framherji. Eru allavega alls ekki í krísu með þessa stöðu.

Sem sagt, að mínum dómi er ekki margt sem við þurfum að huga að núna, og að mínum dómi þyrftum við í rauninni ekkert að gera í þessum janúarglugga. Ég myndi þiggja góðan backup leikmann fyrir hægri bakvörðinn, en hann rann okkur úr greipum því hann vildi ekki þurfa að berjast um sína stöðu. Svo er það hægri kanturinn, sem væntanlega allir eru sammála um að mætti við styrkingu. Hvaða lausn hafa menn þar sem er betri en sú að nota Pennant áfram, sem er ávallt að bæta sig, og hafa svo Stevie sem backup. Ég tel mig nú fylgjast vel með boltanum í flestum deildum Evrópu. Ég get samt sem áður ekki bent á það hvar sá leikmaður er sem er lausnin í þessa stöðu, hvað þá leikmaður sem er “á lausu” núna í janúar.

Ég segi því bara að ég er ekkert grút svekktur með það þó svo að við myndum ekki kaupa neinn mann í aðalliðshópinn núna á þessum tímapunkti. Of margir nýjir menn geta haft neikvæð áhrif. Liðið er á skriði og það á ekki að kaupa neina skammtímalausn. Ég er sannfærður um að þessi hópur sem við erum með núna, geti haldið áfram á beinu brautinni og skilað okkur í ásættanlegt sæti í vor. Vonandi sjáum við svo næsta sumar að við komum til með að fylla í þær fáu stöður sem okkur vantar meira quality í, jafnvel 2-3 klassa leikmenn sem klárlega myndu styrkja byrjunarlið okkar.

.: SSteinn uppfærði kl. 12:44 | 1108 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (30)

Það er alveg dæmalaust að þegar ljóst er að Parry og Moores hafa enn einu sinni gert upp á bak í leikmannagluggum skuli menn fara að tala um næstu glugga og að við þurfum ekki að styrkja liðið.

Kannski blindar sigurinn gegn Chelsea mönnum sýn. Ef við hefðum tapað þeim leik væru kannski allir sjóðbandbrjálaðir hérna á spjallinu.

Hvert er markmiðið?. Er það ekki að keppa um enska titilinn og gera harða atlögu að öllum öðrum titlum? Og hvernig gerist það? - Jú með sterkari leikmönnum - ekki satt?. Vissulega bæta sumir leikmenn sig og verða heimsklassa. Hvort sú verði raunin með Pennan, Crouch, Riise og Finnan ... þá efast ég um það. Og athugið að þetta eru leikmenn sem allir eru hluti af sterkasta byrjunarliðinu okkar í dag.

Liðið okkar er mjög gott og á réttri leið í augnablikinu. Góður stígandi - en að mínu mati ekki ennþá eins gott og liðið sem spilaði seinni hluta mótsins í fyrra. Það er ekkert flókið að mínu mati að því sterkari leikmönnum sem lið hefur fram að færa því meiri líkur á enska titlinum. S.s. auknar líkur - meiri möguleiki.

Ég er fullviss um að nú sé tíminn til að kaupa leikmenn. Það tekur menn tíma til að átta sig á enska boltanum og við einfaldlega megum ekki við því að vera að venja menn í upphafi móts eins og reyndin var í haust. Agger kom í janúar og hann og Kuyt eru að mínu mati sterkustu kaup okkar síðasta árið. En hann var ekki tilbúinn fyrr en í haust. Lang best væri auðvitað að aftur væri keyptur leikmaður eins og Kuyt sem gengi beint inn í liðið. Mín von stendur til þess og ég bíð spenntur fram til 1. febrúar.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 25.01.07 11:01 - (
Ummæli #12)

Hössi, það þýðir ekkert að vera hérna bandbrjálaður útí allt og alla í hverjum félagaskiptaglugga. Hefði þú ekki verið ánægður ef þú værir Chelsea aðdáandi síðasta sumar? Þá keyptu þeir Sheva, Ballack og Kalou, alla á stórfé. Enginn þeirra hefur staðið sig.

