beach
« Warnock til Blackburn (STAÐFEST) | Aðalsíða | Ungur Hollendingur til Liverpool (Staðfest) »

23. janúar, 2007
Titilvonir

Yfirleitt er ég gæjinn sem skrifar hérna inn með glasið hálffullt, og sem slíkur hef ég oft átt fullt í fangi með að verja liðið og aðstandendur þess fyrir því sem mér hafa þótt vera frekar óverðskuldaðar og/eða ýktar gagnrýnisraddir. Í dag ætla ég hins vegar, að gefnu tilefni, að venda kvæði í kross og benda mönnum á hve mikið vantar uppá annars hálffullt glasið.

Um helgina vann Liverpool nokkuð auðveldan, mjög sannfærandi og algjörlega frábæran sigur á Chelsea í deildinni. Í kjölfarið vann Arsenal sigur á manchester united svo að forskot þeirra síðastnefndu á Liverpool fór úr fjórtán stigum niður í ellefu, á meðan forskot Chelsea minnkaði úr átta niður í fimm. Arsenal eru sem fyrr heilu stigi á eftir okkur, en við úrslit helgarinnar gerðist það að bilið á milli tveggja efstu liðanna annars vegar og næstu tveggja liða minnkaði um þrjú stig.

Þegar Liverpool tapaði tvisvar fyrir Arsenal fyrir hálfum mánuði síðan (virðist langur tími í dag, er það ekki?) kepptust menn bæði á þessari síðu og um víða veröld við að úthrópa allt sem sneri að klúbbnum. Rafael Benítez var búinn að “missa’ða” á meðan annar hver leikmaður liðsins var ómerkilegri en skíturinn undir skóm netspjallara. Dagana eftir þessa tapleiki kepptist ég við að benda mönnum á að liðið væri ekki fullkomið, en samt langt því frá að vera jafn stórkostlega lélegt og sumir vildu meina.

Tvær vikur eru langur tími í knattspyrnu. Tæpum fjórtán dögum eftir að Thierry Henry innsiglaði vandræðalegan sigur á okkar mönnum á Anfield mætti þetta sama rauðklædda lið útá sama völlinn og hreinlega skúraði gólfið (grasið?) með Englandsmeisturum Chelsea. Bæði lið voru án jafn margra lykilmanna en þó vantaði alla miðverði Chelsea, en það eitt og sér skýrir ekki getumuninn á liðunum á laugardaginn.

Þannig að í kjölfarið hafa menn reynt að útskýra þetta. Er Liverpool virkilega svona gott lið? Er liðið best í heimi? Er Rafael Benítez hinn eini sanni “The Special One,” og José Mourinho bara aumingi? Svarið við þessu öllu er: róið ykkur og leyfið fótunum að snerta jörðina á ný. José Mourinho, sami maður og hefur rúllað Úrvalsdeildinni upp sl. tvö tímabil, varð ekki ömurlegur þjálfari um helgina. Hann er enn frábær þjálfari, en eins og allir aðrir þjálfarar er hann að upplifa lægð á sínum ferli sem stjóri Chelsea. Ekkert virðist ganga honum í hag og eins og hann hafi ekki um nóg að hugsa innan vallar er allt í uppnámi utan hans líka, og enska pressan er fljót að gera sér mat úr honum.

Síðastliðið sumar var það Sir Alex Ferguson sem var búinn að vera. Þá var það Arsene Wenger, sem gerði alltof mörg jafntefli í haust, og svo kom röðin að okkar manni sem var alveg ómögulegur. Nú skyndilega virðist José Mourinho vera til þess eins nytsamlegur að gera grín að. Hve fljótt hlutirnir breytast, og ef menn vilja missa allt samband við raunveruleikann er nóg að láta ginnast af fyrirsögnum athyglissjúkra blaðamanna í Englandi.

Dæmi: Benítez leggur ráðin á titilsigur (Guardian)

Já, ég veit og ég man. Ég veit að Rafa Benítez er þjálfari sem gefst aldrei upp, og ég man að tvisvar á þremur árum stýrði hann Valencia-liðinu á Spáni til ótrúlegs endaspretts í baráttunni um titilinn þar í landi. Ég veit, og ég man. Ég veit líka að hann var margsinnis afskrifaður með Liverpool í Evrópu vorið 2005, og ég man hversu vel hann tók sig út með hendur á “Big Ears” í Istanbúl.

En þetta er ný keppni, nýtt ár og ný tækifæri. Tækifæri til að skapa nýjan kafla í glæsta sögu klúbbsins, en um leið tækifæri til að klúðra öllu. Línan á milli er stundum hárfín, en hún er þarna.

Bjartsýnismaðurinn í mér segir að það sé vel hægt að ná manchester united og Chelsea og sigra Úrvalsdeildina vorið 2007. Það er hægt, og annað eins hefur nú gerst. Og Rafa hefur algjörlega, óumdeilanlega rétt fyrir sér í því að á meðan það er stærðfræðilegur möguleiki á liðið hans alls ekki að gefa upp vonina.

En hvað með okkur hina? Eru menn farnir að hugsa um þetta sem titilbaráttu, eða erum við enn bara að setja stefnuna á Chelsea í öðru sætinu?

Arsenal eru stigi fyrir aftan okkur, Chelsea fimm á undan og United ellefu á undan. Málið er að leiðin til að halda Arsenal fyrir aftan okkur er sú sama og leiðin til að ná Chelsea og United. Til að eitthvað jákvætt gerist í þessum málum þarf liðið að halda áfram að vinna sigra. Og til að sigra í fjórtán leikjum af fjórtán þarf að taka hvern þeirra fyrir sig og meðhöndla viðkomandi leik sem algjöran úrslitaleik.

