beach
« Byrjunarliðið gegn Chelsea | Aðalsíða | United eða Arsenal? »

20. janúar, 2007
Liverpool - Chelsea 2-0

kuytpennant_al_g.jpg

Jæja LOKSINS LOKSINS sögðu skáldin og á það við núna… öruggur sigur á Chelsea og héldum markinu hreinu!

Það er ekki hægt að segja annað en ég hafi bara verið ánægður með byrjunarliðið sem Rafa stillti upp, hraði í vörninni en jafnframt líkamlegur styrkur.

Reina

Finnan - Carragher - Agger - Riise

Pennant - Gerrard - Alonso - Aurelio

Crouch - Kuyt

Bekkurinn: Dudek, Bellamy, Hyypia, Gonzalez, Fowler.

Fyrir leikinn hafði ég það á orði að það lið sem myndi skora fyrr í leiknum myndi vinna sérstaklega í ljósi þess að þegar Liverpool lendir undir töpum við (á þessu tímabili). Hins vegar var það á hreinu þegar maður sá byrjunarlið Chelsea að ef við myndum ekki vinna þá í dag þá vinnum við þá aldrei! Geremi - Feirrera - Essien - Cole í vörninni!!! Ekki einn einasti eiginlegur miðvörður og enda kom það á daginn að það vantaði mikið! En lítum á byrjunarliðið þeirra:

Chech

Geremi - Feirrera - Essien - Cole

Kalou - Ballack - Mikel - Robben
Lampard
Drogba

Við byrjuðum þennan leik fantavel og skoruðum strax á 3 mín., var þar að verki Dirk Kuyt með gott framherja mark. Það kom há sending á Crouch sem skallaði boltann aftur fyrir sig, þar tók Kuyt við knettinum. Hann stóð af sér Feirrera og Geremi og setti boltann örugglega framhjá Cech í markinu! 1-0 og nóg eftir af leiknum.

Eftir markið óðum við í færum og m.a. átti Riise dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Alonso en tók illa á móti boltanum og skot með hægri fæti var slakt. Eftir sem áður var algjör einstefna í upphafi leiksins og spiluðum við “vörnina” þeirra illa trekk í trekk. Það kom að því að eitthvað myndi gefa eftir og kom markið frá næstum ólíklegasta leikmanni Liverpool eða Pennant en hann tók boltann niður rétt fyrir utan teig og hamraði knettinum sláinn inn! Frábært mark og gott fyrir hann að skora svona mark og í þessum leik.

2-0 og ennþá aðeins um 20 mínútur liðnar af leiknum.

Chelsea gerði snemma breytingu á sínu liði í fyrri hálfleik vegna meiðsla Robben og kom þá Shaun Wright-Phillips inná. Leikurinn datt aðeins niður eftir seinna markið en Chelsea átt samt aldrei nein hættuleg færi í fyrir hálfleik. 2-0 í hálfeik og mjög sanngjörn staða!

Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik. Við sóttum á færri mönnum á meðan vörnin hjá Chelsea með Essien fremstan í flokki stóð sig mun betur. Crouch átti að fá víti eftir frábært skot Riise í slána en þá fór Essien vel undir risann en ekkert dæmt. Kuyt fékk einnig dauðafæri eftir sendingu frá Gerrard en skaut rétt yfir markið.
Chelsea fékk aldrei nein hættuleg færi í leiknum og voru mjög ósannfærandi en enginn spilar betur en andstæðingurinn leyfir! Við spiluðum einfaldlega vel í dag, allstaðar á vellinum.

Vörnin var öflug með Carragher fremstan í flokki, miðjan var sterk þar sem Alonso stjórnaði spilinu ótrúlega vel og frammi vann Kuyt á við tvo menn. Það var einnig gaman að sjá hvernig Aurelio og Riise skiptu með sér verkum á kantinum og bakverðinum.

Þessi sigur gefur liðinu mikið sjálfstraust og vonandi verður áframhald á svona frammistöðu. Lið spilaði sem ein heild og barðist eins og ljón. Núna erum við 5 stigum á eftir Chelsea og 11 stigum á eftir manchester united (þeir eiga leik inni á morgun gegn Arsenal).

Maður leiksins: Mér fannst heilt yfir allt liðið leika vel og má segja að klisjan að velja liðsheildina eigi vel við hérna en ég ætla að taka út Jamie Carragher fyrir klókann varnarleik og halda Drogba niðri næstum allan leikinn. Góður leikmaður og frábær caragh(t)er!

.: Aggi uppfærði kl. 12:39 | 602 Orð | Flokkur: Leikskýrslur
Ummæli (26)

Fyrir þá sem sáu ekki leikinn. Markði hans Pennant er hérna og hérna er markið hans Kuyt

Einar Örn sendi inn - 20.01.07 16:52 - (Ummæli #4)

Ég minntist einmitt á þetta við vin minn þegar við horfðum á leikinn. Svona tveim sekúndum eftir að Pennant skoraði þá kom Willum með "hann er stöðugt að bæta sig" um Pennant í sama muldur tóninum og hann er stöðugt með.

Nú þekkti ég Willum, þar sem hann þjálfaði mig í handbolta og ég heyrði hann afar sjaldan tala með þesari lágstemmdu rödd. Skil þetta ekki almennilega.

Berið þetta saman við Andy Gray í Kuyt markin. Gray er color commentator hjá Sky, svona svipað og Willum er hjá Skjá Sport. Hann er eins langt frá því að vera Liverpool maður einsog hægt er, en samt er hann enn æstur og heldur stemningunni áfram uppi eftir markið.

Sammála um að þulirnir drápu niður stemninguna í leiknum, en mér fannst þeir þó alls ekki halla á annaðhvort liðið.

Einar Örn sendi inn - 21.01.07 16:16 - (Ummæli #23)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Liverpool - Chelsea 2-0
·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·L'pool 3 - Bolton 0

Leit:

Síðustu Ummæli

Villi Matta.: Þvílík stemming á Anfield, ég fer aftur ...[Skoða]
Doddi: Að mínum dómi eru einmitt Höddi Magg og ...[Skoða]
Júlli: Það fer reyndar meira í taugarnar á mér ...[Skoða]
Einar Örn: Ég minntist einmitt á þetta við vin minn ...[Skoða]
Kristján Atli: Varðandi lýsinguna á SkjáSport í gær, þá ...[Skoða]
peppi: já þvílígt skot vá átti að enda inni :b ...[Skoða]
Davíð: Bara gaman, þeir áttu aldrei séns þó að ...[Skoða]
Árni: Willum er náttúrulega Chelskí maður... o ...[Skoða]
Kristinn J: Einmitt, stutt síðan einhver snillingur ...[Skoða]
Toni: Það er alltaf jafn fyndið þegar þulir sk ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Þurfum við viðbætur?
· Ungur Hollendingur til Liverpool (Staðfest)
· Titilvonir
· Warnock til Blackburn (STAÐFEST)
· United eða Arsenal?
· Liverpool - Chelsea 2-0

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License