Málið er að núna eru engin lið að kaupa leikmenn, nema kannski lélegu liðin sem eru að kaupa miðlungsleikmenn. Það þýðir ekkert að krefjast klassa leikmanna þegar þeir eru einfaldlega ekki á lausu á þessum tíma.

Já, við getum gagnrýnt Pennant, en sýnið mér þá raunhæfa möguleika til að koma í staðinn fyrir Pennant. Já, menn geta kvartað yfir framherjunum (sem ég reyndar skil ekki) en sýnið mér þá hver er á lausu. Þegar við vorum orðaðir við sjálfan Raúl, þá var hann ekki nógu góður og svo er heldur ekki nógu gott að kaupa unga og efnilega leikmenn.

Svo mun ég seint átta mig á þínu áliti á Steve Finnan. Ég skal veðja við þig 500 kalli að hann verður valinn í lið ársins í ensku úrvalsdeildinni. Eini möguleikinn á að bæta þá stöðu væri með Alves, en það er alveg ljóst að víst hann var dýr síðasta sumar, þá verður hann fáránlega dýr núna - sérstaklega þar sem Chelsea þurfa á hægri bakverði að halda.

Það er hægt að fara inni hvern félagaskiptaglugga með fáránlegar væntingar um að allir leikmenn, sem hafa verið orðaðir við liðið, komi. Þá munu menn hins vegar ávallt verða fyrir vonbrigðum. Sjáið bara muninn á Chelsea og manchester united síðasta sumar. Aðdáendur hvors liðsins haldiði að hafi verið ánægðari eftir sumarið? Og hverjir eru ánægðari í dag?

Einar Örn sendi inn - 25.01.07 13:07 - (Ummæli #14)

Einar - ég er ekki bandbrjálaður út í allt og alla í hverjum félagaskiptaglugganum á fætur öðrum. Einfaldlega óánægður með gang mála. Ég held maður megi vera það þegar maður hefur byggt upp væntingar við hvern gluggann á fætur öðrum.

Og ég hefði verið mjög ánægður ef Sheva og Ballack hefðu komið til liðsins. Heimsklassa leikmenn sem eiga örugglega eftir að sýna okkur það jafnvel þó gengið hafi brösuglega hjá þeim í vetur.

Ég er ekki að biðja um kraftaverk og að Henry eða Ronaldinho komi til liðsins. Ég er bara á þeirri skoðun að það sé hægt að styrkja byrjunarliðið okkar. Þá vil ég miklu frekar að keyptur sé leikmaður sem kostar kannski meira en fer beint inn í liðið.

Finnan er fínn leikmaður ekki misskilja mig eða stympla mig sem einhvern Finnan hatara. Ég hef marg oft lýst þeirri skoðun að til að styrkja gott lið (11 bestu) þurfi að koma betri leikmaður en sá sem fyrir er í liðinu. T.d. væri frábært ef það kæmi betri leikmaður en Finnan og Finnan færi á bekkinn.

Liverpool er með gott lið í höndunum. Frábæra leikmenn sem ég held mikið upp á. En liðið verður aldrei betra en þeir 11 sterkustu sem skipa byrjunarliðið. Þeir slökustu eru nú Crouch, Riise og Pennant. Í fyrra fannst mér Crouch og Finnan vera þeir slökustu.