Rafa hefur oft rétt fyrir sér, en sjaldan hefur hann verið jafn spakur og þegar hann tönnslast á því að hann sé bara að hugsa um næsta leik. Við erum öll að horfa á blessaðan Englandsmeistaratitilinn, þann sem hefur verið í sautján ára útlegð frá Merseyside. Leikmennina dreymir hann, Rafa þráir hann og við hin lifum fyrir að sjá hann snúa aftur í hendur fyrirliða Liverpool. Og hver veit, kannski gerast kraftaverkin enn? Kannski er það árið í ár?

Líklegast ekki, samt. Það er einfaldlega ómögulegt um að segja á þessu stigi málsins. Það eina sem hægt er að gera er að taka fyrir einn leik í einu og vinna þann leik. Næsti úrslitaleikur Liverpool er eftir rúma viku gegn West Ham, á útivelli, og hann verður að vinnast.

Þið hin megið, ef þið viljið, láta ykkur dreyma um titilinn í vor. Það er ekkert óhollt við að láta sig dreyma, eins lengi og draumarnir hafa ekki óraunhæf áhrif á raunverulegar vonir og væntingar manna. Ég ætla að halda fótunum á jörðinni og minna sjálfan mig á að þetta sama lið og vann Chelsea um helgina tapaði tvisvar fyrir Arsenal fyrr í sama mánuði. Þetta tímabil getur vissulega brugðið til beggja vona, eins og leikir mánaðarins hafa sýnt okkur.

Einn leikur í einu. Ég hlakka til næsta leiks, og svo sjáum við til.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 08:23 | 993 Orð | Flokkur: Vangaveltur
Ummæli (10)

Ég veit ekki alveg hvernig á að skilja þetta með hálffulla og hálftóma glasið. Ég held að við sem erum óhressir með gengi liðsins í vetur séum ekki bölsýnismenn eða niðurrifsseggir. Við erum einfaldlega óánægðir með gengi liðsins þegar síðasti vetur gaf tilefni til mikilla væntinga fyrir þetta tímabil.

Það er alveg á hreinu að liðið mun vinna 70-80% af öllum leikjum sínum. Liðið mun einnig vinna flest ef ekki öll liðin á heimavelli. Mér finnst mjög ósanngjarnt að við sem vorum óánægðir með að falla úr tveim keppnum á einni viku fyrir liði sem er neðar en við á stigatöflunni og það á heimavelli séum með glasið hálftómt. Ég sem leyfi mér að sveiflast tilfinningalega með gengi liðsins ætla bara að fá að vera óánægður í friði þegar við töpum og sæll og glaður þegar við vinnum.

Gengi liðsins hingað til hefur verið vonbrigði. Við getum allir verið sammála um það. Ég hins vegar vona innilega að við sláum Barcelona út úr CL og gerum harða atlögu að enska titlinum.

Við erum með frábært lið sem getur unnið allt á góðum degi. Vandamálið er að 2-3 önnur lið eru með sterkari mannskap en við. Líkurnar á að þau lið vinni eru því meiri en okkar.

Af því að ég er maður með hálffult glasið ætla ég að leyfa mér að gera miklar væntingar til liðsins. Nú vinnum við nánast rest og vinnum enska titilinn. Síðan kjöldrögum við Barcelona á heimavelli eftir 1-0 tap á Spáni.

Í lífinu er ég raunsær maður með báðar fætur á jörðinni en þegar kemur að Liverpool læt ég tilfinningarnar ráða för. Þannig verður það bara.

Áfram Liverpool!

Hössi sendi inn - 23.01.07 12:00 - (
Ummæli #5)

á Liverpool.is spjallinu var ég að skoða þá leiki sem liðin eiga eftir og gerði mér glaðan dag og spáði fyrir um úrslit.

hérna er linkur http://www.liverpool.is/forum/tm.asp?m=329329

annars er þetta mín spá um lokastöðu

1.Man. Utd 38 83 Stig
2.Chelsea 38 82 Stig 3.Liverpool 38 80 Stig þriðja á markatölu 4.Arsenal 38 80 Stig

Kiko sendi inn - 23.01.07 12:25 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool - Chelsea 2-0
·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·L'pool 3 - Bolton 0

Leit:

Síðustu Ummæli

eiki: Það er ljóst að Rafa er klár í stærðfræð ...[Skoða]
Jón H: Ég er ekki búinn að gleyma hvernig Arsen ...[Skoða]
Slordóninn: Bara af því þetta eru pínku pollýönnuleg ...[Skoða]
Kiko: á Liverpool.is spjallinu var ég að skoða ...[Skoða]
Sigtryggur Karlsson: :-) Eins og allavega sumir vita þ ...[Skoða]
Hössi: Ég veit ekki alveg hvernig á að skilja þ ...[Skoða]
einare: Held langflestir aðdáendur með einhverju ...[Skoða]
Aggi: Ég er alltaf bjartsýnn en einnig raunsær ...[Skoða]
Ólafur: Góður pistill Kristján - ég er sammála þ ...[Skoða]
Kristinn J: Auðvitað er alltaf sjens. ManU á erfitt ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Þurfum við viðbætur?
· Ungur Hollendingur til Liverpool (Staðfest)
· Titilvonir
· Warnock til Blackburn (STAÐFEST)
· United eða Arsenal?
· Liverpool - Chelsea 2-0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License