Ég vil svo taka það fram að það hefur verið góður stígandi í leik Finnans. Um leið finnst mér hann lifandi sönnun þess að rotation systemið hans Rafa var rugl frá upphafi til enda. Finnan hefur spilað nánast alla leiki og er í geðveiku leikformi. Ef hann getur spilað alla leiki án þess að þurfa hvíld geta aðrir leikmenn það líka (ekki nema framlag hans til liðsins sé það lítið að hann þreytist ekki en það myndir þú Einar aldrei samþykkja :-) )

Ég er ennþá þeirrar skoðunar að það þurfi að kaupa leikmenn til að styrkja liðið. Ég er líka þeirrar skoðunar að það sé betri leikmaður til en Finnan og að hann sleppi aftur og aftur gagnrýnislaust í gegnum leiki. Leikmaður sem ekkert annað er hægt að segja um en að hann sé góður atvinnumaður hlýtur bara að skorta einhverja eiginleika til að spila á hæsta leveli.

Vil samt taka það fram að þrátt fyrir smá fýlu út í forráðamenn liðsins er ég bjartsýnn upp á framhaldið. Ég er til að mynda hand viss um að við sláum Barca út úr CL. Þá býð ég spenntur eftir að Kewell fari að spila og vona að liðið semji aftur við Alonso, Reina og Garcia.

Þá er ég líka viss um að ef við náum upp baráttu og sigurvilja getum við gert atlögu að enska titlinum nú í vor. Það er ekki öll nótt úti í þeim efnum en kannski besta að taka einn leik fyrir í einu.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 25.01.07 13:48 - (
Ummæli #17)

Þú svarar samt engum spurningum Hössi. Þú segir að Moores og Parry hafi enn einu sinni gert upp á bak í leikmannaglugga.

Já er það ekki. Mig minnir að í sumar hafi verið beðið eftir kaupum á hægri kantmanni. Við keyptum Pennant á 7m punda. Ágætis leikmaður - ekki heimsklassa og verður það ekki - 7. inn í enska landsliðið í sinni stöðu - allt of dýr.

Janúar fyrir ári síðan. Miklar væntingar um leikmenn - jú Fowler kom og ég fagnaði gríðarlega en ekki v.þ. að heimsklassa leikmaður var keyptur heldur af ást minni á Fowler. Sumarið þar áður - Crouch keyptur. Leikmaður sem menn gera svo litlar væntingar til að allt sem hann gerir er meiriháttar.

Daniel Alves, Simao Sabrosa, Figo, Lucas Neil og fleiri og fleiri. Allt leikmenn sem við erum orðaðir við en hverfa fyrir framan augun á okkur. Það heitir að gera upp á bak að mínu mati.

Finnst þér í alvöru að janúarglugginn bjóði upp á kaup á þessum svokölluðu "heimsklassaleikmönnum" sem eru rándýrir?

Já mér finnst allir gluggar gera það. Sumrin hafa nú ekki beint verið mikið betri.

Í fúlustu alvöru, finnst þér það raunhæft?

Ekki kannski ef við miðum við fyrri afrek á leikmannamarkaðnum. En mjög raunhæft þegar stórlið Liverpool er annars vegar.

Við erum búnir að þylja hérna upp nokkrar ástæður fyrir því að við teljum það bara alls ekki raunhæft, komdu með einhver rök á móti og dæmi um slíkt. Skora á þig.

Það var mjög raunhæft að kaupa Lucas Neil sem að mínu mati hefði gengið inn í byrjunarliðið. Svo þegar það gengur ekki upp þá er bara allt í einu ekki rökrétt að kaupa heimsklassa leikmenn?

Ég færði líka góð rök fyrir máli mínu áðan og vonandi á málefnalegan hátt. Ef það nægir þér ekki SSteinn þá verður bara að hafa það.

Er það eitthvað samt annað en draumaveröld þegar þú skoðar það sem raunhæft er? Myndu eitthvað af þessum toppliðum selja einhvern af sínum bestu leikmönnum í miðjum mótum?

Ronaldo var að ganga til AC Milan. Hefði verið til í að fá hann. West Ham var að gera góð kaup á þeirra mælikvarða. Shit happens - right?

Lifi í engri draumaveröld. Held meira að það sé mjög raunhæft að halda því fram að Liverpool eigi ekki séns á enska titlinum nema með sterkari mannskap.

Áfram Liverpool

... og Ísland!

Hössi sendi inn - 25.01.07 17:12 - (
Ummæli #23)

Þú talar enn og aftur um sumargluggann, sem ég tel vera allt annað mál en janúargluggann og hef rökstutt það dyggilega. Get alveg skilið þá sem vilja kaupa "heimsklassa" að þeir séu svekktir með útkomuna úr sumargluggunum. Það var bara alls ekki það sem málið snerist um. Þú varst að tala um að menn hafi NÚNA verið að drulla upp á bak.

Þú hefur enn ekki svarað spurningunni með hvaða "heimsklassa" leikmenn hafa verið að ganga kaupum og sölum í janúargluggum. Er Lucas Neill heimsklassa? Ef svo er þá er mitt mat á heimsklassa greinilega alveg hrikalega skrítið. Ronaldo? Ertu virkilega að tala um að við séum þannig staddir í dag að hann sé það sem þarf í okkar lið fyrir stjarnfræðilegar fjárhæðir? Er hann ennþá flokkaður í "heimsklassa"? Er hann ekki svipaður og Fernando með það að Real M geta ekki notað hann, búinn að vera meiddur eins lengi og minni hans nær, og hefur verið unfit í nokkur ár?

Er mælikvarðinn á góð kaup West Ham þau sömu og okkar?

Ég er sammála því að við þurfum sterkari mannskap til að gera góða atlögu að titlinum (þó ég gefi aldrei upp vonina í ár). En það var einfaldlega ekki pointið. Pointið var hversu raunhæft það er að fá þessa svokölluðu "heimsklassa" leikmenn inn í janúarglugganum. Fyrir því færði ég fram mörg rök og hef ég ekki ennþá séð neitt hjá þér sem hrekur þau. Þú heldur bara áfram að hlaupa í kringum það og vísar bara tilbaka í sumargluggana og vonbrigði þín með þá.

SSteinn sendi inn - 25.01.07 17:31 - (
Ummæli #24)

Hössi, þú hefur einstakleg selective minni. Rifjar bara upp það slæma, en sleppir öllu góða.

Janúar fyrir ári síðan. Miklar væntingar um leikmenn - jú Fowler kom og ég fagnaði gríðarlega en ekki v.þ. að heimsklassa leikmaður var keyptur heldur af ást minni á Fowler. Sumarið þar áður - Crouch keyptur. Leikmaður sem menn gera svo litlar væntingar til að allt sem hann gerir er meiriháttar.

Eeeeeh, Daniel Agger var líka keyptur. Ef hann er ekki dæmi um leikmenn sem við viljum sjá hjá Liverpool, þá veit ég ekki hvað

Sumarið þar áður - Crouch keyptur. Leikmaður sem menn gera svo litlar væntingar til að allt sem hann gerir er meiriháttar.

Auk Crouch var nú líka keyptur Pepe Reina og Momo Sissoko. Ekki svo slæmir. Af hverju horfum við svo ekki eitt ár í viðbót og sjáum kaupin á Xabi Alonso. Eða í sumar Dirk Kuyt.

Daniel Alves, Simao Sabrosa, Figo, Lucas Neil og fleiri og fleiri. Allt leikmenn sem við erum orðaðir við en hverfa fyrir framan augun á okkur. Það heitir að gera upp á bak að mínu mati.

Já, en hvað með alla leikmennina SEM KOMU til liðsins. Það er ekki hægt að ætlast til að allir sem við erum orðaðir við komi til liðsins. Það eru hjá öllum liðum milljón dæmi um leikmenn sem þeir vilja fá en fá ekki. Alveg sama lið hvað við erum að tala um. Chelsea hafa ekki geta keypt Baros og Ben Haim í þessum glugga, manchester united hafa ekki getað keypt Hargreaves og Arsenal hefur ekki geta keypt Ribery. Eru allir stjórar þessara lið að skíta uppá bak?

Einar Örn sendi inn - 25.01.07 18:29 - (Ummæli #25)

Hvaða djöfulsins rugl er þetta. Sigursteinn skrifar pistil þar sem allt í einu er komið það hljóð í skrokkinn að við eigum að vera raunsæir og að við getum ekki búist við að heimsklassa leikmenn komi til liðsins. Svo eigum við bara að vera sáttir því önnur lið eru ekki að kaupa neitt heldur.

Og ekki segja að ég rökstyðji ekki mál mitt Sigursteinn. Ég gerði það á mjög málefnanlegan hátt án þess að gera lítið úr skoðunum annarra. Ég legg til að þú lesir svörin - andir aðeins - og lesir svo aftur.

Ég skal segja þér hver mín skoðun er á mjög einfaldan hátt.

  1. Liverpool liðið er gott en ekki nógu gott til að berjast um alla titla - sérstaklega enska titilinn. Gengi liðsins í vetur sannar það þegar væntingar voru til annars. Ég mun ekki rökstyðja þetta nánar en vísa bara á stöðuna í deildinni og fjölda þeirra keppna sem við erum enn í.

  2. Til að liðið geti keppt um enska titilinn er sterkur leikmannahópur það sem til þarf. Við þurfum sterkari leikmenn til þess. Þeir kosta peninga og vil að keyptir séu leikmenn sem fara inn í byrjunarliðið. Ég mun heldur ekki rökstyðja þetta nánar. Þetta er mín skoðun og ég held að þetta sé rétt hjá mér.

  3. Raunhæft eða ekki. Í nóvember og desember voru allir sem skrifa hér á blogginu sammála um að það yrði að kaupa leikmenn í janúar. Svo þegar ljóst er að Neill er genginn okkur úr greipum þá allt í einu áttum við bara alls ekki að hafa þessar væntingar. Ég var þeirrar skoðunar að hann myndi styrkja liðið. Hann var fyrirliði Blackburn sem er ágætt lið. Hann var frábær á HM og mun líklegri til afreka en maðurinn sem hann átti að leysa af hólmi.

  4. Heimsklassa. Lucas Neill - já að mínu mati. Ronaldo - ég bara trúi því ekki að það séu til Liverpool áhangendur sem vilja ekki hafa Ronaldo í liðinu sínu. Það ganga allir leikmenn í gegnum meiðsli og down tímabil. Dæmi - Harry Kewell, Scholes, Giggs o.fl. Það er alveg á hreinu að Ronaldo í formi er MIKLU betri en senterarnir sem eru fyrir hjá Liverpool. MIKLU - ég fullyrði það. Ef þið viljið ekki Ronaldo þá er endanlega ljóst að væntingar mínar og ykkar kæru spjallstjórnendur til liðsins eru allt aðrar. Ég er þeirrar skoðunar að leikmaður sem einu sinni hefur sýnt að hann getur spilað á hæsta leveli er MIKLU líklegri til að gera það aftur en sá sem aldrei hefur gert það. Scholes og Giggs eru að mínu mati bestu dæmin um það en ekki er langt síðan þeir voru nánast afskrifaðir hjá manutd. Ég vildi reyndar á þeim tíma fá Giggs til Liverpool en mætti harðri andstöðu hér á spjallinu. Ég vildi líka fá Eið Smára til liðsins en mætti líka harðri andstöðu. Örugt í mínum huga að allir þessir leikmenn myndi styrkja byrjunarlið Liverpool í dag.

  5. Gera upp á bak. Ég var beðinn að útskýra af hverju ég taldi að þeir hefðu gert upp á bak. Ég færði rök fyrir því og taldi upp nokkra leikmenn sem voru alveg við það að koma til liðsins en hurfu fyrir framn augun á okkur. Svo segir Einar - af hverju telurðu ekki upp það góða. Útúrsnúningur og ekkert annað. Ég minntist á bæði Kuyt og Agger í fyrri svarpóstinum mínum. Alveg á hreinu að þeir voru góð kaup og það sama má segja um kaupin á Sissoko, Alonso, Garcia o.fl. En bíðið nú aðeins er ekki búin að vera umræða um að við þurfum HÆGRI KANTMANN og SENTER til að styrkja liðið okkar. Jú Kuyt kom í staðinn fyrir Morientes og Cisse sem fundu sig ekki en eru þetta ekki ennþá þær stöður sem við þurfum að bæta? Ætlið þið að segja mér að eftir væntingar um kaup á þessum leikmönnum nú í að verða 2-3 ár séu bara hjá mér en ekki öðrum áhangengum liðsins. Það er bara ekki rétt og ekki segja mér núna að leikmannagluggarnir hvort þeir séu í janúar eða um sumarið hafi ekki verið viss vonbrigði upp á síðkastið.

  6. Moores og Parry. Moores tók við liðinu 1991 eða 1992 sem eigandi. Frá þeim tíma höfum við ekki unnið enska titilinn. Það er löngu ljóst að hann hefur ekki fjármagn til að koma liðinu lengra. Nú er hann að selja liðið og mér finnst það hið besta mál. Vonandi ná nýjir eigendur að lyfta liðinu á hærra plan. Parry - kom til liðsins einhverntíman í kringum 1998. Enga reynslu af fótbolta að mig minnir en mikill markaðsmaður. Menn eins og Peter Kenyon - Frank Arnesen o.fl ganga kaupum og sölum milli liða af því að þeir eru fremstir í sín fagi. Parry er það ekki að mínu mati því miður. Ég skal þó viðurkenna að ég hef ekkert annað fyrir mér í þessum efnum annað en það að mér hefur fundist illa ganga að semja við leikmenn. Ferlið of langt og við dregnir á asnaeyrunum eins og dæmin með Sabrosa, Alves og nú Neill sanna. Ég kenni Parry um það en kannski er það ósanngjarnt af mér.

Ég vona að ég hafi rökstutt mál mitt á málefnalegan hátt. Ég vil bara enn og aftur taka það fram að Liverpool liðið er mjög gott og með góða leikmenn innanborðs. Vonandi tekst að vinna úr þeim mannskap sem er fyrir hendi og fleiri titlar bætast í safnið.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 26.01.07 10:47 - (
Ummæli #28)

Ekkert rugl Hössi minn og ennþá held ég að þú skiljir ekki pistilinn sem ég skrifaði. Ég tel að það sé afar erfitt og nánast útilokað að fá til sín heimsklassa menn í janúarglugganum og fyrir því var ég að færa rök.

Legg til að þú notir það sem þú ráðlagðir mér, lesir yfir - andir aðeins - og lesir svo aftur.

  1. Sammála

  2. Sammála

  3. Allir sem skrifuðu hér á blogginu?!?! Ég taldi eins og margir að Neill yrði góður í hópinn (þrátt fyrir að líka hann ekki vel). Hann og hans félag voru í aðstöðu eins kemur fram í lið 1 og 2 hjá mér í upphaflega pistlinum. Af því var séns að fá hann. Að hann sé maður af því kaliber að hann yrði næst launahæsti leikmaður liðsins sem squad player, það skil ég vel að menn sem stjórna þessum málum hafi ekki fallist á. Við vitum þitt álit á Finnan og þar liggur líklega mergur málsins er varðar Neill. Ég tel (og greinilega Liverpool líka) að hann yrði fyrst og fremst sterkur kandítat að veit Finnan keppni um stöðuna og yrði squad player.

  4. Lucas Neill - verðum greinilega ekki sammála um það. Ronaldo - klárlega þegar hann er upp á sitt besta. Hann hefur ekki verið það ansi lengi, er búinn að vera of þungur, mikið í meiðslum og vandræði hjá honum hjá Real Madrid. Ber ég virðingu fyrir honum og hans afrekum? Klárlega, og það mjög mikla. Tel ég að hann henti Liverpool og enska boltanum? Klárlega ekki (þó maður geti aldrei sagt um slíkt fyrirfram). Það byggi ég upp á því út á hvað hans leikur snýst um. Hann verður seint talinn til duglegri framherja í boltanum. Einn af hans helstu löstum í gegnum tíðina hefur verið leti á vellinum. Hann hefur hentað vel þar sem menn fá meiri tíma á boltann eins og á Ítalíu og á Spáni. Boltinn á Englandi er miklu hraðari og höfum við oft séð menn sem hafa ekki höndlað hann. Fernando Morientes er t.d. gott dæmi um góðan framherja sem einfaldlega passaði ekki inn í þennan bolta og samt sem áður vann hann mjög vel. Það er einfalt að taka dæmi um Giggs og Scholes, menn sem þekkja ekkert annað en enska boltann. Ég sem sagt hefði ekki viljað setja mikið fjármagn í þá áhættu að skoða hvort Ronaldo hefði plummað sig eða ekki, fyrst og fremst út af ofangreindu. Þetta snýst ekki um væntingar til liðsins, þetta snýst um það hvað menn telji henta liðinu og hvað ekki.

  5. Það getur vel verið og kannski skiljanlegt að menn hafi ekki verið að fullu sáttir við leikmannakaup undanfarin ár. Þú ert samt ennþá ekki að gera greinarmun á þessum tveim félagaskiptagluggum sem ég er að leggja áherslu á, og hefur ennþá ekki komið með svör við þeim rökum mínum. Heldur viltu áfram þvæla málið og blanda öllu öðru inn í það.

  6. Parry ekki komið nálægt fótbolta fyrr en hann kom til Liverpool? Þú viðurkennir reyndar síðan að þú hafir akkúrat ekkert fyrir þér í þessum efnum, sem er alveg hárrétt hjá þér :-) Og ég er þér algjörlega ósammála með dæmin sem þú tekur fyrir, þ.e. Alves, Simao og Neill. Við létum einmitt ekki draga okkur á asnaeyrunum, heldur sögðum stopp þegar menn byrjuðu að reyna það. Og þakka ég Parry og Rafa fyrir það. Það þýðir ekkert að yfirborga fyrir mann og annann og fara svo að háskæla yfir því að alltaf þegar boðið er í menn eftir það, þá hækki verðmiðinn upp úr öllu valdi, nákvæmlega það sem hefur gerst hjá Chelsea.

Við erum svo sammála um lokapunktinn hjá þér, fyrir öllu er að þetta lið okkar verði það gott að það haldi áfram að sópa að sér titlum og nái hinum langþráða Englandsmeistaratitli.

SSteinn sendi inn - 26.01.07 12:40 - (
Ummæli #30)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool - Chelsea 2-0
·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·L'pool 3 - Bolton 0

Leit:

Síðustu Ummæli

SSteinn: Ekkert rugl Hössi minn og ennþá held ég ...[Skoða]
Hössi: >Ef þér líður svona illa með að bjóða ve ...[Skoða]
Hössi: Hvaða djöfulsins rugl er þetta. Sigurste ...[Skoða]
Kristján Atli: Hössi, ég skil vel löngun þína til að sj ...[Skoða]
SSteinn: Nákvæmlega Einar, bottom line-ið er það ...[Skoða]
Einar Örn: Hössi, þú hefur einstakleg selective min ...[Skoða]
SSteinn: Þú talar enn og aftur um sumargluggann, ...[Skoða]
Hössi: >Þú svarar samt engum spurningum Hössi. ...[Skoða]
Vargurinn: þessir svokölluðu heimsklassaleikmenn se ...[Skoða]
SSteinn: Þú svarar samt engum spurningum Hössi. ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Barca
· 9-0
· Nýr Serrano
· Ekki mjög glöggur þessi
· Diao farinn (Neeeeeeei)
· Þurfum við viðbætur?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License